Tíminn - 21.03.1978, Side 11
Þriðjudagur 21. marz 1978
11
stóð
— setti glæsilegt
N or ður landamet
í lyftingum
Lyftingamaöurinn sterki Gústaf Agnarsson stóö heldur
betur við loforð sitt, sem hann gaf fyrir Meistaramót
islands í lyftingum, sem fór fram í Laugardalshöllinni
um helgina. Gústaf sagði fyrir keppnina, að hann ætlaði
sér að setja nýtt Norðurlandamet í snörun. Þessi keppn-
isglaði lyftingamaður stóð við það — hann snaraði 155 kg
og bætti þar með Norðurlandametið um 2kg i 100 kg
flokknum.
Að sjálfsögöuer þetta einnig
glæsilegt tslandsmet. Gústaf
setti einnig íslandsmet i sam-
anlögðu — lyfti samtals
342,5kg, þar sem hann jafn-
hattaði 187,5 kg. Ég er mjög
ánægður með þetta, þótt ég
hefði vel getað gert betur,
sagði Gústaf eftir að hann
hafði sett Norðurlandametið.
Gústaf sagði að kuldi i keppn-
is- og æfingasal hefði komið i
veg fyrir að hann snaraði 160
kg-
Akurey ringurinn Freyr
Aðalsteinssonsetti tslandsmet
i snörun i millivigt — lyfti 115
kg i aukalyftu. Hann jafnhatt-
aði 125 kg og varð meistari —
lyfti samanlagt 240 kg.
Þorvaldur B. Rögnvaldsson
úr KR varð tslandsmeistari i
56 kg flokknum — snaraði 65
kg, jafnhattaði 80 kg og sam-
anlagt 145 kg.
Ilaraldur Ólafsson frá
Akureyri varð meistari i f jað-
urvikt, setti þrjú unglingamet
— lyfti samanlagt 185 kg.
(snaraði 80 — jafnhattaði 105!
Kári Elisson úr Armanni
varð meistari i léttvikt — lyfti
samanlagt 220 kg (100 - 120)
Már Vilhjálmsson úr
Ármanni varð meistari i létt-
þungavikt — samanlagt 260 kg
(120— 140).
Birgir Þór Borgþórsson og
ólafur Sigurgeirsson háðu
harða keppni i milliþungavigt.
Þeir lyftu jafnt i samanlögðu
— 272,5 kg, en Birgi var
dæmdur sigur, þar sem hann
viktaðist 1,5 kg léttari heldur
en Ólafur, áður en keppnin
hófst. Birgir snaraði 115 kg, en
Ólafur 120 kg. Birgir jafnhatt-
aði 157,5 kg, en Ólafur 152,5.
Eins og sést á þessu, var
keppni þeirra geysilega hörð
og spennandi.
Gamla kempan óskar Sigur-
pálsson, sem keppti fyrir
Vestmannaeyjar, varð sigur-
vegari i þyngstá flokknum —
snaraði 130 kg. og jafnhattaði
siðan 180 kg, sem er saman-
lagt 310 kg.
—SOS.
GÚSTAF AGNARSSON...........t.h., sést hér ásamt hinum efnilega lyftingamanni KR-inga, Birgi Þór
Borgþórssyni, sem vann sigur yfir ólafi Sigurgeirssyni i milliþungavigt, eftir harða og tvfsýna
keppni. (Timamynd Róbert)
JÓHÁNNES EÐVALDSSON..............var I sviðsljósinu á Hampden Park.
— og átti þrumuskot í stöng, en
það dugði Celtic ekki gegn
Rangers á Hampden Park
Jóhannes Eðvaldsson
skoraði gott mark með
skalla og átti einnig
þrumuskot i stöng, þegar
Celticog Glasgow Rangers
mættust í úrslitaleik
skozka deildarbikarsins á
Hampden Park — fyrir
fullu húsi áhorfenda, eða
100.000 manns. Þetta
framlag Jóhannesar dugði
Celtic þó ekki til sigurs, því
að Rangers náði að knýja
fram sigur 2:1 í framleng-
ingu.
Leikur „erkifjendanna” frá
Glasgow var mjög jafn framan
af, en leikmenn Celtics virtust
vera ivið skarpari. En það var
Rangerssem tók forystuna á 36.
minútu leiksins, er McLean átti
góða sendingu fyrir mark Celtic,
og Dave Cooperþrumaði knettin-
um upp i þaknetið af stuttu færi. 1
seinni hálfleik var það Celtic sem
var mun meira með knöttinn, og
reyndu leikmenn allt sem þeir
gátu til að jafna metin. En Rang-
ers varðist vel og virtist sem
þetta eina mark myndi duga
þeim. En þegar fimm minútur
voru til leiksloka var sendur hár
knötturinn i vitateig Rangers, og
þar var til staðar Jóhannes Eð-
valdsson, og skallaði hann knött-
inn i mark við mikinn fögnuð
áhangenda Celtic. Ekki voru
skoruð fleiri mörk i venjulegum
leiktima, og var þvi framlengt
um 2x15 minútur. Það voru ekki
eftir nema tvær minútur af seinni
hálfleik framlengingarinnar þeg-
ar Rangers skoraði sigurmarkið,
og var Smith þar að verki eftir að
Latchford — i marki Celtic —
hafði slegið knöttinn beint til hans
úr sendingu frá Alex Miller. Celt-
ic liðið hefur misst af mögu-
leikanum á sigri i þremur helztu
keppnunum i Skotlandi, og verður
liðið ekki meðal þátttakenda i
Evrópukeppni á næsta keppnis-
timabili i fyrsta sinn i 19 ár.
Ó.O.
Jóhannes skoraði
gott mark
með skalla
illa
fjárri «
® — þegar Standard
• Liege lék gegn
• FC Brugge
• Asgeir Sigurvinsson var illa
0 fjarri góðu gamni, þegar Stand-
ard Liege niætti FC Brugge i
® belgisku 1. deildarkeppninni i
• knattspyrnu. Ásgeir gat ekki
^ leikið með Standard Liege, sem
átti mun meira i leiknum, þar
® sem hann var i leikbanni. Fé-
• lagar hans máttu þola tap (0:1)
0 i Brugge og sáu þeir um að
skora sigurmark FC Brugge —
•skoruðu sjálfmark.
• Staða efstu liðanna i Belgiu er
• nú þessi:
FC Brugge .. 28 19 6 3 63 : 37 44
Standard L ..28 16 7 5 55:28 39
• Anderlecht ..28 16 6 6 49:23 38
• Dankersen
• sigraði...
Axel Axelsson var tekinn úr
0umferð þegar Dankersen mætti
Reinhausen I v-þýzku „Bundes-
'“'ligunni” í handknattleik. Þrátt
• fyrir það skoraði hann 4 mörk
0Og Dankersen sigraði 20:19 á
útivelli. Ólafur H. Jónsson skor-
® aði 3 mörk.
® Göppingen — lið Gunnars
• Einarssonar, tapaði 15:21 fyrir
^Huttenberg og Hannover — sem
' er Iið Einars Magnússonar. Það
íJer svo gott sem fallið, — tapaði
• 14:16 fyrir Milbertshoven.