Tíminn - 24.04.1976, Qupperneq 2

Tíminn - 24.04.1976, Qupperneq 2
2 TÍMINN Laugardagur 24. april 1976 ARFLEIFD ESKIMÓA OG NÚTÍMAMENNING Á GRÆNLANDSVIKU, SEM HEFST í DAG SJ-Reykjavik. — Siðdegis i dag hefst Grænlandsvika i Norræna hUsinu. Markmiðið með þessari menningarviku er að gefa innsýn i það sem um er að vera á Græn- landi nú á dögum, en geysilegar breytingar hafa orðið þar siðasta aldarfjórðunginn, þótt landið sé enn á mótum gamals og nýs tima og ólikra menningarsamfélaga. Nú i' vikunni komu hingað þátt- takendur frá Grænlandi og Dan- mörku, sem koma fram á vik- unni, og fleiri voru væntanlegir. t sýningarsölum, anddyri og bókasafni hússins verður listsýn- ing og sýningar á bókum og ljós- myndum. Þar er reynt að gefa viðtæka hugmynd um grænlenzka alþýðulist. Einnig eru sýndar höggmyndir, oliumálverk, teikn- ingar, grafik og tréskuröur eftir ýmsa listamenn. Landsbókasafn Grænlands sýnir þróun græn- lenzkrar bókaútgáfu, einnig eru sýndar bækur útgefnar 1975 hjá Det Grönlandske forlag, græn- lenzkar námsbækur og blöö. Á veggjum eru grænlenzk ljóð ásamt islenzkum og dönskum þýöingum og ljósmyndir úr þjóð- lifi Grænlendinga. Þá eru fyrirlestrar um menn- ingu og atvinnulif á Grænlandi mikill liður i Grænlandsvikunni og kvikmyndasýningar eru dag- lega. t dag kl. 17.15 flytur Karl Elias Olsen skólastjóri Knud Rasmus- sen lýðháskólans i Holsteinborg erindi sem hann nefnir „Hlutur Grænlands i norrænni sam- vinnu”. 24 nemendur stunda nám við lýðháskólann, en kennsla fer fram á timabilinu nóvember til mai', en að sumrinu er auk þess margvisleg starfsemi á vegum skólans. Nemendur eru á aldrin- um 18-50ára. Skólastjórinn litur á það sem hlutverk skólastarfsins að hjálpa nemendum til að skilja stöðu si'na i samfélaginu með þvi að lesa um sögu lands sins og ræða um framtiðina. Hann telur það einnig hlutverk skólans að safna þjóðlegum fróðleik og menningararfi. Nemendur hafa tekið þátt i ráðstefnuhaldi, og i nóvember næstkomandi tekur skólinn m.a. þátt i ráðstefnu i Al- aska um samfélag Inuit eskimóa. Kl. 20.30 verða sýndar kvik- myndirnar ,,Palos brudefærd” og ,,Knud”, en hún fjallar um land- könnuðinn og þjóðfræðinginn Knud Rasmussen. „Palos brudefærd” var tekin sumarið 1933 i Angmagssalik, og stjórnaði Knud Rasmussen upp- tökunni. Með þessari heimildar- kvikmynd hafði hann i huga að varðveita á ljóslifandi hátt lifs- baráttu eskimóanna, gleði þeirra og sorgir frá timanum áður en hviti maðurinn settist að i land- inu. Knud Rasmussen sigldi sjálfur f'rá einni byggð til annarrar til að kynna hugmynd sina, og stefndi siðan öllum Angmagssalikbúum til stórveizlu. A þann hátt hugðist hann fá yfirsýn yfir þá, sem hann gæti valið út til að fara með hlut- verk i kvikmyndinni. Peter Freuchen hefur i einni bóka sinna sagt frá þvi, þegar Knud Ras- mussen kom siglandi til „nýlend- unnar” fremstur i heilum flota sökkhlaðinna kvenbáta, sem i voru herskarar kvenna, barna og hunda, og á eftir komu kajakar i hundraðatali. Og i Angmagssalik var haldið hóf, eitt þeirra, „sem lifið býður nær aldrei til Knud Rasmussen fann þarna leikara, og kvikmyndin var tekin samsumars, eftir að sigrazt hafði verið á ótrúiega örðugum aðstæð- um. Þetta varð siðasta verk Knud Rasmussens. Hann var orðinn sjúkur maður þegar er verið var að taka á siðustu metra kvik- myndafilmunnar, og lifði ekki að sjá árangur þessa stórvirkis. A sunnudag kl. 14.30 visa rithöf- undarnir og myndlistarmennirnir til vegar á bókasýningunni. Kl. 17.50 flytur H.C. Petersen fyrr- verandi lýðháskólastjóri fyrir- lestur um náttúru Grænlands. Kl. 20.30 er dagskrá, sem nefnist Grænlenzkar bókmenntir, en þar lesa Hans Lynge, Kristian Olsen, Aquigssiaq Möller og Arkaluk Lynge úr eigin verkum og ræða ritstörf sin. Kynnirer Karl Kruse ráðgjafi hjá Fræðslusambandi Grænlendinga i Godthab. A mánudag kl. 17.15 flytur H.C. Petersen fyrirlesturinn „Mál- staður Grænlendinga”, „Den grönlandske sag”. Kl. 20.30 ræða listakonan Aka Hoegh og Karl Kruse um listamenn og val á við- fangsefnum og segja frá listsýn- ingunni i kjallara Norræna húss- ins. Meðal þeirra sem koma fram siðar á Grænlandsvikunni eru fyrirlesararnir Peter Egede deildarstjóri, Þór Magnússon þjóðminjavörður, Ólafur Hall- dórsson handritafræðingur, sr. Kolbeinn Þorleifsson, Ingmar Egede skólastjóri kennaraskól- ansiGodthab, sem stofnaðurvar 1345, en þar stunda nú 25 nemend- ur nám, sem tekur ýmist tvö ár eða fimm ár. Auk aðila, sem þegar hafa verið nefndir eru „Grafisk Værksted” i Godtháb, „Grönlands Oplysnings Forbund”, Fræðslusamband Grænlendinga og Den Kongelige grönlandske Handel”, Konung- lega Grænlandsverzlunin aðilar að sýningunni, og starfsmenn Grænlandsverzlunarinnar munu sjáum aðgrænlenzkir réttir verði á boðstólum i Norræna húsinu i vikunni. Einnig verða e.t.v. til sölu grænlenzkar handunnar vör- ur og frimerki. Við upphaf Grænlandsvikunnar i dag flytja ávörp Maj-Britt Imn- ander forstjóri Norræna 1 húss- ins, Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra, Sven Aage Nielsen ambassador og fulltrúi Grænlendinga. Álftanessslysið: Bæði lest oglúkar sjófyllti samtímis — slíkt þolir ekkert skip, segir siglingamálastjóri Gsal-Reykjavik — i sjóprófum, sem haldin hafa verið vegna Alftanessslyssins, hefur komið fram, að bæði lest og lúkar skipsins sjófyllti á skömmum tima, auk þess sem sjór komst inn i brú gegnum opinn glugga. Að sögn Sigurðar Ilalls Stefáns- sonar, héraðsdómara kom fram viö sjóprófin, að lúkarinn haföi veriö opinn og lestarhlera vant- aði yfir lestaropið. — Mér þykir ótrúlegt, án þess að ég vilji kveða upp nokkurn dóm i þvi sambandi, aö véla- skiptin eða hvalbakurinn hafi ráðið úrslitum. Það þolir ekkert skip, að bæði lest og lúkar sjó- fylli samtimis, sagði Hjálmar R. Bárðarson, siglingamála- stjóri i samtali við Timann i gær, en hjá Siglingamálastofn- un er nú verið að kanna hver áhrif vélaskiptin og uppsetning hvalbaks hafi verið á legu þyngdarpunkts skipsins. Sjóprófum vegna slyssins verður haldið áfram að sögn Sigurðar Halls Stefánssonar, héraðsdómara, og kvaðst hann, isamtali við Timann, óska eftir þvi við Siglingamálastofnunina, að hún léti sjóréttinum i té gögn um breytingarnar, sem gerðar voru á sk ipinu, svo hægt væri að kanna áhrif þeirra, og hvort þær gætu hugsanlega átt einhverja sök á slysinu. Þeir sex skipverjar, sem lifðu af slysið, hafa komið fyrir rétt- inn, svo og áhöfn Hrafns Svein- bjarnarsonar II, sem bjargaði skipverjum. Fyrsti sumar- dagur BÍLL FÓR ÚT AF VIÐ BRYGGJU - MEÐ 6 FARÞEGA, EN ENGAN SAKAÐI Sumarið heilsaði meö indælis vcðri vföast hvar á landinu á sumardaginn fyrsta. Margar skrúðgöngur voru farnar, og bæði úti- og inniskemmtanir voru mjög fjöisóttar. Yngsta kynslóðin var fjölmennust i skrúðgöng- unum, en mcöfylgjandi myndir tóku Gunnar og G.E af skrúðgöngu i Breiðholti og i Vesturbænum af skrúð- göngu skáta þar á sumar- daginn fyrsta. KS Akureyri — I.aust fyrir klukk- an ellefu s.l. fimmtudagskvöld lenti stór bandariskur fólksbili út af veginum noröan við Höfners- bryggju á Akureyri og hafnaði i sjónum. Sex manns voru i biln- um, og sluppu aiiir ómciddir. BQlinn skemmdist mjög mikið og mesta mildi var að þarna skyldi ekki verða stórslys. A miðvikudagskvöldið var brotizt inn i Nýjabió, og mun lítils háttar af peningum hafa verið stolið. Málið er upplýst, og voru þarna að verki tveir menn um tvi- tugt.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.