Tíminn - 06.04.1977, Qupperneq 23
Miðvikudagur 6. aprll 1977.
23
flokksstarfið
Árnesingar
Hinn árlegi sumarfagnaður Framsóknarfélags Arnessýslu verð-
ur haldinn að Flúöum siðasta vetrardag miðvikudaginn 20. aprfl.
Nánar auglýst siöar.
Framsóknarfólk, Kjósarsýslu
Framsóknarblað Kjósarsýslu býður velunnurum sínum upp á
hagstæðar ferðir til Costa del Sol, Kanarieyja, Irlands og Kan-
ada á vegum Samvinnuferða I sumar.
Upplýsingar gefur Kristján B. Þórarinsson Arnartanga 42
Mosfellssveit. Simi 66406 á kvöldin.
Félagsmólaskóli
FUF Reykjavík
Þriðjudagur 5. april kl. 20. Ræöumennska.
Miðvikudagur 6. aprfl kl. 20. Ræðumennska.
Fimmtudagur 7. april (skirdagur) kl. 14. Hringborðsumræður.
Leiðbeinandi veröur Sveinn Grétar Jónsson. „
Framsóknarfólk
Suðurnesjum
Fundur veröur haldinn i Framsóknarhúsinu laugardaginn 16.
aprfl n.k. og hefst kl. 15.
Gestur fundarins verður ólafur Jóhannesson, formaður Fram-
sóknarflokksins, og mun hann ræða stjórnmálaviöhorfið.
Fundarstjóri verður Birgir Guðnason. Framsóknarfólk fjöl-
mennið stundvislega.
Framsóknarfélögin i Keflavik
Austurríki — Vínarborg
Vegna forfalla hafa örfá sæti losnað iferð okkar til Vlnarborgar
21. mai. Upplýsingar f skrifstofunni Rauðarárstig 18, sími 24480.
Islenzkar þjóð-
sögur á ensku
Iceland Review hefur nýlega
gefið út úrval islenzkra þjóð-
sagna I enskri þýðingu. Eru þær
i þremur bindum og hefur
prófessor Alan Boucher valið og
þýtt allar sögurnar. Eru bækur
þessar i flokki ICELAND
REVIEW LIBRARY.
Þetta saf n er flokkaö eftir eðli
sagnanna og bera bækurnar
þrjár eftirfarandi heiti:
GHOSTS, WITCHCRAFT AND
THE OTHER WORLD,
ELVES, TROLLS AND
Akranes og
nógrenni
Innlend og erlend sófa-
sett. Margar gerðir.
Verð frá kr. 171.000
Til fermingargjafa:
Skatthol, kommóður,
skrifborð með plötu-
geymslu, skrifborðs-
stólar o. fl.
10% staðgreiðslu af-
sláttur.
Húsgagnaverzlunin
STOFAN
Stekkjarholti 10,
Sími 93-1970
ELEMENTAL BEINGS,
ADVENTURES, OUTLAWS
AND PAST EVENTS.
Alan Boucher er prófessor i
ensku viö Háskóla íslands og
hefur samhliða kennslustörfum
skrifað fjölmargar skáldsögur
— og unniö að þýðingum is-
lenzkra verka á ensku undan-
farin ár. I formála þessarar
nýju útgáfu segist hann vonast
til að úrval þetta veiti lesendum
gott sýnishorn hins bezta úr is-
lenzkum þjóðsögum. Hann segir
ennfremur,aðþótttækniöld hafi
breytt mörgu á tslandi — þá
þurfi ekki að kafa langt undir
yfirboröið til að komast að raun
um að viðhorfin hafi ekki
breytzt mjög mikiö — og þeim,
sem kynnast vilji íslendingum
samtiðarinnar sé ekki hægt að
ráða neitt betra en að lesa hinar
litriku þjóðsögur landsins.
Áhugasamur
drengur
á 14. ári óskar eftir
starfi í sveit í sumar.
Getur byrjað um 20.
maí.
Upplýsingar í síma
(91) 6-62-72.
Fjórði hluti ullar-
innar fór for-
görðum
JH-Reykjavik. — Trúlega hafa
aðeins 74% þeirrar ullar, sem óx
á sauöfé landsmanna árin
1970-1974, komið til skila I
vinnslustöðvar. Frá þessu
skýrði Stefán Aðalsteinsson bú-
fjárfræðingur ierindi, sem hann
flutti á ársfundi búvörudeildar
S.I.S.
Stefán taldi, að þetta mætti
færa I betra horf með hækkuðu
verði á gæðaull. Að sjálfsögðu
er óviöunandi, að verulegur
hluti ullarinnar fari forgörðum
á sama tima og ullariðnaöur er
orðinn veigamikil atvinnugrein
I mörgum byggðarlögum og út-
flutningur ullarvarnings gildur
þáttur I gjaldeyrisöflun okkar.
Stefán skýrði einnig frá þvi,
hvaða árangri væri unnt að ná
með hreinræktun á stofni meö
einlita ull, jafnframt hvernig
takast mætti að auka þá ull, sem
fæst af hverri kind. Nefndi hann
dæmium þetta. Loks gerðihann
grein fyrir helztu atriðum i
sambandi við fyrirhugað skipu-
lag á ullarmati.
Agnar Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri búvörudeildar,
talaði á þessum fundi meðal
annars um ullarsölumál og lét
þess getið, að verulegrar sam-
keppni um ullina gætti nú af
hálfu innlendra verksmiðja,
sem framleiða ullarvarning.
í framhaldi af þessu má geta
þess, að búvörudeild og véla-
deild S.I.S. fengu hingað til
lands, I samráði viö Búnaðarfé-
lag Islands, rúningsmeistara
frá Wales, og hélt hann tvö
námskeið i Borgarfirði, eitt I
Skagafirðiog eitt á Austurlandi.
Kenndi hann þar nýjustu vinnu-
brögð við rúningu, og var að þvi
stefnt, að þátttakendur, sem
urðu alls þrjátiu og fjórir, gætu '
tekiö að sér leiðsögn á þessu
sviöi.
Allar
Liverpool og Domus
opnar til kl. 7 i kvöld og milli kl. 9
og 12 á laugadag.
Mjólkurbúðir KRON
aö Dunhaga 18, Álfhólsvegi 32 Kópv., og
Hliöarvegi 29 Kópav. veröa opnar til kl. 6
í kvöld og milli kl. 9 og 12 á laugardag.
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
Matvörubúðir KRON eru opnar
til kl. 8 i kvöld og
frá kl. 9 til 12 á laugardag.
ætlar þú út
í kvöld?
Það má njóta lífsins á ýmsan hátt. Rabba yíir glasi, dansa,
fá sér í gogginn, hlusta á tónlist eða horfa á lífið. I Klúbbnum
er að finna marga sali með ólíkum brag. Bar með klúbb
stemmningu og lágværri músík, fjörugt Diskótek, danssal með
hljómsveit og annan þar sem veitingar eru framreiddar.
Þar er hægt að vera í næði eða hringiðu fjörsins eftir
smekk,-eöa sitt á hvaö eftir því sem andinn blæs í brjóst.
Þú getur átt ánægjulegt kvöld í klúbbnum.