Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 22.08.1966, Síða 1

Mánudagsblaðið - 22.08.1966, Síða 1
Blaó fyrir alla Mánudagur 22. ágúst. Kratar hlaða bitlingalýð sínum í hverja útvarpsstöðuna af annarri Starfsmönnum útvarpsins er farið að ofbjóða hvernig Benedikt Gröndal misnotar aðstöðu sína í því skyni Stárfsmönnum útvarpsins er nú farið að 4>ykja nóg um ráðn- ingar skjólstæðinga Benedikts Gröndals. Þykir mönnum mæl- irinn fullur og benda ýmsar ráðningar til þess, að Giröndal hygli sínum mönnum um hóf fram og noti þar, í senn, aðstöðu sína og sofandahátt þeirra, sem sjá eiga um ráðningar í þessar stöður. Það er áberandi hve starfs- mönnum Alþýðublaðsins hefur orðið vel ágengt í þessum efn- um, t.d. er Eiður Jónsson orð- inn jöfnum höndum starfsmað- ur útvarps og blaðsins og fær drjúgt greitt fyrir eða, að sögn kr. 4000 — fjögur þúsund — fyrir hvern þátt, en þar liggur í mjög Jítil vinna. Til saman- burðar ihá geta þess að t.d. Sverrir Kristjánsson fær kr. 1500 — fimmtán hundruð — fyrir fyrirlestra sína, sem krefj- ast óhemju vinnu. Þá mun Eið- ur hafa nokkrar tekjur af öðru efni. Atvinnukrati Ekki má gleyma öðrum blaða- manni, Haraldi Ólafssyni, ný- skipuðum dagskrárstjóra — á- „Svart óg hvítt“ — Jéns Kaldals synmg gætum manni — og tryggum fylgisveini Benedikts. Gunnar Vagnsson, atvinnukrati, er eg' vinur og jafnaldri Benedikts, er nú fjármálaspekingur stofnun- arinnar, og mun eflaust búinn þeim kostum sem Gröndal met- ur bezta. Þá er gamall, vinsæll krati, Guðmundur Jónsson, orð- inn framkvæmdastjóri „Hljóð- varps“ — eflaust verðskulduð tignarstaða, enda auðsveipur krati. Hefur Bensi litli þannig komið síhum nánustu í sæmi- lega arðbærar virðingarstöður innan útvarpsins. Bitlingakindur Útvarpsráð hefur látið þetta allt gott heita, enda hrossakaup þar allsráðandi. Þótt merkilegt megi virðast, þá er Benedikt Gröndal sá eini, sem eitthvað hefur kynnt sér útvarpsstarfsemi en hitt jbara bitlingakindur sem, vappa kringum jötuna. Hef- ur Gröndal leikið það að vagga fingri sínum að hin- um „koIlegunum“ (aðallega blaðamenn) og haft sitt fram af týpískri einurð og ýtni krata. Það væri máske ekki úr vegi að áthugað yrði gaum- gæfilega hvert útvarpsráðn- ingar stefna. Benedikt Grön- dal er sjúkur maður — hann vill að allt komist á styrki og er á góðum vegi með að gera alia málsmet- andi menn flokksins að ó- mögum hins opinbera. Jafn- vel gengur svo langt að heimta að blaðsnepillinn, Al- þýðublaðið, sé settur á opin- beran styrk. Betlipólltík Eins og málin standa nú er framkoma Benedikts Gröndals útvarpinu til stórrar vansæmd- ar. Þessi stofnun fékk nóg á- fall þegar Vilhjálmur Þ. Gísla- son komst þar að, en hitt, að sérfræðingur í betlipólitík, skuli óhindrað látinn hlaða niður vildarmönnum í embætti er með öllu óþolandi. Hættan við Mývatn Oiveiði í vatninu — bátaskari og olía frá bátum. Vegna nauðsynjaframkvæmda við Mývatn hafa kommúnistar ogNbændur í nágrenninu þar brugðizt hið versta við og talið fram- kvægidum þessum m.a. til foráttu, að þær muni leiða til dauða eða eyðileggingar á öllu hinu fjölskrúðuga fuglalífi, sem gert hef- ur vatnið frægt, en þar fara saman bæði mik- ið fuglalíf og frábær náttúrufegurð. En spyrja má: er ekki hættulegra fyrir fuglalifið, að vatnið er nú orðið fullt af vél- bátum, sem leka olíu, skapa olíubrák og 6- frið í landi fugla? Sérfræðingar telja, að þar sé hættan enn meiri en vegna þeirra fram- kvæmda sem nú eru hafnar nyrðra. Þá má og benda á, að margir veiðimenn telja að sil- ungsveiðar þeirra, sem fiskiréttindi hafa við vatnið, séu nú að verða svo gífurlegar, að stofninum sé hætta búin. Það er því, nú sem fyrr, að þau hálmstrá, sem hræsnis- og öfga- fullir kommar og uppblásnir bændur, hafa gripið til eru með öllu ósönn og því ekki vert að rekast við bá um þessi mál. S.I. föstudag opnaði Jón Kaldal, ljósmyndari, Svart-hvítt-sýn- ingu í sýningarsal Mcnntaskólans í Rcykjavík. gkoðuðu blaða- menn sýninguná s.I. fimmtudag, og skýrði Jón svo frá, að hann hefði ætíð lagt mesta áherzlH á andlitsmyndir og ber sýningin glöggan vott þess. Þetta er fyrsta einkasýning Jóns, en liann hefur tekið þátt í fjölda sýninga og fengið ótal viðurkenningar fyrir verk sín. Sýningin í M. R. er fjölskrúðug og ákaflega skemmtileg, myndir af mörgum helztu framámönnum þjóðar- innar, en elzta myndin er frá 1925. Jón hefur lagt sérlega á- herzlu á að ná fram öllu sérkennilegu við andlitsfall hverrar persónu og eru margar myndanná hrcinustu listaverk. Sýningin er opirt frá kl. 1—10 og mun standa yfir 10—12 dags. Sig. Nordal heiéraður / Mánudagsblaðið hefir frétt, að vinir og kunningjar dr. Sigurðar Nordals hafi nú á- kveðið að heiðra Sigurð á áttræðisafmæli hans með því að gefa út minningarpening á hvern mynd dr. Sigurðar er greypt. Er þetta hinn mesti sómi, og sjaldgæf virð- ing hér á landi. Dr. Sigurður hefur um ára- skeið verið einn virtasti mað ur í íslenzkum fræðum og gegnt ýmsum mikilsverðum störfum fyrir land og þjóð. Hann er manna fróðastur um sögu þjóðárinnar, skáld og fræðimaður, sendiherra og embættismaður háskólans. Síðari árin hefur \Ir. Sigurð- ur lifað i kyrcþey, en eflaust munu margir minnast hans á 80 ára 3fmælisdeginum. Takmarkalaus óráðsía hjá sjónvarpinu Fjársjóðir að fæmast? — Um 100 starfsmenn — Vilhjálmur Þ. Gíslason ríkir — Aðhlátursefni. Þrátt fyrir yfirlýsingar sjónvarpsyfirmanna mun þó sú stað- reyndin, að þar er allt í mosta ólestri og upplausn. Auk þéss mun fé liinnar ófæddu stofnunar að mestu uppurið en ekkert lát á mannaráðningum, sem sennilega verða um eitt hundrað um áramót ef ekki fyrr. Að nafninu til er yfirmað- ur stofnunarinnar kallaður skrifstofustjóri, látinn segja að allt gangi með mestu prýði en starfsmenn eru á öðru máli.'®- Framkvæmdir eru miklar en fálmkenndar, enginn veit eig- inlega hvert stefnir. Nú þegar hefur stofnunin byrjað að skaða starfsemi útvarpsins vegna frámunalegs klaufaskap- ar í starfi. Úmenntuð yfirstjórn Það hlálega er, að hinn raunverulegi yfirmaður stofn- unarinnar er Yilhjálmur Þ. Gíslason, þessi líka mikli framkvæmda- og einurðarmað- ur. Ber mönnum saman um, að hann. hafi jafn lítið vit á sjónvarpsrekstri, sem tekur hjá venjulegum þjóðum mikla sérmenntun og reynslu, og þegar hann tók við ríkisútvarp inu eftir að hafa farið í skemmtiferð til Bandaríkj- anna á vegum stjórnarinnar og skoðað útvarpsrpkstur þar. Vasast í öllu Allar endanlegar ákvarðan- ir fara í „gegnum“ Vilhjálm og ræður hann endanlegum úr- slitum hvers máls. Það þykir hjá alvöruþjóðum nokkuð hlá- legt, að sjónvarp skuli gert að undirtyllu útvarps.en vitanlega verður svo að vera hér. Vil- hjálmur mun nú gegna fleiri embættum og nefndarstörfum en. nokkur annar atkvæðamað- ur í siðmenntaða heiminum, þótt allir viti um hver afköst- in eru. Ráðherrabrcái: ■ Það er leitt að vita til þess að ráðherra okkar í mennta- málum, sem er bróðir Vil- hjálms, skuli láta viðgapgast að „stóri“ bróðir skuli svo fer- lega sölsa undir sig störf, sem hann ber ekkert skyn á. Sjón- varpið er talsvert kappsmál íslendinga og þeir þola ekki að einhver kurfur — einhver „jack-of-all-trades“ sé að troða sér inn á stofnunina til þess að gera. sig ódauðlegan á síð- um sögunnar. Jafnvel hinn lítt liðni skrifstofustjóri sjónvarps- ins er í' senn þreyttur á Vil- hjálmi og, að sögn hlær að honum og segir gamansögur Framhald á 6. síðu. Lyktin hans Geirs og óiyktarsjeffarnir Þrátt fyrir tíðar yfirlýsingar borgaryfirvaldanna um 6- lyktina, sem-dynur yfir höfuðstaðinn frá verksmiðjunum í Örfirisey og að Kletti, þá virðist ekkert gert til að losa borgarbúa. við ódaun þennan, sem höfuðstaðnum er til stórskammar, auk þess sem hann skapar viðbjóð. Það er þarfleysa að ætla ólyktarkóngunum að nýta þann mann íslenzkan, sem sýnt hefur erlendis að hann kann ráð til að eyða ódauninum, og minnir afstaða þeirra einna helzt á afstöðu forustumanna íslenzkrar knatt- spyrnu þegar þeir neituðu ráðum og aðstoð Alberts Guð- mundssonar, eins þekktasta knattspyrnukappa Evrópu á þeim tíma. Borgarstjórinn hefur margsinnis lýst yfir, ekki sízt á snakkfundum þeim, sem hann hélt fyrir síðustu kosning- ar, að undinn yrði bráður bugur að þessum ófögnuði, en þó erum við enn við sama heygarðshornið. Það er skylda Geirs Hallgrímssonar að gera betri grein fyrir þeim ráðstöfunum, sem verið er að gera, ef nokkr- ar, í þessum efnum. Það verður skrifað á reikning hans ef ólyktarsjeffarnir eru ekki þegar í stað látnir binda enda á þessa framleiðslu og ekki víst hve lengi Geir og lið hans fær skrifað hjá Reykvíkingum, ef hann ætlar aS hunza allar óskir borgarbúa í þessum efnum. Fréttir herma að enn ný verksmiðj’a sé að rísa í Ör- firisey og verður fróðlegt að vita hvort sú framleiðir samskonar ódaun eða við megum búast við nýrri ólykt á næstunni. En hvaða tangarhald hafa þessir menn, Klatts- menn og Örfiriseyjarmenn á Geir? Hefur hann þegið það- an einhver fríðindi? Mann grunar ekki, að borgarstjórinn sjálfur láti þetta viðgangast, sem hann getur stöðvað um- svifalaust — nema eitthvað fylgi, sem okkur er enn ó- kunnugt um. «

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.