Tíminn - 21.03.1978, Síða 15
Þriöjudagur 21. marz 1978
15
Athugasemd frá
O. Johnson & Kaaber við
grein „samvinnumanns”
í Timanum laugardaginn 11.
marz, birtist grein undir dulnefn-
inu „Samvinnumaður”, með yfir-
skriJftinni „Fjögur hlutafélög —
eitt sameignarfélag”.
Ofangreind grein „Samvinnu-
manns”, er að nokkru helguð
Osta- og smjörsölunni, en i þess-
um kafla greinarinnar er að finna
eftirfarandi „upplýsingar” um
markaðsdreifingu mjólkur-
búðanna, áður en Osta- og smjör-
salan var stofnuð (orðrétt);
„Milliliðir reyndu óspart að nota
sér skipulagsleysið og tókst það i
rikum mæli á kostnað neytenda
og f ramleiðenda. Heildsalar
kröfðust hárra sölulauna. Þar við
bættist óeðlileg rýrnun afslætt-
ir, skemmdir og sein og ill
greiðsluskil. Auk 10 prósent um-
boðslauna til heildsala kom fyrir
að þeir vildu greiða andvirði
smjörsins með 10 ára skuldabréfi.
Þannig var ástandið”. Þá upplýs-
ir „Samvinnumaður” einnig að
nú komist Osta- og smjörsalan af
með 3,2—3,6 prósent í umboðs-
laun.
Fyrirtækið 0. Johnson &
Kaaber h f. á hér hlut að máli,
þar sem fyrirtækið hafði sam-
starf við þrjú mjólkurbú um ára-
bil um dreifingu framleiðslu bú-
anna, áður en Osta- og smjörsal-
an var stofnuð: Mjólkurbú þessi
voru: Mjólkurbú Flóamanna,
Mjólkursamsalan i Reykjavik og
Mjólkurbú Borgfiröinga. — Ef
„Samvinnumaður” á við þetta
samstarf O. Johnson & Kaaber
h.f. og framangreindra mjólkur-
búa þegar hann fellir ofangreind-
an áfellisdóm, þá er leiðrétting-
ar þörf en staðreyndir voru sem
hér segir:
O. Johnson & Kaaber h.f. „kröf-
ðust" ekki 10 prósent umboðs-
launa, heldur var gagnkvæmt
samkomulag forráðamanna
mjólkurbúanna og fyrirtækisins
um 5 prósent sölulaun (ekki um-
boðslaun).
Það var að frumkvæði forystu-
manna m jólkurbúanna sem þetta
samstarf tókst, og rikti gagn-
kvæmt traust og velvilja á meðan
það stóð. Forsendur fyrir ný-
skipan söludreifingarinnar þegar
Osta- og smjörsalan var stofnuð
voru ekki vangeta og græðgi
heildsala, eins og látið er að
liggja i grein „Samvinnumanns”
heldur allt aðrar og er látið hjá
liða að tiunda þær að sinni.
Fullyrðing „Samvinnumanns”
um óeðlilega rýrnun, afslætti og
skemmdir, er rakalaus tilbúning-
ur ef átt er við dreifingarstarf O.
Johnson & Kaaber h.f.
Ef á sama hátt er átt við O.
Johnson & Kaaber h.f. þegar
upplýst er að heildsalar hafi
stundað sein og ill greiðsluskil og
jafnvel viljað greiða andvirði
smjörsins með 10 ára skuldabréfi,
þá er hér aftur um rakalausan
uppspuna að ræða. — Gagnkvæmt
samkomulag var um greiðslu
með þriggja mánaða vixli i lok
hvers mánaðar og aldrei var
veittur lengri gjaldfrestur og
aldrei var um greiðslufall á vixli
af okkar hálfu að ræða. Vixillánið
var hinsvegar um samið, til að
mæta samskonar samkeppnis-
skilmálum okkar til smásölu-
fyrirtækja.
Eigi skal hér að sinni frekar
fjölyrt um yfirlýsingar
„Samvinnumanns” um óbrigðult
ágæti núverandi dreifingarskipu-
lags smjörs og osta, né fordæm-
ingu hans á þvi fyrirkomulagi
sem áður var notað af mjólkurbú-
um, — en ýmsar spurningar
vakna þó — t.d. sú hvort sömu
kostnaðarliðir voru bornir uppi af
F erðadiskótekin
Disa og Maria
Fjölbrevtt danstónlisl
Góð reynsla — Hljómgæði
Hagstætt verð.
Leitið upplýsinga — Simar
50513 — 53910 — 52971.
5 prósentunum áður fyrr og 3,6
prósentunum nú. Það mun nefni-
lega ljóst öllum þeim sem við
viðskipti fást að án slikra athug-
ana er allur samanburður á tölum
sem þessum fánýtur.
Að fara nánar út i þessa sálma
nú yrði langt mál, og verður ekki
gert að sinni.
Að endingu leyfi ég mér að
þakka ritstjórn Timans fyrir birt-
ingu þessarar svargreinar við
framangreindum ummælum
„Samvinnumanns” i grein hans
laugardaginn 11. marss.l.
Virðingarfyllst,
f.h. O. Johnson & Kaaber h.f.,
Ólafur Ó. Johnson, forstjóri.
Fjármálaráðuneytið.
Bifreiðaeigendur
Athygli er vakin á, að eindagi bifreiða-
gjalda er 1. april n.k. Dráttarvextir
leggjast á ógreidd gjöld frá gjalddaga
sem var 1. janúar s.l. hafi þau ekki
|| verið greidd að fullu fyrir 1. april.
(nordítienpe) Bang &Olufsen
Magnkaup-
Gerum tilboð
í magnkaup,
yður að
kostnaðarlausu
Lita-
sjónvörp
ALLAR STÆRÐIR
Magnaf sláttur
Tilvalið fyrir:
Þorp, kaupstaði,
starfshópa
og jafnvel
Lægra
verð —
Betri
þjónusta
Skiphoiti 19, R.
sími 29800, (5 línur)