Mánudagsblaðið - 07.06.1971, Side 7
Mánudagur 7. júní 1971
Mánudagsblaðið
7
Alþingiskosningar 1971
Framhald af 1. síðu.
Ólafur Jóhannesson, formaður
flokksins, er nú í efsta sæti, en
Björn Pálsson í öðru. Björn má
fyrir enga muni hverfa af þingi,
hann er einn af örfáum, sem setur
svip á þann þokugráa hóp, maður
með lit og lögun. f baráttusætinu
er nú Magnús Gíslason á Frosta-
stöðum. Magnús er vel ritfær, en
trú hans á hinn eina rétta flokk
er sakleysislega bamsleg. Rétt og
rangt í pólitíkinni — herra minn
trúr! Annars eru Frostastaðamenn
gáfuð og litrík ætt. Af þeirri ætt
var hinn kynlegi kvistur Guðmund
ur Þorláksson magister, kallaður
Glosi af stúdentum. Um hann
gengu margar þjóðsögur í upphafi
þessarar aldar. Þetta var fluggáfað-
ur maður, en ekki lánmaður að
sama skapi. Hann var afabróðir
Magnúsar Gíslasonar.
D-LISTINN
Hann fær tvo menn kjörna eins
og síðast, sér Gunnar í Glaumbæ
og Pálma á Akri. Eyjólfur Konráð
Jónsson verður varamaður. Sjálf-
stæðismenn þarna virðast ekki vera
neitt mikið fyrir að breyta til. Þetra
eru sléttir og felldir menn, en um
þá myndast aldrei þjóðsögur eins
og um Jón á Akri.
G-LISTINN
Sumir telja að Ragnar Arnalds
hafi möguleika á því að ná kosn-
ingu núna og verið getur, að hon-
um heppnist það. Hann er nú flutt
ur í kjördæmið, býr í Varmahlíð.
Ragnar og Hannibal stjórna flokk-
um sínum úr dreifbýlinu. Ragnar
þelgár “sig alveg pólitíkinni, en
ekki skáldskap eins og kollega hans,
Jqnas, Árnason, Má það furðulegt
heita, þar sem Ragnar er kominn
bæði út af Matthíai Jochumssyni
og Einari H. Kvaran. Kannski
kjósa einhverjir rómantískir Skag-
firðingar hann út á það, að langafi
hans orði héraðssöng Skagafjarðar.
Norðurknds-
kjördæmi eystra
í síðusm kosningum fékk Fram-
sóknarflokkurinn þrjá þingmenn,
Sj álfstasðisflokkurinn tvo og Al-
þýðubandalagið einn. Síðan hefur
það gerzt, að Björn Jónsson hefur
yfirgefið Alþýðubandalagið og far-
ið yfir-til frjálslyndra. Þetta skap-
ar mikla tvísýnu um úrslitin nú.
Kemst Björn að, eða Bragi Sigur-
jónsson eða Stefán Jónsson? Talið
er, að þessir þrír listar fái rúmlega
eitt þúsund atkvæði hver. Eða er
hugsanlegt að atkvæðin falli þann-
ig að Framsókn komi fjórum mönn
um að? Sá möguleiki virðist einn-
ig Vera fyrir hendi. Framsókn fékk
síðast rúmlega 4500 atkvæði. Ef
hver .hinna þriggja flokkanna fær
um 1100 atkvæði er fjórði maður
Framsóknar kominn að, ef Fram-
sókn heldur sama atkvæðamagi.
Möguleikarnir eru því fjórir: 1)
Sjálfst. 2, Framsókn 4. 2) Sjálfst.
2, Frams. 3, Alþ.fl. 1. 3) Sjálfst.
2, Frams. 3, Frjálsl. 1. 3) Sjálfst. 2,
Frams. 3, Alþýðubandalag 1.
Úrslitin eru því sarinarlega ó-
viss. Og til að auka á óvissuna
verkar Laxárvirkjunarmálið mjög í
þessu kjördæmi, en í því eru allir
flokkar klofnir, Akureyringaív eru
á öndverðum meið við Þingeyinga.
Og þarna er það miklu meira hita-
mál en hin venjulega gamla flokka-
pólitík.
A-LISTINN
Bragi Sigurjónsson er aftur efst-
ur, og hugsanlegt er, að hann eigi
möguleika á kjöri. Hann hefur tek
ið afdráttarlausa afstöðu með Akur-
eyrarlínunni í virkjunarmálunum,
og frændum hans í Suður-Þingeyj-
arsýslu finnst hann hafa svikið sig
í tryggðum. En reyndar er fylgi
flokksins miklu meira á Akureyri
en í Þingeyjarsýslu hvort sem er,
Þriði maður listan, Hreggviður
Hermannsson læknir, hefur verið
talinn mjög svo vinstri sinnaður,
og gerðu Hannibalistar sér um ein
skeið von um að ná í hann, en
sú von hefur brugðizt.
B-LISTINN
Þar eru engar breytingar í efstu
sætum, Gísli, Ingvar, Stefán, Jónas.
Gott er, að Gísli, þessi heiðursmað-
ur af gamla skólanum situr á þingi
eitt kjörtímabil enn. Bjartsýnir
Framsóknarmenn gera sér vonir um
að Jónas Jónsson, sonarsonur Sig-
urðar ráðherra frá Yztafelli, nái
kosningu, og sá möguleiki er ekki
alveg óhugsandi. Það er svo í þessu
kjördæmi, að í sumum byggðarlög-
um er það nokkurn veginn jafn
sjálfsagt að vera Framsóknarmaður
og að vera KR-ingur í gamla vest-
urbænum í Reykjavík. í slíkum
sveitum er í rauninni öll pólitík úr
sögunni, Þetta er orðið eins flokks
kerfi eins og á Spáni eða fyrir aust-
an tjald.
D-LISTINN
Jónas Rafnar hættir nú þirig-
mennsku, en sæti hans tekur Lárus
Jónsson, áður á Ólafsfirði, nú á
Akureyri. Magnús fjármálaráð-
herra er efstur, þó að hans rætur
séu í Norðurlandskjördæmi vestra.
í þriðja sæti er Halldór Blöndal
systursonur Bjarna Benediktssonar.
Hann er sagður á Þingeyingalín-
unni x virkjunarmálunum.
F-LISTINN
Björn Jónsson er einn aðalmað-
urinn í samtökum frjálslyndra og
vinstri manna. Hann hefur um sig
harðsnúinn flokk á Akureyri, en
fylgi hans er eitthvað valtara hjá
Þingeyingum, því að hann er ein-
dreginn virkjunarmaður. Björn er
vinsæll af mörgum í sínum heima-
högum, en sumum flokksbræðrum
hans í Reykjavík er ekki mikið um
hann, þykir hann alltof afskiptasam
um um málefni flokksins hér syðra.
Það er ekki alveg óhugsandi, að
Björn nái kosningu, en frekar er
það ósennilegt.
G-LISTINN
Hér er efstur sá þjóðkunni
skemmtimaður Stefán Jónsson dag
skrárstjóri, manna fyndnastur og
skemmtilegastur ? viðræðum - og
skopskáld ágætt, þegar honum tekst
qpp. Hann er alyeg með Laxár-
bændum í virkjurewmálinu og-vinn
ur.sennilega fylgi á því í Þingeyj-
arsýslu, en ekki á-Akureyri. Flugs-
anlegt er, að Stefán verði kosinn.
í öðru sæti er glæsikonan, Soffía
Guðmundsdóttir, reykvískur Vest-
urbæingur að uppruna, systir Karls
Ieikara. Sá þriði er svo Þorgrímur
Starri ' í Garði, maður Jakobínu
skáldkonu. í heiðurssæti ,er gamli
Jón Ingimarsson á Akureyri. Hann
var um eitt skeið orðaður við Stein
grím Aðalsteinsson og hans
kompaní og hann var einn helzti
stuðningsmaður Gunnars Thorodd-
sens í forsetakosningunum. Sam-
búð hans og Björns Jónssonar var
stundum sögð erfið á meðan þeir
voru í sama flokki, en nú geta
þeir skammast af hjartans lyst.
Austurlsnds-
kjördæmi
Hér liggur enginn spenningur í
loftinu. Úrslitin eru viss fyrirfram.
Framsóknarflokkurinn fær þrjá,
en Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu
bandalagið einn hvor.
A-LISTINN
Alþýðuflokkurinn á um 300 at-
kvæði í kjördæminu, sennilega
einna mest á Seyðisfirði, sem í
gamla daga var sterkt vígi flokks-
ins, þegar Haraldur Guðmundsson
var þar. Efsti maður listans er þó
ekki Seyðfirðingur, heldur rafveim
stjórinn í hinu upprennandi Egils-
staðaþorpi, Erling Jónasson.
B-LISTINN
Hér er allt óbreytt, Eysteinn,
Páll, Vilhjálmur. Eysteinn er að
miklu leyti búinn að draga sig í hlé
úr sviptibyljum stjórnmálanna, þó
að ekki verði hann kallaður gam-
all maður. Talið er, að hann muni
ekki verða í næsm ríkisstjórn, þó
að svo fari, að flokkurinn taki þátt
í myndun hennar.
Páll Þorsteinsson er.eitt af,því,
sem ekki breytist, þó að ár og aldir
líði. Hann stendur eins og Lóma-
gnúpur, alltaf samur við sig: 'Manfti
finnst einhvern veginn ósjálfrátt,
að hann hljóti að verða enn á þingi
um næstu aldamót og enn að skrifa
ágæt eftirmæli um framliðna Ör-
æfinga.
D-LISTINN
Hér var gerð breyting á. Sverrir
Hermannsson skipar efsta sætið í
stað Jónasar Pémrssonar, sem var
settur í neðsta sætið, heiðurssætið.
Einhver talsverð átök urðu um
þetta í flokknum, og Jónasarmenn
em sagðir ekki neitt glaðir í bragði.
Langbezti maður þessa lista er auð-
vitað Reynir Zoéga í Neskaupstað,
fluggáfaður maður og mikilhæfur.
Manni finnst, að hann hefði átt að
vera sjálfkjörinn í efsta sætið.
F-LISTINN
Þessi Iisti hefur enga von um að
fá mann kjörinn, en. aönars greinir
menn á um fylgi haris, Fylgismenn
hans segja að hann múni fá um
500 atkvæði, en óvínirnir um 150
atkvæði,
Efsti maðúr listans er Skjöldur
Eiríksson á Skjöldólfsstöðum. Hann
er vel gefinn maður, enda á hann
til slíkra að telja, sysmrsoriur
Magnúsar Stefárissonar (Arnar
Arnarsonar) skálds. í næsta sæti er
Matthías F.ggertsson á Skriðu-
klaustri, sern talár flesmm bemr
um daginn Og vegínn í útyarpinu.
Þriði maðurinn er Kjartan ÓJafs-
son læknir á Seyði'sfirði, sem hefur
flutt sig frá ' kömmúnismm til
Hannibalista frá Kreml til Karþa-
gó.
G-LISTINN
Lúðvík er efstur og verður kos-
inn. í næsta sæti er Helgi Seljan,
gamall Þjöðvarnarmaður. En mest
umtlaður er Sigurðut Blöndal skóg-
arvörður á Hallormsstað, sá, sem
hélt í vemr útvarpserindið fræga,
sem setti landið á annan endann,
og var raunar ágætt. Fjórði maður
er Torfi á Hala, bróðursonur Þór-
bergs. Ekki fylgir það sögunni,
hvort hann er nokkurri skáldskapar
gáfu gæddur eins og frændinn og
reyndar faðirinn líka. En kannske
Torfi eigi eftir að frelsa Suðursveit-
ina.
Suðurlands-
kjördæmi
Hér geta hlutirnar orðið spenn-
andi. Síðast fékk Sjálfstæðisflokkur-
inn þrjá, Framsókn tvo og Alþýðu-
bandalagið einn. Síðan hefur þing-
maður Alþýðubandalagsins, Karl
Guðjónsson, gengið úr flokknum
og er nú efsmr á lista Alþýðu-
flokksins. Hvernig þetta verkar á
úrslitin er nokkuð óljóst. Mariý*
telja, að Framsókn fái nú þrjá
menn kjörna. Sumir halda, að Karl
eigi einhvern möguleika og aðrir,
að Alþýðubandalagið fái afmr einn
mann. Framboð Hannibalista rugl-
ar þesar spár enn meir, en þeir
draga eitthvað dálítið frá öllum
þremur vinstri flokkunum.
A-LISTINN
Þar er Karl nú efstur. Spurning-
in er, hvort hann dregur eitthvert
verulegt atkvæðamagn frá sínum
gamla flokki. Sumir telja, að svo
verði, en aðrir gera lítið úr því.
Helzt mundi hann líklega græða á
'fófnum' ýihsáS'duiri T VéStíliaiitiá''-
eyjum, þá að hann sé nú fluttur
þaðan. Annar maður listans er
gamall Þjóðvarnarrna$ur,‘' Bry nleí t-
ur Steingrímsson læknir á Selfossi,
sonur.hins harða Sjálfstæðismanns,
Steingríms Davíðssonar á Blöndu-
ósi.
B-LISTINN
Framsókn hefur möguleika á að
fá þrjá menn kjörna, en ömggt er
það ekki. Urgur heftir verið í ýms-
um flokksmönnum síðan Helgi
Bergs dróg sig í hlé og Hafsteinn
Þorvaldsson var skipaður í þriðja
sætið. Vestur-Skaftfellingar og jafn
vel Vestmannaeyingar vildu fá Jón
Helgason í Seglbúðum í það sæti,
enda er Jón ágætur maður. En vera
má, að Hafsteinn dragi einhver at-
kvæði út á það, að hann er for-
maður Ungmennafélagasambands
íslands. Þó hefði það embæti haft
meira aðdráttarafl fyrir hálfri öld,
en það hefur nú.
D-LISTINN
Þarna er allt eins og var í efsm
sætunum, Ingólfur, Guðlaugur og
Steinþór, og eru víst allír vissir.
Fyrsti vaikmáður er Einar Oddxson
sýslumaður Skaftfeilinga, en : er
skagfirdcrar ættar. Allur er þessi
listi korninn talsvert til ára sinna,
og vadri sennilega skynsamlegt af
flokknum að yngja hann eitthvað
upp næst. Meðalaldurinn núna
slagár víst upp í meðalaldur hús-
bændanrbi:{ Kreml, og er þá nokk-
uð sagt.
F-L1STINN
Erfitt er að spá um fylgi þessa
Iista. en flest fólk í kjördæmmi*
spáir honum 200—250 atkvæðum.
Efstur er þárna dr. Bragi Jóseps-
son, sá umdeildi maður, sem styrr
hefur staðið um hvað eftir annað á
síðustu árum. Þetta er áreiðanlega
duglegur maður, en gjarn á að
lenda í árekstrum við alls konar
máttarvöld, og það er honum
kannske heldur til hróss en hitt.
Það er sennilega ýmislegt skyn-
samlegt í skoðunum hans á skóla-
málum, en þó held ég, að hann sé
þar of ameríkaníseraður, það, sem
getur átt við þar, þarf ekki að eiga
við hér á landi. Reyndar er Svía-
manían í skólamálum líklega enn
verri en Kanamanían. Hér er fjöldi
manna, sem hreinlega gapir af að-
dáun á öllu, sem frá Svíum kemur
í skólamálum, þó að margir Svíar
gagnrýni nú sitt skólakerfi harð-
lega En svona eru íslendingar, eilíft
snobberí á öllu, sem frá útlandinu
kemur, einkum frá „fínum" lönd-
um, bá verðum við bara mátdaus-
ir í hnjáliðunum. íslendingar upp
til hópa eru nefnilega ekki nein
herraþjóð, heldur aumur lýður
Iakaja og skriðdýra. Þetta var nú
um skólamálin almennt, en er alls
ekki beint til dr. Braga. Kannske á
Bragi eftir að komast á þing, þó að
ekki verði það núna, og kannske
verður harrn orðinn menntamálaráð
herra eftir nokkur ár. Og þá verð-
ur nú líf í tuskunum.
G-LISTINN
Karl er farinn að heiman frá
sér, en í efsta sæti listans er Garð-
ar Sigurðsson kennari í Vest-
mannaeyjum og Eyjamaður að upp-
runa. Það er ekki alveg óhugsandi,
að hann komist nærri því að verða
kosinn eða að minnsta kosti að fá
uppbÓBarsætL _ -Garðsuí ec»- glæsiv
menni hið mesta, og það mætti
segja mér, að hann fái ófá átkvæði
út á sex appeal, til dæmis hjá róm*
antískum sveitapíum í Flóanum.
Engan mann á Alþýðubandalagið,
sem mundi taka sig jafnveí út f
sjónvarpi og Garðar, jafnvel ekkí
Magnús Kjartansson Hann væri til-
valinn Rudolf Valentínó flokksins
og margra atkvæða virði. Auk þess
er Garðar vel greindur máður og
kurteis vel. Eiga ekki slíkir mann
heiminn á sjónvarpsöld?
Þriði maður listans er Ólafur
Einarsson, sonur Einars Olgeirssön-
ar, en tengdasonur Sjálfstæðis-
mannsins Axels Jónssonar í Kópa-
vogi.
O-LISTINN
Einnig hér er O-Iisti á ferðinni,
skipaður á svipaðan hátt og í
Reykjavík og Reykjaneskjördæmi,
ungu og uppreisnargjörnu fólki,
sem er að gera sprell í hinu stein-
runna gamla flokkakerfi. Þarna er
til dæmis hinn myndarlegi og skegg
prúði Gunnlaugur Ástgeirsson, sem
gerði mikla lukktx í sjónvarpinu
um.daginn, sonur Ása í Bæ. Hann
ér' skrímslafræðingur að atvinnu,
að því er hann sjálfur gefur upp,
og er það eflaust mjög.forvitnileg
atvirinu. Hann er nr. 2 af þessu
tagi á íslandi, nx. 1 er Þórbergur
Þórðarson, sem hefur diploma, sem
féiagi í Alþjóðasambandi monstró-
loga. Og ekki veitir íslenzkum
stjórnmálum af að fá sér einn
rnonstrólog, því að er ekki pólitíkin
hér á voru landi öll ein grótesk
monstrólógfa.
Ajax.