Tíminn - 24.04.1976, Síða 12
12
TÍMINN
Laugardagur 24. april 1976
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall 36
kom ekki, að ekki sé talað um, þegar þú heyrðir, að hann
hefði fariðfyrir síðasta þátt! Ég heyrði skilaboðin, sem
þú sendir honum, mín kæra! Dansaðirðu kannske bara
fyrir hann í kvöld Iíka?
— Og hvað ef ég gerði það? spurði hún stríðnislega.
— Ef þú gerðir það, sagði hann hægt, — sný ég þig úr
fallega hálsliðnum þínum.
Hún hló. — Þú mundir gleyma því, um leið og þú snert-
ir mig til að gera það. Reyndu... og sjáðu hvað gerist.
Hann sneri sér snöggt frá henni.
— Þúertþó ekki aðfara! hrópaði hún.
— Auðvitað fer ég! Ef þú vilt láta fylgja þér aftur á
hótelið, þá hringdu til Justins Brooks. Hann kemur
áreiðanlega hlaupandi. Hann er áreiðanlega fús til að
f ylgja þér alla leið upp á herbergi, það efa ég ekki.
Hún brosti ögrandi til hans. — En stórkostleg hug-
mynd. Það verð ég sannarlega að reyna. Justin er ungur,
en áreiðanlega ekki reynslulaus. Ég held...
Brent sótroðnaði og það veitti henni ánægju.
— Og hvers vegna ekki svo Mark Lowell á eftir Justin?
hvæsti hann.
— Já, hvers vegna ekki? Ég er viss um, að hann er
mjög ástríðufullur undir þessu kalda útliti. Þú veizt að
ég er vitlaus i ástríðufulla karlmenn....
— Sefurðu hjá öllum karlmönnum, sem þú kynnist?
spurði hann beizklega.
— Bara ef þeir höfða til mín, elskan. Hún hló og f itjaði
upp á nef ið. — Vertu nú ekki svona þver, Brent! Aldrei er
ég af brýðisöm þegar þú talar við stúlkur, er það?
— Nei, en ég vildi óska, að þú værir það...
Þetta féll í góðan jarðveg — hann vissi það.
— Þegar við komum til Parísar, datt mér ekki í hug að
spyrja þig um ástarævintýrin, sem þú áttir, meðan þú
varst að læra hérna, sagði hún. — Eða varsti* kennske
dýrlingur í þá daga?
— Þú ræður hvort þú trúir því, en ég var það. Ef til vill
vegna þess að ég hafði ekki tíma til annars en vinnu.
Kennari minn leyfði enga vitleysu.
Hún yppti öxlum. — Leitt. Krlmenn eru svo miklu at-
hyglisverðari, þegar þeir eiga sér fortíð... þegar hún sá
aið hann roðnaði, f lýtti hún sér að bæta við... —en þú hef-
ur líklega bætt það upp síðan. Komdu nú og kysstu mig
og svo skulum við vera vinir aftur.
— Vinir? Getum við nokkurn tíma verið vinir, Venetia?
En hann langaði til að láta undan. Hann langaði meira til
að halda henni i faðmi sér en til nokkurs annars, en stolt-
ið bannaði honum, að láta svo auðveldlega undan. Svo
eyðilagði hún allt, með næstu athugasemd. Hún hafði
séð, að hik var á honum, og örugg um vald sitt, sagði hún
í ögrandi stríðnistón: — Ef ekki, máttu ekki ásaka mig
fyrir að ég hugga mig við Justin eða kannski Mark
Lowell, því ég verð að viðurkenna að hann vekur áhuga
minn. Þú gætir hefnt þin með því að eiga svolítið ævin-
týri með aðstoðarlækninum hans! Ég er viss um, að hún
hef ur ekki haft mikið af ástinni að segja, svo hún mundi
áreiðanlega taka fagnandi á móti þér....
Hann skildi ekki, hvers vegna hann varð bálreiður.
Hún hafði meint þetta sem grín — ekkert annað. Hún
vissi svo allt of vel að engin önnur kona gat vakið áhuga
hans, þegar hann hafði hana. En Brent sneri sér snöggt
frá henni.
— Við skulum ekki tala um Myru, ef þér er sama.
— Auðvitað ekki, hún er ekki þess virði. En ég vara þig
við, Brent! Ef þú lætur mig fara eina heim á hótelið í
kvöld, fyrirgef ég þér það ekki! Þú skalt meira að segja
fá það margborgað!
— Gerðu hvern f járann, sem þú vilt! hrópaði hann og
skellti á eftir sér hurðinni.
Hann sá strax eftir því og langaði mest til að fara aft-
ur og biðja afsökunar. En um leið vissi hann, að hún
myndi hlæja að honum, ef hann gerði það. Hún myndi
daðra við Justin aftur við fyrsta tækifæri og traðka á
honum sjálfum eins og áður. Nú gat hann skyndilega
ekki meira.
( þetta sinn yrði hún að koma til hans. Já, þó svo að
hann elskaði hana mjög svo heitt, yrði hann að bíða,
þangaðtil henni þóknaðist að koma. Það var eina leiðin
fyrir hann til að bjarga stolti sínu.
Án þess aðlíta um öxl, gekk han út úr Öperunni.
16. kafli.
Jósep gamla leið illa og hikaði ekkert við að láta það í
Ijós. — Mér líður einsog uppbundnum kjúklingi, kvartaði
hann. — Getið þér ekki tekið af mér þessa spennitreyju,
læknir?
— Við f jarlægjum gipsið, þegar þú þarfnast þess ekki
LAUGARDAGUR
24. APRÍL
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.00. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Morgunbæn kl.
7.55. Séra Þórir Stephensen
flytur. Morgunstund
barnanna kl. 8.45: Hreiðar
Stefánsson heldur áfram að
lesa „Snjalla snáða” (5).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. óskaiög
sjúklinga kl. 10.25: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 tíþróttir Umsjón: Jón
Ásgeirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Menn okkar i Vestur-
heimi. Páll Heiðar Jónsson
ræðir við Ingva Ingvarsson
sendiherra hjá Sameinuðu
þjóöunum, Harald Kröyer
sendiherra I Washington,
Tómas Karlsson varafasta-
fulltrúa og tvar Guðmunds-
son aðalræðismann. Tækni-
vinna: Þórir Steingrlmsson.
16.00 Veðurfregnir tslenzkt
mál Jón Aðalsteinn Jónsson
cand. mag. flytur þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi
17.30 Tónleikar.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. • Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
tilkynningar.
19.35 Bróðir minn, Húni
Guðmundur Danielsson
rithöfundur les kafla úr
nýrri skáldsögu sinni.
20.05 Hljómplöturabb
Þorsteins Hannessonar
20.45 Staldrað við i Þorláks-
höfn: — þriðji þáttur Jónas
Jónasson litast um og
spjallar við fólk.
21.45 Walter Ericson og
félagar leika gömul
danslög.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Danslög
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
17.00 íþróttir Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Gullcyjan Myndasaga i
sex þáttum, gerð eftir
skáldsögu Roberts Louis
Stevensons. Myndirnar
gerði John Worsley. 3. þátt-
ur. Maðurinn á eyjunniÞýð-
andi og þulur Karl Guð-
mundsson.
19.00 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Kjördæmin keppa 5.
þáttur Reykjavik-Suðurland
Spurningarnar samdi Helgi
Skuli Kjartansson. Spyrj-
andi Jón Ásgeirsson. Dóm-
ari Ingibjörg Guðmunds-
dóttir, og hún syngur einnig
i hléi við undirleik hljóm-
sveitarinnar B.G. frá tsa-
firði. Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.05 Læknir til sjós Breskur
gamanmyndaflokkur. Fólk i
fyrirrúmi Þýðandi Stefán
Jökulsson.
21.30 Eg græt að morgni (ITl
Cry Tomorrow) Bandarisk
biómynd gerð árið 1956.
Aðalhlutverk Susan Hay-
ward, Richard Conte, Jo
Van Fleet og Eddie Albert.
Myndin er gerð eftir sjálfs-
ævisögu leikkonunnar
Lillian Roth og greinir frá
baráttu hennar við áfengis-
ástriðu sina. Þýðandi Heba
Júliusdóttir.
23.25 Dagskrárlok