Mánudagsblaðið - 05.12.1966, Side 4
i
Mánudagsblaðið
Mánudagur 4. desember 1966
Kristbjörg Kjeld Ba ldvin Halldórsson
Þj óðleiíkhúsiS
Lukkuriddarinn
Höfundur: J. M. Synge
Leikstjóri: Kevin Palmer
Frumsýning Þjóðleikhússins
á Lukktariddara Synges
„breyttu með tónlistarivafi" er
sú sýning hússins á þessu
leikári, sem af er, einhvers er
virði bæði vinna og verk. Þetta
raunsæja verk, einfalt blæbrigða
ríkt, tregablandið og frumstætt
hlýtur að ná vel til Islendinga,
því oft er það svo líkt okkur í
eðli, að nálega gæti það verið
samið af Islendingi. Tízkumenn
bókmennta hér á landi, öfga-
menn „hliðhollir" írskum stór-
skáldum hafa „sannað“ að
verk Synges hafi tapað í þýð-
ingu, misst hið skáldlega,
fagra og einkennandi orðalag
skáldsins. Að tarna er mikið
sagt. En ég, sennilega lélegri í
enskri tungu en aðrir dómend-
ur, rislægri á íslenzkt mál, en
þeir fræðimenn, sem hér um
fjalla, og eflaust miklum mun
smekkminni en fagurkerar í ís-
lenzkum leikbókmenntum, fæ
ekki annað séð, en að Jónasi
Árnasyni hafi tekizt víða af-
burðavel í þýðingu, sýnt í senn
frjálslyndi og menntun í höndl
un textans, og ljóðeyra og
emekk í söngvatexta. En til or-
ustu legg ég ekki við þau
menntaöfl, sem að þýðingunni
hafa fundið, en minnist þess
þó, að einn Mbl.manna réðst
eitt sinn í að þýða Njálu á
dönsku og hóf þýðinguna á
enilldarorðunum: Mord hed en
mand, han blev kaldt for et
vio!in“. (Islenzki textinn:
Mörður hét maður, hann var
kallaður Gygja).
Leikstjóra, Kevin Palmer,
hefur tekizt að skapa sannan
og eðlilegan heildarblæ á leik-
inn, þótt hraðinn, einkum í
fjTri helmingi sé ekki nógur
og sleppa mætti þar eða stytta
atriði, sem eru beinlínis dauf
og leiðinleg. En heildin er á-
gæt, staðselnin^ og áherzl-
umar í seinni helming hreint
prýðilegar. Galli er hinsvegar,
að eins og oft áður kunnu sum
ir leikenda ekki texta sinn,
replikkur köfnuðu í meðferð og
anarlegar þagnir skópust
víða. Palmer, verandi útlending
ur, er þó svo kunnur þjóð og
máli, að hann hefði getað séð
þær klaufalegu þagnir, sem
eyðilögðu talsvert. Þá er orðið
svo með dansa á sýningum
Þjóðleikhússins, að þeir eru
nálega óhæfir eða svo klunna-
legir að fádæmum sætir. Um
einstök atriði er það að segja,
að af óskiljanlegum ástæðum
er Bessi Bjaraason, ágætur
gamanleikari, enn of fastur í
hreyfingaformi sínu, látinn
í titilhlutverkið. Bessi nær oft
spaugi fram, en oftar hreinum
farsa, jafnvel slapstikk-leik,
sem er alls óþarfur og út í
hött. Leikstjórinn er kunnur
tizkumaður í leikstjóm en of
langt má ganga. Bessi setti
þann svip á leik sinn, að aðrar
persónur voru á allt öðru sviði,
óskyldar Iukkuriddaranum með
öllu. Jón Sigurbjömsson, Ma-
hon gamli, faðir Bessa, gaf
hlutverki sínu skemmtilegan
fomeskjusvip, blandaðan ópem
ískum demonhætti. Kristbjörg
Kjeld lauk sínu hlutverki mjög
vel, var eftirminnileg Mike,
frjálsari í öllum tilburðum en
oft áður. Baldvin Halldórsson,
bóndinn sló - sér sæmilega vel
upp í hugleysishlutverki sínu,
skóp skemmtilega persónu alls
óvart. Þar geislaði af Helgu
Valtýsdóttur í ekkjuhlutverk-
inu; Helga léði því reisn og
myndugskap án hinna miklu
dramatisku leikbragða, sem oft
hafa nálgast yfirleik. Af minni
hlutverkum bar mest á Sigríði
Þorvaldsdóttur, Brynju Bene-
diktsdóttur og Margréti Guð-
mundsdóttur, sem léku lipur-
lega og af skemmtilegu lifi,
þótt dansar hafi viðast verið
lélegir. Aðrir sýndu vel æfðan
leik á sviði, skám sig hvergi
úr né sýndu heldur nokkuð sér
stakt. Féllu þeir inn í ramm-
ann, einna beztir þar Klemenz
Jónsson og Ævar Kvaran.
Hljóðfæraleikarar voru og góð
ir og nokkuð áberandi staðsett
ir. Söngvaatriðin tókust mjög
þokkalega, raddbeiting ágæt
enda um nokkrar ágætar söng-
raddir að ræða.
Það væri mikil bót fyrir ís-
lenzka Ieikstjóra, ef svo má
kalla þá, að þeir Iærðu sviðs-
nýtingu af Palmer. Það var eft
irtektarvert hve vel sviðið var
nýtt, hversu léttilega tókst í
hópatriðum með allar hreyfing
ar Ieikara. Hin næma smekk-
vísi, að stilla þannig upp per-
sónum að þær njóti sín eftir
mikilvægi hverrar einstakrar á
sviði, er vissulega meðal þeirra
atriða, sem oftast hefur yfir-
sézt hjá okkar mönnum. Leik-
stjórinn hefur fulla vissu um
getu leikara og mun hafa haft
það til hliðsjónar í skemmti-
lega unnum hópatriðum. Nýt-
ing ágætra en einfaldra tjalda
Unu Oollins var afbragðsgóð
og sýndi þar glöggt fimi og
samstillingu leikstjóra og leik
tjaldamanns.
DÖMUR ATHUGIÐ
Afar glæsilegt úrval af allskonar kjólum
af ýmsum stærðum. Mjög fjölbreytt og
fallegt litaval. Kjólamir seljast með af-
borgunum, og borgast % út, en eftirstöðv-
arnar eftir samkomulagi.
KJÓLABtJÐIN LŒKJARGÖTU 2
(áður Lo'ftleiðir).
1 heild er hér um jafn beztu
sýningu Þjóðleikhússins á þessu
leikári að ræða og er þar átt við
efnivið og nýtingu. Leikhúsið
verður að gera sér Ijóst að til-
raunatímanum í leikstjórn er
lokið og mál að taka til hönd-
um í þeim efnum.
Að öllu samanlögðu þá hygg
ég, að hér sé um sýningu að
ræða, sem hver leikhúsunnandi
ætti að sjá. Svona verk eru
meðal þeirra fáu, sem ættu að
veita áhorfendum sæmilega and
lega og listræna uppbyggingu.
A. B.
LAllÉTT:
1 Báða
8 Skreytir
10 Upphafsstafir
12 Bók
13 Bindindisfélag
14 Klukkurnar
16 Gróðurleysi
18 Nýgræfíingnr
19 Haf
20 Digur
22 Skriðdýr
23 Ending
24 Forað
26 Upphafsstafir
27 Silungur
29 Hæðina
Ik'HJIÍKTT:
2 Ósamslæðir
3 Málmnr
4 Karlmannsnafn
5 Villast ekld
6 Skammstöfun
7 Klettar
9 Leitaði
11 Fljótir
13 Yfirstétt
15 Reið
17 Grýtt Iandsvæði
21 Hæggerð
22 Striða
25 Skriða
27 Ósamstæðir
28 Á reikningnm
AÆTLUN
M.s. „KRONPRINS
FREDERIK" 1967
Frá Kaupmannahöfn: 18.1, 1.2, 15.2, 1.3, 15.3, 1.4. 29.4, 13.5, 27.5,
7.6, 17.6, 28.6, 8.7, 19.7, 29.7, 9.8, 19.8, 30.8,
9.9, 23.9, 7.10, 21.10, 4.11, 18.11, 2.12.
Frá Reykjavik: 35.1, 00 22.2, 8.3, 25.3, 8.4, 22.4, 6.5, 20.5,
1.6, 12.6, 22.6, 3.7, 13.7, 24.7, 3.8, 14.8, 24.8,
cT 16.9, 30.9, 14.10, 28.10, 11.11, 25.11, 9.12.
Skipið kemur við í Færeyjum í báðum leiðum.
SKIPAAFGREIÐSLA JES ZIMSEN
Símar 13025 og 233985.
Til að gera mönnum kleift að gefa konum sínum og dætrum í jólagjöf hina heims-
frægu BERNINA saumavél, sem að dómi allra þeirra, sem notað hafa, er talin
bezta saumavélin á heimsmarkaðnum í dag, seljum vér BERNTNA til jóla með
aðeins kr. 1.000,00 útborgunum og eftirstöðvamar eftir samkomulagi. Einnig höf-
um vér mikið úrval af glæsilegum saumavélaborðum af ýmsum gerðum og stærð-
um og úr ýmsum viðtartegundum, sem fást með sömu afborgunarskilmálum.
BERNINA-búðín, Austurstrœti, Ásbjörn Ólafsson, Grettisgötu 2
Simi 24440.
r