Tíminn - 06.04.1977, Blaðsíða 11

Tíminn - 06.04.1977, Blaðsíða 11
 Miövikudagur 6. aprll 1977. 11 Wmmrn Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Auglýs- ingastjóri: Steingrfmur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu, slmar 18300 — 18306. Skrif- stofur I Aöalstræti 7, slmi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — auglýsingaslmi 19523. Veröllausasölu kr. 60.00. Áskriftar- gjald kr. 1.100.00 á mánuöi. Blaöaprenth.f. Þáttur stjórnar- andstöðunnar t forystugreinum ihaldsblaðanna er stundum reynt að lýsa með sem dekkstum litum þvi á- standi, sem var hér sumarið 1974, þegar vinstri stjórnin lét af völdum. í tilefni af þvi er rétt að minna á, að afkoma atvinnuvega og þjóðarbús hefur sjaldan orðið betri en á árinu 1973. Alveg sérstaklega gilti þetta um afkomu sjávarútvegs- ins. Þetta fór hins vegar að breytast fljótlega á árinu 1974 eftir að hin mikla verðhækkun oliunnar kom til sögunnar. Verðlag innflutningsvaranna fór stórhækkandi. Um likt leyti fór verðlag ým- issa útflutningsvara lækkandi. Afkoma atvinnu- veganna gerbreyttist þvi á árinu 1974, einkum þó sjávarútvegsins. Þessum búsifjum til viðbótar kom svo hin óraunhæfa grunnkaupshækkun i febrúar 1974 og i kjölfar hennar miklar verð- hækkanir. Það er i sambandi við kaupsamningana, sem voru gerðir i febrúar 1974, sem sérstök ástæðá er til að minna á þátt fyrrv. stjómarandstöðu. Hún reyndi allt, sem hún mátti, til að ýta undir sem mestar kauphækkanir. Morgunblaðið og Visir réðust harkalega á opinbera starfsmenn fyrir að hafa samið af sér og hvöttu aðrar stéttir til að fara ekki i slóð þeirra. Innan verkalýðssamtak- anna voru forystumenn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins aðalhvatamenn mikilla kaup- hækkana. Þegar á þing kom, var afstaða forystu- manna stjórnarandstöðunnar sizt betri. Þeir not- uðu þar stöðvunarvald sitt til að fella tillögur um nauðsynlega tekjuöflun rikissjóði til handa, þótt Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti þessar hækkan- ir siðar á árinu, þegar hann var kominn i rikis- stjórn. Verst var þó framkoma stjómarandstöð- unnar, þegar hún stöðvaði á Alþingi vorið 1974 framgang þeirra tillagna, sem vinstri stjómin lagði fyrir þingið um viðnám gegn verðbólgunni. Með þvi var verðbólgunni raunvemlega sleppt lausri. Ástandið væri nú annað og betra, ef stjórnarandstaðan hefði þá ekki brugðizt skyldu sinni. Þótt Alþýðubandalagið hefði á þessum tima ábyrga afstöðu breyttist þetta strax sumarið 1974 eftir að það var komið i stjórnarandstöðu með Al- þýðuflokknum. Þessir tveir flokkar hafa i stjóm- arandstöðunni gert allt sem þeir hafa mátt til að auka verðbólguna og torvelda viðnámsstarf rikisstjórnarinnar. Þeir hafa staðið með öllum kauphækkunarkröfum, jafnt frá háum sem lág- um. Þeir hafa tekið undir allar kröfur um hærri framlög hins opinbera, jafnhliða þvi, sem þeir hafa látizt vera gegn nýjum skattaálögum. Þann- ig hafa þeir gerzt dyggir þjónustumenn verðbólg- unnar i þeirri von að geta gert rikisstjórninni erf- itt fyrir á þann hátt. Meðan stjórnarandstaðan gerir sér ekki ljóst, að hún hefur ekki siður skyldum að gegna en rikisstjórnin verður alltaf erfitt að fást við efnahagsmálin. Það er mikils vert, að almenn- ingur átti sig vel á þætti stjórnarandstöðunnar að þessu leyti og veiti henni aðhald, sem gæti leitt til betri stjórnarhátta. Alveg sérstaklega er ástæða til þess, að þjóðin fylgist vel með framkomu stjórnarandstöðunnar i sambandi við gerð kjarasamninganna, sem nú erframundan. Þ.Þ. Charles W. Yost: ■ Mesta vanda- mál nútímans Sidgæðisvitundinni fer hnignandi MARGT mun hafa borið á góma I viöræöum þeirra Carters forseta og James Callaghan forsætisráöherra Breta á dögunum. Llklega hafa þó hin margvislegu efna- hagsvandamál sem nú hrann- ast upp hvarvetna I heiminum veriö þar efst á baugi. Þaö er skiljanlegt, aö þróunarlöndin veröi aö búa viö þau kröppu kjör, sem lengst hafa veriö hlutskipti mann- kynsins. En sú staöreynd aö lönd Vestur-Evrópu, Banda- rlkin, Kanada og Japan eiga viö sífellda efnahagsöröug- leika atvinnuleysi og vaxandi óánægju almenningsaö striöa vekur undrun og ótta. Þessi vandamál veröa vafa- laust veröugt rannsóknar- og umræöuefni á ráöstefnu æöstu manna Vesturveldanna I London nú í vor, og sjálfsagt veröa geröar skammtima ráöstafanir til aö mæta þeim. En eiga þessi vandamál sér ekki dýpri rætur en svo, aö skammtima ráöstafanir stoöi litt, jafnvel þótt þar leggist rikustu þjóöirnar á eitt? I hinni frábæru bók sinni „Social limits to growth ” (Þjóöfélagsleg takmörk vaxt- ar) heldur brezki hag- fræöingurinn Fred Hirsch þvi fram aö svo sé. Hann var áöur efnahajsmálastjóri tima- ritsins Economist og ráögjafi Alþjóöagjaldeyrissjóösins (International monetary fund). DRAUMSÝN hins vestræna heims i hálfa aöra öld hefur veriö sú, aö fyrir tilstilli auk- inna fjöldaframleiöslu, hinnar „ósýnilegu handar” hins frjálsa framtaks og gifurlegra tækniframfara myndu þau lifsþægindi, sem fáum voru fyrrum gefin, falla öllum I skaut . Segja má aö þróunin siöustu þrjá áratugina hafi stefnt i þá áttina I flestum vestrænum löndum. Fyrir nokkrum árum voru menn uggandi vegna þess, aö ytri aöstæöur virtust tak- marka vaxtarskilyröin. Flestar auölindir ganga til þurröarfyrreöa siöar, og geta ekki staöiö undir hinni gifur- legu fjölgun mannkynsins. Bandarikjamenn hafa nú sannreynt þaö bæöi i orkumál- um og vegna hættu á hungurs- neyö aö sá uggur var ekki ástæöulaus. Engu aö siöur viröast flestir álita aö nýjar tækniframfarir muni bjarga málum. Hirsch bendirá annaö atriöi sem ógnar hinni lýöræöislegu hugsjón, hinn þjóöfélagslega þátt. „Þegar komiö er yfir visst stig og þaö hefur löngu gerzt i fjölmennum iönaöar- þjóöfélögum”, skrifar hann, „þá vill notagildi fram- leiðslunnar rýrna aö sama skapi og notkunin eykst... Þegar þjóöfélagiö hefur tak- markaða getu til að samræma notkun og notagildi, leggur það þjóöfélagslegar hömlur á neyzluna”. Hann bendir á það sem dæmi, aö eftir þvi sem fleiri eignist bila, þvi minna veröi notagildi farartækjanna. Hraðbrautin á Long Island hefur með réttu veriö kölluö „lengsta bilastæöi heims”. Jafnframt þvi, sem fleiri byggja sumarbústaði eöa þeysa um á hraöbátum og lystisnekkjum á friösælum fjallavötunum, missir náttúr- an þann eiginleika sinn, sem menn eru aö sækiast eftir. Þegar æ fleira ungt fólk hlýtur æðri menntun, þá rýrn- ar f járhagslegur ávinningur af menntuninni, og fólk fær ekki Hver man eftir honum? þáatvinnu, sem þaö stefndi aö meö menntun sinni. Sem dæmi má taka, aö á Italiu hefur þeim fjölgaö, sem útskrifast úr háskólum á ári hverju, úr 23.000 I 70.000 á fimmtán ár- um, en menntunin hefur jafn- framtrýrnaö, og „hvitflibba”- atvinnuleysingjum fjölgar stöðugt. HIRSCH bendir á siöferðilega bresti jafnframt hinum framkvæmdalegu i þróun þess arar draumsýnar á vorum dögum. Hann bendir á þaö, aö þegar Adam Smith talaöi um hina verndandi „ósýnilegu hönd” einkaframtaksins áriö 1776, sem menn trúöu að mundi færa allt til bezta vegar, vegna þess, aö ef hver hugsaði um eigin hag mundi það leiöa sjálfkrafa til almenningsheilla, þá geröi hann ráö fyrir rótgróinni siögæöisvitund einstaklings- ins, sem kristinni arfleifö aö fornu og nýju. Þessi siðgæöis- vitund hvarf aö mestu á siðustu öld, þannig aö aögerö- um einkaframtaksins, eins og þær eru framkvæmdar á dög- um Miltons Friedman er ekki stjórnaö af þeim nauösynlegu siögæöiskröfum, sem voru undirstaöan i kenningu Adams Smith. Ef Hirsch hefur á réttu aö standa i skilgreiningu sinni á vandræöum hins vestræna þjóöfélags, þá stafa efnahags- legirogsiörænir „sjúkdómar” Bretlands, ttaliu og Frakklands ekki einasta af veröbólgu, stjórnleysi, gráðugum verkalýösfélögum, of miklum eöa of litlum af- skiptum rikisvaldsins, heldur einnig af of stóru rikisbákni og þverrandi siögæöisvitund. Þaö eru hin siöastnefndu mein, sem valda þvi, aö draumsýn- in, sem Jefferson kveikti fyrir 200 árum.um lif, frelsi og rétt einstaklingsins til hamingj- unnar, getur ekki rætzt. Liklegast er, aö lausnin á vandræöum Bandarikjanna sé svo flókin, og krefjist svo róttækra breytinga á þjóöfélaginu og efnahagskerf- inu, aö meira þurfi til aö finna hana en fjölmarga leiötoga- fundi, þótt ágæti þeirra skuli ekki i efa dregin. Hógværari markmiö, hægari tækniþróun, og meiri ástundun fornra dyggöa gæti reynzt jafnmikil- væg velferö rikra þjóöa sem fátækra. (H.Þ.þýddi)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.