Tíminn - 24.04.1976, Qupperneq 15
Laugardagur 24. april 1976
TÍMINN
15
Réðust á sjötugan næturvörð
Gsal—Reykjavik. — Þrir menn
réðust að tæplega sjötugum
næturverði I einum af vöruskál-
um Eimskipaféiagsins i fyrrinótt
og veittu honum verulega áverka.
Manninum tókst að komast undan
piltunum og ná i lögreglu, sem er
til húsa I sama húsi og vöruskál-
inn.
Áður en piltarnir þrir brutust
inn i vöruskálann náðu þeir sér i
virklippur úr togara sem lá við
bryggju, en inn i vöruskemmuna
komust þeir á þann hátt, að brjóta
upp hurð að norðanverðu. Pilt-
arnir héldu að vingeymslu i
skálanum, en i sama mund og
þeir voru að byrja að klippa á net-
iö sem er umhverfis vingeymsl-
una, fór vaktmaðurinn sina föstu
göngu um skálann og varð
piltanna var. Einn piltanna veitt-
ist að gamla manninum, og hafði
hann undir eftir talsverðan þæf-
ing, og hafði þá m.a. barið mann-
inn i andlitið með virklippunum.
Vaktmaðurinn komst á fætur og
náði að komastundan piltunum út
um austurdyr skálans og inn um
næstu dyr sem liggja inn á lög-
regluvarðstofuna i Tollstöðinni.
Áð sögn lögreglunnar taldi
maðurinn að piltarnir væru farnir
úr skemmunni, enda dyr opnar.
Strax var hafin mjög umfangs-
mikil leit i næsta nágrenni við
vöruskálann og eins var fengið
aukalið til að leita inn i geymsl-
unni. Eftir rúmlega hálftima leit
fundust tveir piltanna, þar sem
þeir höfðu falið sig á milli hveiti-
poka i' geymslunni. Nokkru siðar
fannst sá þriðji.
Gamli maðurinn var fluttur á
slysadeild Borgarspitalans en
hann hafði verulega áverka i and-
liti, auk þess sem hann kvartaði
undan eymslum i baki.
íýr
klippti
þrjá
Gsal-Reykjavik — A sumardag-
inn fyrsta klippti varðskipið Týr á
togvira og vörpu þriggja brezkra
togara austnorðaustur af Bjarn-
arey. Brezku togurunum hefur
fjölgað mjög á miðunum fyrir
austan að undanförnu, og að sögn
talsmanns Landhelgisgæzlunnar
hcfur fjöldi þeirra tvöfaldazt á
vikutima. i gær voru togararnir
53 talsins og hafa þeir ekki verið
fleiri hér við land i vetur.
Það var siðdegis á sumardag-
inn fyrsta, að Týr klippti á forvir
brezka togarans Northem Gift,
og skömmu siðar klippti hann á
báða togvira Benellu, en þaö skip
er viöfrægt i þessu þorskastrlði,
og var þetta I þriðja sinn, sem
togarinn missir veiðarfæri sin
fyrir tilstilli varðskips. Siðar um
kvöldið náði Týr að skera á vörpu
þriðja togarans, Arctic Vandal,
er hann var að hifa vörpuna inn.
öll voru þessi skip að veiðum út
af Bjarnarey, en á þeim stað vom
ennfremur tvö herskip og drátt-
arbáturinn Lloydsman.
í gær komst Óðinn inn I hóp
brezkra togara á Hvalbakssvæð-
inu en togaraskipstjórarnir hifðu
inn vörpurnar áöur en Öðinn
komst i færi við togvlrana. A
Hvalbakssvæðinu voru 20 skip að
veiðum I gær, auk þess sem þar
voiu freigáturnar Gurkha og
Galatea, svo og dráttarbáturinn
Euroman.
Húsdýraáburður
til sölu
SÍAAI 7-31-26
Kona óskar eftir að
kynnast.
fötluðum
manni
45-50 ára. Hann þarf
að hafa bíl. Svar send-
ist Tímanum merkt
Sumarið 1976.
Sveit
Dugleg 13 ára stelpa
vill komast í sveit,
helzt þar sem hestar
eru. Sími 30524.
Birtir ekki ASÍ-auglýsingu
gébé-Rvik — A fundi slnum I gær,
tók útvarpsráð þá ákvörðun að
taka auglýsingu Alþýöusam-
bands tslands ekki til birtingar I
sjónvarp né hljóðvarp. Sem kunn-
ugt er var auglýsingin birt einu
sinni I sjónvarpi I auglýsingatima
þess, en útvarpsráð telur, að það
hafi verið á misskilningi byggt.
I umræddri auglýsingu ASÍ
segir, að almennt verðlag hafi
hækkað um 7,3% frá febrúarbyrj-
un til 1. april, en að einungis sé
hægtað rekja 1,3% til launahækk-
ananna 1. marz s.l. Auglýsingin i
útvarpinu var að sama toga
spunnin, -nema hvað verkafólk
var auk þess hvatt til að koma á
skrifstofu ASl til að ná I auglýs-
ingabækling þann, sem samband-
ið lét gera um verðlagsmálin.
Tilkynning um aðstöðu-
gjald í Reykjavík
Ákveðið er að innheimta i Reykjavik að-
stöðugjald á árinu 1976 samkvæmt heim-
ild i V. kafla laga nr. 8/1972 um tekju-
stofna sveitarfélaga og regiugerð nr.
81/1962 um aðstöðugjald, sbr. lög nr.
104/1973.
Samkvæmt ákvörðun borgarstjórnar
verður gjaldstigi eins og hér segir:
0.20% Rekstur fiskiskipa.
0.33% Rekstur flugvéla.
0.50% Matvöruverslun I smásölu. Kaffi, sykur og korn-
vara til manneldis I heildsölu. Kjöt- og fiskiðnaður.
Endurtryggingar.
0.65% Rekstur farþega- og farmskipa.
1.00% Sérleyfisbifreiðir. Matsala. Landbúnaður. Vá-
tryggingar ót.a. útgáfustarfsemi. Útgáfa dagblaða
er þó undanþegin aðstöðugjaldi. Rakara- og hár-
greiðslustofur. Verslun ót.a. Iðnaöur ót.a.
1.30% Verslun með kvenhatta, sportvörur, hljóðfæri,
snyrti- og hreinlætisvörur. Lyfjaverslun. Kvik-
myndahús. Fjölritun. Skartgripa- og skrautmuna-
verslun. Tóbaks- og sælgætisverslun. Söluturnar.
Bómaverslun. Umboðsversiun. Minjagripaverslun.
Barir. Biiijardstofur. Persónulega þjónusta. Hvers
konar önnur gjaldskyld starfsemi ót.a.
Með skirskotun til framangreindra laga
og reglugerðar er ennfremur vakin at-
hygli á eftirfarandi:
1. Þeir, sem ekki eru framtalsskyldir til tekju- og eignar-
skatts, en eru aðstööugjaldsskyldir, þurfa að senda
skattstjóra sérstakt framtal til aðstöðugjalds, sbr. 14.
gr. reglugerðar nr. 81/1962.
2. Þeir, sem framtalsskyldir eru I Reykjavik, en hafa með
höndum aðstööugjaldsskylda starfsemi I öðrum
sveitarfélögum, þurfa að senda skattstjóranum I
Reykjavlk sundurliðun, er sýni, hvað af útgjöldum
þeirra er bundiö þeirri starfsemi sbr. ákvæöi 8. gr.
reglugerðar nr. 81/1962.
3. Þeir, sem framtalsskyldir eru utan Reykjavlkur, en
hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starfsemi I
Reykjavlk, þurfa að skila tii skattstjórans I því um-
dæmi, þar sem þeir eru heimilisfastir, yfirliti um út-
gjöld sin vegna starfseminnar I Reykjavík.
4. Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að útgjöld
þeirra teljast til fleiri en eins gjaldflokks samkvæmt
ofangreindri gjaldskrá, þurfa að senda fullnægjandi
greinargerð um, hvað af útgjöldunum tilheyri hverjum
einstökum gjaldflokki, sbr. 7. gr. reglugerðaP nr.
81/1962.
Framangreind gögn ber að senda til skatt-
stjóra fyrir 9. mai n.k., að öðrum kosti
verður aðstöðugjaldið, svo og skipting i
gjaldflokka, áætlað eða aðilum gert að
greiða aðstöðugjald af öllum útgjöldum
skv. þeim gjaldflokki, sem hæstur er.
Reykjavik, 23. april 1976
Skattstjórinn í Reykjavik.
Dalvík - Svarfaðardalur
Almennur fundur á vegum framsóknarmanna veröur haldinn i
Vlkurröst sunnudaginn 25. april og hefst kl. 21. Frummælendur
verða alþingismennirnir Ingvar Glslason, Stefán Valgeirsson og
Ingi Tryggvason.
Hörpukonur
Hafnarfirði,
Garðabæ og
Bessastaðahreppi
a ±rt
Aðalfundur Hörpu verður haldinn aö Goðatúni 2. Garöabæ
mánudaginn 26. april kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál.
Gestur fundarins, Valborg Bentsdóttir, flytur ávarp. Bingó.
Kaffi. — Stjórnin.
Dalvík
Aðalfundur Framsóknarfélags Dalvikur verður haldinn I
Jóninubúð þriðjudaginn 27. april kl. 21.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Bæjarstjórinn, Valdimar
Bragason, ræðir bæjarmálefni. Stjórnin
Mjaltavélar til sölu
Tveggja vélfötu mjaltavélar til sölu.
Einnig 15 góðir mjólkurbrúsar. Upplýs- -
ingar gefur Jósavin Helgason, Másstöð-
um. Simi um Dalvik.
Stokkhólmur
Getum boðið ódýra Stokkhólmsferð 9.-16. mai.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni Rauðarárstig 18. Simi
24480.