Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 19.12.1966, Blaðsíða 8

Mánudagsblaðið - 19.12.1966, Blaðsíða 8
UR EINU í ANNAÐ Skömm Austuistrætis — Hyrnur og gerilsneyðing — Uppsláttur komma — Saklausar vallarpíjur — Gleðst yfir atvinnuleysi — FlB fær vitrun Jólaskreytingar borgarinnar okkar eru sennilega þær lélegustu sem til eru á Norðurlöndum. Skólavörðustígur og örfáir aðrir staðir skreyta pínulítið og svo eru glugga- skreytingar. 'En verst orð geta sér kaupmenn í Austur- strseti. Þegar serían þeirra skemmdist fyrir nokkrum ár- um tímdu þessir höfðingjar ekki að endurnýja hana né heldur borgaryfirvöldin að leggja til sinn skerf. Þetta er háðslegasta útkoma hjá þessari sétt, sem um getur. Ná- nasarskapurinn og smásálin er svo samtvinnuð hjá þess- um aðilum í Ai^sturstræti að engin höfuðborg hefur sýnt af sér anað eins. Svo bíta þeir í halann hver á öðrum eins og fílar í sirkus, kaupa sér jólasveina, sem rugga — til að reyna að draga inn kúnnann. Geir bogarstjóri ætti að hafa frumkvæðið um að lýsa upp höfuðborgina um jóla- tímann"5g skammdegið, eins og áður var gert, en því hef- ur ekki verið að heilsa síðari árin. Nú fer að verða erfitt fyrir mjólkureinokunina að standa á móti öllum nýjungum. Brátt munum við fá ný- tizku umbúðir utan um mjólk og nú er enn ein nýung að skjóta upp kollinum, nýmæli í gerilsneyðingu. Til þessa hafa forráðamenn mjólkureinokunarinnar vart svarað gagnrýni en pressan er orðin svo mikil að þeir verða að beygja sig. • Samt sem áður upplýsir einokunin ekki enn hver hafði og hefur umboðið fyrir hyrnumar, þótt einu sinni hafi þvi verið lofað opinberlega. Svo hrapallega sem bandaríska sendiráðinu fórst er það neitaði blaðakonu um vegabréfsáritun, er þó enn aumara að þingmaður komma skuli reyna að slá sér upp á þingi með að krefjast að hermenn í vamarliðinu hljóti hér vegabréfsáritun, eins og ferðamenn íslenzkir þurfa ef þeir fara vestur. Svona eintrjáningslega „baráttu" fyrir sjálf- stæðinu ber auðvitað fremur að aumkva en ræða, en svona kjánaleg uppsláttarefni sýnir gleggst hvepsu málefnalaust kommaliðið er orðið. Aldrei fór það svo. Litla saklausa stúlkan, oem skreið upp í bíl fullan af amerískum sjóliðum og ætlaði sér í „skemmtireisu" og kærði þá fyrir nauðgun, hefur nú tví- vegis verið hirt úr hermannaskálum syðra og hent út fyrir hliðið. Þær eru ekki all fáar þessar saklausu skírlífu döm- ur sem þangað leggja leið sína eða fiska þá upp hér á miðvikudagekvöldum, en eftirlitið er nú ekki meira en svo, að þær vaða um eins og þeim sýnist. Ekki em þær síðri í að gmokka. sér í útlendu skipin hér við höfnina, fjórtán ára hnátur, sem þurfa að „læra lífið“.- Svo greiðir almenn- ingur þegar þessar skepnur verða *óléttar. Það er munur að búa í velfeðarríki, innan um allar þessa „einstæðu mæður“. Þær eru „einstæðar“, en ekki í þeirri merkingu og hið opinbera leggur í orðið. Fýrrverandi íbúðareigandi skrifar: „Það er sárt að vita til þess, að samdráttur hefur orðið innan byggingariðnaðaring bæð hjá múrurum og smiðum. Þessir öðlingar, uppmælingaaðallinn, sem reynt hefur að hjálpa okkur, sem erum að koma yfir okkur þaki, á allan hugsanlegan hátt og tekið lítið gjald fyrir, kvarta nú sár- an yfir því, að þeir hafi ekkert að gera. Satt bezt sagt, þar sem þeir komu mér næstum á hausinn með okri og svikum, þá er mér nákvæmlega sama hvernig þessum meisturum líður. Þeir ættu að geta lifað af því sem þeir náðu af mér áður en allt fór til helvítis hjá mér. Verði þeim að góðu.“ Þá er FtB loksins komið á þá skoðun, að hægt sé að gera hér þolanlega vegi án þess að steypa þá og jafnframt að vegamál okkar séu að mestu í höndum gamlla, ungra manna, sem stjómast oft af öðru en skynsemi. Þetta er ekki nýr sannleikur heldur gömul bölvun, sem stjórnað hefur öllum okkar vegamálum, ásamt þekkingarleysi. Það má vel kippa vegamálum okkar í viðunanlegt horf á fimm árum, en nauðsyn er líka, að fá erl-enda sérfræðinga frá Evrópu og Ameríku, sem ekki eru bundnir við óskir ein- stakra bænda né atikvæðasnap pólitíkusanna. Sem sagt, vonandi hætta nú moldarbrautirnar „austur yfir Fjall“ o. b. frv. að brjóta blað í sögu vegagperðarinnar ehtó og kall- að er, þrgar einhver a,' ferarbrautin er opnuð. Gott hjá Bœkur frá AB Það er kunnara en frá þurfi að segja, hversu allt, sem Sigurður Nordal ræðir eða rit- ar, ber með sér aðalsbrag, endumunu fáir höfundar hafa átt sér þakklátari lesendur. Samt eru þessar staðreyndir naumast einhlítar til skilnings á þeim sérstöku vinsældum, sem bók hans Líf og dauði hefur 'hlotnazt, og þó að hún sé hverjum greindum manni mikill skemmtilestur sökum málsmeð- ferðar og heiðrar hugsunar, kemur þar einnig til sjálft efni bókarinnar, en hún fjallar um þau vandamál mannlegrar til- veru, sem hverjum einum ættu að vera efst í huga og varða öllu framar farnað hans og hamingju. „Alltaf síðan ég fór að vita til mín,“ segir Sigurður Nordal í innganserndi sínu, „hefur það verið mér undrunar efni að vera til. Mér hefur fund izt það dásamlegt ævintýri, að þessi hnefafylli af mold og ösku skuli hafa vaknað til lífs, farið að . hugsa og finna til, hryggjast og gleðjast, vaxa og þroskast. Mig hefur langað til þess að láta mér verða sem mest úr þessu ævintýri, hvort Sem það yrði langt eða skammt.“ En „lífið hefur líka verið mér vandamál", bætir hann við, og einmitt í þessari bók ræðir hann hugsanleg svör við ýmsum þehn örlagaspum- ingum, sem það hefur lagt fyr- ir hann. Til hvers lifum við og hvernig eigum við að lif a ? Hvert er útsýnið yfir vandamál mannlegrar tilveru frá vegamót um lífs og dauða? Er guði sama um okfcur — og er það þá sama fyrir okkur, hvort við leitum hans? — Hér er aðeins gripið niður í efni bókarinnar, en að sjálfsögðu kemur höfund urinn ærið víða við í leiðinni. Skáldskapur og stjórnmál Hinn 26. jan. n.k. eru hundr- að ár liðin frá fæðingu Þor- steins Gíslasonar, skálds og rit stjóra. Að því tilefni hefur Al- menna bókafélagið sent frá sér allmikið rit og veglegt, sem ber ofanskráð heiti og sækir meg- inefni sitt í skáldskap Þor- steins, bréf, ritgerðir og blaða greinar. Þorsteinn Gíslason kom víða við sögu í ísíenzku þjóðlífi enda var hann um áratuga skeið einn af svipmestu for- ustumönnum sinnar samtiðar. Gerðist hann snemma at- kvæðamikill brautryðjandi og ritstjóri varð hann lengur sam fellt en nokkur annar fram um hans daga. Af blöðum þeim, sem hann stjórnaði má nefna Óðinn, og Lögréttu, sem um langan aldur var eitt staysta og áhrifamesta stjómmálablað ið. Skáklskapur og stjómmál voru þannig þeir meginþættir í ævi Þorsteins Gíslasonar, sem bók sú, er að ofan getur, dreg- ur nafn af og heni er ætlað að spegla. Auk úrvalsljóða og sjálfstæðs kafla úr óprentaðri skáHsögu, er þar að finna bréf og ritgerðir um margvís- leg efni, þar á meðal hina gagnmerku og bráðskemmti- legu sögu íslenzkra stjórnmála frá 1896 th 1918, sem skráð er Blaó fyrtr &11& Mánudagur 19. desember 1968 Veitingasta veitin Nýmæli hjá Grilli — Inspektorar þörí stétt — Skapa andrúmsloft og leysa vanda — Snætt úti um jólin — A eftir í siðum' — Kotungsháttur og fámenni Innan skamms hefst jólahá- tíðin og visuslega munu þá, ef að venju lætur, fjölmargir gera sér dagamim og „borða úti,“ einkum hádegisverð, en margir eiginmenn vilja þannig létta konunum störfin í kringum jóla stússið. Um marga staði er að velja og verður ekki gert hér upp á milli gæða hvers eins í mat, heldur bent á nokkra nýj- ung, sem a.m.k. einn veitinga- staður hefur tekið upp og reynst afar vinsæl. 1 Reykjavík er nú risin upp ný stétt í veitingamennsku, inspektorar, sem sumir kalla þjónakapteina og mun vera blanda áf hvorutveggja. In- spektorar þessir hafa yfirum- sjón með þjónum, sjá um reglu og undirbúning dag hvern, að allt sé í lagi fyrir móttöku gesta. Sjálfir hjálpa þeir til við afgreiðslu, ef ös er, taka á móti gestum og vísa þeim til borðs, inna eftir óskum þeirra og kalla til þeirra þjóna. Þetta tíðkast meðal allra hinna hetri staða erlendis, en til þessa er aðeins einn matstaður í Reykja burða, hávaða eða umsvifa. Er í flösku eða veltasl um móa og kyrja ættjarðarsöngva. Að vísu hefur þetta mikið breytzt, stað- ir fjölsóttir um helgar, en þó að mestu leyti sem drykkju- krár en ekki skemmtistaðir, þar sem eitthvað annað en drykkj- an sjálf er aðalviðfangsefnið. I stuttu máli, því miður erum við langt frá allri menningu enn í sambandi við heimsókn á slíka staði. Geta ber og þess, að allt horfir þetta á betra veg með aukinni komu útlendra, bættum þjónustuháttum, betri hegðan og siglingum lands- manna og þeirri einföldu stað- reynd að „sá fulli“ er hvim- leitt grey, sem bezt er geymt afsíðis og öllum til leiðinda. Það er m.a. hlutverk inspekt ora að glíma við slíka „fullu- kalla“ ef svo ber undir. Þótt segja megi, að slíkt sé bæði sjaldgæft eða nær óþekkt, á stað eins og Grillinu, þá kemur það auðvitað fyrir. Fellur þá í hlut inspeklors — og þjóns, að lempa þann drukkna, koma honum burt án óþarfra til- til handalögmáls eða einskonar persónulegrar styrkleikaprufu. Er nær svívirðilegt að sjá dyra verði grípa drukkna gesti failta tökum og leiða þá þannig út, sem því miður er hér oft frem- ur venjan en undantekningin. 1 stuttu máli, inspektorar á mat- sölu- og veitingastöðum skajpa „atmosphere", eru þarfir menn og sjálfsagðir og eiga eflaust eftir að koma á fleiri veitinga- staði. Má við bæta, að um dag inn hringdum við á nokkra staði og var tjáð að a.m.k. Lido og jafnvel Leikhúskjall- arinn hefðu komið sér upp in- spektor. Og þeirri viðbáru, að slíkt sé of dýrt og nær útilok- að í sjálfu þjónaleysinu, er þvi til að svara, að gera má t.d. yfirþjóninn að inspektor þau kvöldin, sem mestu er að anna, þvi fátt er lágkúrulegra á að- alveitingastöðum borgarinnar en það, að sjá gesti vera bein- línis að leita í senn bæði að borði og inspektor — or hirði hver þá sneið sem k. vík, sem veitir slika súpei-- þjónustu, þ.e.a.s. Grillið á hótel Sögu, sem, auk afbragðs og samstillt þjónaliðs, hefur á að skipa fjórum inspektorum, dökkklæddum mönnum, sem þegar hafa skapað visst and- rúmsloft á veitingastaðnum, þægilegt og virðulegt, og um- fram allt, þá ánægjulegu til- finningu, að gestir séu þangað komnir — og velkomnir — til viðskipta, en ekki til að trufla þjónaliðið, eins og víða vill bera við. Því miður hefur þjóðin til skamms tíma, talið það ganga glæpi næst að sækja matstaði eða dvelja á veitingastöðum. Stafar þetta í senn af kot- ungs hugsunarhætti og fá- tækt, auk hins mikla fámenn- is. Almenningi hefur þótt bezt að hópast inn á heimili 'og drekka þar meðan eitthvað var það prýði hvers þjónustumanns og dyravarðar að kuima lagið á drukknu fólki, en ékfci efna af nánum persónúlegum kunn- ubleifc, enda sigilt heimildarrit um menn og viðburði þessa af- drifaríka tímabils, og þá ekki hvað sízt um hin margslungnu og leynilegu átök, sem um æði langt skeið áttu sér stað að baki hinnar eiginlegu sjálfstæð isbaráttu. Þorsteinn Gíslason var víð- sýnn menningarmaður, hófsam- ur og góðgjarn, sem í hvívetna vildi veg * þjóðpr sinnar sem mestan. Jólafargjöld F.f, Fyrir undanfamin jól hefur Flugfélag tslands auðveídað skólafólki ferðir heim um há- tíðirnar með því að veita því sérstakan afslátt af fargjöld- um. Svo mun éinnig verða fyrir þau jól, sem nú fara í hönd. Allt skóiafólk, sem óskar eftir að ferðást með flugvél- um félagsins um hátíðimar á kost á sérstökum lágum far- gjöldum, sem gengu í gitdi 15. desember 1966 og gilda til 15. janúar 1067. Þessi sérstöku fargjöld fyrir skólafóllcs eru tuttugu og fimm af hundraði lægri en venjuleg fargjöld. Til þess að njóta þessara kjarfa þarf að sýna vottorð frá skólastjóra, sem sýni að við- komandi stundi nám, og að keyptur sé miði og hann notað ur báðar leiðir. Hinn 1. desember gengu í gildi sérstök jólafargjöld á flugleiðum félagsins til Is],ands, sem margt skólafólk sem stund ar nám erlendis, svo og aðrir Islendingar, sem dveljast í út- löndum notfæra sér til þess að halda jól og nýár heima meðal vina og ættine"i° Nýjar bækur Enn er á vegum Bókfellsút- gáfunnar „Frésagnir um Is- land“ eftir Niels Horrebow, en Þorvaldur Thoroddsen kvað þetta bezta og mesta rit urn Island á 18. öld, áður en Egg- ert Ólafsson kemur til sögu. Bók þessi er að mestu alveg ó- kunn almenningi, en merkileg heimld um líf og háttu manna frá 18. öld, snemma. Höfundur hrekur þar ýmsar bábljur, sem út komu í lygabók Andersens nokkurs, sem hafði frásagnir sinar eftir einokunarkaupmönn unum dönsku. Er bókin öll mjög skemmtileg aflestrar, Is- lendingum borin vel sagan en firrur Andersens leiðréttar. Steindór Steindórsson, frá Hlöð um, íslenzkaði bókina, (sem er 261 bls. auk skýringa og efnis- skrár. Af skáldsögum frá Bókfells- útgáfunni má nefna jBollyanna, telpan, sem öllum kom í gott skap, eftir Elanor H. Porter og Freysteinn Gunnarsson þýddi. Þetta er bók fyrir fólk á öllum aldri, létt og skemmtileg. Þá er og komin út ný þýðing af Perei val Keene, eftir Capt. Marryat, hin mjög vinsæla æfintýra- bók. Þetta ej- í fjórða skipti, sem bók þessi kemur út en rit höfundar önnur, sem út hafa komið, hafa hlotið miklar vin- sældir. Bók þessi er upplögð jólagjöf til unglinga. Þá er og skáldsaga eftir Kristmann Guð mundsson, Skammdegi. Kápu- teikningu gerði Atli Már, lag- leg mynd af nakinav konu.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.