Tíminn - 24.04.1976, Side 1
ÆNGm?
Aætlunarstaftir:
Blönduós — Sigluf jörður
i Búðardalur — Reykhólar
• Flateyri — Bíldudalur
Gjögur— Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
'hólmur —iRif . úgandafj!
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Bandaríkiamenn hafa afhent öðr-
um þjóðum fimm Asheville-skip
Gsal-Reykjavik — Rlkisstjórn
Bandarlkjanna hefur sem kunn-
ugt er neitað að verða við þeim
tilmælum tslendinga að fá af-
hent eitt til tvö hraðskreið skip
af svonefndri AsheviUe-gerð á
þeirrí forsendu, að sllk skip
„séu ekki handbær nú sem
stendur”. t ritinu Jane’s Fight-
ing Ships er frá þvi greint, að
Grikkjum hafi verið afhent tvö
skip þessarar gerðar árið 1975,
Beacon (PG-99) og Green Bay
(PG-101) og áður hafi Tyrkjum
verið afhent tvö sllk skip og Suð-
ur-Kóreu eitt.
Bandarikjamenn hafa smlðað
fimmtán skip af Asheville-gerð,
fimm hafa veriö afhent öðrum
þjóðum.
1 svari frá rikisstjórn Banda-
rikjanna til Islendinga er ekki
frá þvi skýrt, hver sé ástæðan
fyrir þvi, að skip þessarar gerö-
ar séu ekki handbær sem stend-
ur. Meðan Bandarikjamenn
gefa ekki upplýsingar um það
atriði verður að telja svar
þeirra við ósk Islendinga mjög
ófullnægjandi. sérstaklega þar
eð Grikkjum voru afhent tvö
skip af Asheville-gerð á siðasta
ári og þriðjungur skipa sem
smiðuð hafa verið af þessari
gerð hefur verið afhentur öðrum
þjóöum.
Þá má bæta þvi við, að í við-
tali við Olaf Jóhannesson,
dómsmálaráðherra, sem birtist
i Tlmanum á fimmtudag, segir
ráöherrann, að hann hafi haft
spurnir af þvi, að Bandaríkja-
menn hafi nýverið lagt þremur
skipum af Asheville-gerð, sem
þeir ætli sjálfir að taka til land-
helgisgæzlu, þegar þeir færa
sina landhelgi út I 200 milur.
Meðan
allt er nýtt
Þótt sauðburöur sé yfirleitt
ekki hafinn um þetta leyti
eru einstaka snemmbærar
kindur búnar að koma af-
kvæmum sinum I heiminn,
eins og þessi mynd sýnir.
Litlu lömbin hafa sennilega
litiö séð af heiminum enn og
eitt er vlst, að þau hafa
aldrei séö ljósmyndara fyrr,
ef marka má svip þeirra.
Timamynd: Gunnar
Norðaustur-Atlantshafsveiðinefndin:
Solzhenitsyn boðið til fslands?
Á fundi Kithöfundaráðs i
gær var samþykkt að athuga
hvort rússncski rithöfundur-
inn Solzhenitsyn vildi þiggja
boð um að koma til tslands til
fyrirlestra halds. Formanni
ráðsins, Indriða G. Þorsteins-
syni, var falið að annast fyrir-
spurnina. Mun hann nú snúa
sér til aðalumboðsmanns rit-
höfundarins, Claud Durand i
Paris og hann mun bera erind-
ið upp við rithöfundinn. Mun
koma i ljós síöar hvort
Solzhenitsyn mun sjá sér fært
aö þiggja boðið. Hann er nú
búsettur i Sviss.
Síldveiðikvótinn 160 þús. tonn
— íslendingar fá aðeins 9.200 tonnf sem er mun lægra hlutfall en áður
Maður
fannst
særður
HV. Reykjavik. t gærkvöld fannst
maður liggjandi I blóði sinu I
strætisvagnaskýli við Grensás-
veg I Reykjavlk. Taliö var að
maðurinn væri særður skotsári og
fannst skotvopn hjá honum.
Hann var fluttur á slysadeild til
aðgerðar, en þegar blaðið fór I
prentun I nótt var ekki kunnugt
um meiðsli hans eða liðan.
Böðunar-
styrjöld
í Húna-
þingi 0
— Við erum að vonum mjög
óánægöir, sagöi Jakob Jakobs-
son, og er nú sýnt, aö um áfram-
haldandi ofveiði verður að ræða á
sildinni, og aðeins timaspursmál
um hvenær stofninn hrynur. Það
er fyrst og fremst afstöðu Dana
aö kenna að þessi kvóti var sam-
þykktur, þvi að þeir sátu hjá við
atkvæöagreiösluna, og er reyndar
ekki útséð um það hvort þeir
samþykkja þennan kvóta, en
rikisstjdrnir landanna hafa rétt
til aö mótmæla niðurstöðum
fundarins.
— Þetta sýnir vel, að alþjóðleg-
ar stofnanir eru i ýmsum tilvik-
um engan veginn starfi sinu
vaxnar, sagöi Jakob ennfremur,
og er nærtækt dæmi um það, að
undanfarin ár hefur vantað 20%
upp á að kvóti fyrir veiði á lýsu,
ýsu og þorsk i Norðursjó sé fyllt-
ur, en nú hefur verið aukið 10%
við þann kvóta.
samband við þá I London I gær-
kvöldi.
— Við mótmæltum þessum
heildarkvóta, ásamt Norðmönn-
um, á þeim forsendum að hann
væri alltof hár, og gengi á móti
skoðunum visindamanna, sem
telja að gengiö sé um of á sildar-
stofninn, sagði Þórður, þá teljum
við lika, að það sé farið illa með
okkur, þar sem okkar hlutfall fer
versnandi, við fáum nú aðeins
5,7% af heildarkvótanum en sið-
ast fengum við 7,5% á timabilinu
1. júli 1974 tii 1. júli 1975. Þessi
kvóti, 9.200 tonn, gildir til ára-
móta. Norðmenn greiddu einnig
atkvæði á móti á sömu forsendum
og við.
Þórður sagöi, að fyrst hefðu
veriö greidd atkvæði með 174 þús.
tn heildarkvóta, en sú tillaga
hefði fallið með mótatkvæðum Is-
lendinga, Norðmanna og Pól-
veija.
gébé Rvik — Aukafundi Norð-
austur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndarinnar lauk I London I gær-
kvöldi, og niðurstöður fundarins
urðu þær, að nýr sildveiöikvóti
var ákveðinn fyrir alit árið 1976,
160þúsund tonn. t hlut islendinga
komu 9,200 tonn.sem er hlutfalls-
lega miklu lægri kvóti en við höf-
um áður haft. islenzka sendi-
nefndin og sú norska mótmæltu
þessum kvóta, en fjölmargar
þjóðir sátu hjá, þar á meðal Dan-
ir.sem vildu hafa heildarkvótann
mun hærri. — Við erum mjög
óánægðir með þessa niðurstööu,
sögðu þeir Þórður Ásgeirsson,
skrifstofustjóri I sjávarútvegs-
ráöuneytinu, og Jakob Jakobsson
fiskifræðingur, er Timinn hafði