Tíminn - 21.03.1978, Side 2
2
Þriðjudagur 21. marz 1978
Sigur hægrimanna
i Frakklandi
— d’Estaing nýtur
öruggs fylgis
Kjósendur sýndu d’Estaing mikinn stuðning og er flokkur hans nú
næststærstur á þingi.
Paris/Heuter Sigur hægri- og
miðflokkanna yfir sósialistum og
kommúnistum er talinn mikill
sigur fyrir Valery Giscard
d’Estaing. Þó má segja að
franska þjóðin sé nú klofin i tvo
nær jafna hluta milli hægri og
vinstri. 25 milljónir Frakka kusu^
stjórnarflokkarnir fengu 12,6
milljónir atkvæða en vinstrimenn
12,3 milljónir atkvæða. Stjórnar-
flokkarnir hafa þvi fylgi 50,67%
kjósenda en stjórnarandstaðan
49,32%.
Gaullistar eru enn stærsti
flokkurinn i Frakklandi, og ráða
nú 145 þingsætum;miðflokkasam-
bandið hefur 137 sæti á þingi,
Sósialistar 112 og Kommúnistar
86 þingsæti. Þessi úrslit eru i and-
stöðu við allar skoðanakannanir,
er gerðar voru áður en kosningar
hófust, en þær spáðu vinstri-
mönnum ótviræðum sigri. í fyrri
hluta kosninganna unnu vinstri-
menn nauman sigur og það vakti
nýjar vonir hægrimanna um
endanlegan sigur og þær urðu
siðan að raunveruleika.
Allar likur eru taldar á að sam-
komulag kommúnista og sósial-
ista fari sizt batnandi eftir ósigur-
inn á sunnudaginn, en Mitterand
leiðtogi sósialista kennir ósann-
gjörnum kröfum kommúnista um
það hvernig úrslitin urðu. Mar-
chais, foringi kommúnista hefur
hins vegar lýst þvi yfir að binda
beri vonir við áframhaldandi
samstarf vinstrimanna.
Hið nýja þing kemur saman 3.
april,en það verkefni sem nú ligg-
ur fyrir Frakklandsforseta er að
tilnefna nýjan forsætisráðherra.
Barre sem nú gegnir embættinu
mun hitta forsetann i dag, en á
miðvikudag hefur verið boðað til
fundar rikisstjórnarinnar. Þann
sama dag lýkur endanlegri ta'ln-
ingu a tkvæða og þá mun forsetinn
ávarpa þjóðina. Forsetinn mun
að vonum ánægður með úrslit
mála, en stuðningsmenn hans i
Miðflokkabandalaginu hafa nú
tryggt honum öruggt fylgi á þingi
sem nægja mun honum til að
fylgja markaðri stefnu.
Þrátt fyrir að stjórnarflokkun-
um hafi tekizt að halda velli,glöt-
uðu þeir 21 þingsæti til vinstri-
manna.
Arafoar boða til fundar um
innrásina i Libanon
Nýkomin styrktarblöð og
augablöð í eftirtaldar
bifreiðar:
Hœkkið bílinn upp svo að hann taki ekki
niðri á snjóhryggjum og holóttum vegum
Bedford 5 og 7 tonna augabiöð aftan.
Datsun diesel 70-77 augablöð aftan.
Mercedes Benz 1413, augablöð og krókblöð.
Mercedes Benz 322 og 1113, augablöð.
Scania Vabis L55 og L56, augablöð og krókblöð
aftan.
Scania Vabis L76, augabiöð og krókblöð.
2” 2 1/4” og 2 1/2” styrktarblöð i fólksbíla.
Mikið úrval af miðfjaðraboitum og fjaðra-
klemmum.
Smiðum einnig fjaðraklemmur eftir máii.
Sendum i póstkröfu hvert á iand sem er.
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Höfum fyrirliggjandi
Farangursgrindur
og bindingar á
allar stœrðir
fólksbíla,
Bronco
og fleiri bíla.
Einnig skíðaboga
Bilavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2, sími 82944.
\
Kairó/Reuter. Egyptar munu
ekki ákveða hvort þeir senda full-
trúa til ráðstefnu Araba um inn-
rás Israelsmanna i Suður-Liban-
on fyrr en skýrt verður frá niður-
stöðum Damaskusfundar Araba-
leiðtoga en hann sitja helztu and-
stæðingar Sadats. Talsmenn
Arababandalagsins segja að
rikisstjórnir tiu Arabalanda hafi
þegar samþykkt að koma til
fundarins sem Arababandalagið
boðaði til siðastliðinnfimmtudag.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
ráðstefnan á að hefjast.
1 dagblaðinu Al-Gomhouria
sagði að Khalid konungur
Saudi-Arabiu hefði sent Sadat
Egyptalandsforseta skeyti þar
sem hann lagði áherzlu á nauðsyn
þess að Arabar stæðu sameinaðir
á slikri örlagastundu. Talsmenn
Arababandalagsins segja að
stjórnir Libanons,Saudi-Arabiu,
Kuwait, Qatar, Bahrain, Samein-
Khalid og Fahd, Saudi-Arabar
hvetja til samstöðu.
luðu furstadæmanna.
Norður-Jemen, Jórdaniu, Mári-
I taniu og Súdans hafi þegar sam-
þykkt að senda fulltrúa á
ráðstefnuna.
Fulltrúar fimm landa, Sýr-
lands, Alsir, Suður-Libýu og
Frelsissamtaka Palestinumanna
þinga nú i Damaskus um aðgerðir
vegna innrásar Israelsmanna.
Utanrikisráðherra Sýrlands,
Abdel Halim Khadam kvaðst i
fyrradag telja að orsökin fyrir
árás Israelshers á Suður-Libanon
væri ógætilegt samningabrölt
Sadats er hófst á siðasta ári.
Talið er liklegt að Egyptar taki
lokaákvörðun um það hvort full-
trúi verður sendur á fund Araba-
þjóðanna eftir fund öryggisráðs
Egyptalands næstkomandi
laugardag.
ísraelsmenn vilja
vopnahlé
Tel Aviv/Ileuter Varnarmála-
ráðherra ísraels Ezer Weizman
sagði i gærkvöldi að Israelsmenn
hefðu nú lokið ætlunarverki sínu i
Suður-Libanon og væru reiðubún-
ir til að semja um vopnahlé.
Weizman var spurður hvort
israelsk stjórnvöld hyggðust
hunza boð öryggisráðs Samein-
Mótmæla
dauðadómi
yfir Bhutto
Lahore, Pakistan/Reuter. Viða
kom til átaka milli lögreglu og
fólks sem mótmæla vildi dauða-
dómnum yfir Ali Bhutto fyrrum
forsætisráðherra. Háskólanum
var lokað og viða var kveikt i bil-
um og húsum. Bhutto var eins og
kunnugt er dæmdur s.l. laugar-
dag til hengingar.
Að minnsta kosti 500 stuðnings-
menn Bhuttos voru handteknir i
siöustu viku og kona hans og dótt-
ir voru settar i stofufangelsi.
Fjöldi fólks til viðbótar hefur nú
verið handtekinn eftir siðustu
mótmælaöldu. Þrátt fyrir að hafa
verið sex mánuði i fangelsi nýtur
Bhutto enn nokkurs stuðnings og
ekki er talið ósennilegt að hann
hefði farið með sigur af hólmi i
kosningunum er fram áttu að fara
i október s. 1., en þeim var frestað
og Bhutto var hnepptur i fangelsi.
uðu þjóðanna um að hverfa brott
af nýherteknum svæðum í
Suður-Libanon. Hann sagði: „Ég
vona ekki ég vona einlæglega að
til deilna við öryggisráðið þurfi
ekki að koma. Ég vona að i
ákvörðun öryggisráðsins felist
einlæg ósk um frið i Suður-Liban-
on.”
Weizman sagði á fundi með
fréttamönnum að stjórnin hefði
enn ekki tekið neinar ákvarðanir
um tilmæli öryggisráðsins, þar
sem farið er fram á að Israels-
menn skili svæðunum i
Suður-Libanon i hendur 4 þúsund
manna gæzluliðs Sameinuðu
þjóðanna. „Eina ákvörðun sem
tekin hefur verið er að
Suður-Libanon skuli ekki vera
bækistöð skæruliða i fram-
tiðinni”, sagði ráðherrann.
Portsall, Frakklandi/Reuter.
Enn er nokkur olia i risaoliuflutn-
ingaskipinu Amoco Cadiz er
strandaði fyrir utan Bretagne.
Þegar hafa lekið 80.000 tonn úr
skipinu, og talið er að það muni
taka margar vikur að skipuleggja
aðgerðir til að ná 140 þúsund
tonnum af oliu sem enn er i skip-
inu. Stórar breiður af oliubrák
liggja nú á sjónum út frá flakinu,
er, þrátt fyrir úfinn sjó siðustu
Weizman hefur rætt við fulltrúa
Sameinuðu þjóðanna i Miðaustur
löndum, Ensio Siilasvuo en
stjórnin vill fá fullkomnar upp-
lýsingar um styrk gæzluliðsins og
likurnar á að þvi takist að hefta
skæruhða i að ráðast á tsrael frá
Suður-Libaon.
tsraelsmenn ráða nú öllum
landssvæðum i Libanon sunnan
árinnar Litani að borginni Tyre
undanskilinni. Weizman varnar-
málaráðherra sagði að ákveðið
hefði verið að taka borgina ekki
vegna þess að hún væri of fjölbýl.
Samkvæmt upplýsingum
israelska hersins hafa 18 her-
menn fallið frá þvi bardagar hóf-
ust fyrir sex dögum, en Israels-
menn halda þvi fram að 250
skæruliðar hafi fallið og tuttugu
verið handteknir. Engin tala
hefur verið nefnd i sambandi við
fjölda óbreyttra borgara er látizt
hafa.
sólarhringa er ekki útlit fyrir að
frekari leki sé kominn að skipinu.
EUefu skip frá franska flotan-
um hafa verið send á vettvang, og
er unnið að þvi að eyða oliubrák-
inni með kemiskum aðferðum.
Búizt er við fimm brezkum skip-
um tii viðbótar á vettvang, en
verkefni þeirra verður að hreinsa
oh'u og varna þvi að hún berist að
ströndum Bretlands.
Gifurleg oliumengun við
Frakklandsstrendur