Mánudagsblaðið - 07.06.1971, Page 1
‘BlaÁfyrir alla
23. árgangur
Mánudagur 7. júní 1971
20. tölublað
Hvítasunnu-„helgin":
Fáránleg samstjórn
Laugardaginn fyrir Hvítasunnu leið reykvískum foreldrum,
sem ekki áttu í sumarbústaði að vernda vel. Framundan
þriggja daga frí, börnin komin í Saltvík undir öruggri gæzlu
Reykjavíkurborgar, Æskulýðsráðs og Trúbrots. Bezt var að
lyfta sér örlítið upp, bregða á leik, fara á „fínan" stað og fá
sér einn, jafnvel stíga dansspor. En, ónei. Óðinn Reykjavíkur
og áss hinn almáttki kirkjumálanna sögðu hreint nei. Drekka
megið þið að vild, en ekki eitt einasta dansspor. Það stríðir
móti kenningum guðs, er bara ekki annað en guðlast, sem
við bönnum. Fullorðið fólk að dansa, svei.
Þetta er ástandið á íslandi árið
1971. Yfirmaður kirkjunnar og
super postuli siðgæðisins bannar
reykvískum borgurum að stíga
dansspor vegna þess, að „hátíð" er
í vændum. Þetta er snilldarleg
hugmynd hjá þeim félögum. Borg-
arstjórinn í Reykjavík efnir ann-
ars vegar til 3. sólarhringa dans-
. . . nema í Saltvík
leiks í landi Reykjavíkur á Kjal-
arnesi og boðar þangað allan
æskulýð, sem vettlingi fær valdið,
en hans hátign biskupinn okkar
bannar fullorðnum Reykvíkingum,
og eflaust öðrum fullþroska lands-
mönnum, áð dansa, en leyfir hins
vegar brynningarstöðum Reykja-
víkur að fylla dansgólfin með auka-
borðum, svo að sem mest sé drukk-
ið á heilögum fórnarstalli Bakkus-
ar.
Þóknarst hverjum?
Ef þetta er guði þóknánlegt, þá
er sá guð orðið ærið breyttur síðan
miðaldra menn námu sína kristni.
Sannleikurinn er sá, að um áratuga
bil hefur yfirvöldum kristninnar
hér á landi liðist einn argasti
skrípaleikur í nafni kristninnar sem
um getur á byggðu bóli. Þótt ríkj-
andi eigi að vera nútxmaandi hjá
prestastéttinni svo ekki sé talað um
borgar og biskups
Biskupinn
. . . Guð er alls staðar . . .
yfirmanninn þá er siðum úr svart-
nætti íslenzkrar sögu enn haldið
í hávegum og boð og bönn má
miða við það, sem hrottalegast var
hjá kaþólskum á miðöldum.
Misjafnar syndir
Það skiptir engu, þótt hvíta-
sunnan sé auglýst hjá ferðafélagi
sem eins konar gleðihátíð og ferða-
laga. Það skiptir engu þótt ýmsar
hreyfingar bjóði upp á alls kyns
sérstaka atburði um þessa helgi og
engu skiptir þótt bæði biskupinn
og borgarstjórinn viti og hafi vitað
að þetta er alræmdasta helgi árs-
ins hvað æskunni viðvíkur Reyk-
vískir borgarar skulu keyrast í
bann, víndrykkjan að vísu aukin,
en æskan má aðeins dansa allan
sólarhringinn á þeirri illa fengnu
jörð Saltvík, því það er guði sér-
staklega þóknanlegt.
Dægurlög og dúndurdrykkja
Það væri gaman að spyrja bisk-
upinn, svo lærður sem hann er:
hver er munurinn, herra, frá sjón-
arhóli guðs, hvort daginn fyrir
þessa hátíð, eða kvöldið réttar sagt,
opni t. d. Mímisbar Hótel Sögu
dyr sínar á venjulegum víntíma,
skutli aukaborðum á dansgólfið, en
Iáti jafnframt píanóleikara hússins,
leika ósköp venjuleg og saklaus
dans- og dægurlög — bara ekki
dansa, jafnframt því, sem þér,
herra, leggið blessun embættis yð-
ar yfir það, að æskunni sé leyft að
dansa að vild nætur og daga —
jú, jú á sjálfan hvítasunnudaginn
— í Reykjavíkurlandinu Saltvík?
Orðið að ofan
Þá má og spyrja Geir borgar-
stjóra hvort honum hafi borizt ein-
hver tilkynning af himnum ofan,
að guð sé bara alls ekki nálægur
í Saltvík eða hafi látið sér nægja
Framhald á bls. 6.
Ajax skrifar um:
A þingiskosningar 1971
Vesturlands-
kjördæmi
Þarna getur kosningin orðið tals-
vest spennandi. Síðast fengu Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknarflokk-
ur tvo hvor, en Alþýðuflokkurinn
einh. Nú telja bjartsýnir Fram-
sóknarmenn sig hafa möguleika á
að' fá þrjá menn kjörna. Og sumir
telja, að Alþýðubandalagið geti ef
til vill fengið Jónas Árnason kjör-
inn. Það getur því farið svo, að
þarna verði háð tvísýn barátta milli
Gröndals, Jónasar og Alexanders
Stefánssonar.
A-LISTINN
Fylgi Alþýðuflokksins í kjör-
dæminu er mest á Akranesi, en
einnig nokkuð í þorpunum á Snæ-
fellsnesi. í Borgarnesi hefur það
alltaf verið fremur lítið. Spurning-
in er nú, hvort samtökum frjáls-
lyndra tekst að höggva eitthvað
verulega inn í fylgi Alþýðuflokks-
ins. Þekktustu menn á listanum
auk Gröndals eru sennilega íþrótta-
garparnir gömlu á Skaganum, Rík-
harður og Helgi Daníelsson.
B-LISTINN
Ásgeir í Ásgarði og Halldór E.
Sigurðsson eru aftur í efstu sætun-
um. Sumir eru að spá því, að Hall-
dór verði landbúnaðarráðherra, þeg
ar nýja stjórnin verður mynduð. í
þriðja sætinu, sem sumir telja bar-
áttusæti, er Alexander Stefánsson,
sem um langt skeið hefur verið
framámaður í Ólafsvík. Hins veg-
ar er nú ekki á Iistanum frændi
Alexanders, Gunnar Guðbjartsson
á Hjarðarfelli, formaður Stéttar-
sambands bænda. Kannske vill
Gunnar stöðu sinnar vegna ekki
hafa á sér of sterkan pólitískan Iit.
Daníel Ágústínusson er nu færður
niður í fjórða sæti. f fimmta sæt-
inu er ungur og upprennandi mað-
ur, Davíð Aðalsteinsson á Arn-
bjargarlæk, Hann er sonarsonur
hins þjóðkunna bændahöfðingja
Davíðs Þorsteinssonar á Arnbjarg-
arlæk, sem var harður Sjálfstæðis-
maður.
D-LISTINN
Listinn kemur tveimur mönnum
að. Þrjú efstu sætin eru óbreytt frá
því síðast, Jón Árnasson, Friðjón
Þórðarson og Ásgeir Pétursson.
Jón er bezta sál, en hann er ekki
maður til að. skipa sæti Péturs
Ottesens, hann vantar allan hans
lit og safa., Reyndar > eru menn- á
borð við Pétur.ekki á hyerju strái.
í fjórða ..sætinu er ungur bóndi,
Kalman Stefánsson í ,Kalmans-
tungu,,kominn af gömlum íslenzk-
um aðli,- Briemum og Stephensen-
um. Hvernig blandast harka Steph-
ensenanna og Ijúflyndi Briemanna?
F-LISTINN
Um fylgi þessa lista er erfitt að
spá, en víst er >þó, að -hann getur
ekki komið manni- að . Flokkurinn
fékk talsyert fylgi á .Akranesi í síð
ustu bæjarstjórnarkosningum, og
kvað eiga einhvern slæðing víðar
í kjördæminu.,. Efsmr er Haraldur
Henrýsson, lögfræðingur úr Reykja
vík, sem stundum hefur setið á
þingi, sem varamaður Hannibals.
Hann er upprunninn í krataum-
hverfi, en gekk ungur í gamla Þjóð
varnarflokkinn og síðar í samtök
frjálslyndra. í öðru sæti er Herdís
Ólafsdóttir á Akranesi, foringi
verkakvenna þar á staðnum og
sögð talsvert hörð af sér.
G-LISTINN
Tekst Jónasi Árnasyni að ná
kosningu? Líldega fær enginn fram
bjóðandi á landinu eins mörg at-
kvæði út á persónulegar vinsældir,
sem koma pólitíkinni ekkert við,
og hann. Ekki hefur Jörundur
minnkað vinsældir Jónasar. Jör-
undur, sá gamli ævintýramaður,
skyldi þó ekki eiga eftir að hafa
áhrif á íslenzka pólitík, þó að liðið
sé hátt á aðra öld síðan hann var
.að brambolta hér? Það verður lengi
reimt eftir hann á landinu bláa.
, Eitt sterkasta framboð G-listans
er Guðmundur Þorsteins:son bóndi
á Skálpastöðum, mikilhæfur ungur
efnismaður, í föðurætt af Grund-
armönnum í Borgarfirði. en af
kunnum önfirskum ættum í móð-
urkyn.
Ingólfur
viðskiptamála-
ráðherra
Halldór Sigurðsson, alþm.,
telur sig öruggan í landbún-
aðarráðherraembættið ef íhald
og Framsókn rotta sig saman
eftir kosningar, enda má telja
víst að Framsókn krefjist þess.
Halldór er þegar farinn að láta
ráðherralega, þótt rembingur
í garð Ingólfs í sjónvarpi hafi
mjög misst marks.
Veiferð bænda undir stjórn
Ingólfs, hefur þó orðið til þess,
að kaupmenn vilja óðir fá Ing-
ólf í viðskiptamálin og leggja
sumir hart til að svo verði.
Framhald á bls. 6.
Leikfang
Mánudagsblaðsins
Norðurlands-
kjördæmi vestra
Einnig hér getur orðið spennandi
kosning. Framsókn hefur við und-
anfarnar kosningar fengið kosna
þrj á menn af fimm, én oft hefur
munað mjóu um þriðja manninn,
kratar og kommar háfa verið rétt
á hælum hans. Björn á Löngumýri
hefur varið þetta sæti með prýði,
en nú er hann kominn í öruggt
sæti, er nr. 2. Eftir er áð vita, hvort
hinum nýja þriðja manni tekst að
verja sætið svo fimlega.
A-LISTINN
Jón Þorsteinsson hverfur af
þingi, en í efsta sætinu er Pétur
Pétursson, sem hefur setið á þingi
áður. Kannski æflar Jón nú að
helga sig skákinni að nýju. í öðru
sætinu er kunnur borgari á Siglu-
firði, Sigurjón Sæmundsson.
B-LISTINN
Nú er Skxili Guðmundsson horf-
inn af sviðinu, og var það sjónar-
sviptir. Hann var síðasta skáldið á
þingi. Hver yrkir nú á Alþingi
stökur, sem eitthvað er varið í?
Þaðan kemur sennilega ekki annað
af slíku í framtíðinni- en eitthvert
ómerkilegt leirbull.
Framhald á bls. 7.