Tíminn - 03.06.1978, Side 8

Tíminn - 03.06.1978, Side 8
8 Laugardagur 3. júní 1978 Siðlausar persónunjósnir eru blettur á kosninga- baráttunni Undirbúningur stjórnmála- flokkanna fyrir kosningar er að flestu leyti með undarlegu sniði. Verulegur timi og orka fer i að kanna kjörskrá eða með öðrum oröum: aö reyna aö gera sér grein fyrir pólitiskum skoðun- um fólks og þannig að fá hug- mynd um hverjir eru liklegir kjósendur flokksins. Þetta eru ekkert annað en persónunjósnir af heldur ömurlegu tagi. Draumur hvers kosningastjóra og framgjarns stjórnmála- manns er aö eiga „merkta” kjörskrá. Velmerkt kjörskrá er að mati flokksstarfsmanna gulls i'gildi. A kjördegi er svo legiö yfir þessari „merktu” kjörskrá. 1 hverri einustu kjör- deild sitja svo fulltrúar flokk- anna og færa inn á spjöld alla sem kjósa. Þessi spjöld eru svo send til höfuöstöðvanna þar, sem borið er saman við kjör- skrá og reynt að meta hverjir hafi kosið flokkinn. Þegar svo liöur á daginn og „merktu” ein- staklingarnir á kjörskránni góðuhafa ekki skilaðsér á kjör- staðer farið að hringja i þá eða leita þá uppi á annan hátt. Þannig er lömbunum smalaö i króna og einskis látið ófreistaö að koma hinum bágrækustu á leiðarenda. Undirrituðum hefur ætið geðjazt harla illa að þessum merkingum og telur það bera vitni mikilli fyrirlitningu á kjós- endum að ekki skuli nægja aö kjörstjórn á hverjum stað gangi úr skugga um aö réttur maður sé aö greiða atkvæði á réttum stað, heldur skuli þurfa að vera vitni að þvi að eitthvert auka- fólk setji nafn og númer hvers og eins inn á einkaskrár. Þessi spjaldalýöur hváir og spyr um viðkomandi án þess að það hafi nokkurn rétt til þess. Er næsta fúröulegt að ekki skuli vera hægt að taka fyrir þessar per- sónunjósnir. Margir munu þeir vera sem merktir eru á f leiri en einni kjörskrá og væri trúlega flestum þökk i að losna við að vera veginn og metinn af kosningasmölumog snuðrurum. Alþýöuflokkurinn hefur nú gert hreint borð i þessum efnum og hætt merkingum og snuðri og værivel aðaörir f bkkar fylgdu i fótsporin. Kosningaúrslitin sýna aö varlahefur Alþýðuflokkurinn tapað miklu á aö sýna fólki þá sjálfsögðu kurteisi að hætta þessum ósið. Kjörskrármerkingar eru ósið- legar og eiga að hverfa. önnur starfsemi tengd kosningum er saklausari að þvi er varðar a 11- an almenning. Þar á ég við „kosningastarfið” á kjördag sem eftir myndum aö dæma felst einkum i þvi aö drekka kaffi og boröa með þvi kven- félagsbrauð og pönnukökur og biða eftir þvi aö hringt sé f bíl. Væri þetta saklaus og glaðvær skemmtun ef kjörskrármerk- ingarnar væru ekki alltaf ein- hversstaðar skammt undan. Þriðja atriðið i sambandi við kosningastarf er dreifing bæklinga og blaöa. Bæklingarn- ir sem bornir voru i hús núna voru eins og auglýsingar frá ferðaskrifstofu en loforöin ekki eins glæsileg. Suma daga voru dagblöð borin i hvert hús og lik- legast að fæstir hafi hirt um að rýna iþau. Það er erfitt að meta áhrif aðgeröa sem þessara en á hinn bóginn hafa þær talsverða þýðingu fyrir þá sem standa i baráttunni. Ég held, að megnið af þeirri orku^fé og tima sem eytt er i kosningastarf skili ákaflega fáum atkvæðum beint. En athafnir, ekki sizt gerviat- hafnir, hafa hvetjandi áhrif á þá sem framkvæma þær. Kosningastarfið hefur mikla þýðingu fyrir starfsfólkið. Það finnur til mikilvægis sins, sam- hygðar og þegar úrslitin koma tengir þaö snúninga sina, blað- burö, kjörskrármerkingar og kaffidrykkju þeim árangri sem flokkurinn náði. Aukist fylgi flokksins er þaö þakkaö starfinu fyrir kjördag og kannski eink- um á k jördegi. Gangi hins vegar illa, þá er kennt um lélegu starfi og áhugaleysi á kjördegi. A þann hátt fá stjórnmálamenn ósjaldan átyllu til aö varpa sök- inni af slæmri útreið i kosning- um á starfsfólk flokksins. Árinni kennir illur ræðari og mannlegt er að draga starfsfólk til ábyrgðar fyrir eigin mistök. Þá er komiö aö þvi sem kalla mætti hina huglægu baráttuum hylli kjósenda þ.e. málflutning og pólitiska stefnu flokkanna. Dagblöðin eru helzti vettvangur pólitiskrar umræðu i landinu. Útvarps- og sjónvarpsumræður ná til margra en fátt er vitað meðvissu um áhrifþeirra. Dag- blöðin gegna þvi hlutverki að túlka stefnumið flokksforingj- anna ogframbjóðendanna. Venj an hefur jafnan verið sú að frambjóðendur hafa skrifað greinar um sin hjartans mál og siðan hafa blöðin birt þessar greinar upp á von og óvon. Þótt litið sé vitaö um áhrif útvarps og sjónvarps I kosningabaráttu, er þó enn minna vitaö um hvaða árangri slikar blaðagreinar ná eða hvort þær hafa yfirleitt nokkur áhrif. Aður fyrr var stundum birt sama myndin af frambjóðandanum dag eftir dag. Nú hafa menn hikandi þó, farið að birta myndir af fram- bjóðendum með fjölskyldunni að ameriskum sið. Greinaskrif, leiðarar og stuttar fréttir um einhver þau mál sem flokknum finnst máli skipta.hafa að minu mati sáralitil áhrif. Vil ég rök- styðja það meö dæmum frá sveitarstjórnarkosningunum 28. mai sl. Þrátt fyrir gifurlega yfirburöi Morgunblaðsins yfir önnur blöð hvaö varðar út- breiðslu og kynningu á fram- bjóðendum tapaði Sjálfstæðis- flokkurinn verulegu fylgi. Al- þýðuflokkurinn bætti miklu við sig þrátt fyrir það að Alþýðu- blaðið er gefiö út I litlu upplagi og kom auk þess harla óreglu- lega út vikurnar fyrir kosning- arnar. Alþýðubandalagið greip til þess ráðs að auglýsa fundi sina i Dagblaðinu, betur en svo treysti það ekki Þjóöviljanum til að ná til fólks. Það er svo ihugunarvert, aö auglýsingin var forsiöa Þjóðviljans, kulda- leg en rökrétt auglýsingaaðferð. Nú má segja sem svo að þótt úrslitin séu ekki i samræmi við útbreiöslu og veldi blaðanna þá hafi blöðin samtmikil áhrif: Al- þýðublaðið og Þjóðviljinn hafi bara verið betur skrifuð og náð betur til almennings en Morgunblaðið og Timinn. Þetta er þó vafasöm röksemdafærsla. Það er óþekkt fyrirbæri að ein grein eða einn viðburöur í kosningabaráttu valdi gagnger- um breytingum. Það virðist nærtækt að ætla að dagblööin hafi langtum minni áhrif með skrifum sinum en flestir halda og þá einkum þeir sem skrifa þau. Rannsóknir á áhrifum fjöl- miðla almennt.sýna aö sjald- gæft er að fólk beinlinis skipti um skoðun vegna upplýsinga sem það fær I fjölmiðlum. Hins vegar styrkja fjölmiðlar oft skoðanir sem menn hafa þegar. Megináhrif fjölmiöla eru þó aö geta hrundið af stað umræðum og á þann hátt eflt þá smáhópa sem miklu ráða um skoðana- mótun. Blöðin eru harla gagnslitil sem áróöurstæki nema þau miöi skrif sin við að ná til stuðnings- manna, sem taka upp hver á sinum stað þau málefni sem skrifað er um i blaöinu. Þá get- ur blað lika náð árangri ef það hamrar á einhverjum þeim hlutum sem fólk fer að ræða i sinn hóp. Pólitisk skrif blaöa eiga að miða að þvi að vekja umræður, ekki aö vera endan- legar og hálfvolgar yfirlýsingar um allt og ekki neitt. Sá stjórn- málaflokkur sem ekki sýnir skýrt og greinilegt andlit hlýtur aðstaðna.Takisthonum ekki að koma af stað umræðum um ein- hver afmörkuð mál þá eru al- menn stjórnmálaskrif leiðtoga hans gagnslaus. Þá er komið að siðasta at- riðinu em rætt verður i þessum kosningahugleiðingum að sinni, þ.e.a.s. i hvaða átt kosningabar- áttan er að sveigjast. Fyrir nokkrum árum uppgötvuðu menn að meginmáli skipti að al- menningur þekkti fram- bjóðendur. Fámenni og litil kjördæmi ollu þvi aö enginn vandi var fyrir duglegan fram- bjóðanda að koma á hvert ein- asta heimili i kjördæminu og hitta flesta kjósendur. Vöxtur Reykjavikur og fleiri bæja breytti þessu og smám saman breyttist kosningabaráttan i þá átt að frambjóðendur voru valdir sem fulltrúar atvinnu- stétta eða einhverra ákveðinna afmarkaðra hópa. Þegar kjör- dæmin voru stækkuð var farið að velja frambjóðendur úr hin- um ýmsu héruðum og flestir flokkar reyna enn að hafa ein- hvers konar landfræðilegt jafn- vægi i' vali frambjóðenda. En þegar kynna þarf nýja fram- bjóðendur beinist athygli manna að þeim sem fyrirfram voru þekktir þjóðinni. Þá reis blómaöld s jónvarpsfólks. Nokkrir menn sigldu háan byr á þvi að hafa sézt I sjónvarpi um lengri eða skemmri tima. Enn hefur þetta nokkur áhrif en er langt frá þvi að vera einhlitt. Það er nefnilega komiö i ljós hér eins og annars stpðar að það er ekki nóg aðmenn séuþekktir,— þeir verða lika aö vera þekktir fyrir eitthvað. Menn og konur verða að hafa gert eitthvað sem höfðar til imyndunarafls fólks. Og þá er komið að þvi aö „búa til” frambjóðendur og „selja” N eins og hverja aðra vöru. Þetta hefur reyndar verið gert hér á landi i smáum stn. Fólk sem aflað hefur sér vinsælda á einhverju sviði eða sýnt hæfni i starfi er allt i einu kynnt sem frábærir stjórnmálamenn og stjórnendur ríkis og borga sam- kvæmt kjörorðinu „Annar eins maður og Oliver Lodge...”. Kosningabarátta hér á landi mun sveigjast i þessa átt i fram- tiðinni. I stað hinna glaöbeittu kosningasmala og ábyrgðar- fullu spjaldanjósnara i kjör- deildunum taka auglýsinga- meistarar að sér að „selja” frambjóöendur, og flokkarnir skipuleggja áróðursaöferðir sinar i samræmi við hag- kvæmnislögmál. Það veröur hætt að ausa fé f aðgerðir sem engum árangri skila og reynt verður eftir megni að afmarka þau málefni sem hver flokkur vill ræða ogforðast aö ræða það sem honum er á móti skapi. Flokkur sem ekki kann aö aug- lýsa sig eftir nýjustu aug- lýsingatækniá erfitt uppdráttar og hver stjórnmálamaður mun reyna að fá nákvæma mynd af heildarfylgi flokks sins með skoðanakö'nnunum og rann- sóknum i staö hinna fáránlegu og siðlausu kjörskrármerkinga og þeirra persónunjósna sem þær byggjast á. Haraldur Ólafsson Hvensr veröur mögulegt að kjósa f friöi og leyni- lega hér á landi? Mörgum er raun aö þvf aö greiöa atkvsöi undir vök- ulum augum útsendara flokkanna. Reykjaskóli 126 luku prófi Héraösskólanum aö Reykjum var slitiö föstud. 26. mai s.l. Skólinn var fullskipaður I vetur með um 130 nem. Prófi luku 126 nemendur úr 7.-9. bekk grunn- skóla og 1. bekk framhaldsskóla. 9. bekkur var fjölmennastur og varþriskiptur. Var þvi auövelt að koma við vali milli námsgreina, er nemendur kusu helzt aö leggja áherzlu á. Lögð var áherzla á að auka fjölbreytni i námi. Nokkrir nemendur tóku þátt i siglinga- fræði og verklegri sjóvinnu og öðluöust réttindi til stjórnar á bátum allt aö 30 tonna, þegar til- skyldum aldri og siglingatima er náð. U6E F01KE K0JSKOIE Den nordisk-europæisk Tinglev, Danmark. NY NORDISK FOLKEHÖGSKOLE I DANMARK 6 mnd. kurs frá 1/11 for alle over 18 ár. Alm. folkehög- skolefag, svöm.lederudd. stort formningstilbud — skriv efter plan. folkelige höjskole DK-6360 _________Myrna og Carl Vilbæk ^ Þá tóku nokkrir nemendur þátt i félagsmálanámi og náðu þar A-stigi samkvæmt grunnskóla ISI. Samvinna hefur verið milli Tónlistarskóla V-Húnavatnssýslu og héraðsskólans, þannig að kennsla i tónlisthefur farið fram i húsakynnum héraösskólans, og hafanemendurhansþviátt kostá tónlistarnámi, enda aöstaða til æfinga orðin góð. Fyrsti bekkur framhaldsskóla starfaöi á þremur námsbrautum: Almennri bók ná m sbra ut, uppeldisbraut og viðskiptabraut. Var þetta sjötta árið, sem 1. bekkur framhaldsskóla er starf- ræktur. Ætlunin er að 2. bekkur framhaldsskóla veröi við skólann næsta skólaár. Höfð- ingleg gjöf Krabbameinsfélagi Reykjavikur hefur veriö afhent hálf milljón króna, sem frú Pálina Þorláks- dóttir, Vesturgötu 44 i Reykjavik, ánafnaði félaginu að sér látinni. Pálina, sem lézt hátt á niræðis- aldri 23. april s.l. var alla tið traustur stuöningsmaöur félags- ins eins og þessi höföinglega gjöf ber vitni um. Stjórn Krabba- meinsfélags Reykjavikur er þakklát hinni látnu fyrir gjöfina og góðan hug til félagsins. An vel- vildar almennings og stuðnings i stóru og smáu gætu krabba- meinsfélögin I landinu litlu til leiðar komið. Ballett i rokkstil i Þjóðleik húsinu Er þetta réttur hraði? hrópabi Ingibjörg Björnsdóttir höf- undur og stjórnandi rokk- ballettsins „Sæmundur Klemensson” um þaö leyti sem þessi mynd var tekin. Hraðinn reyndist eins og hann átti að vera enda ágætt lista- fólk á ferðinni úr tslenzka dansflokknum og Þursa- flokknum. Viö vitum reyndar ekki hvort Ingibjörg lagði I aö stjórna „Þursunum” mikiö á þessari æfingu — svo pottþétt- ir virtust þeir og öruggir I list sinni. Þessi skemmtilegi rokkballett verður sýndur sunnudags- og mánudagskvöld i Þjóðieikhús- inu. Timamynd: Tryggvi

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.