Tíminn - 13.03.1976, Qupperneq 11
Laugardagur 13. marz 1976
TÍMINN
11
— ÞETTA var gífurleg upplifun, sagði Albert Guð-
mundsson, hinn 17 ára efnilegi knattspyrnumaður úr
Val, sem er nýkominn heim frá London, þar sem hann
æfði með Arsenal í fjórar vikur, ásamt Herði Antonssyni
úr Fylki. — öll aðstaða til æfinga var stórkostleg og and-
inn hjá félaginu var frábær.
— Allar æfingarnar fóru fram á
grasi, bæði á Highbury og æfinga-
svæði Arsenal, sem er fyrir utan
London. Þar er aðstaðan stór-
kostleg — 12-15 grasvellir og veg-
legt hús, sem leikmenn hvildust i
á milli æfinga, sagði Albert.
„Barónarnir” höfðu
sér klefa
— Fenguð þið að æfa með aðal-
liðinu?
— Nei, með þvi æfðu eingöngu
stóru stjörnurnar, eða „barón-
arnir”, eins og leikmenn Arsenal-
liðsins eru oft kallaðir. Það er
stéttaskiptir.g hjá Arsenal, eins
og sést á þvi, að ungir leikmenn
liðsins fá ekki að nota sama bún-
ingsklefa og hinir eldri og reyndu
leikmenn. Þetta er örugglega
gömul hefð, þvi að það kom mér
nokkuö á óvart, að strákar eins og
Frank Stapleton, Trevor Ross,
Richie Powling og Lima Brady —
allt leikmenn, sem hafa leikið
með aðalliðinu, klæða sig úr með
varaliðinu og æfa með þvi. En
aftur á móti fær Eddie Kelly,
fyrrum fyrirliði Arsenal, sem
leikur nú með varaliðinu, að
klæða sig úr með leikmönnum
aðalliðsins, þótt að hann æfði með
varaliðinu. Þetta sýnir, að þeir
leikmenn, sem komizt hafa inn i
aðalbúningsklefann, fá að halda
sæti sinu þar, þótt þeir séu ekki
lengur i aðalliðinu.
Andinn var
mjög góöur
— Þið hafið þá æft með varalið-
inu?
— Já, við æfðum með varalið-
inu og unglingaliðinu, ásamt fjöl-
mörgum strákum,sem aldir hafa
verið upp hjá Arsenal og fleiri
strákum sem eru i reynslu.
— Hvað æfðuð þiö oft á dag?
— Það var æft tvisvar sinnum á
dag — i tvo tima fyrir hádegi og
einn tima eftir hádegi. Æfingar
þessar voru flestar boltaæfingar
og mjög fjölbreytilegar. Andinn
var góður hjá leikmönnunum,
sem voru mjög ánægðir að vera
hjá Arsenal. Þjónustan var öll
mjög góð. — Læknar voru til taks
á æfingunum, til að gera að smá-
meiðslum leikmanna. Þá voru
allir æfingabúningar teknir eftfr
æfingarnar og þvegnir, þannig að
þeir voru tilbúnir hreinir fyrir
æfinguna daginn eftir.
— Fannst þcr ungu strákarnir
hjá Arsenal betri heldur en jafn-
aldrar þcirra hér?
— Nei, ekki get ég sagt það.
Strákarnir, sem höfðu leikið með
aðalliðinu báru af, en hinir voru
ekkert betri en strákar á sama
aldri hér heima. Það er ekki að
efa, að ef islenzkir strákar fengju
sömu aðstöðu og strákarnir hjá
Arsenal, þá gætu þeir orðið stór-
góðir leikmenn, t.d. i Englandi.
Var oft spurður
um Albert
Albert sagði, að allar móttökur
hjá Arsenal hefðu verið mjög
góðar — eins og bezt var kosið.
Nei, það var ekkert talað um
þorskastriðið, þarsem við Hörður
vorum — enda veit enskur al-
menningur greinilega ekkert um,
að Islendingar og Bretar séu að
kljást á miðunum við Island, og
að Islendingar hafi slitið stjórn-
málasambandi við Breta, sagði
Albert.
— Já, ég var oft spurður um Al-
bert Guðmundsson, nafna minn.
Aðdáendur Arsenal muna vel eft-
ir honum, siðan hann lék með
Arsenal, enda sögðu þeir, að hann
hafi verið frábær knattspyrnu-
maður, einn sá bezti, sem hefur
klæðzt búningi Arsenal, sagði Al-
bert.
„Við ætlum okkur til
Ungverjalands”
Albert er nú byrjaður að æfa af
ALBERT GUÐMUNDSSON...var kallaður „Gud” hjá Arsenal, eða
eins og nafni hans Albert Guðmundsson, fyrrum formaður K.S.I.,
þegar hann lék með Arsenal-liðinu við frábæran orðstir 1946.
(Timamynd Gunnar)
fullum krafti með Valsliðinu, og
þar að auki æfir hann með ungl-
ingalandsliðinu, sem leikur gegn
Luxemborgarmönnum i undan-
keppni Evrópukeppni unglinga-
landsliða 14. april i Reykjavik.
íslenzku strákarnir sigruðu Lux-
emborg 1:0 i Luxemborg sl. sum-
ar og skoraði Albert sigurmarkið.
Þeir þurfa þvi aðeins jafntefli
gegn Luxemborg til að tryggja
sér sæti i úrslitakeppninni, sem
fer fram i Ungverjalandi ,i lok
mai.
— Þið ætlið ykkur að komast til
Ungverjalands?
— Já, það ætlum við okkur, og
við ætlum okkur að ná langt i úr-
slitakeppninni.
Óttast mest Akranes og Fram
— En Valsliðiö, ertu bjartsýnn
á árangur liðsins i sumar?
— Já, Valsliðið verður sterkt i
sumar — sterkara heldur en það
var sl. sumar. Ahuginn er mikill
hjá strákunum, sem æfa mjög
vel, og við ætlum okkur stóra
hluti — sigra bæði i 1. deildar
keppninni og bikarkeppninni.
— Hvaða lið ertu hræddastur
við?
— Skagamenn og Framarar
verða hættulegustu keppinautar
okkar, þeir verða með sterk lið.
Eg reikna nieð, 'að baráttan
standi á milli Vals, Fram og
Akraness, sagði Albert að lokum.
— SOS
Hugurí
knattspyrnu-
mönnum á
Blönduósi
Það er mikill hugur i
knattspyrnumönnum hér
sagði Hilmar Kristjánsson á
Blönduósi i viðtali við
iþróttasiðuna. Við höfum til-
kynnt að lið frá Ungmenna-
sambandi Austur-Húnvetn-
inga taki þátt i þriðju deild
tslandsmótsins og einnig i
bikarkeppninni. Nú vantar
okkur þjálfara til að þjálfa
liðið i sumar og erum við að
leita að manni þessá dagana.
Einnig þurfum við að nota
hann til að kenna yngri
aldursflokkunum. Bezt væri
að fá mann, sem gæti annazt
kennslu i héraðinu á vetrum.
Karl Lúðviksson, sem ver-
ið hefur frjálsiþróttaþjálfari
Ungmennasambandsins
undanfarin sumur, kennir i
vetur á Húnavöllum. en hann
kenndi á Skagaströnd i
fyrra. Vera þjálfara i hérað-
inu og kennslan verður til
þess að miklu meiri árangur
verður af þjálfuninni. Þvi
viljum við stefna að þessu.
Þeir sem kunna að hafa
áhuga á að taka að sér knatt-
spyrnuþjálfun hjá U.S.A.H.
eru beðnir að hafa samband
við Hilmar i sima 4123 eða
4311.
Stórleikur
í Keflavík
Fyrsti storleikur ársins i
knattspyrnu verður lcikinn i
Keflavik i dag, en þá mætast
bikarmeistarar Keflavikur og
Framarar i Meistarakeppni
K.S.l. Leikurinn hefst kL 2 á
malarvellinum i Keflavik.
„Það var stórkostlegt að
vera hjó
Arsenal"
— sagði Albert Guðmundsson, hinn
17 óra unglingalandsliðsmaður
úr Val, sem æfði með hinu
heimsfræga Lundúnaliði í fjórar vikur
lan Ure fór
með FH-liðið
upp í sveit
— þar sem hann lét þd hlaupa í hlíðum
Hódegisf jalls
IAN URE er byrjaður að þjálfa
FH-ingá af fullum krafti. Þessi
þekkti Skoti, sem lék á sinum
tima meö Arsenal, Manchester
United og skozka landsliðinu,
byrjaði fyrstu æfinguna á þvi, að
fara með leikmenn FH-liðsins
upp i svcit.
— Komið á'eftir mér, sagði Ure
við leikmenn FH-liðsins, þegar
IAN URE... hinn frægi þjálfari
FH-liðsins.
hann hljóp með þá upp að Vifils-
stöðum og þar að Hádegisfjalli —
þar sem hann fann góðar brekkur
fyrir þá, til að spreyta sig i. Eftir
erfiðar æfingar i fjallshliöinni
hélt hann, með leikmennina að
Kaplakrikavellinum þar sem
hann teygði úr þeim, með léttum
æfingum. Leikmenn FH-liðsins
voru mjög þreyttir og uppgefnir
eftir hin erfiðu hlaup, en aftur á
móti blés Ure ekki úr nös, enda er
hann þekktur fyrir allt annað en
að gefast upp. Það er greinilegt
að Ure ætlar að byrja að byggja
upp þrekið hjá leikmönnum FH-
liðsins, áður en hann lætur þá
fara að eiga við knöttinn.