Mánudagsblaðið - 13.09.1971, Side 3
Mánudagur 13. september 1971
Mánudagsblaðið
3
TIL BLADSINS
Drukknir þjónar
Hr. ritstj.
Þér minnist stundum á veitinga-
staði, og ræðið ýms mál, sem þar
fara vel eða illa. Mig langar til að
spyrja eins: hvað eiga gestir að
gera þegar þjónninn við borðið er
bersýnilega drukkinn og þjónustan
eftir því? — Við hjónin snæddum
nýlega á matstað, sem hefur miög
gott orð á sér og þar sem við för-
um ekki oft út þeirra erinda var
þetta talsverð tilbreyting fyrir okk-
ur enda hlakkaði okkur til. Þegar
til kom varð þetta ekkert annað en
vonbrigði á vonbrigði ofan. Pantað
borðið var ekki tilbúið og við
eyddum ósköpum í að dúlla við bar-
inn, en þar voru gestir eins og svín,
en svo þegar borðið var tilbúið þá
var þjónninn drukkinn. Hann virt-
ist hafa aðalstöðvar sínar í eld-
húsinu, því hann rak rétt inn haus-
inn og svokölluð „þjónusta" kom
fram í gleymsku og ólund, tómri
vitleysu varðandi pöntun. Við
hreinlega hættum að loknum aðal-
réttinum, komum okkur út og á
annan stað til að eyðileggja ekki
allt kvöldið. Spurningin er: hvað
eiga gestir að gera við svona fram-
komu?
Með þökk fyrir birtinguna.
V onsvikinn.
Þdð jyrsta er að kvarta við yftr-
þjóninn eða þjónakapteininn, ef
nokkur er. Ef þessir herrar fá ekki
lagfœrt þetta, skipt mn þjón eða
þjónað sjálfur. Fáist það ekki og
kvörtun ekki sinnt, þá verður að
kcera til eiganda veitingastaðarins,
og mun hann í flestum tilfellum
leiðrétta málið. Margir hafa ein-
faldlega þann sið, ef ekki fcsst þeg-
ar leiðrétting á kvörtuninni, að
hreinlega yfirgefa staðinn — án
þess að greiða fyrir reikninginn,
því svona framkoma þjóns er ófyr-
irgefanleg og samtök veitinga- og
framleiðslumanna, eru sjálf nijög
ströng í þessum efnum. Gera verð-
ur auðvitað grein á milli drukkins
þjóns og þess, sem smakkað befur
áfengi lítillega, því þeir verða ott
liprari ef þeir eru aðeins „animer-
aðir". — Ég hirti ekki allt hréfið,
en myndi birta það allt og lýsingu
á þjóninum ef þú hefðir ekki bann-
að að birta nafn matstaðarins. Ef
þín lýsing er ekki nema að smáu
leyti rétt, þá verðskuldar staður-
inn ekki annað en umtal og jafnvel
katru til samtaka þjóna. — Ritstj.
Kokkálaðir
eiginmenii
Hr. ritstjóri.
Ég hefi mál að kæra. Konan er
mér ótrú, ekki nóg með það, hún
er vanfær og ég veit ekki hvort ég
á krakkann. Hún hefur játað fram-
hjáhaldið, en við eigum tvö smá-
börn, svo ekki er gott um að gera.
Gallinn er sá, að hún vill halda
íramhj,á, segir að það skipti engu
meðan ég ekki stend hana að því.
Hvers konar mórail er þetta?
Nú er hún farin að bjóða þess-
um herra sínum hingað heim og
þau fá sér genever fyrir framan
mig þegar ég kem úr vinnunni.
Um þverbak keyrði þegar þau fóru
að rífast út af því, að hún héldi
framhjá viðhaldinu sínu og létu
sem ég væri ekki til! Kannski á
hún þungann með þessu nýja við-
haldi, eftir að hún hélt framhjá
hinu viðhaídinu, þessu gamla,
meina ég. Ég á vingott við stúiku
að vísu, en um það veit hún ekkert,
því hún vinnur í eldhúsinu á vinnu-
stað mínum. Þessi stúlka er fall-
egri en konan mín og vill gjarnan
halda þessu sambandi áfram. Fyrir
viku kynntist ég einmana móður,
sem einnig er ekki afhuga mér, en
allt þetta er algjörlega bak við
konu rnína, sem veit ekki annað en
ég sé trúr. Hvað teljið þér bezt áð
gera í málinu, þetta er óþolandi.
„Upptekinn".
Hvernig vceri að kaupa eitt alls-
herjar stórt hjónarúm og halda eins
konar aðalfund í þessarri stóru og
mjög áhugaverðu fjölskyldu þar
sem nakinn sannleikurinn kcemi í
Ijós. — Ritstj.
Tnnglferðin og
sjónvarpið
Bréfakassinn, Mánudagsblaðið.
í öllum löndum Evrópu, austan-
tjaldslöndunum einnig, hafa menn
og konur séð hið frækilega ferða-
lag Ameríkumanna til tunglsins og
akstur þeirra á ferjunni um yfir-
borð tunglsins. Þetta hafði verið
mjög glögg og skýr útsending,
næstum eins og kvikmynd í bíói.
Ég hefi að vísu verið úti í tvær og
hálfa viku en ekki hefi ég heyrt
neinn mann tala um alvarlega út-
sendingu á þessarri geimferð, í lík-
ingu við útsendinguna í Evrópu.
Getur verið að þessi sjónvarps-
fréttamennska á íslandi sé svo lé-
Ieg, að hún hafi ekki haft rænu á
að ná þessarri „frétt" til útsendinga
hér?
G. H.
Eréttamennska sjónvarpsins er
svo léleg, að það gceti vel verið.
Nálega hver frétt, sem máli skiptir,
nema þcer séu hreinlega reknar á
skerminn fer framhjá sjónvarpinu,
og fréttamat og skipulag frétta-
stjórnarinnar má bezt sjá og skilja
í sambandi' við þau fáránlegu við-
töl, sem tóku upp mestan frétta-
tíma sjónvarpsins varðandi fisk-
veiðilögsögufundinn þar sem „skoð-
urí' fulltrúanna okkar var látin
koma fram, eins og landsmenn
! hefðu ekki hugmynd um hver hún
vceri. Þetta var efni, sem útvarpið
kallar fréttaauka, og tilheyrir viss-
um útsendingatíma. Fréttamat sjón-
varpsins varðandi tunglferðina er
alveg í samrcemi við þau vinnu-
brögð, sem oftast er að finna þar.
— Ritstj.
Skoðanir
diplomata
Hr. ritstj.
Það sló mig dálítið spanskt þeg-
ar blöðin fóru að geta um skoðun
Hans G. Andersens á friðunarmál-
um okkar. Eflaust hefur Hans skoð-
un, en hin opinbera skoðun hans,
sú, sem hann lætur í Ijós við blöð
og útvarp, hlýtur að vera skoðun
ríkisstjórnarinnar, því hann túlkar
skoðanir stjórnarinnar hverju sinni
og eftir því hverjir eru við völd.
Hvaða hlutverki gegnir Hans G.
Andersen? Er hann pólitískur?
Forvitm.
Hans G. Andersen er, að því við
komumst ncest, atvinnu-diplomat,
maður sem gert hefur starf við ut-
anríkisþjónustuna að atvinnu og
Framhald á 6. síðu.
TÍGRIS
Beethoven finnst.
hann vera beztur i
Kuba Imperial stereo
Þetta er nú kannski ekki alveg rétt, en hitt
verður þó ekki hrakið, að IMPERIAL ST-1500
stereo-samstæðan er hreiriasta afbragð. Hún
er glæný (árgerð 1971—72) og byggð stereo
(þrýsta þarf inn takka fyrir mono). Transis-
torar og díóður í útvarpsmagnara eru 37 og
afriðlar 3. Lampar eru auðvitað, engir. Mögn-
un er 20 W við 4 Ohrri., og er óhætt að full-
yrða, að það er kappnóg (a. m. k. fyrir þá, sem
búa í þéttbýli). Viðtækið er langdrægt og
hefur 4 bylgjur; LB, MB, SB og FM, og er
sjálfvirk tíðnisstilling fyrir FM byllgjuna (AFC).
Á útvarpi eru 2 leitarar og styrkmælir. Há-
talarar eru mjög fyrirferðarlitlir (þó að sjálf-
sögðu ekki á kostnað tóngæðanna) eins og
samstæðan reyndar öll. Plötuspilarinn er
byggður skv. vestur-þýzka gæðastaðlinum
DIN 45539. Er hann 4ra hraða og gerður bæði
fyrir einstakar plötur og 10 plötur með sjálf-
virkri skiptingu. ST-1500 fæst bæði með hvítri
polyester áferð og í valhnotu. Verðið á allri
samstæðunni er kr. 38.500,00 miðað við
10.000,00 kr. lágmarksútborgun og eftirstöðv-
ar á 10 mánuðum. VIÐ STAÐGREIÐSLU ER
VEITTUR 8% AFSLÁTTUR (verðið lækkar í
kr. 35.420,00). Að vanda er ábyrgðin í 3 ÁR.
Er ekki mál til komið, að þér veitið yður
skemmtilega og vandaða stereo samstæðu?!!!
Röskar stúlkur geta
líka eignast
Kubalmperial stereo
/K&nJljETL, iMPERinL
Sjónvarps & stereotæki
NESCOHF
Laugavegi 10, Reykjavík.Símar 19150-19192