Tíminn - 13.03.1976, Qupperneq 15

Tíminn - 13.03.1976, Qupperneq 15
Laugardagur 13. marz 1976 TÍMINN 15 Fjórðungsmót hestamanna sunnan og norðan heiða MÓ-Reykjavik — Þaö verður mikið um aö vera hjá hestamönn- um i sumar, og tvö fjórðungsmót veröa haldin auk margra smærri móta. Sunnlenzkir hestamenn halda mót sitt á Hellu 26.-27. júni en Norðlendingar halda mót á Melgerðismelum i Eyjafirði 10.-11. júli. Þorkell Bjarnason hrossa- ræktarráðunautur Búnaðarfélags tslands sagöi i viðtali við blaða- mann Timans, að tilgangurinn með fjórðungsmótunum væri tvi- þættur. Annars vegar undirbún- ingur undir landsmót, og væru bestu hrossin valin á fjórðungs- mótunum til að fara á landsmót, og einnig væru mótin til að gera úttekt á stöðunni i hverjum fjórð- ungi i hrossarækt. Þorkell kvaðst vilja benda mönnum á,að nú færiað styttast i að hann ferðaðist um til að velja hross á mótin. Væri þvi ekki til setunnar boðið fyrir þá, sem ekki hefðu þegar farið að undirbúa væntanleg sýningar- og kynbóta- hross, að hefjast handa. Samtök um að endurreisa Air Viking Mó-Reykjavik — Þrjátiu menn hafa ákveðið að beita sér fyrir stofnun hlutafélags með almenn- ingsþátttöku til að endurreisa starfsemi Air Vikings hf., og slá með þvi skjaldborg um frjálsa samkeppni i islenzku millilanda- flugi, eins og segir i fréttatilkynn- ingu frá þeim. í fréttatilkynningunni segir að Air Viking hafi á undanförnum árum flutt um það bil helminginn af þeim Islendingum, sem notið Hraðnámskeið í ítölsku fyrir byrjendur hefst miðvikudaginn 17. marz kl. 21. Kennt verður tvisvar í viku — miðvikudaga og föstu- daga. Verð fyrir 20 stundir kr. 1.800. Innritun fer fram mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 19.30—21 i Lauga- lækjarskóla. thafa orlofsdvalar erlendis. Stór 'hluti þess fólks hefði ekki átt þess kost að njóta utanlandsferða, ef flugfélagið Air Viking hefði ekki verið til sem samkeppnisaðili i O Útlönd að Reagan sé hæfari en Ford til að glima við innanrikis- vandamál á borð við verð- bólgu, óhóflega aukningu rikisútgjalda, og einnig að efla traust almennings á Hvita húsinu og starfsmönnum þar. Hins vegarerFord talinn hafa algjöra yfirburði og mun meiri hæfni til að annast sam- skiptin við Rússland, Kina og Vestur-Evrópu. I kosninga- ferðalögum sinum leggur Ford þvi megináherzlu á hæfi- leika sina i utanrikismálum. Hvort heldur SALT-sáttmál- inn verður undirritaður eður ei, þá verður forsetinn að fylgja detente-stefnunni áfram. Bregðist hann þvi að halda uppi vörnum fyrir þá stefnu, gæti það ýtt undir ein- angrunarsinna i Bandarikjun- um. En þá á kaldastriðsstefn- an greiða leið upp á pallborð- ið. Láti Ford deigan siga, á hann jafnvel á hættu að tapa kosningunum. Haldi hann hins vegar uppi vörnum fyrir de- tente-stefnuna, verður hann einnig að verja dyggilega upp- hafsmann hennar, sem er eng- inn annar en Kissinger. Einn af æðstu ráðgjöfum forsetans lét hafa eftir sér: „Ford getur alls ekki látið viðgangast að andstæðingar Kissingers noti hann sem eins konar pólitisk- an sparkbolta. Kissinger verð- ur að verja og styðja. Þar þarf forsetinn að fara fyrstur með góðu fordæmi.” (islenzkun: H.Blöndal.) Tíminn er peningar utanlandsflugi. Telja þrjátiumenningarnir að við blasi einokun i millilandaflug- inu, ef starfsemi Air Viking veröi ekki endurreist. Þeir, sem áhuga hafa á þátt- töku i þessu fyrirhugaða hluta- félagi, geta snúið sér til Ragnars Ingólfssonar framkvæmdastjóra i sima 18499 milli 5 og 7, 0 Freigátur hóf hún nýja aðför að Þór. Sigldi freigátan varðskipið uppi á stjórnborða, beygði siðan hart á bakborð, fýrir og á varðskipið. Rakst þá bakhorn Þórs i björgun- arbát freigátunnar og mölvaði hann. Einnig gekk afturhluti brú- arvængs freigátunnar upp og brotnaði, ásamt rekkverki. ^ Með þvi að setja á fulla ferð aft- ur tókst skipherra Þórs að kom- ast hjá frekari árekstri i það sinn. Við þetta virtist þó skipherra ' freigátunnar magnast, þvi hann sigldi skipi sinu i hring og dró varðskipið aftur uppi á stjórn- borða. Snarbeygði freigátaniá varðskipið og varð árekstri ekki_ forðað. Þá gerði freigátan enn' eina aðför að Þór, á sama hátt og áður, og tókst að sigla á varðskip- ið með stefni sinu og bóg. Kom freigátan á Þór á móts við herbergi 1. stýrimanns. Reyndi hún þá að þrýsta sér nær varð- skipinu, með þvi að láta bak- borðsvél sina ganga afturábak, en stjórnborðsvélina áfram. Tókst það ekki nema að nokkru leyti. Skemmdir á varðskipinu Þór urðu mjög miklar i þessum siðari ásiglingum. Gekk þiliö i herbergi stýrimannsins inn og þilfarið yfir þvi lyftist upp. Neðri brúarvæng- ur stjórnborðsmegin bognaði meir en áður var orðið, lunning framan við brú bognaði, dældir komu á bóg stjórnborðsmegin og rafsuður frá ásiglingu Andro- medu rifnuðu upp. Einnig komu dældir i vélarrúmi neðan sjó- linu. Var i gærkvöldi talið liklegt að Þór þyrfti til hafnar til viðgeröa. Einnig urðu skemmdir tölu- verðar á freigátunni. Virtist stefni hennar rifið lóðrétt frá sjó- linu og upp á móts við akkeri. Taldi Gunnar Ólafsson, skipherra hjá Landhelgisgæzlunni vafa- samt að freigátan værisjófær eft- ir áreksturinn, að minnsta kosti ekki hér við land. 1 flaug landhelgisgæzlu- flugvélin Sýryfir miðin og náði þá Sigurjón Hannesson, skipherra, ljósmyndum af einhverjum árekstranna, sem sýna mjög vel atburöina og hvernig þeir gerð- ust. Þannig var þvi siglt alls sjö sinnum á varðskip i gær, fimm sinnum á Þór og tvisvar á Tý. Siðari ásiglingin á Tý átti sér stað klukkan 18.50 og var þar að verki freigátan Júnó, sem sigldi á stjórnborðsskorstein skipsins og dældaði hann verulega. VEGNA innheimtu blaðgjalda fyrir febrúarmánuð 1976 skal tekið fram, að þar sem útskrift mánaðarreikninga var lokið fyrir verkfall, verður leiðrétting á mánaðargjaldinu gerð i næsta mánuði. Jörð óskast meö rúmgóðu íbúðar- húsi, sem gæti verið rammi um lif 10-15 manna, og útihúsum fyrir „f jölbreyttan" búskap, óskast til kaups eða leigu. Upp- lýsingar veittar gegn tilvísun merktri Kenn- arar 1895. Kópavogur Fundur verður um utanrikismál mánudaginn 22. marz i Félags- heimili Kópavogs kl. 20:30. Frummælandi verður Einar Agústs- son utanríkisráðherra. Allt framsóknarfólk velkomið. Stjórnin. Viðtalstímar alþingismanna og borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Kristján Benediktsson borgarfulltrúi verður til viðtals á skrif- stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstig 18 laugardaginn 13. marz frá kl. 10 til 12. Borgnesingar, nærsveitir Félagsvistin hefst aftur 12. marz kl. 21 i samkomuhúsinu. Tvö siðari kvöldin verða 26. marz og 9. april. Allir velkomnir. Mætið stundvislega. Framsóknarfetag Borgarness. Félagsmálanámskeið Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins gengst fyrir almennu fé- lagsnámskeiöi 19.-21. marz og verður það haldið aö Rauðarárstig 18, Reykjavik. Dagskrá: Föstudag 19. marzkl. 18, setning og greinargerð fyrir nám- skeiðinu. Kynning þátttakenda. Fjallaðum fundarstjórn og ritun fundagerða. Laugardag 20. marz kl. 10 erindi um ræöumennsku umræður og fyrirspurnir. Kl. 15.00 rætt um undirbúning og efriisskipan ræðu. Sunnudagur 21. marzkl. 10. Erindi um flokka tillagna og af- greiðslu þeirra, umræöur og fyrirspurnir. kl. 15. rætt um undir- búning funda og fundarskipan. Kl. 18 erindi um félagslög stjórn og gögn félags og um reikninga, umræður og fyrirspurnir. Stjórnandi námskéiðsins verður Pétur Einarss. Námsekiðið er öllum opið, en væntanlegir þátttakendur eru beðnir að tilkynna þátttöku i sima 24480. 26.-28. marz verður siðan námskeið þar sem fjallað verður um ýmsa þætti þjóðmála. Þar verða fluttir fyrirlestrar um ýmis efni og verða fyrirlesarar auglýstir siðar. Stjórnandi verður Magnús Ólafsson. Félagsmálaskólinn. Páskaferðin 10. apríl til Vínarborgar Þeir, sem eiga pantaða miða i páskaferðina til Vinar eru beðnir vinsamlega að greiða þá sem fyrst á skrifstofu fulltrúaráðsins Rauðarárstig 18, simi 2 44 80. SUF Miðstjórnarfundur Sambands ungra Framsóknarmanna verður haldinn að Rauðarárstig 18 Reykjavik 3. og 4. april. Fundurinn hefst á laugardag kl. 14,00. Miðstjórnarmenn eru beðnir að hafa samband við flokksskrif- stofuna, ef þeir geta ekki mætt. StjórnSUF. Aðalfundur AAiðstjórnar Aðalfundur Miðstjórnar Framsóknarflokksins 1976 verður haldinn að Hótel Sögu i Reykjavik 7.-9. mai.Miöstjórnarmenn eru minntir á að hafa samband við flokksskrifstofuna ef þeir geta ekki mætt. Opið hús Framsóknarfélögin i Kópavogi munu framvegis hafa opið hús að Neðstutröð 4 mánudaga kl. 5 til 7. Þar verða til viðtals ýmsir forystumenn félaganna og fulltrúar flokksins i nefndum bæjar- ins. Stjórnin.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.