Tíminn - 24.12.1977, Page 18

Tíminn - 24.12.1977, Page 18
18 Jólablað 1977 Rithöfundurinn og tónskáldið Auk prestverka, fékkst séra Bjarni við margs konar störf. Kunnastur er hann þjóðinni sem tónskáld og visindamaður á sviði tónlistar og einkum þá þjóð- laga. Hann var líka afkastamikill rithöfundur og fræðimaður. Hann ritaði ættfræðirit og einnig rit um Siglufjörð, hundrað ára, sem verzlunarstað. Hann varð snemma áhugasam- ur um sveitarstjórnarmál, og tók snemma sæti i hreppsnefnd og átti þar sæti um áratuga skeið og hann var lengi sýslunefndarmað- ur i Vaðlaþingi, eða sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu og hann var meðal þeirra sem börðust harðast fyrir kaupstaðarréttindum til handa Siglufirði og varð hann bæjarfulltrúi á Siglufirði frá 1919 og um árabil. Eitt merkasta verk séra Bjarna Þorsteinssonar, var það að hann teiknaði skipulag fyrir Siglu- fjarðarkaupstað, löngu áður en skipulagslögin voru sett, og býr kaupstaðurinn að þvi verki enn þann dag i dag með eðlilegum frávikum. Teikningar hans af skipulagi bæjarins eru enn i fullu gildi, og er þetta liklega einsdæmi. Ekki er ráðrúm til þess að gera grein fyrir starfi Bjarna Þor- steinssonar fyrir Siglufjörð, sem var umfangsmikið, en til marks um hugi manna þar nyrðra er að hann var kosinn heiðursborgari Siglufjarðar siðar á ævi sinni. Séð inn eftir kirkjunni. Altaris- taflan er eftir Gunnlaug Blönd- al. r\ Hér hefi ég reynt að gera ofur litla grein fyrir æskudögum séra Bjarna Þorsteinssonar. Greint hefur verið frá námi hans og prestskap. Ennfremur miklu félagsmálastarfi og ritstörfum. Þó er ólokið að fjalla um það, sem hann er liklega frægastur fyrir, en það er tónlistin. Við greindum frá þvi þegar hann sér fyrst nótur á heimili séra Guðmundar á Breiðabólstað og hvernig hann nemur organleik og tekur þátt i sönglifi skólapilta og stúdenta i Reykavik, eftir að hann er kominn i skóla. Siðar á ævinni gerðist hann eitt af afkastamestu tónskáldum þjóðarinnar og eru sönglög hans enn sungin, þau eru stór partur af sönghefð þjóðarinnar. Hann gefur út sönglög sin og jafnframt rit um kirkjulegan og verslegan söng. Hátiðasöngvarnir Skömmu fyrir aldamótin, eða nánar til tekið 1899 voru gefin út i Kaupmannahöfn sex sönglög eftir hann, og ennfremur hátiðasöngv- ar hans. 1 sönglagasafninu voru m.a. lögin Systkinin og Þess bera menn sár, svo eitthvað sé nefnt. Hátiðasöngvarnir voru hins vegar vixlsöngvar prests og safnaðar á stórhátiðum t.d. jólun- um, föstudaginn langa. Þessum söngvum var vel fagn- að hjá þjóðinni og fengu þeir góða dóma tónlistarmanna og þjóðar- innar i heild. T.d. ritaði Arni Thorsteinsson, tónskáld um þá i Eimreiðina og sagð þar m.a.: „Það mun óhætt að fullyrða að á næstliðnu ári hafi engin islenzk rit birzt á prenti merkilegri en þessi tvö sönghefti Karlakórinn Visir. Séra Bjarni situr á milli formanns kórsins, Egils Stefánssonar og söng- stjórans Þormóðs Eyjólfssonar Vigsla Siglufjarðarkirkju. Séra Bjarni i ræðustóli. Siglufjarðar- kirkja er eitt veglegasta guðs- hús landsins. Kirkjukór Siglufjarðar viö vigsiu kirkjunnar ásamt karla- kórnum Visi. Séra Bjarni situr á milli Þormóðs Eyjólfssonar söngstjóra og Tryggva Kristins- sonar. og er þvi ekki nema skylt að Eim- reiðin geti um þessa fögru kveðju séra Bjarna til landa sinna. Hún er þannig vaxin að allir sem unna okkar fátæku söng- listarbókmenntum og óska að þær megi blómgast og dafna, ættu að flýta sér að kynnast henni.” Þá fór Árni Thorsteinsson viðurkenningarorðum um hátiða- söngvana. Taldi söngvana vand- aða og kirkjulega i alla staði. Þessir hátiðasöngvar hafa nú i meira en sjö áratugi ómaði i is- lenzkum kirkjum á hátiðisdögum. Þó virðist nú sem á seinustu dögum hafi þeir nokkuð þokað fyrir erlendum messusöngvum. Margir hafa furðað sig á þvi að þessi helgi neisti tónlistar og söngs skyldi ekki kulna norður i Siglufirði hjá séra Bjarna. Ég hefi þó reynt að imynda mér að vor og sumarbirtan hafi einkum orðið til þess að glæða eld af þess- um neista. En hvað sem þvi leið, þá virðist hann hafa haft inngróna þörf til tónlistariðkana og kona hans var prýðileg söngkona og hafði mik- inn áhuga á tónlist. Tónskáld og umhverfið * Mér kemur i hug þegar rætt er um dr. Pál'lsólfsson, sem sótti þrótt sinn og sköpunarmátt öðr- um þræði i Stokkseyrarbrimið. Þá hafi hamfarir náttúrunnar, vetrarveðrin og hins vegar hin djúpa kyrrð norðursins, haft sams konar áhrif á séra Bjarna. Um það verður þó seint fullyrt, nema á Siglufirði bjó hann og þar verða lög hans til. Við getum skipt tónlistarstarfi séra Bjarna i þrjá hluta. Söng- lagasmið, hátiðasöngva og þjóð- lagasöfnun. Þjóðlagasafn hans er nú talið til grundvallarbókmennta á Islandi um þjóðlög. Þangað hafa menn, og ekki sizt á vorum dögum, þeg- ar áhugi fyrir þjóðlagasöng er mikill, sótt ókjör af lögum og fróðleik. Það undarlegasta við þetta allt er þó liklega það, að maður sem bjó i einangruðu byggðarlagi, skyldi geta samið svona verk, jafnvel þótt hann hefði til þess rika þörf og hæfileika. Veturinn 1903-1904 dvaldi hann i Kaup- mannahöfn við þjóðlagarann- sóknir og hann mun hfa sett sig i samband við fjölda manns vegna þjóðlaga. Heyrt hefi ég að það hafi oröið honum til mikillar hjálpar, að hann hafði frábært tóneyra og tónminni. Lærði lag ef hann heyrði það einu sinni og gat skrif- að það niður svo öruggt var. Menn hafa likt safni hans við Flóru Islands og Fiskana og rit Þorvaldar Thoroddsen, en rit þessara manna eru grundvallar- rit, hvert á sinu sviði. Það er þvi óskiljanlegt i sjálfu sér að unnt skyldi vera að semja slik verk norður á Siglufirði, i jafn einangraðri byggð og Siglufjörð- urvar. Þetta mikla verk séra Bjarna var lengi ófáanlegt með öllu, og þvi gladdi það marga, þegar Sigurjón Sæmundsson, eigandi og forstjóri Siglufjarðarprentsmiðju gaf það úr i II. útgáfu i tilefni af ellefu alda afmæli íslands byggð- ar. Til marks um þetta stórvirki er, að bókin er rúmlega 900 blaðsiðna löng. Þar fer saman ritað mál og nótur. Fjallar verkið um tónlist á íslandi frá upphafi, sagði Jón Kjartansson að lokum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.