Tíminn - 06.04.1977, Síða 3
Miðvikudagur 6. apríl 1977.
3
20% húsa á Akureyri með hitaveitu um næstu áramót?
Tilboð allt að 25% und-
ir kostnaðaráætlun
Segir Helgi Bergs, bæjarstjóri á Akureyri
HV-Reykjavik. — Framkvæmd-
ir við hitaveituna hjá okkur eru
komnar nokkuð veli gang og nú
er unnið af kappi að þvi að
steypa undirstööurnar fyrir aö-
veituæðina, auk þess sem fram-
kvæmdir við forsteypu brunna
eru að hefjast. Efniskaup eru I
fullum gangi og hafa gengið vel.
Við höfum boðið út margt og
fengiö góð tilboð, sérstaklega I
þá tvo liöi, sem hér eru að fram-
an taldir, en tilboðum frá
heimamönnum var tekið i þá
báða, og skilst mér það láti
nærri að kostnaður við þá verði
um 75% af kostnaðaráætlun,
sem er vel sloppiö, sagði Helgi
Bergs, bæjarstjóri á Akureyri, I
viðtali við Timann i gær.
— Undirstöðurnar fyrir að-
veituæðina eru steyptar á veg-
um Noröurverks h.f., sagði
Helgi ennfremur, og verður
unnið aö þeim núna fram eftir
sumri. Þegar þar að kemur
verða þær svo fluttar á leiðslu-
stæöið.
Brunnarnir eru steyptir i
fjöldaframleiöslu i verksmiöju,
til þess bæði að flýta fram-
kvæmdum, svo og að dreifa
þeim á lengri tima.
Við erum búnir að opna efnis-
tilboð i stálið i aðveituæðina, og
nú er verið að athuga tilboð i
einangrunarvinnu, sleðana und-
ir aðveituæðina og fleira.
Það er að visu ekki alveg
fyrirséð hve framkvæmdahrað-
inn verður mikill hjá okkur, en
ef við fáum leyfi hjá rikisstjórn-
inni til að taka þau lán sem við
þurfum, sé ég ekki annaö en sú
framkvæmdaáætlun sem við
geröum, standist alveg. Þá ætt-
um viö aö geta byrjað aö hleypa
vatninu á I haust, þannig að um
tuttugu af hundraði húsa á
Akureyri væru búin að fá hita-
veitu um eða upp úr áramótum.
Þaö myndi muna okkur ákaf-
lega miklu, þar sem hitaveitan
færi þá þegar aö fá tekjur af
heimæðagjöldum og vatnssölu,
svo við stefnum á þetta mark og
neytum allra bragöa til að ná
þvi.
Borunin frammi i Eyjafirði
gengur vel núna og hefur gengiö
vel alveg frá þvi viö komumst
yfir þetta erfiðleikatimabil um
daginn, þegar borinn var laus
einn daginn en fastur þann
næsta. Undanfarið hefur hann
komizt niður um fimmtiu metra
á dag, eða svo, og ætti nú að
vera á um eitt þúsund metra
dýpi.
Um páskana er ætlunin að
taka Jötun upp úr holunni,
hreinsa hann og próta.en halda
svo áfram eftir hátiðarnar. Jöt-
unn fer svo fljótlega, en I sumar
munum viðfá minni bor, liklega
Dofra eða Narfa, til að bora
tvær holur frammi I firði.
Annað er svo ekki af hita-
veitumálum okkar aö fregna,
sagði Helgi að lokum.
Senn er liöinn einn mildasti og bezti vetur sem elztu menn muna, að minnsta kosti um sunnan- og
vestanvert land. Hinn 20. marz voru jafndægri á vor (ekki vori, sem er tiltölulega ung breyting á þessu
oröafari). Og þegar mennfinna vorið nálgast, standa þeir upp úr stóium sínum og ganga út I góða veöriö
sér til heilsubótar.
Tfmamynd Róbert.
Gert við
Harðbak
á ísafirði
1 gær
gébé Reykjavik. — Það var
gerð bráðabirgðaviðgerð á
Harðbak á tsafirði á þriöju-
dagsmorgun, og skipið er
væntanlegt hingaö til Akur-
eyrar seinni hluta nætur, sagði
Vilhelm Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Ctgerðarfélags
Akureyringa i gær, en greint
var frá þvi i Timanum I gær,
að togarinn hefði rekizt á is-
jaka þar sem hann var að
veiöum á Halamiðum. Svo
sem kunnugt er af fréttum,
hefur verið mikið um isrek
fyrir Vestur- og Noröurlandi
að undanförnu, en við fyrr-
nefnt ohapp kom um tveggja
metra rifa á stjórnborðshlið
Harðbaks.
— Það er óþarfi að taka
skipiö 1 slipp til að gera við
þessa rifu, þvi þegar búiö er
að losa þau 250 tonn sem það
er með, er rifan fyrir ofan sjó-
linu, sagði Vilhelm.
Veiðin hefur gengið sæmi-
lega hjá togurum Útgeröar-
félags Akureyringa að undan-
fömu, en i heild mun hún þó
vera mjög svipuð og á sama
tima i fyrra að sögn Vilhelms.
Um sl. mánaöamót landaði
Svalbakur 240 tonnum, i gær
var Kaldbakur að landa 290
tonnum og i dag landar svo
Haröbakur 250 tonnum, eins
og fyrr segir.
DAS-húsið
gekk út
i gær var dregiö i happdrætti
Dvalarheimilis aldrabra
sjómanna. Hæstu vinningar féllu
sem hér segir:
Einbýlishúsið að Hraunbergs-
vegi 9 á miða númer 32404,
Hafnarfjarðarumboð.
Bifreið eftir eigin vali á krónur
1,5 milljón á miða númer 51113,
umboðið I Hreyfli.
Bifreiðar eftir eigin vaii á krón-
ur eina milljón hvor, á miba nú-
mer 36074 og 54773, abalumbob.
Birt án ábyrgðar.
Aðferð Norðmanna i verðlagsmálum:
26 millj arðar til niður
greiðslu á kjöti í ár
— sparar hverri meðalfjölskyldu 61.000 kr. í matarkaupum
MÓ-Reykjavik — Oft er talaö
um að miklu fé sé varið i niður-
greiöslur hér á landi og þvi fróð-
legt aö kanna hvernig þessum
málum er háttað f nágranna-
löndum. 1 fréttabréfi upp-
lýsingaþjónustu landbúnaðarins
var fyrir nokkru greint frá
hvernig niðurgreiöslum á kjöti
er háttað f Noregi, en allar tölur
eru umreiknaðar f islenzkar
krónur.
Samkvæmt áætlun um sölu á
kjöti fyrir árið 1977 er gert ráð
fyrir að verja i niðurgreiöslur
26.250 millj.kr. Hluti af þessari
upphæð er aö vísu eftirgjöf á
virðisaukaskatti. Innflutt kjöt
er ekki greitt niður i Noregi, en
selt á sama veröi og norskt kjöt
og verður þvl að keppa við það.
Erlendir framleiðendur eða
söluaðilar geta fengið svipað
verð og heildsöluveröið er á
niðurgreiddu norsku kjöti á
hverjum tima. Aö sjálfsögðu
kemur til frádráttar flutnings-
kostnaður o.a.
Reiknað er með, aö meðal
kjötneyzla á mann i Noregi sé 47
kg. Niðurgreiðslurnar á kjöt-
verði spara hverri 4ra manna
fjölskyldu 61 þús. 1 matarkaup-
um. Þá er miðaö við að allar
kjötvörur séu keyptar i smá-
sölu. Fyrir utan beinar niöur-
greiðslur á kjötverðiö er greidd-
ur verulegur flutningsstyrkur i
Noregi á sláturdýr, heildarupp-
hæðin á siðastliðnu ári nam
4.200 millj.kr. Þennan styrk fá
þeir sem búa við erfiðust skil-
yröi og lengst þurfa að flytja
sláturgripi á markaö. Flutn-
ingsstyrkur hefur veriö greidd-
ur allt frá árinu 1946. Verulegur
mismunur er á hvað niöur-
greiðslur eru miklar á einstök-
um kjötvörum, t.d. myndi kjöt-
farskosta 525 kr. meira hvert kg
ef þaö væri ekki niðurgreitt, en
buff og „fenalæri” (þurrkaö og
saltað lambslæri) myndi kosta
um 1.400 kr. meira hvert kg.
Eftirfarandi niðurgreiðslur
eru nú á kjöti:
kr. á kg
Nautgripa- og kálfakjöt...241
Svinakjöt...................97
Kindakjöt..................295
Geitakjöt.................295
Hreindýrakjöt.............241
Kjötafalifuglum............112