Tíminn - 06.04.1977, Qupperneq 15

Tíminn - 06.04.1977, Qupperneq 15
Mi&vikudagur 6. aprfl 1977. 15 b. „Drottinn, kenn þú mér a& telja daga mina” Sigur&ur Ú. Pálsson skóla- stjóri gluggar i kver Gisla Gislasonar i Hólshjáleigu, fyrri hluti. c. Gamalt fólk Geirlaug Þorvaldsdóttir leikkona valdi til lestrar nokkur kvæöi eftir Jón úr Vör og les ásamt Hjalta Rögnvaldssyni leikar d. Haldið til haga Grimur M. Helgason cand. mag, talar um handrit. e. Kórsöngur: Árnesingakórinn I Reykja- vik syngur Söngstjóri: Þuriður Pálsdóttir. 21.30 Ctvarpssagan: „Jómfrú Þórdis” eftir Jón Björnsson Herdis Þorvaldsdóttir leik- kona les (5). 22.00 Fréttir 22.15 Ve&urfregnir, Lestur Passiusálma (49) 22.25. Kvöldsagan: „Sögu- kafiar af sjálfum mér” eftir Matthias Jachumson Gils Gu&mundsson les úr sjálfs- ævisögu skáldsins og bréf- um (17). 22.50 Nútimatónlist Þorkell Sigurbjörnsson kynnir. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Miðvikudagur 6. april 18.00 Bangsinn Paddington. Breskur myndaflokkur. Þýöandi Stefán Jökulsson. Sögumaöur Þórhallur Sig- urösson. 18.10 Ballettskórnir (L) Breskur framhaldsmynda- flokkur. 5. þáttur. Efni fjóröa þáttar: Pálina fréttir af tilviljun af fjárhagsá- hyggjum Sylviu og einsetur sér aö hjálpa henni, hvaö sem þaö kostar. Hún og önn- ur stúlka eiga kost á hlut- verki, og sú hæfari á aö fá það. Pálina beitir brögöum svo að hin stúlkan komi ekki á reynsluæfinguna, og Pál- ina fær þvl hlutverkið. Þýö- andi Jóhanna Jóhannsdótt- ir. 18.35 GluggacRækjuveiöar af hestbaki, Flugvélahreyflar, Taðbjöllur. Þýöandi Jón O. Edwald. Hlé 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Vaka. Þáttur um bók- menntir og listir á liðandi stund. Stjórn upptöku Andrés Indriöason. 21.30 Ævintýri Wimseys lá- varðar (L). Breskur fram- haldsmyndaflokkur, byggö- ur á sögu eftir Dorothy L. Sayers. Lokaþáttur. Efni þriðja þáttar: Betty, þjón- ustustúlka hjá Gowan mál- ara, verður fyrir óþægilegri reynslu og flýr á náöir Wimseys og Bunters. Frú Lemesurier segir aö Graham hafi gist hjá sér morðnóttina, og Waters á að hafa fariö I siglingu meö vini slnum. Farren er enn týndur, en Wimsey fær upp- lýsingar um, hvar hans sé að leita. Fenella frænka Strachans hefur nýjar frétt- ir aö færa, og Wimsey telur sig eiga ýmislegt vantalaö viö Strachan. Þýöandi Ósk- ar Ingimarsson. 22.20 Stjórnmálin frá stri&s- lokum.Franskur frétta- og fræðslumyndaflokkur. 3. þáttur. Járntjaldið.Vart eru liöin tvö ár frá lokum styrj- aldarinnar, þegar þjóöir hafa skipast I tvær fylking- ar, austan járntjalds og vestan, meö Truman og Stalin i fylkingarbrjósti. Kalda striöiö er hafiö. Borgarastyrjöld brýst út I Grikklandi. Kommúnistar komast til valda I Tékkósló- vakiu áriö 1948, og sama ár loka Sovétmenn allri um- ferö til Berlinar. Þýöandi Siguröur Pálsson. 23.20 Dagskrárlok. Hættulegt ferðalag eftir AAaris Carr kring um sig, gekk hún út. Fætur hennar voru þungir sem blý, þegar hún gekk yfir torgið. Inni í sínum eigin kofa leit hún yfir töskurnar, lokaði þeim síðan og setti á sinn stað undirrúminu. Ekkertskipti máli lengur. Hún hafði að vísu komizt að því hver Tapajoz var, en gleðina vantaði. Af hreinni tilviljun hafði hún orðið ástfangin af rétta manninum, en hvað stoðaði það, þegar hann hafði tekið þá ákvörðun, að halda sig frá henni? Við hverju hann eiginlega búizt? Einhverri eldri og þrosk- aðri... eins og Júlíu? En hann hlaut að hafa vitað, þegar hann skrifaði að ég var yngri. Skammaðist hann sín vegna einhvers sem hann hafði skrifað? Ef til vill. Hann gæti sem sagt hafa skipt um skoðun og hún, sem hafði talað við hann um þennan mann af hjartans ákafa. Það hafði sennilega nægt til þess að hann þorði ekki að gefa sig fram sem pennavinur hennar. Ó, ég vildi óska að ég hefði aldrei sagt honum neitt, hugsaði hún döpur. Þá hefði ég að minnsta kosti átt stolt mitt óskert. Nú þori ég ekki að líta framan í hann, þegar hann kemur aftur. — Nú er von á bátnum á hverri stundu, sagði Fanný áköf við Pennýju við morgunverðarborðið tveimur dögum síðar. —Við Nellieerum að fara niður á bryggju að bíða. Kemurðu með? — Ég kem seinna, þegar ég er búin í sjúkraskýlinu. En Penny ætlaði alls ekki niður eftir og var fegin að hafa nothæfa afsökun. Hún ætlaði sér ekki að standa þarna niður frá og bíða eftir Mike, það var að vísu kjánalegt, en hún vildi heldur hitta hann af tilviljun á eftir, þegar mestu lætin voru um garð gengin. Það var nóg að gera hjá Vincent svo hún gleymdi næstum bátnum. Þegar Paul kom yfir til þeirra með kalda drykki um hádegið, kom einn af áhöfn bátsins með honum, en hann hafði f engið sár á hálsinn. Penny tók ekki eftir honum f yrr en Vincent bað hana að binda um sárið. Þá þekkti hún manninn. — Hvenær komuð þið? spurði hún. — Fyrir tiu mínútum. Við vorum fljótir. Ungi Brasilíumaðurinn brosti íbygginn. — Stevens virtust liggja reiðinnar ósköp á að komast hingað aftur. Penny kom seinttil hádegisverðar þann daginn. Mike sat og sneri baki að dyrunum ásamt f jórum mönnum, sem Penny hafði ekki séð áður. Hún brosti um leið og hún gettf ramhjá og settist í sæti sittofar við borðið. — Þessi dökkhærði með hrokkna lubbann er nýi yf ir- maðurinn, hvíslaði Fanný að henni. — Er hann ekki myndarlegur? Penny kinkaði kolli, en horfði ekki á mennina um- hverfis Mike. Hún var fegin að Mike sat ekki í sínu venjulega sæti, því þá hefði hún ekki komið niður bita af matnum. Hún fór sér rólega og vonaði að Mike og hinir færu áður en hún væri búin. En þeir höfðu víst nægan tíma líka, því enginn þeirra gerði sig líklegan til að standa upp. — Mike verður önnum kafinn á næstunni, það er greinilegt, sagði Fanný loks þegar þær stóðu upp og fóru. — Einn þeirra er opinber embættismaður og kom víst hingað til að kynna sér allar aðstæður við dauða Júlíu. Penny reyndi að gera sig ósýnilega og vonaði að hún kæmist hjá því að svara spurningum um brunann. Hún eyddi síðari hluta dagsins í kofa sinum, en gat ekki sofnað. Þegar síðdegisskúrinn var afstaðinn, klæddist hún baðfötunum og þunnum Ijósbláum kjól utan yfir. Með stór sólgleraugu á nef inu og handklæði yf ir öxlina tók hún stef nuna að sundpollinum. Hún fékk sér snögg- an sundsprett og hafði samvizkubit, því hún vissi að slikt var bannað án þess að hafa einhvern á verði. Eng- inn var í grennd og Penny settist upp við trjábol í for- sælu og tók að bursta hár sitt. Þar kom Mike að henni nokkrum mínútum síðar. — Mér datt í hug að þú værir hér, sagði hann og hafði ekki augun af hári hennar. — Hvers vegna varstu ekki niðri á bryggju með hinum í morgun? — Ég hafði svo mikið að gera í sjúkraskýlinu, sagði hún í léttum tón.— Ég er mest hissa á að þú skulir hafa tekið eftir að ég var ekki þar. Hann fleygði sér niður í grasið við hlið hennar og greip höndunum um hnén. — Láttu ekki svona! Ég átti satt að segja von á að sjá þig þar. — Hvers vegna lofaðirðu mér ekki að fara með niður að strönd eins og hinum? Hann horfði rannsakandi á hana.— Langar þig svona mikið að vera þar sem Roy er? Hún hristi höf uðið óþolinmóðlega. — Ég var búin að segja þér, að mér hefði skjátlast varðandi hann. — Það er hlutur, sem ég skil ekki í sambandi við ykk- ur. Mér er ómögulegt að skilja hvernig þið fóruð að þvi að verða svo góðir vinir á svo skömmum tíma. Svo virt- ist, sem þið hefðuð þekkzt lengi. Penny roðnaði og makaði sér til. — Ég hélt að hann væri maðurinn, sem ég haf ði skrifazt á við í tvö ár. — Einmitt! Svo það var skýringin! Mikestarði á hana furðu lostinn. — Hvernig í ósköpunum komst hann að þvi, að þú hafðir skrif ast á við einhvern hér? Hann sem hefur verið ofar við ána allan tímann! — En þú hefur sem sagt allan tímann vitað, að það gat ekki verið hann? sagði Penny og leit fast á Mike. Hann horfði hins vegar beint fram fyrir sig og svipur hans gaf ekkert til kynna. Hún andvarpaði. — Það er óskemmtilegt að þurfa að segja þér f rá þessu, Mike, en Júlía stóð á hleri við dyrnar, þegar ég var að segja þér frá pennavininum mínum. Roy skúldaði henni mikla peninga og gat ekki borgað henni nógufljótt. Hún hugs- aði sem svo, að ef hann þættist vera pennavinurinn, gæti hann náð peningum af mér. Þess vegna lét hún sem hún væri veik og bað þig að senda eftir Roy og af- ganginn veizt þú. — Ég get að minnsta kosti ímyndað mér hann! sagði Mike hvasst. — Þau voru góð saman, ekki satt? — Ég hélt að þú myndir afsaka Júlíu og skella allri skuldinni á Roy, sagði Penny hissa. — Mér f annst alltaf að þér þætti sérstaklega vænt um hana. — Ég vorkenndi henni, annað ekki, sagði hann stutt- lega. — Hugh lét sér lynda, að hún var honufn ótrú, og þó að hún kæmi fram við hann eins og hund, gat hún alltaf treyst á hann. Hún var óstöðug i rásinni og þarfnaðist einhvers að styðja sig við. Hugh elskaði hana þráttfyrir galla hennar og þegar hann lézt, fannst henni öllu lokið. Ég reyndi að gæta hennar, þar til hún fengi lifeyrinn, svo að hún gæti farið héðan og setzt að á hentugri stað. Ég gerði það Hughs vegna, það var það minnsta sem ég gat gert. — Júlía hélt, að þú myndir kvænast henni. Mike brosti dauflega. — Hugmyndaflug hennar var alltof f jörugt. Mér er óskil janlegt, hvernig Hugh þoldi þetta. — Og þú leyndir hana sannleikanum um dauða hans líka, sagði Penny alvarlega. — Já og ef þú hefðir ekki verið svona f jári forvitin, hefðir þú aldrei komizt að honum heldur. — ó, Mike...! Ég varð að f á að vita sannleikann. Auð-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.