Tíminn - 04.01.1977, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.01.1977, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 4. janúar 1977 3 íslenzka jórnblendifélagið: uy u Lánssamningur uv v^mocv 7,3 milljarðar undirritaður • x ik ■ t• / r | ■ við Norræna fjárfestingarbankann Meðfylgjandi Tlmamynd Gunnars sýnir fulltrúa Eikem-Spiger- verket, sem er I ræöustól, ásamt iönaöarráöherra, fulltrúum tsl. járnblendifélagsins og öörum fulltrúum sem viöstaddir voru undir- ritun lánssamningsins I gær. gébé Rvik — Norræni fjárfesting- arbankinn hefur veitt Islenzka járnblendifélaginu lán til bygg- ingar verksmiöju að Grundar- tanga i Hvalfirði, og var láns- samningurinn undirritaður i Nor- ræna húsinu i Reykjavik i gær. Af hálfu Norræna fjárfestingar- bankans undirrituðu formaöur bankaráðsins, Hermod SkSnland, bankastjóri Noregsbanka, og Bert Lindström, bankastjóri Nor- ræna fjárfestingarbankans, samninginn. Af hálfu tsl. járn- blendiféiagsins undirritaði for- Náttfari dæmdur Gsal-Reykjavik — Kveðinn hefur verið upp dómur i máli.25 ára gamais Reykvikings, Jóns Ing- vasonar, fyrir 21 innbrot og inn- brotstilraunir i fyrrasumar. Þessi maöur gekk undir nafninu ,,Nátt- fari” I blöðum. Var hann dæmdur i 18 mánaöa fangeisi og til greiðslu 1200 þúsunda króna i skaðabætur. Dóminn kvað upp Halldór Þorbjörnsson yfirsaka- dómari i Reykjavik. maður stjórnar félagsins, dr. Gunnar Sigurðsson samninginn. Viöstaddir undirritunina, voru dr. Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráð- herra og fulltrúar Elkem-Spieg- erverket, auk fulltrúa norsku lánastofnanna Den Norske Kredit bank og Garanti-Institutet for Exportkredit. Iðnaðarráðherra flutti ávarp við þetta tækifæri svo og norsku bankastjórarnir. Lán þetta nemur 200 milljónum norskra króna, eða um 7,3 milljörðum íslenzkra króna á nú- verandi gengi. Lánið verður greitt út i þrennu lagi, i júni 1977, desember 1978 og loks i júni 1980. Lánið skal siðan endurgreiðast á árunum 1981-1994. Meö þessu láni er séð fyrir verulegum hluta fjáröflunar til byggingar kisil- járnverksmiðju til framleiðslu 50 þúsund tonna 75% kisiljárns á ári, en heildarframkvæmdakostnaður er talinn nema um 450 milljónum norskra króna, þ.e. um 16 milljörðum isl.króna á núverandi gengi. íslenzka rikisstjórnin og norska fyrirtækið Elkem-Spigerverket hafa undirritað samning um stofnun járnblendifélagsins svo sem kunnugt er, en samkvæmt honum verða 55% af hlutafé fyrir- tækisins i eigu Islendinga, en 45% i eigu Elkem-Spigerverket. Norska fyrirtækið mun fram- leiða tvo bræðsluofna fyrir verk- smiðjuna og að auki leggja til tæknikunnáttu við uppbyggingu og rekstur hennar. Samningur þessi er þó háður samþykki Alþingis, en hann var lagður þar fram til meðferðar hinn 14. desember s.l. Viðræður við norska fyrirtækið hafa staðið yfir siðan snemma árs 1976, en I lok 1975 haföi komið i ljós, að bandariska fyrirtækið Union Carbide Co. vildi draga sig út úr gerðum samningum, og lauk þeim samskiptum svo, að Islend- ingar urðu skaðlausir af þeim viðskiptum. Samkomulag náðist við Elkem-Spigerverket um áður-' nefnd eignarhlutföll, sem voru sömu og gerð voru við bandariska fyrirtækið og Alþingi hafði áður samþykkt. Iðnaðarráðherra sagði m.a. I á- Framhald á bls. 5 Nýtt fiskverð: Meðal- hækkun yfir 9% gébé Rvik — Nýtt fiskverð var ákveðiðá gamlársdag fyrir tima- bilið l.janúar 1977 til30. júní 1977. Breytingar á verði einstakra fisk- tegunda eru nokkuð mismunandi, en meðalfiskveröshækkun er yfir 9%. Verðið var ákveðið af odda- manni og fulltrúum seljenda I yfirnefnd Verðlagsráös sjávarút- vegsins, gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda. Samkvæmt hinni nýju hækkun, hækkar þorskur i verði um nálægt 9%,en verð á ufsa og karfa hækk- ar minna. Aðrar tegundir hækka nokkuð meira, þannig að meðal- fiskverðshækkunin verður yfir 9%. 1 yfirnefndinni áttu sæti Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóöhags- stofnunar, sem var oddamaður, Ingólfur Ingólfsson og Kristján Ragnarsson af hálfu seljenda og Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson og Helgi Þórarinsson af hálfu kaup- enda. Reykjavík og Hafnarfjörður: FAIR ALVARLEGIR BRUNAR í FYRRA Gsai-Reykjavik — Slökkviliðið I Reykjavik var kallaö út 352 sinnum á árinu 1976 og voru alvarlegir brunar i Reykjavik aðeins tveir á nýliönu ári. Mesta eignatjónið var, er eldur kom upp að Laugavegi 168, en alvar- legasti bruninn var þó á jóla- nótt, er hjón fórust I eldsvoöa að Hverfisgötu 66. Flcstútköll á einu ári urðu ár- ið 1965, alls '534. Fæst urðu út- köllin hins vegar árið 1970, 332. Sjúkraflutningar I Reykjavik urðu 10177, en voru 9701 árið 1975. Að sögn Gunnars Sigurðs- sonar varaslökkviliðsstjóra hef- ur fjöldi sjúkraflutninga svo til staöiö i stað síðustu þrjú árin. Slökkviliðið i Hafnarfirði var kvatt út 66sinnum á síðasta ári, en það eru um helmingi færri útköll en á árinu þar á undan, en þá urðu útköllin 125 talsins. Að sögn Sigurðar Þórðarsonar varaslökkviliðsstjóra voru alvarlegustu brunarnir 11. apríl, er eldur kviknaði i oliu- geymi i Straumsvik, og 17. april, er maður brann inni i skúr i Hafnarfiröi. Sjúkraflutningari Hafnarfirði og nágrenni urðu 1065 á siðasta ári, en voru 961 á árinu 1975. Úthlutun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins ó gamlórsdag: 47 rithöfundar hafa hlotið styrki á 20 árum Jónas Kristjánsson, formaöur stjórnar Rithöfundasjóös rikisút- varpsins, t.h. hefur afhent þeim Einari Kristjánssyni og Gunnari Dal styrki sjóðsins. Timamynd: Róbert. F.I. Reykjavik. — Arleg styrk- veiting úr Rithöfundasjóði Rikis- útvarpsins fór fram s.l. gamlárs- dag i Þjóðminjasafni íslands. Að þessu sinni féllu styrkirnir i hlut rithöfundanna Einars Kristjáns- sonar frá Hermundarfelli og Gunnars Dal. Viðstaddir afhend- inguna voru m.a. forseti tslands, dr. Kristján Eldjárn, og Birgir Thorlacius, ráöuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins. Það kom fram i ræðu dr. Jónas- ar Kristjánssonar, forstöðu- manns Stofnunar Arna Magnús- sonar og formanns sjóðsstjórnar, að tekjur rithöfundasjóösins næmu nálfri milljón króna en tekjur væru þvi þrenns konar. I fyrsta lagi vextir af höfuðstól, sem i upphafi var nokkurs konar uppbót fyrir ógreidd höfundalaun frá fyrri árum útvarpsins. t öðru lagi árlegt framlag útvarpsins sem smám saman hefur hækkað með árunum, og i þriðja lagi væri um aö ræða „rithöfundalaun, sem Rikisútvarpinu ber að greiða samkvæmt samningi, en höf- undar finnast eigi að”. Jónas minnti einnig á aðra grein skipulagsskrár Rithöfunda- sjóðs Rikisútvarpsins en þar seg- ir, að tilgangur sjóðsins sé að veita islenzkum rithöfundum styrki til ritstarfa eða undirbún- ings undir þau, einkum með utan- förum. Einnig skuli styrkþegi þegar að lokinni utanför gera stjórn sjóðsins grein fyrir henni og láta Rikisútvarpinu i té til flutnings nýtt efni eftir sig, eftir samkomulagi, i þeirri sumar — eða vetrardagskrá, sem næst fer á eftir heimkomu þeirra. Þessi grein væri þó frekar tilmæli en fyrirmæli og styrkveitingin skuldbindingalaus. Stjórn Rithöfundasjóðs Rikisút- varpsins skipa auk dr. Jónasar Kristjánssonar, Andrés Björns- son, útvarpsstjóri, Hjörtur Páls- son, dagskrárstjóri útvarpsins og tveir fulltrúar frá Rithöfunda- sambandi Islands. Hefur Rithöfundasambandið ætið sent styrkhafa hvers liðandi árs, en þeir voru nú Jón Björns- son og Björn Bjarman. Réttir tveir áratugir eru liðnir siðan fyrst var úthlutað úr sjóði þessum, og hafa 47 rithöfundar alls hlotið styrk frá upphafi. Siðasta bók Einars Kristjáns- sonar frá Hermundarfelli, „Eld- rauða blómið og annarlegar manneskjur”, kom úr 1975, en nú fyrir jólin kom út eftir Gunnar Dal bókin „Kamala”, saga frá Indlandi. ávíðavangi „Ofsóknlr" Fyrir þremur mánuöum hélt Alþýðublaðið uppi stöðug- um árásum á Vilhjálm Hjálmarsson menntamála- ráöherra fyrir þá sök „að sniðganga” dr. Braga Jóseps- son viö veitingu stöðu aö- stoöarskólastjóra við Fjöl- brautaskólann. Taldi blaöiö, að menntamálaráöherra hefði sýnt sérstakan ódrengskap gagnvart dr. Braga. M.a. sagði blaðiö: „Löngum hefur veriö svo á litiö á landi hér, og tvlmæla- iaust með réttu, að vaids- menn, sem beita vaidi sinu vegna valdsins, væru litilla sanda og lítilla sæva. Þegar valdinu er svo beitt til þess aö níða niöur mótherjann, kcyrir samt um þvert bak. Þegar þab gcrist æ ofan i æ, verður ekki annað séö en málið hafi leiözt út I hreinar ofsóknir.” Dagblaðið tók i svipaðan streng og sparaöi ekki lýsingarorðin frekar en Al- þýðublaðið. Uppsögn dr. Braga Jósepssonar Nú mætti ætla, að þeir aðilar, sem stóðu fast vib bak- iö á dr. Braga Jósepssyni á opinberum vettvangi, styddu hann dyggiiega ekki bara I oröi heldur á boröi. Ekki reyndist þó Jónas Kristjáns- son, ritstjóri Dagblaösins, neinn sérstakur drengskapar- maður i garð dr. Braga, þegar haun hafði tækifæri til þess sjálfur aðhafa áhrif á veitingu fræðsiustjóraem bættis i Reykjanesumdæmi. Er óþarfi aö rekja þá ófögru sögu aftur. En það eru fieiri en Jónas Kristjánsson af yfirlýstum stuöningsmönnum dr. Braga, sem bregðast honum I seinni tlö. Nú hefur Braga Jóseps- syni verið sagt upp störfum á Alþýöubiaðinu, þar sem hann hefur starfað um nokk- urt skeiö. Fékk dr. Bragi, á- samt tveimur öðrum hlaöa- mönnum, uppsagnarbréf skömmu fyrir áramótin frá yfirboðurum sinum á Alþýðu- blaðinu. Má þvi segja að svo bregðist krosstré sem önnur tré. Með fullu samþykki krataforingjanna Raunar fyigir þaö sögunni, að útgáfuaðilar Alþýðublaðsins, eigendur VIsis, hafi fyrir- Dr. Bragi og Gylfi Þ. — Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi. skipað ritstjóra Alþýbublaðs- ins að segja þremur biaba- mönnum upp vegna fjárhags- örðugleika við rekstur blaðs- ins. En það breytir ekki þeirri staðreynd, að þaö var á valdi ritstjóra blaðsins hvaða mönnum yröi sagt upp. Sú ákvörðun að segja dr. Braga upp frekar en einhverjum öðrum, er tekin af Aiþýðu- flokksmönnum sjálfum. Sjálfsagt hefur þaö veriö erfið ákvörðun fyrir Arna Gunnarsson ritstjóra aö skrifa undir uppsagnarbréfið til dr. Braga og honum mjög á móti skapi. En Arni veröur að hlýða skipunum yfirboöara sinna i Alþýðuflokknum, og efalaust er uppsagnarbréfið til dr. Braga Jósepssonar skrifaö með vilja og fullu samþykki þeirra Gylfa Þ. Gislasonar og Benedikts Gröndal. óneitan- lega ber þetta frantferði keim af ofsóknum. a.þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.