Tíminn - 21.03.1978, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 21. marz 1978
9
liiii.il '!.!
17. FLOKKSÞING FRAMSÓKNARMANNA:
Ályktanir um
samgöngumál
Frá setningu flokksþingsins á sunnudag.
Næst á myndinni sitja fundarritarar Egill Glslason Súðavlk, Sigrún Ragnarsdóttir Mosfellssveit og Jón-
as Gestsson Ólafsvik. Þá koma fundarstjórar Agúst Þorvaldsson Brúnastöðum og Dagbjört Höskuids-
dóttir Stykkishólmi. ólafur Jóhannesson formaður flokksins I ræðustól en fjarst á myndinni má greina
nokkra framkvæmdarstjórnarmenn .Timamynd Róbert.
Samgöngur eru grundvöllur
hvers konar viðskipta og sam-
skipta manna i milli og þess
vegna undirstaða menningar og
atvinnulifs i nútimaþjóðfélagi.
Samgöngukerfi Islendinga er eitt
hið kostnaðarsamasta i Evrópu
vegna stærðar landsins og strjál-
býlis. óviða er þvi jafnrik þörf á
að leita allra mögulegra leiða til
að samgöngur geti orðið sem
ódýrastar og bestar. Þvi hag-
kvæmari sem samgöngur lands-
manna eru þeim mun meira
verður afgangs af framleiðslu-
tekjum þjóðarinnar til að halda
uppi góðum lifskjörum og
viðhalda til frambúðar byggð á
landinu öllu.
A hverju ári ver þjóðin drjúg-
um hluta tekna sinna til úrbóta i
samgöngumálum og viðhalds
þeirra samgöngumannvirkja,
sem fyrireru i landinu. Nauðsyn-
legt er að auka heildarskipulagn-
ingu samgöngumála þannig,að
framkvæmdafé nýtistsem best til
að ná þeim félagslegu og
viðskiptalegu markmiðum, sem
stefnt er að á hverjum tima. Sem
dæmi má nefna sameiginlegar
umferðar- og flutningamið-
stöðvar i þéttbýli fyrir hvers kon-
ar fólks- og vöruflutninga og auka
samræmingu sjóflutninga og land
flutninga. Þá er mikilvægt ^aö
auka beina flutninga erlendis frá
til hinna ýmsu hafna i landinu og
bæta hagkvæmni millilanda-
flutninga.
Þingið fagnar þeim áfóngum
sem náðst hafa á undanförnum
árum i löggjöf,skipulagningu og
framkvæmdum i samgöngumál-
um undir forystu Framsóknar-
flokksins og minir á að með þeim
hefur verið lagður grundvöllur að
enn frekari framfarasókn.
Verður nú gerð grein fyrir
helstu markmiðum varðandi ein-
staka þætti samgöngumálanna.
I
Halda skal áfram uppbyggingu
hafna til að skapa aðstöðu fyrir
hin nýju fiskiskip landsmanna.
Gera skal lágmarkskröfur um aö-
stöðu þess flota sem gerður er út
frá hverri höfnhvað snertir lönd-
un.viðlegu og skjtíl, þannig að
samræmi sé milli fjárfestingar i
fiskiskipum og hafnaraðstöðu.
Bætt sé aðstaða til geymslu á
vörum við hafnarbakka fyrir
hvers konar vöruflutninga. Tekið
sé tillit til áætlana Skipaútgerðar
rlkisins um bætta strandferða-
þjónustu við hafnarframkvæmdir
næstu ára.
Akveðnar séu nokkrar aðal-
flutningahafnir viðs vegar um
land þar sem stærri flutningaskip
gætu affermt vörur sem siðan
yrði dreift þaðan. Hafnarfram-
kvæmdum yrði svo hagað með til-
liti til þessa.
Dregið verði úr þeim mismun
sem nú er milli sveitarfélaga
vegna hafnargerða sem er frum-
skilyrði fyrir nýtingu sjávarafla.
Landshafnir og almennar hafnir
fái sömu réttarstöðu. Hraðað
verði endurskoðun kostnaðar-
skiptingar milli rikis og sveitar-
félaga á þessu sviði.
Fjármagn til hafnarfram-
kvæmda sé ákvarðað þannig að
hægt sé að fylgja eftir áætluðum
framkvæmdahraða og unnið sé
við hafnargerðir I stærri áföng-
um.
II
Strandferðaþjónustan verði
endurskipulögðogbætt með smlði
nýrra og hentugra skipa og
öðrúm þeim aðgerðum sem til
þarf. Bent er á áætlun Skipaút-
gerðar rikisins um það efni. Tekin
verði upp náin samvinna milli
strandferðaþjónustunnar og ann-
arra flutningafyrirtækja. Minn't
er á það hlutverk strandferða-
þjónustunnar að tryggja
verzlunarhöfnum viðunandi
flutningaþjónustu á sjó.
III
Stefnt skal að þvi að lagðir
verði góðir vegir um byggðir og
milli byggðalaga á landinu.
i þvi sambandi skulu höfuð-
markmiðin vera:
— aðstyrkja og endurbyggja vegi
þar sem burðarþoli er áfátt,
— að bæta vegi þar sem snjó-
þyngsli eru svo hægt sé að
halda þeim opnum ineð viö-
ráðanlegum kostnaði.
— aðleggja bundið slitlag á vegi.
— að auka öryggi vegfarenda á
stöðum þar sem slysahætta er
mikil.
Við röðun framkvæmda verði
tekið tillit til félagslegra sjónar-
miða,öryggis og arðsemi.
IV.
Lögð veröiáherzla á bætta flug-
þjónustu. Miða skal fram-
kvæmdir við aukið öryggi og
skipulega gerð flugvalla I flug-
samgöngum.
Nú hefur i fyrsta skipti verið
gerð heildarúttekt á flugvalla- og
flugöryggismálum, ásamt fram-
kvæmdaáætlun. Höfuðmarkmið
þessarar áætlunar er að stórbæta
flugsamgöngur innanlands frá
þvi sem nú er og að rjúfa einan-
grun éinstakra byggða svo sem
frekast er kostur,
Þingiö leggur til að áætlun þessi
séhöfðað leiðarljósi við ákvörðun
framkvæmda I flugmálum.
V
Nýta ber flutningakerfi sem
fyrir er til dreifingar á pósti á
sem hagkvæmastan hátt. Hraða
þarf uppbyggingu sjálfvirka
simakerfisins þannig að allir
landsmenn búi við sem mest
öryggi í simaþjónustu. Haldið sé
áfram að jafna þjónustugjöld af
sima og stefnt að sem fæstum
gjaldsvæðum.
Stefnt skal að þvi að bæta af-
greiðsluaðstöðu á póst- og sima-
stöðvum og taka i notkun nútima
vélbúnað þar sem hagkvæmt
þykir.
Til þess að þetta megi takast
þarf að tryggja Póst- og sima-
málastofnunninni nægilegt fjár-
magn.
Ályktun um orkumál
Flokksþingið itrekar samþykkt að þingmenn flokksins hafa lagt
aðalfundar miðstjórnar 1976 um þá samþykkt fram á alþingi sem
skipulag orkumála og fagnar þvi tillögu til þingsályktunar.
1974 og hvetur til þess að við
framkvæmd þessara laga sé lögð
meiri áhersla en verið hefur á
hinar félagslegu og andlegu
hliðar heilsugæslustarfseminnar.
Með réttri uppbyggingu og hóp-
vinnu heilsugæslulækna, sér-
fræðinga félagsráðgjafa sál-
fræðinga og annarra heilbrigðis-
stétta má ætla að heilsugæslu-
stöðvarnar gætu vel og hag-
kvæmlega annað allri almennri
og nokkru leyti sérhæfðri heilsu-
gæslu i landinu. Með þessu fyrir-
komulagi má ætla.að fleiri læknar
og annað sérhæft starfslið fengist
til starfa á heilsugæslustöðvum,
hvar sem væri á landinu.
Efla þarf samband heilsu-
gæslustarfseminnar við heimilin
og auka hlut heimilislækninga.
Nauðsynlegt er að rekstur
sjúkrahúsanna i landinu sé
endurskoðaður með tilliti til auk-
ins samstarfs. Við uppbyggingu
sjúkrahúsa verði tekið tillit til
vaxandi starfsemi göngudeilda
eða dagdeilda þar sem koma
megi við sérhæfðu eftirliti,
lækningum og rannsóknum án
innlagningar. Slik heildarsam-
ræming heilbrigðiskerfisins
skapar mun betri aðstöðu til
menntunar lækna og annarra
heilbrigðisstétta og aukna hag-
kvæmni i rekstri.
Flokksþingið telur að stórátak
beri að gera i málefnum lang-
sjúkra og vill að Framsóknar-
flokkurinn beiti sér fyrir þvi að
gert sé ráð fyrir að ákveöinn
fjöldi rúma sé við hverja
legudeild sjúkrahúsa handa slik-
um sjúklingum.
Varðandi málefni öryrkja er
nauðsyn skipulegra framkvæmda
með tilliti til endurhæfingar og
allrar aðstöðu.
Þá skal bent á nauðsyn þess að
efla skilning á mikilvægi
hjúkrunar, samhæfa hjUkrun
öðrum þáttum heilbrigðisþjón-
ustunnar og samræma
hjUkrunarnám.
Húsnæðismál
Flokksþingið telur að hver fjöl-
skylda og einstaklingur i landinu
eigi kröfu á þvi að geta búið i
góðri ibúð af hæfilegri stærð er
hvetjitil aukins fjölskyldulifsinn-
an veggja heimilisins.
Ibúð er ein af frumþörfum
manna og f járfesting i ibúöarhús-
næði má ekki vera nauðvörn al-
mennings gegn öðaverðbólgu.
Stefna ber að þvi með fullri ein-
urð að fjármögnun ibUðarhús-
næðis verði þannig háttað að
kostnaður launþega vegna hús-
næðis fari ekki fram Ur 15% af
launatekjum fjölskyldu eins og
þær eru á hverjum tíma og það
markmið náist að lán til hUs-
næðisbygginga verði 80% af
meðal byggingakostnaði viðkom-
andi ibUðar.
Þessum markmiðum verði náð
meðal annars með eftirfarandi:
íbúðarstærðir verði 1 samræmi
við fjölskyldustærðir. Bygginga-
kostnaður verði lækkaður með
öllum tiltækum raðum, á n þess að
það komi niður á gæðum hús-
næðisins meðal annars með:
Aukinni stöðlun húshiuta og
húsagerða.
Aukinni hagræðingu I vinnu-
brögðum og efnisvali til íbúða-
bygginga.
Samræmd áætlanagerð um
húsnæðisþörf landsmanna, þar
Framhald á 17. slöu
Slippfélagið í Reykjavík hf.
auglýsir:
Eigum ávallt fyrirliggjandi i Timburverzlun vorri:
Fura: mótaviður, smiðaviður u/s og þurrkuð smiðafura af flest-
um stærðum.
Irako og Siamese Yangi21/2” x5”og2” x6”.
Frá Kaukas A/B i Finnlandi höfum við hinn viðurkennda vatns-
þétta krossvið i stærð 1.22 x 3.05 m, þykktir 6 1/2, 9,12,15, 18 og 24
m/m og 1.22 x 2.44 m. þykktir 61/2,9, og 12 m/m.
Oliusoðið Masonite4’ x8’ og4’ x9’
Spónaplötur frá Tiwi O/Y i Finnlandi i öllum þykktum, stærð: 1.
80 x 3.66 m.
Frá Rödekro Savværk A/S i Danmörku höfum við hina frábæru
skipaeik og beyki I öllum þykktum og breiddum.
Oregonfura,
Glerfallslistar,
Málarastigar og Tröppur,
Fánastengur
í vélasal okkar er svoþjónustan alkunna. Reynið viðskiptin.
Slippfélagið í Reykjavík hf.
Mýrargötu 2 — Sími: 10123