Tíminn - 23.02.1979, Blaðsíða 11
10
Föstudagur 23. febriiar 1979.
Selium í dag:
Ch. Nova Concours 4d. ’77 5.200
Volvo 244 DL sjáifsk. ’76 4.400
Range Rover ’76 8Í000
Ch. Malibu Classic ’79 6.200
Volvo 343 DL '11 3.600
Ch. Malibu Classic ’78 5.600
Toyota Carina ’74 1.950
Opel Ascona '11 3.800
Ch. Nova sjálfsk. ’74 2.500
Lada Sport ’78 3.400
Peugcot 504 GL ’77 3.600
Mazda 616 ’74 1.800
Datsun 180 B '11 3.700
Datsun Disel 220 C ’73 2.000
Toýota Cresida sjálfsk. ’78 4.800
Citroen CX 2000 ’75 3.500
Ch. ChevyVan ’74 3.100
Citroen Dyane ’74 850
Opel Caravan ’73 1.950
Vauxhall Chevette ’77 3.000
Buick Skylark ’77 5.200
G.M.C. Jimmy ’79 8.800
Datsun disel 220 C ’76 3.500
Ford Escort 1300 XL ’73 1.250
Ch. Nova 2d ’74 2.700
Toyota Mark II '12 1.900
VW Golf ’76 2.700
Bedford Van '75 1.200
Ch. Impala .'78 6.000
Ch. Blazer Cheyenne ’76 6.600
Austin Mini '11 2.000
Ch.Malibu 2dV-8 '14 3.400
Ch. Caprice station '16 5.200
Mercury Comet 4d ’73 2.100
Opel Record 4d. ’76 3.100
Ch. Nova 4d. '11 4.400
Opel Caravan ’75
Peugeot 504 st 7M '11 5.300
Samband
Véladeild
ÁRMÚLA 3 - SÍt*Í 38900
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-Up bifreið
og sendibifreið, er verða sýndar að
Grensásvegi 9, þriðjudaginn 27. febrúar
kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i bifreiðasal að
Grensásvegi 9 kl. 5.
SALA VARNARLIDSEIGNA
Hið íslenska
kennarafélag
heldur félagsfund um kjaramál i Glæsibæ
(niðri) mánudaginn 26. febrúar kl. 5.
Frummælendur verða Ari Trausti
Guðmundsson og Jón Hannesson.
HÍK.
Staða
tryggingalæknis
Hjá Tryggingastofnun rikisins er laus hálf
staða tryggingalæknis.
Laun samkvæmt samningi fjármálaráð-
herra og læknafélags íslands.
Umsóknir sendist Tryggingastofnun rikis-
ins. Laugavegi 114, Reykjavik, eigi siðar
en 20. mars 1979.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
i’líiÍHili
Nýlistasafnið:
.XISTAMENN ERD
DRADMÚRAMENN
Um þessar mundir stendur
yfir sýning á starfsemi Nýlista-
safnsins, svonefnda, en þaft er
yngsta myndlistarstofnun þessa
iands.
Ég veit varla hvort menn hafa
tekiö stofnun þessa safns mjög
alvarlega, þegar hún var boöuð
á sinum tfma.
Listamenn eru draumóra-
menn- og eiga að vera það, safn-
vinna er nöldur, sem hvorki á
sér upphaf eða endi.
En Nýlistasafnið er orðið að
staöreynd, það geta menn sann-
færst um með þvi að skoða sýn-
inguna i Asmundarsal, þá er nú
stendur yfir.
Sérstök sýningarskrá yfir
myndverk liggur ekki frammi,
en á hvitu blaöi er þetta um
safniö:
Nýlistasafnið
„Nýlistasafniö er sjálfs-
eignarstofnun rekin af Félagi
Nýlistasafnsins og eru aðilar nú
26, sjá þeir um rekstur safnsins.
Samkvæmt skipulagsskrá eru
félagsmenn skuldbundnir til að
láta af hendi rakna eitt listaverk
árlega, og tryggir það eðlilega
endurnýjun eigarinnar.
Markmið Nýlistasafnsins og
hvatinn aö stofnun þess var aö
bjarga frá glötun og skrásetja
listaverk og heimildir er siöar
mætti t.d. nota við samningu
listasögu siðustu áratuga. Þá er
safninu ætlaö það hlutverk að
vera miðstöð nýjustu strauma
og tilrauna i islenskri list og
stuðla að opinberri umræðu og
kynningu á nýjustu liststilum og
vanmetnum timabilum i listum.
Framtfðarverkefni Nýlista-
safnsins er að reksturinn geti
oröiö sem fjölbreytilegastur
hvaö varöar sýningarhald og
fyrirlestra viða um land, bóka-
safni veröi komið á • og fræði-
mönnum, listamönnum, list-
nemum og öðrum er áhuga hafa
verið gefinn kostur á að not-
færa sér heimildir þær er fyrir
liggja. Brýnasta verkefni safns-
ins er að koma sér upp fullkom-
inni spjaldskrá með litskyggn-
um af öllum listaverkum sem til
safnsins berast, þá er nauðsyn-
legt að innramma sem fyrst um
450 listaverk er nú liggja i
möppum.
Stofnun Nýlistasafnsíns hefur
nú þegar vakiö mikla athygli
erlendra listamanna og listmið-
stöðva og hafa borizt óformleg-
ar fyrirspurnir um möguleg
sýningarskipti milli íslands og
annarra landa. En til þess að
safniö geti uppfyllt þær vonir
sem við þaö eru bundnar þarf
það á skilningi og velvild opin-
berra aðila aö halda, — og
myndarlega fyrirgreiðslu frá
þeim er um menningarmál
fjalla.
Stjórn Nýlistasafnsins vill
ekki láta hjá liöa að þakka þeim
aðilum sem nú þegar hafa
styrkt safnið, og þá.sérstaklega
Ragnari Kjartanssyni mynd-
höggvara, Galerie SÚM og
Galleri Suöurgötu 7 fyrir rausn-
arlegar listaverkagjafir”.
Skráning viðburða
Ég veit ekki hver er forstöðu-
maður Nýlistasafnsins, en geri
ráö fyrir að það sé Niels
Hafstein, sem um tima ritaði
djúpar greinar um myndlist I
Þjóðviljann. Hann var a.m.k. á
Framhald á bls. 19.
Tónlist
Schubert-tónleikar
A þriðju Háskólatónleikum
vetrarins fluttu Sieglinde
Kahmann, sópran, ogfélagarúr
Reykjavfkur-ensemble, þrjú
verk eftir Franz Schubert:
strengjatrló nr. 1 i B-dúr, Smal-
ann á klettinum (Hirt auf dem
Felsen) op. 128, og Salve Regina
óp. 153. Um þessar mundir er
einmitt 150. ártið Schuberts
(1797— 1828),sem minnst hefur
verið á margvlslegan hátt, ekki
slzt meö eftirminnilegu erindi
Arna Kristjánssonar I útvarp-
inu, þreföldum flutningi Vetrar-
ferðarinnar, (Souzay, Vaughan
og Guömundur Jónsson), og nú
þessum Háskólatónleikum.
Fyrst fluttu þær Asdls Þor-
steinsdóttir (fiöla), Helga Þór-
arinsdóttir (lágfiöla) og
Victoria Parr (knéfiðla) B-dúr
trióöiö frá 1817, prýðilegt verk,
sem þóféll algerlega i skuggann
fyrir hinum, sem á eftir komu.
Sieglinde Kahmann,
Sigurður I. Snorrason og Guö-
rún A. Kristinsdóttir fluttu nú
hiö margrómaða söngverk
Smalann á klettinum, fyrir
sópran,klarinettuogpianó. Mér
er þetta verk jafnan minnis-
stætt, þvf þá sá ég Egil Jónsson,
vin minn og meistara, i siðasta
sinn I þessari jarðvist, er hann
spilaði Smalann i Kammer-
múslkklúbbnum, brotinn maöur
og farinn að heilsu.
Der Hirt auf dem Felsen, viö
kvæðiö Der Berghirt eftir Wil-
helm Muller, er annaö tveggja
síðustu verkanna, sem Shubert
lauk viö (1828), ákaflega fallegt
verk. Flutningurinn hjá þeim
Kahmann, Sigurði og Guðrúnu
var mjög glæsilegur, enda tekið
með fádæma fögnuði af áheyr-
endum. Grunarmig,að Smalinn
hafi átt mestan þátti hinni ó-
venjulegu (I seinni tlö) aðsókn,
Franz Schubert
(1797 - 1828)
því þeir eru margir, sem finnst
Der Hirt auf dem Felsen falleg-
asta söngverk I heimi. Og þeir
hinir sömu uröu ekki fyrir von-
brigðum á þessum tónleikum.
Loks flutti Sieglinde Kahmann
og strengjakvartett (Asdis,
Helga Hauksdóttir, Helga Þ. og
Victoria Parr) Salve Regina
(ca.1819), afarfallegt verk við
guðrækilegan latinutexta,
nefnilega rómversk-kaþólska
Márlubæn:
Salve regina,
mater misericordiae,
vita, dulcedo,
et spes nostra, salve.
„Heil drottning, milda móöir:
llf vort, von og yndi, heil , er
upphafiö. Nú gerast þeir þvi
miöur fáir hér á landi, sem lesa
latinu, hvað þá tala hana, en þó
eru ekki nema 100 ár slöan hún
var lingua franca mennta-
manna um heim allan: Jón á
Bægisá talaðilatlnuvið Hender-
son, og Dufferin lávarður talaöi
latínu við Islenzka embættis-
menn. Þórður á Kleppi talaði
latinu við Gunnlaug Claessen,
og kaþólskir prestar töluöu
latinu við guð. 1 staðinn fyrir
latinuna hafa komiö alls konar
gervivisindi og kjaftafög, enda
hefureinn málsmetandi áhuga-
maöur um kennslu- og uppeldis-
mál komiö með þá tillögu, að
ekkert verði kennt I mennta-
skólum annað en stærðfræöi og
latína, ogmundi mönnum þá vel
farnast. Þvi þaö er nefnilega
miklu mikilvægara að læra að
hugsa en að grauta i hvers kyns
grillum og vaöli, og hljóta af
varanlegar heilaskemmdir oft-
ar en ekki.
Annars voru ekki allir forn-
menn sleipir i latlnu, þótt læröir
væru, eins og Jón Arason bisk-
up, enda fór sem fór. Jón orti:
Látína er list mæt,
lögsnar Böðvar.
1 henni ég kann
ekki par, Böðvar.
Þætti mér þó rétt
þitt svar, Böövar,
mlns ef væri móöurlands
málfar, Böðvar.
En Jón var nú kannski meiri
stjórnmálamaöur en guðsmaö-
ur.
Þetta voru semsagt afar-
skemmtilegir tónleikar hjá
stúlkunum (og Sigurði I.
Snorrasyni), og vonandi að
Schubert eigi stórafmæli sem
allra fyrst aftur.
19.2.
Sigurður Steinþórsson
Föstudagur 23. febrúar 1979.
11
Hjálmar vann
öruggan sigur
Úrslit I Unglingameistaramóti
pilta i' fimleikum, sem haldið var
laugardaginn 17. febr 1979, urðu
sem hér segir:
12 ára og yngri:
Hjálmar Hjálmarss. A 31.20st
Eggert Guðmundss. A 29.00st
Ingólfur Bragas. A 28.60st
Jónas Tryggvas. A 44.65st
Heimir Gunnarss. A 42.25st
Davið Ingason A 33.30 st
Davið Ingason A 33.30st
Snorri Ingimars. A 33.30st
13—14 ára:
Þór Thorarensen A
Atli Thorarensen A
Jón Victorss. A
15—16 ára:
Óskar Ólafsson
Ómar Henningss. A
Kristján Olas. A
17 ára og eidri:
33.40st
32.40 st
32.00 St
32.10 St
31.20 st
27.15 st
Maraþonknatt-
spyma á Selfossi
Meistaraflokkur UMF Selfoss
ætiar sér að bæta tslandsmetið i
maraþonknattspyrnu, sem er 30
klst. og 3 min. og hefja þeir leik
sinn kl. 14 i dag I iþróttahúsinu á
sBelfossi.
Hörður Harðarson er ekki beint bliður á svip þegar hann sendir boltann hér f FH-markið með
sannkölluöum þrumufleyg (Timamynd Tryggvi).
„Þetta var dóm-
arahneyksli”
Hinn dyggi stuðningsmannahópur Liverpool „The Kop”.
ER LIVERP00L MEÐ
GJÖRUNNIÐ SPIL?
— með þriggja stiga forystu og tveimur
leikjum færra en næstu lið
Menn velta þvl nú almennt fyrir
sér I Englandi hvort Evrópu-
meistarar Liverpool séu nú þegar
með unnið tafl i 1. deildarkeppn-
inni i Engiandi. Liverpool hóf 1.
deildina með þvílíku offorsi i
haust, að menn muna ekki eftir
öðru eins i langan tlma.
Hraðmót KKÍ
Unglinganefnd KKt gengst
fyrir hraðmóti i körfuknattleik
um helgina á Seltjarnarnesi. Ein-
göngu lið úr 3. flokki munu taka
þátt i mótinu og munu 9 lið vera
skráð þátttakendur.
Leikið verður I 3 riölum og
komast tvö lið upp úr hverjum
riöli. Riðlakeppnin fer fram á
morgun en á sunnudaginn verða
undanúrslit og svo úrslit, og er
gert ráð fyrir aö útslitaleikur
mótsins fari fram um kl. 15.30 á
sunnudaginn.
Ulfarnir
áfram
Wolves vann Newcastle 1:0 I
gærkvöldi i 4. umferð enska
bikarsins. Úlfarnir ieika I 5.
umferðinni gegn Crystal
Palace á útivelli.
PeterKitchen fór til Fulham
i gær fyrir 100.000 pund.
I kjölfariö fylgdu þó mjög
óvæntir ósigrar, t.d. tap fyrir
Sheffield United I deildabikarn-
um og það sem sárast var af öllu
— tap fyrirNottinghamForestl 1.
umferö Evrópukeppni meistara-
liöa. Liverpool átti ekki lengur
möguleika á aö vinna Evrópu-
keppnina þrisvar i röö eins og
Bayern, Ajax og Real Madrid
höföu afrekaö. Menn eru nú nokk-
uð almennt sammála um að nán-
ast sé formsatriði fyrir Forest að
vinna meistarakeppnina. Eftir
þessa ósigra var reyndar ekki að
sjá á úrslitum leikja Liverpool, að
þeir hefðu haft nokkur áhrif. En
það gerðu þeir — áhrifin komu
aöeins siðar i ljós og þá tapaöi
Liverpool Super-Cup keppninni
fyrir Anderlecht.
Síðan hefur leiöin legið upp á
við að nýju og 6:0 sigurinn yfir
Norwich á miövikudagskvöldiö
undirstrikáði enn frekar styrk-
leikaliösins. Liverpool er ennþá I
fullu fjöri I bikarkeppninni og
áhangendur liösins gera sér nú
vonir um að Liverpool vinni loks
hinn langþráða tvöfalda sigur —
„thedouble” — þ.e. bæöi bikar og
deild.
Enn er löng leið á Wembley, en
með þeirri heppni I bikarnum,
sem einkennt hefur drætti
Liverpool fram að þessu og jafn-
sterku liði og Liverpool hefur á aö
skipa ætti draumurinn loks aö
geta rætst.
Til upprifjunar birtum við hér
stöðuna I 1. deild eins og hún er
eftir slðustu leiki.
— Þessi leikur var algert dóm-
arahneyksli, sagði sárreiður
þjálfari Hauka, Þorgeir Haralds-
son, eftir að Haukarnir höfðu tap-
að fyrir FH-ingunum i bikarnum I
gærkvöldi 21:28. — Strákarnir
iétu dómarana fara i taugarnar á
sér og ég verð að viðurkenna að
þetta var með lélegasta sem ég
hef séð i dómgæslunni. — Það af-
sakar ekki leik okkar manna —
okkur urðu á ótrúleg mistök oft og
tiðum, sagði Þorgeir ennfremur.
FH-ingar höfðu undirtökin allt frá
byrjun og skoruöu ávallt á undan.
Haukarnir náðu aldrei að jafna,
utan einu sinni þegar staöan var
4:4. Svo öruggur var sigur FH.
Staðan I leikhléi var 12:11 fyrir
FH.
Strax I upphafi seinni hálfleiks
virtist stefna f spennandi leik þvl
þegar 6 min. voru liönar af s.h.
var staðan 14:12 fyrir FH. Þá
kom ein hroðalegasti kafli, sem
maður hefur séð I vetur (13 mörk
Stjörnunnar I röö gegn Leikni þó
undanskilin hér). Haukarnir bók-
staflega hrundu og á næstu 12
minútum skoruðu FH-ingarnir 8
mörk gegn 1 og breyttu stöðunni I
22:13. Unnið spil.
Gefum Þorgeiri oröið aftur: —
FH-ingarnir voru manni færri og
siðan var annar rekinn út af og
átti þá hinn fyrri eftir um 10 sek.
af sinum tlma. — Þegar hans timi
var útrunninn fór hann inná eins
og lög gera ráð fyrir og örfáum
sekúndum sföar er hinn kominn
inná lika án þess að dómararnir,
þeir Björn Kristjánsson og
Hannes Þ. Sigurösson, geröu
nokkra athugasemd — hvað þá
timaveröir. Það skal tekið hér
fram að FH-ingur var á klukk-
unni. — Hlutir, sem þessir eiga
ekki að geta gerst.
Upp úr þessu skoruðu FH-ingar
sitt 25. mark og staðan var 25:18.
1 stað þess að dæma markiö af,
vegna þess að FH-ingarnir voru
manni fleiri en þeir áttu að vera,
var markið dæmt löglegt. Þetta
hafði, sem betur fer engin úrslita-
áhrif, en ekki hefði veriö öfunds-
vertað vera I sporum dómaranna
heföi svo veriö. Undir lokin leyst-
ist leikurinn upp I vitleysu en FH
vann eins og áöur sagði 28:21.
Mörk FH: Geir 8/1, Viöar 5/1,
Valgarö 4, Guöm. A 4/1, Janus 3,
Guðm. M 3/1, Sæmundur 1.
Mörk Hauka: Hörður 8/1, Óli
Jó. 5, Þórir 3, Júlíus 3/1, Ingimar
1 og Arni Sv. 1
Maður leiksins: Sverrir
Kristinsson, FH.
PARKES DYRASTI
MARKMAÐURINN
John Lyall, framkvæmdastjóri
Lundúnaliðsins West Ham, snar-
aði peningabuddunni á borðið I
gærkvöldi — keypti Phil Parkes,
Sextánda sérsambandið
A undanförnum árum hefur þeim
farið fjölgandi er iðka skotfimi á
tslandi og samkvæmt kennslu-
skýrslum ársins 1977 er skotfimi
iðkuð innan 8 héraðssambanda og
starfandi eru 4 iþróttafélög sem
eingöngu iðka skotfimi, þ.e. i
Reykjavik, Hafnarfirði, Hvera-
gerði og Vestmannaeyjum.
Meðhliðsjón af þessu svo og til-
mælum er borist höfðu um stofii-
un skotsambands, kallaöi fram-
Maraþonkörfubolti
Og þá er það maraþonkörfu-
bolti. Iþróttafélagið Hörður á
Patreksfirði ætlar að riöa á vaöiö
með maraþonkörfubolta. Þriðji
flokkur félagsins ætlar aö leika
maraþonkörfubolta og hefja þeir
leikinn I kvöld kl. 21 I iþrótta-
húsinu á Patreksfiröi.
Aheit hafa veriö I gangi á Pat-
reksfiröi og er skoraö á menn aö
heita 200 kr. á hvern klukkutima,
sem leikinn er hjá strákunum.
unglinga Bls 11 t
kvæmdastjórn ISI saman til fund-
ar formenn þriggja skotfélaga, til
athugunar á stofnun sérsam-
bands fyrir Iþróttina. Hinn 10.
jan. sl. ákvað framkvæmda-
stjórnin að stofnaö skyldi sér-
samband um skotlþróttina og var
stofnþing þess haldið föstudaginn
16. febrúar s.l.
Þar voru mættir 12 fulltrúar frá
4 héraðssamböndum auk forseta,
varaforseta og gjaldkera ISl svo
og framkvæmdastjóra og skrif-
stofustjóra ISl.
Stofnþingiö setti og stjórnaöi
Gisli Halldórsson forseti KI.
Samþykkt voru lög fyrir sam-
bandið. Er skammstöfun hins
nýja sambands STI og kosin var
sýórn sem er þessi.
Axel Sölvason formaöur
Björn Eiriksson gjaldkeri
Guðmundur Guðmundsson
ritari
hinn frábæra markvörð Q.P.R.
500 þús. pund, sem er metupphæð
fyrir markvörð. Nottingham For-
est greiddi Stoke 250 þús. pund
fyrir Peter Shilton, landsliðs-
markvörö fyrir tveimur árum.
Parkes, sem hefur veriö aðal-
máttarstólpi Q.P.R. undanfarin
ár, mun koma til með að styrkja
West Ham-liöiö mikiö, en
„Hammers” er nú að berjast viö
að endurheimta sæti sitt i 1.
deildarkeppninni — er nú i fjóröa
sæti I 2. deild.
PHIL PARKERS...hinn snjalli
markvörður