Tíminn - 07.12.1976, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 7. desember 1976
TÍMINN
21
Allt ætlaði
um koll að
keyra þegar
Paul Mariner
skoraði
stórglæsilegt mark á
Portman Road, sem tryggði
Ipswich sogur (1:0)
yfir Liverpool
35.000 áhorfendur voru
viðstaddir leik, sem fjölmiðlar i
Englandi voru fyrir þó nokkru
búnir að kalla leik keppnistima-
bilsins, og stóð hann svo sannar-
lega undir þvi nafni. Þetta var
auðvitað leikur toppliðanna í 1.
deild. Liverpool og Ipswich, sem
kepptu fyrir troðfullum leikvangi
Ipswich, Portman Road. Þrátt
fyrir slæmt veður i Englandi að
undanförnu var þessi leikur
aldrei i hættu, þar sem leikvöllur
Ipswich liðsins er talinn einn sá
besti I Englandi, og hafði hann
litið látið á sjá.
Gangur leiksins var i stuttu
máli sá, að Ipswich-liðið var mun
meira með knöttinn, en inn á milli
átti Liverpool hættulegar skyndi-
sóknir, sem i nokkur skipti hefðu
alveg eins getað gefið mark eða
mörk. Báðir markveröirnir stóðu
sig með sóma í leiknum og I fyrri
hálfleik reyndi álika mikið á þá
báða, Ray Clemence og Paul
Cooper. En þeir gáfu hvergi eftir
og var staðan i hálfleik 0-0.
1 seinni hálfleik reyndi Ipswich
liðið allt sem það gat til að knýja
fram mark, sem myndi nægja
þeim til sigurs, með þá Mick
Mills, Brian Talbot, Kevin
Beattie og Paul Mariner sem
beztu menn. En vörn Liverpool er
sterk fyrir og varðist öllum áföll-
um, þar til 13 minútur voru til
leiksloka. Þá gaf Mills knöttinn
Snjór, þoka
og ísing...
— hafði óhrif á
ensku
knattspyrnuna
Snjór, ising og þoka settu mark
sitt á leiki helgarinnar I Englandi
— og þar var frestað mörgum
leikjum.
1. DEILD:
Arsenal —Newcastle.......5:3
BristolC. —Leeds.........0:0
(flautaður af i hálfleik vegna
þoku).
Ipswich —Liverpool.......1:0
Leicester —Birmingham....2:6
Man. City —Derby.........3:2
West Ham — Middlesb......0:1
Þeim leikjum sem var frestað:
Aston Villa — Tottenham, Ever-
ton — Norwich, Q.P.R. — Man.
Utd., Stoke — Coventry og
Sunderland — W.B.A.
2. DEILD:
Burnley — Cardiff........0:0
Carlisle — Orient........1: o
Charlton —Blackburn.......4:0
Fulham — Oldham..........5:0
Luton —Blackpool.........0:0
Nott.For, —BristolR .....4:2
Sheff. U td. — Chelsea...1:0
Southam pton — N otts C..2:1
Wolves — Plymouth........4:0
Meðal úrslita i 3. deild má
nefna 1:0 sigur Shrewsbury yfir
Brighton og 7:0 sigur Chesterfield
yfir Bury og skoraði þar fyrrver-
andi leikmaður með Leicester,
Rodney Fern.fjögur mörk.
O.O.
m
fyrir mark Liverpool, en boltinn
hrökk i varnarmann og út af.
Clive Woods tók hornspyrnuna,
gaf góðan bolta fyrir, sem
Emlyn Hughes skallaði út i vita-
teiginn. Þar bar að Whymark,
sem skallaði knöttinn fyrir mark-
ið inn i eyðu. Það var Paul
Mariner fljótur að notfæra sér,
hann kom þar að á fleygiferð og
hamraði knöttinn i netið með
höfðinu og átti Clemence engan
möguleika á að verja þennan
fasta skalla hans.
Eftir markið reyndi Liverpool
allt sem þeir gátu til að jafna, en
þrátt fyrir nokkur góð færi tókst
það ekki og þegar dómarinn blés
leikinn af brutust út mikil fagn-
aðarlæti meðal áhorfenda. Þeir
hylltu bæði liðin þegar þau gengu
af leikvelli, þau áttu það skilið
fyrir að leika einhvern bezta leik
keppnistimabilsins i Englandi.
Einnig var markið nógu fallegt til
að vinna hvaða ,.Goal of the
Framhald á. bls. 17
í. DEILD
STAÐAN er nú þessi I 1. og 2.]
deildarkeppninni i Englandi:
Liverpool .... 17 11 3 3 28:12 251
Ipswich......16 10 4 2 32:15 24
Newcastle ...17 8 6 3 29:20 22
Man.City.....16 7 7 2 21:13 21
Aston Villa ... 16 8 3 5 31:20 19
Arsenal...... 16 8 3 5 31:26 19
Leicester .... 18 4 10 4 20:25 18
Birmingh..... 17 7 3 7 26:22 17
Leeds....... 16 5 7 4 22:20 17
Middlesb..... 16 7 3 6 10:15 17
WBA......... 16 6 4 6 24:21 16
Everton......16 6 4 6 25:26 16
Stoke....... 16 6 4 6 12:16 16
Coventry..... 15 5 5 5 19:18 15
Man.Utd...... 15 4 6 5 23:24 14
QPR......... 16 5 4 7 20:23 14
Norwich .....17 4 5 8 16:25 13
Derby....... 15 3 6 6 21:23 12
BristolC..... 16 4 4 8 15:19 12
Tottenham ... 16 4 3 9 20:34 11
Sunderland ..16 2 5 9 13:25 9]
West Ham. ... 17 3 3 11 17:32 9
2. DEILD
Chelsea .... ..17 11 3 3 29:21 25
Blackpool.. ..18 9 5 4 29:20 23
Bolton .. 16 10 2 4 28:19 22
Wolves .. 17 8 5 4 41:22 21
Notth.For. . . .17 8 5 4 38:21 21
Sheff.Utd... ..17 6 5 4 20:20 19
Oldham .... ..17 7 5 5 23:25 19
Charlton ... ..17 7 4 6 36:31 18
Blackburn . ..17 8 2 7 18:22 18
Luton ..17 7 3 7 27:26 17
Millwall. ... .,15 7 2 6 24:19 16
Fulham .... .. 17 5 6 6 27:26 16
Notts.C ..17 7 2 8 25:30 16
Hull ..15 5 5 5 19:19 15
Bristol R. .. . .17 5 5 7 23(25 15
Southampt. ..17 5 4 8 27:32 14
Burnley .... ..17 4 6 7 21:26 14
Cardiff .. 17 5 4 8 21:28 14
Carlisle .... ..18 5 4 9 19:33 14
Plymouth .. .. 17 3 6 8 22:30 12
Hereford ... .. 16 3 4 9 21:35 10
Orient .. 15 2 5 8 14:22 9
,,NEI VINUR — HÉR ER LOKAД..Pressuliðsmennirnir” Trausti Þorgrlmsson (7) og Arni
Indriðason stöðva linumanninn snjalla, Björgvin Björgvinsson, á siðustu stundu. Jón Pétur Jónsson og
Geir Hallsteinsson sjást I baksýn. (Tímamynd Róbert).
,PressarT veitti lands
liðinu harða keppni
— það var ekki fyrr en þreytan fór að segja til sín hjó
„pressuliðinu" undir lokin, að landsliðið nóði
að tryggja sér sigur — 25:22
LANDSLIÐIÐreiðekkifeitum hestifrá viðureigninni viö „pressuliðið”
i Laugardalshöllinni. — Þrátt fyrir sigur (25:22) landsliðsins, er ekki
hægt að hrópa húrra fyrir leik liðsins. Þaö var ekki fyrr en undir lokin,
þegar þreyta fór aö færast yfir leikmenn „pressunnar”, að landsliðið
náði að gera út um leikinn.
Pressuliðiö var aðeins skipaö 10
leikmönnum — vantaði vinstri-
handarskytturnar, Hörö Sig-
marsson og Guömund Sveinsson.
Liðið réði þó fullkomlega við
landsliðið, eða þar til þreytan fór
að segja til sin undir lok leiksins.
„Pressuliðið” haföi þá yfir 20:17,
en missti leikinn niður — og
landsliöiö komst yfir 22:20 og
sigraði siðan 25:22.
Það var greinilegt á öllum leik
landsliðsins, að það á enn langt I
land að ná saman sem sterk heild.
Það vantar illilega hornamenn i
liðið, til að teygja úr vörn and-
stæðinganna — og þar með að
opna fyrir langskotum og línu-
spili. Þá vantar einnig góða lang-
skyttu og öflugan linumann — það
er ekki nóg að hafa Björgvin
Björgvinsson einan á linunni. bótt
hann sé frábær leikmaður.
Bjarni Jónsson, Jón Pétur
Jónsson og Hilmar Björnsson
voru atkvæðamestir hjá „pressu-
liðinu” og einnig þeir Sigurbergur
Sigsteinsson og Arni Indriðason,
sem léku stór hlutverk i vörninni.
Leikmenn „pressuliðsins” léku
oft á tiðum mjög sterkan varnar-
leik, sem landsliðið átti erfitt með
að vinna á. Sóknarleikurinn var
lika oft liflegur, þrátt fyrir að
leikmennirnir væru ekki i samæf-
ingu. Þeir skoruðu t.d. 10 mörk
með langskotum og 7 eftir hrað-
upphlaup — og þá fengu linu-
mennirnir i liðinu nóg að gera, —
skoruðu 4 mörk.
Leikur landsliðsins var ekki
nógu sannfærandi, sóknin allt of
einhæf — og leikmennirnir ekki
nógu hreyfanlegir og ógnandi.
Kristján í
landsliðið
Kristján Sigmundsson, hinn ungi markvörður úr Þrótti, hefur
verið valinn i landsliðshópinn i handknattleik, sem heldur til A-
Þýzkalands á morgun. Kristján er eini nýliðinn I landsliðshópn-
um.
Landsliðið leikur gegn A-Þjóöverjum i A-Berlin og Frankfurt
an der Oder á fimmtudaginn og föstudaginn, en siðan gegn Dön-
um i Kaupmannahöfn á sunnudaginn.
14 leikmenn fara i þesa keppnisferð, en það eru: Olafur
Benediktsson, Val, Gunnar Einarsson, Haukum, Kristján Sig-
mundsson.Þrótti. Viggó Sigurðsson, Vikingi, Geir Hallsteinsson,
FH, Viðar Simonarson.FH, Þórarinn Ragnarsson.FH, Olafur
Einarsson Vikingi, Þorbergur Aðalsteinsson,Vikingi, Björgvin
Björgvinsson, Vikingi, Jón Karlsson Val, Bjarni Guðmundsson,
Val, Agúst Svavarsson,IR og Þorbjörn Guðmundsson.Val.
Fararstjórar verða: Januz Cerwinsky, landsliðsþjálfari, Ingi-
mar Jónsson og landsliðsnefnarmennirnir Birgir Björnsson og
Gunnlaugur Hjálmarsson.
Jafnvel þótt nokkrum leikmönn-
um væri troðið inn á linu, vantaði
menn til að senda knöttinn inn á
linuna. Þá vantaði algjörlega
menn, sem ógnuðu i hornum —
þeir sjást ekki i landsliðinu, enda
skoraði landsliðið ekkert mark úr
horni. Landsliðið bar ekki merki
þess að þarna væri á ferðinni leik-
menn, sem féllu saman. Einka-
framtakið sat i hásæti, og þvi sást
oft furðulegt „hnoð” hjá einstök-
um leikmönnum.
Mörkin i leiknum skoruðu:
Landsiiðið: — Viðar 9 (5), Þor-
björn 5, Þorbjörn
Mörkin i leiknum skoruðu:
Landsliðið: — Viðar 9 (5), Þor-
björn 5, Björgvin 3, Ólafur
Einarsson 3, Geir 3 og Jón Karls-
son 2 (2). Þeir Björgvin og Þor-
björn voru skástu menn lands-
liðsins.
„Pressuliðið”: — Jón Pétur 7,
Bjarni 4, Hilmar 3, Sigurbergur 3
— þar af eitt með langskoti, Arni
2, Þorgeir 1, Trausti 1 og Steindór
L SOS
Janus ræðir
við Axel
r
og Olaf....
JANUZ Cerwinsky, landsliðs-
þjálfari i handknattleik, mun
ræða við þá Ólaf H. Jónsson og
Axel Axclsson i V-Berlin á morg-
un. Hann mun þá væntanlega
kanna, hvort þeir geti á einhvern
liátt tekið þátt i æfingum með
landsliðinu um áramótin og leikið
með landsliðinu i fjögurra liða
keppni i V-Berlin um áramótin,
Januz ætlaði upphaflega að sjá þá
leika meðDankersen gegn Heim i
Gautaborg i Evrópukeppninni 14.
desember. Af þvi verður ekki, þar
sem Januz verður þá að undirbúa
landsliðið fyrir þrjá landsleiki
gegn Dönum hér i Reykjavik.