Tíminn - 13.03.1976, Síða 13
Laugardagur 13. marz 1976
TÍMINN
13
„Setning vikunnar”.
EINN STARFSMANNA út-
varpsins okkar skrifar reglu-
lega greinar i dagblaöið Visi.
Oftast eru þær heldur notalegur
lestur, enda má margt gott um
höfund þeirra segja, bæði sem
útvarpsmann og rithöfund. -
Þriðjudaginn 2. marz s.l. birtir
hann enn grein undir langri
fyrirsögn i tvennu lagi,(þ.e.
aðalifyrirsögn),' undirfyrirsögn)
svohljóðandi: „ÞAÐ ER SVO
ERFITT AÐ STANDA í STAÐ
-------” sagði skáldið — en
okkur tókst það nú samt!!!
(A eftir þessu hefur höf. 3 upp-
hrópunarmerki.)
laiigt, en orðið „bágt” fer vel,
bæði bragfræðilega og með
tilliti til hugblæsins. Og þar að
auki: Annað er afbökun á ljóð-
linu Jónasar, hitt ekki.
Auðvitað er ekki hægt að
ætlast til þess, að þeir sem
skrifa i blöð kunni öll kvæði sem
ort hafa verið i þessu landi, en
þá kröfu verður að gera til
þeirra, sem vanda verk sitt i
hvivetna, eins og þessi ágæti
maður gerir alla jafna, að þeir
fletti upp i bókum, fremur en
að treysta minni sinu. Og að
kunna kvæði eins og Island, far-
sælda frón, eftir Jónas Hall-
grimsson — og kunna það rétt—
það ætti að vera jafnsjálfsagður
liður i almennri menntun hvers
Islendings eins og t.d. að kunna
að stigbeygja islenzk lýsingar-
orð.
Þar sem nú er liðin vika frá
birtingu téðrar greinar, og út-
varpsmaðurinn er búinn að
skrifa aðra grein i Visi, án þess
að láta þess getið, að mistök
hafi orðið við prentun næstu
greinar á undan, skal honum
gefin setning, sem hann má, ef
hann vill, nota sem „setningu
vikunnar” i næsta pistli:
„Það er svo erfitt — að læra
ljóð Jónasar Hallgrimssonar!! ”
Ljóðavinur.
Aðalfundur
félagsins verður haldinn i Tjarnarbúð,
sunnudaginn 14. mars, kl. 2 e.h.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Félagar mæti stundvislega og sýni skir-
teini við innganginn.
Félagsstjórn.
Ekki er gott að segja við
hvaða skáld greinarhöfundur á ,
en óneitanlega heggur fyrir-
sögninsvo nærri orðum Jónasar
Hallgrimssonar i kvæðinu Is-
land, ísland farsældar frón), að
næstum óhjákvæmilegt er að
mönnum detti það i hug við lest-
urinn. En Jónas sagði þetta
bara ekki svona. Hann sagði:
„Það er svo bágt að standa i
stað."o.s.frv. (Leturbr. hér).
Hér skal þvi að visu ekki
haldið fram, að ýkjamikill
merkingarmunur sé á orðunum
„bágt” og „erfitt”, - en „það
munar þvi sem það munar, og
munar nóg”, eins og haft var
eftir karli nokkrum. Orðið
„erfitt” fer illa við kveðandi
ljóðsins, m.a. af þvi að það er of
Kammersveit
Reykjavíkur:
Kynnir
samtíma
tónlist
með ný-
stárlegum
hætti
Kammersveit Reykjavikur
heldur3. tónleika sina á vetrinum
i sal Menntaskólans við Hamra-
hliðlaugardaginn 13. marz kl. 16.
Tónleikar þessir voru upphaflega
ráðgerðir 22. febr. s.l., en vegna
verkfallanna varð að fresta þeim.
Aðgöngumiðar að tónleikunum
fást við innganginn. Börn og
skólanemendur fá afslátt.
1 þetta sinn er eingöngu sam-
timatónlist á efnisskrá sveitar-
innar. Kammersveitin hefur frá
upphafi lagt kapp á, að flytja tón-
listarhlustendum músik, sem er
litt þekkt hér á landi. Þannig
hefur sveitin frumflutt hér á landi
um tug tónverka frá barokk-
timanum. En jafnframt hefur hún
lagt kapp á kynningu nýlegra tón-
verka og er skemmst að minnast
frumflutnings á nýju verki eftir
Pál Pampichler Pálsson i desem-
ber s.l.
Verkin, sem flutt eru að þessu
sinni eru „Adieu” eftir Karlheinz
Stockhausen „I call it” eftir Atla
Heimi Sveinsson, „Tropi” eftir
Niccolo Casliglioni og „Folk
Songs” eftir Luciano Berio. Ein-
söngvari á tónleikunum er Rut L.
Magnússon, en Páll Pampichler
Pálsson og Atli Heimir Sveinsson
stjórna. Auk fastra félaga
Kammersveitarinnar koma
nokkrir gesta-hljóðfæraleikarar
fram á þessum tónleikum.
I lok tónleikanna er ætlunin að
efna til umræðna með flytjendum
og áheyrendum um tónverkin,
túlkun þeirra og gildi. Mun Atli
Heimir Sveinsson, tónskáld. leiða
þessar umræður. Með þessu er
gerð tilraun til aukinna tengsla
áheyrenda og tónlistarmanna.
oryggis sem góð heimilistrygging veitir.
Heimllistrygging
Samvinnutrygginga er:
Tiygging á innbúi
gegn tjóni af völdum eldsvoða og margra annarra skaðvalda.
Ábyrgðartrygging
Bætur greiðast fyrir tjón, sem einhver úr fjölskyldunni veldur
öðru fólki,sbr.nánari skilgreiningar í skilmálum tryggingarinnar.
Örorku og/eða dánartrygging
heimilisfólks við heimilisstörf.
SAMVINNUTRYGGINGAR GT
ÁRMCILA3- SlMI 38500
SAMVINNUTRYGGINGAR ERU GAGNKVÆMT TRYGGINGAFÉLAG