Tíminn - 24.12.1978, Blaðsíða 19
Sunnudagur 24. desember 1978
19
bókmenntir
Gylfi Gröndal
Vonarland
Ævisaga Jóns frá Vogum
Setberg
Gylfi Gröndal er kunnur aö
þvi að kunna vel til verka að
gera minningabækur. Hann
greinir vel á milli ónytjumælgi
og þess sem einhvers virði er.
Nil hefur hann gllmt við það að
láta mann sem legiö hefur
meira en hundraö ár i gröf sinni
segja ævisögu slna frá eigin
brjósti.
Slikt hafa ýmsir gert i skáld-
söguformi svo aö við það er ekk-
ert nýtt. Hér er lika við að styðj-
ast sjálfsævisögu þá sem Jón
skrifaði á ensku. Rekur höf-
undur heimildir sinar i eftir-
mála.
Þessi umsögn er skrifuð án
þess að bókin hafi verið borin
saman við aðrar heimildir. Það
er með vilja gert þvi ætlunin er
að meta hana sem sjálfstætt
verk, — skáldverk ef menn
vilja. Sumt er hér skáldskapur
og t.d. á ég ekki von á því að höf-
undur hafi fundiö efniviö I lýs-
ingu séra Jóns I Reykjahlfð án
þessaötaka hjá sjálfum sér. En
séra Jón er góður og stendur
fyrir sinu.
Gylfi hefur þá aðferö að láta
Jón skrifa sögu sina þegar hann
hefur selt jörð og bú og biöur
eftir skipi sem flytji fjölskyldu
hans og fleiri útflytjendur til
Brasillu. Það skip kom aldrei og
súferð var aldrei farin. Sjálfur
dó Jón úr taugaveiki um vetur-
inn.
Sögumaöur rekur sögu sina
þegar hann er að kveðja land
sitt ogbindur von sina við betra
land langt I fjarska. Mér finnst
að höfundi hafi tekist vel að ná
fram eðlilegum hughrifum
þessa fólks sem vildi freista
gæfunnar i heitara landi. Það
kom ekki auga á lifsskilyröi I
sinu heimalandi og hafði ekki
frá miklu að hverfa. Allt byggi-
legt jarðnæöi var nýtt eftir þvi
sem menn kunnu þá til búnaðar-
hátta. Menn höfðu ekki enn náö
þeim tökum á þilskipaútgerð að
dygði til að brauðfæða þá sem
ekki rúmuðust I sveitunum. Og
þá var hin heita Brasilla
draumaland úrræbanna um
sinn.
Þaö varö aldrei neitt úr stofn-
un islenskrar nýlendu i Brasilíu.
Enn geta menn þvi látiö sig
dreyma um.hvernig það hefði
getaö orðiö. En það er ekki efni
þessarar sögu. Hér er það
augnabliksmynd úr lifsbaráttu
feðranna sem upp er dregin og
það er vel gert
Vist er margt ólikt þvi sem
var i þjóölifi íslendinga fyrir
rúmri öld. Þó er margt sem
þyrfti að vera ööru visi og þvi
eiga menn sitt vonarland eins og
Jón i Vogum. Þess vegna má
ætla að lesendur finni til skyki-
leika og þessi saga hitti næman
streng i brjósti þeirra sumra.
H.Kr.
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á
árinu sem er að líða
Einn glæsilegastÍAskemmtistaður Evrópu
DI5KÓTEK
StansJaus músik i neörl sal
«
FJOLBREYTTUR C&5
MATSEÐILL ***
Borðpantanir
i sima 23333
staður hinna vanalátu
Sjómenn Reykjavík
Sjómenn Reykjavík
Á mi/li jóia og nýárs efnir
Sjómannafélag Reýkjavíkur til
fundar um félags- og kjaramá/
með félagsmönnum sinum
sem hér segir
Með sjómönnum hafrannsóknarskipa 27.
desember kl. 10.
Með farmönnum 27. desember kl. 14.
Með bátasjómönnum 28. desember kl. 10.
Með togarasjómönnum 29. desember kl.
10.
Með loðnusjómönnum 29. desember kl. 14.
Með sjómönnum sanddæluskipa i byrjun
janúar.
Allir fundirnir verða að Lindargötu 9, 4.
hæð.
Sjómenn mætið vel og stundvislega
Stjórn Sjómannafélags Reykjavikur
r wm w
í
Hjólbarðasólun, hjólbarðasala
og öll hjólbarða-þjónusta
Mjög
gott
verö
Nú er rétti timinn til
að senda okkur
' hjólbaröa til
sólningar
Eigum fyrirliggjandi
jlestar stœrdir
hjólbarða,
sólaða og
þjonusta
POSTSENDUM UM LAND ALLT
Skiphott 35
105 REYKJAVlK |
slmi 31055
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir
Herbjörg Andrésdóttir,
Kaplaskjólsveg 65
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 28.
desember kl. 13,30.
Agúst Haraldsson, Stella Ingvarsdóttir,
Guðrún Haraldsdóttir, Einar Guðmundsson,
Guðlaug Haraldsdóttir, Garðar Guðjónsson,
Elsa Haraldsdóttir, Eggert Konráðsson,
Þóra Haraldsdóttir,
Sigurbjörn Haraldsson,
Siguröur Haraldsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Asa Haraldsdóttir, Jóhann Björnsson,
Lára Haraldsdóttir, Fylkir Agústsson,
Sigurdís Haraldsdóttir, Magnús Harðarson,
barnabörn,
Valgerður Andrésdóttir, Jensina Andrésdóttir,
Fanney Andrésdóttir, Asgeröur Andrésdóttir,
Sigriður Andrésdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
Skarphéðinn Þórarinsson
Hátúni lð,
sem andaðist 18. desember verður jarðsunginn frá Nes-
kirkju föstudaginn 29. desember kl. 15. Jarðsett veröur I
Hafnarfjarðarkirkjugaröi.
Birkir Skarphéöinsson, Eliveig Kristinsdóttir,
Jenný Skarphéðinsdóttir, Gissur Breiðdal,
Björg Skarphéðinsdóttir, Ivar Júliusson,
Rakel Skarphéðinsdóttir, Kristján Ingi Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug við
andlát og jaröarför
Magneu Pétursdóttur,
Selfossi
Starfsfólki Landakotsspitala þökkum við góöa umönnun
siðustu vikurnar.