Tíminn - 11.02.1977, Side 17

Tíminn - 11.02.1977, Side 17
Föstudagur 11. febrúar 1977 17 — segir Ray Wilkins, fyrirliði Lundúna- liðsins Chelsea, sem rambar á barmi gjaldþrots „Við ætlum okkur upp í 1. deild"... „Slask" var sterkari i fyrstu lotunni Pólska liðið vann sigur (26:23) yfir landsliðinu í gærkvöldi Pólska meistaraliöið „Slask” vann sigur (26:23) yfir fslenzka landsliöinu I fyrstu lotu af fimm, ' þegar liöin mættust f Laugardals- höllinni i gærkvöldi I dæmigerö- um æfingaieik. Þaö varenginn- glans yfir leik liöanna, sem léku greinilega ekki á fullu — þó sáust margar skemmtilegar leikfléttur hjá Pölverjunum, sérstaklega I fyrri hálfleik, en þá voru þeir lengstum meö 6 marka forskot. Pólverjarnir byrjuöu vel — komust fljótlega yfir 7:1 og sföan hélzt þetta 6 marka forskot, eöa þar til staöan var 11:5 fyrir „Slask”. íslenzku leikmennirnir náöu slöan aö rétta úr kútnum og minnka muninn i fjögur mörk (15:11) fyrir leikhlé og f byrjun siöari hálfleiks náöu þeir aö jafna 15:15. Eftir þaö var leikurinn nokkuö jafn, en Pólverjarnir voru þó alltaf sterkari. Sérstaklega voru hraöupphlaup Pólverjanna afar skemmtileg, en viö þau réöu Islendingar ekki. Vinstrihandarskyttan Jerzy Klempel fór rólega i sakirnar i gærkvöldi, en þessi stórkostlegi leikmaöur skoraöi þó nær hvenær sem hann vildi —eöa alls 7 mörk f leiknum. Islenzka liöiö olli nokkrum von- brigöum, þar sem leikmenn liös- ins lögöu sig ekki nógu mikiö fram gegn Pólverjunum. Þaö er ekki nógu gott, þvi aö þótt þetta hafi veriö æfingaleikur, veröur aö leika á fullu og af alvöru. Björg- vin Björgvinsson og Þorbjörn Guömundsson voru beztu menn islenzka liösins. Mörk liösins skiptust þannig: Þorbjörn 7, Björgvin 5, Geir 4, Viöar 4 (3 víti), Þórarinn 2 og Jón Karlsson 1(1). ÞÓRARINN Ragnarsson...skor- aöi 2 mörk gegn „Slask”-liöinu I gærkvöldi, eitt úr horni og eitt eft- ir hraöupphlaup. Eins og kunnugt er, þá er Lundúnaliðið Chelsea i miklum fjár- hagslegum erfiðleikum, og er áætlað, að skuldir félagsins næmi um það bil 3,5 milljónum punda. í júni á sl. ári réði fé- lagið til sin þekktan fjármálasérfræðing, Martin Spencer, sem þegar hóf tilraunir til að rétta efnahag félagsins við. Helzti lánveitandi er Barcleys banki, en þar skuldar félagið liðlega 2,5 milljónir punda. Samþykkti bankinn að skuldin fengi að standa óhreyfð i eitt ár, ef reglulega yrðu borgaðir af henni vextir. Eftir árið á svo að meta stöðu félagsins eftir gengi þess i deildarkeppninni. Heimilisfang: Staður: Sf • imi Pósthólf SPORT-blaðsins er 4228 Liö Chelsea fékk þannig árs frest, sem þegar er liöiö hálft ár af, og ekkert nema velgengni liös- ins getur bjargaö þvi frá gjald- þroti. Spencer geröi i upphafi áætlun um, aö 20.000 áhorfendur þyrftu aö koma á heimaleiki Chelsea aö meöaltali, til þess aö unnt væri aö standa viö skuld- bindingar félagsins þetta ár. En nú þegar er komiöf ljós, aö sú spá er röng, þar sem um 40.000 áhorf- endur aö meöaltali þarf á leiki Chelsea á Stamford Bridge til þess aö endar nái saman. Og raunin hefur oröiö sú, aö áhorf- endur hafa ekki brugöizt Chelsea, enda hefur liöinu gengiö vel og góöurleikurá „Brúnni” á laugar- dagseftirmiödögum eru talsvert skemmtilegir, jafnt fyrir inn- fædda sem erlenda áhangendur liösins. Stamford Bridge hefur einhvern „sjarma” yfir sér, sem fáir vellir i Englandi geta státaö af. Spencer hefur bent á þaö, aö ekkert nema 1. deildarknatt- spyrna á næsta keppnistimabili geti bjargaö félaginu. Þess vegna veröur Chelsea aö halda áfram á sömu braut og veröa eitt af þrem- ur efstu liöunum i 2. deild þetta keppnistimabil. A þvi hálfa ári, sem liöiö er frá þvi aö samningurinn viö bankann var geröur, hefur tekizt aö standa viö þær vaxtagreiöslur, em bank- inn fór fram á, en höfuöstóll skuldarinnar hefur ekkert breytzt. Þar aö auki hefur Chel- sea þurft aö greiöa til rikisins skatta og rafmagn, og nemur þaö verulegri upphæö. Hér á eftir fer sýnishorn af þvi I hvaö innkomnir peningar hafa aöallega fariö á þessu hálfa ári: Pund: Vextir ogskuld..........190.000 Skattar..................62.500 Söluskattur (V.A.T.).....54.500 Gasografmagn..............7.000 Samtals nemur þessi upphæö 314 þús. pundum. Fyrir utan þetta koma svo greiöslur til leikmanna og starfsmanna félagsins. Þrátt fyrir góöan árangur aö undanförnu stendur heildarskuld Chelsea ávallt i 3,5 millj. pundum og greinilegt er, aö framtiö félagsins er undir lánardrottnun- um komin. Ef félagiö tryggir sér 1. deildarsæti næsta keppnistima- bil, er nokkuö vist aö Chelsea fái lengri greiöslufrest og meö fleiri áhorfendum geti félagiö fariö aö greiöa upp i skuldina, auk hinna gifurlegu vaxtagreiöslna. Þá fyrst getur félagiö fariö aö lita bjartari augum til framtlöarinn- ar. Ekki vantar efniviöinn hjá Chelsea, liöiö er nú efst I 2. deildgrkeppninni, keppni vara- liöa (Football Combination) og unglingakeppninni (South-East Counties League). ó.O. RAY WILKINS...hinn ungi og efnilegi fyrirliöi Chelsea, sagöi fyrir stuttu, aö leikmenn Chelsea ætluöu sér ekkert nema sæti i 1. deild næsta keppnistfmabil. — Viö leikum eins og 1. deiidar-liö, sagöi þessi ungienskilandsliösmaö- ur. — SPORT-blaðið- Verið með frd byrjun og gerist dskrifendur Nafn: Borðtennis: Landsleikur við Færeyinga — í Laugardalshöllinni í kvöld Landsleikur I borötennis viö Færeyinga veröur háöur i Laugardalshöllinni föstudaginn 11. febrúar og hefst hann klukk- an 20.00. Færeyska landsliöiö kemur til landsins fimmtudag- inn 10. febr. og heldur heim 13. febr. I landskeppninni veröur keppt I þremur flokkum, karlar, unglingar 15-17 ára og 13-15 ára. Landsliö Islands er þannig skipaö: Karlar Ragnar Ragnarsson, Hjálmar Aöalsteinsson, Björg- vin Jóhannesson, Gunnar Finn- björnsson og Stefán Konráös- son. 15-17 ára Hjálmtýr Hafsteins- son, Tómas Guöjónsson og Sveinbjörn Arnarson 13-15 áraBjarni Kristjánsson og Gylfi Pálsson. Laugardaginn 12. febrúar veröur opiö mót á Akranesi meö þátttöku beggja landsliöanna. Mótiö hefst klukkan 12.00.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.