Tíminn - 24.04.1976, Blaðsíða 5

Tíminn - 24.04.1976, Blaðsíða 5
Laugardagur 24. april 1976 TÍMINN 5 Taugaveiklurs á háu stigi Alveg er hún kostuleg taugaveikiun Visis og Mbl. vegna þeirra viöbragða ioft- skeytamanna aö neita brezka fiotanum um hvers kyns fjar- skiptaþjónustu, nema i ncyðartiifellum, en sú dkvörð- un hefur bitnaö á blaðamanni Visis, sem staddur er um borð i brezkri freigátu. Það er grófasta föisun þess- ara blaða, að halda þvi fram, að með þvi að neita að af- greiöa simtöl VIsis seu loft- skeytamennimir aö koma á einhvers konar ritskoðun. Það er svo fjarstæðukcnnt að halda slíkri kenningu á iofti, að varla tekur að ræða það. Máiið snýst einfaidiega um það, hvort islendingar eigi yfirieitt að hafa nokkur sam- skipti við brezka árásarflot- ann, hvort sem um er að ræða fjarskiptaþjónustu eða þjón- ustu á öðrum sviðum. Þannig hafa islenzkir flugumsjónar- menn ekki veitt brezku njósnaþotunum þjónustu né heldur fá þær að lenda hér. Og sömuieibis eru allar hafnir landsins iokaðar fyrir brezk- um togurum og hjálparskip- um þeirra, nema i neyðartil- felium.þegar flytja þarf sjúka til lands. Um þessa stefnu hefur rikt einhugur mebal landsmanna til þessa. Viljo Mbl. og Visir opna hafnirnar fyrir Bretum? Ekki verður annað skilið á hinum móðursýkislegu skrif- um Visis og Mbi. en að þau I 1 ll Ritstjórar Mbl. og VIsis, Matthias og Þorsteinn Pálsson. vilji breyta hér til — I nafni ritfrelsisins!! Og þá er næsta skrefið væntanlega að opna hafnirnar fyrir brezku frei- gátunum svo hægt sé að skila blaöamanni Visis i fsienzkri höfn. Væri það ekki i samræmi viö fyrri kröfuna — og I þeim tilgangi að auðveida frétta- manninum störf hans? Óskyldum málum ruglað saman Það er ekkert við þaö að at- huga, þó að isienzkir fjölmiðl- ar geri sér far um aö kynnast viðhorfum andstæðinga okkar i landhelgisdeilunni. Það hafa raunar allir fjötmiðlarnir gert.t.d. hefurMbl. sent menn til Bretlands. Þannig, að það er ekkert nýtt, að sjónarmið Breta i landhelgismálinu séu kynnl. En það þýðir ekki endi- lega, að slik fréttaöflun hafi einhvern forgang, sem gangi út yfir bönn, sem sett hafa veriö á brezka árásarflotann. Meö þvf rugla hinir tauga- veikluðu ritstjórar VIsis og Mbl. saman tveimur óskyld- um málum. Enginn hefur krafizt neinnar ritskoðunar I þessu sambandi, og Timinn ber enga ábyrgð á þvi, þó að ritstjórar þessara tveggja blaða hafi fengið þá firru á heilann. Hver og einn getur hins vegar dæmtum það sjálf- ur, hvort Visir og Mbl. hafi ætið túlkað Islenzkan málstað á sem heppilegastan hátt. Bæði eru þau t.d. málsvarar flokks, sem getur ekki undir neinum kringumstæöum hugsað sér að draga úr við- skiptum við Breta, og fleira mætti telja til. Ekki sama hverjir brjóta lög Árásir Vfcis og Mbl. á loft- skeytamennina eru ómakleg- ar. Engu að sibur neyðist rikisstjórnin til þess að beina tilmælum til þeirra um að af- greiða simtöl frá brezku frei- gátunum til að koma I veg fyr- ir, að alþjóöalög séu brotin. A það atriöi lögðu Vfcir og Mbl. mikia áherzlu. Hins vegar gera þessi blöð minna úr si- cndurteknum brotum brezku freigátanna, sem þverbrjóta öll siglingarlög og hafa gert itrekaðar tilraunir til að sigla islenzk varðskip niður. Lokið ofan á Astæða væri til að fara nokkrum oröum um sóðalcgan leiöara,sein birtist i Visi i gær I tilefni af skrifum um þessi mál. Það biður þó betri tima. ilins vegar varö ritstjóra Visis tiðrætt um sorp og er það I samræmi viö þann orðstir, er Visir hefur aflað sér á skömmum tima. Ýmsum þyk- ir vafalaust timi kominn til að setja lokið ofan á þá sorp- tunnu, sem Visir er óneitan- lcga orðinn. En svo mikið frjálslyndi rikir I Fram- sóknarflokknum, að Fram- sóknarmenn myndu aldrei gera tillögu um slikt. — a.þ. P. Stefánsson er með bilasýningu um helgina og kynnir þar m.a. Austin Alegro, nýjasta bilinn frá Lay- land. Austin Alegro er 5 gira framhjóladrifsblll með vökvaf jöðrun. Einnig veröa sýndar aðrar bifreiðar sem P. Stefánsson selur, þar á meðal nýja gerðin af Morris Marina, Austin Mini, Austin 1275 GT, Land- rover og Range Rover. Þá er einnig sýndur fyrsti Landroverinn sem kom til landsins árgerð 1948. Aðstoð íslands við þróunarlöndin — ráðstefna að Hótel Loftleiðum í dag gébé Rvik — i dag hefst ráðstefna að Hótel Loftleiðum á vegum stofnunarinnar Aðstoð islands við þróunarlöndin, og nefnist hún Viðskipti og þróun. Ráðstefnan stendur aðeins i dag, en til hennar hefur sérstaklega verið boðið nokkrum þingmönnum, svo og fulltrúum frá þeim stofnunum, sem hafa hagsmuna að gæta i sambandi við landbúnað, sjávar- útveg og iðnað i viðskiptum við þróunarlöndin. Einar Ágústsson, utanrikisráðherra, mun flytja á- varp á ráðstcfnunni. Ráðstefnan Viðskipti og þróun hefstað Hótel Loftleiðum klukkan tiu f.h.,og er áætlað að henni ljúki um klukkan sex i kvöld. Formað- ur stofnunarinnar Aðstoð íslands við þróunarlöndin, Ólafur Björns- son prófessor, setur ráðstefnuna, en siðan mun Einar Agústsson ut- anrikisráðherra flytja ávarp. Er- indi verða nokkur flutt á ráðstefn- unni, en það eru þeir Stefán Gunnlaugsson, fulltrúi i við- skiptaráðuneytinu, Baldur ósk- arsson, ritstjóri, og Úlfur Sigur- mundsson, framkvæmdastjóri, sem þau flytja. Að öðru leyti verður unnið i starfshópum á ráð- stefnunni og almennar umræður verða um þau mál, sem þar ber á góma. Alls munu um sextiu manns sitja ráðstefnuna, en annars er hún opin öllum þeim, sem áhuga hafa á þessum málum. Augiýsið í Tímanum Akureyri: Passíukórinn í söngferðalag ks Akureyri — Passiukórinn á Akureyri heldur tónleika helgina 24.-25. april. Verða þeir fyrst I Skjólbrekku I Mývatnssveit laugardaginn 24. aprD síðdegis, en aðrir tónleikar verða I Húsa- vikurkirkju um kvöldið, og sunnudaginn 25. april verða tón- leikar i Akureyrarkirkju klukkan 17. Á efnisskrá kórsins eru að þessu sinni þrjú eftirtalin tón- verk: Magnificat eftir Vivaldi, Psalm 112 eftir Handel og Missa brevis eftir Mozart. Stjórnandi er Roar Kvan, en einsöngvarar eru Guri Egge Sópran, Rut Magnús- son alt, Lilja Hallgrimsdóttir sópran, Jón Hlöðver Áskelsson tenór og Sigurður Demenz Franzson, bassi. Hljómsveitin verður að mesu skipuð nemendum úr Tónlistar- skölanum í Reykjavík, en einnig nokkrir frá Akureyri. Þelta er þriðja árið i röð, sem Passiukór- innbeitirsér fyrir flutningi stærri kirkjutónverka. Nú hefur Passiukórnum verið boðið til Reykja vikur til þátttöku i norrænum tónlistardögum, sem verða f lok júni. Þar verða flutt nútimatónverk og hefur kórinn tekið að sér að flytja eitt þeirra, sem er eftir sænska tónskáldið Ingmar Nilveden. Æfingar á verki þessu eru hafnar. Á næsta hausti er fyrirhugað að hefja æfingar á Messiasi eftir Handel. YOKOHAMA SUMARDEKK Tollvörugeymsluverð: 1100-20-14 striga I. a f turdekk '1100-20-12 strigal. framdekk 1000-20-14 str iga I. a f tu rdekk 1000-20-14 strigal. framdekk 1000-20-12 strigal. framdekk 900-20-14 striga I. a fturdekk 900-20-12 strigal. framdekk 825-20-12 strigal. framdekk 700-20-10strigal. framdekk kr. 60.385.- kr. 54.915.- kr. 55.787.- kr. 55.787.- kr. 50.934,- kr. 46.004.- kr. 41.820,- kr. 35.913.- kr. 16.411.- Véladeild Sambandsins HJÓLBARÐAR HÖFÐATÚNI 8 SÍM116740

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.