Tíminn - 28.04.1979, Qupperneq 3
Laugardagur 28. aprll 1979
3
Fargjöld SVR
hækkaum25%
Frá og með laugardeginum þvi um nálega 220 milljónir
28. april 1979 ha*ka fargjöld króna i ár þrátt fyrir 25%
Strætisvagna Reykjavikur að meðaltalshækkun fargjaldanna
meðaltali um 25% frá 28. april. Frá þeim tima
Fargjöld fullorðinna
1. Einstök fargjöld úr kr. 120 i kr. 150
2. Stór farmiðaspjöld úr kr. 3000/32m i kr. 4000/34m
3. Litil farmiðaspjöld úr kr. 1000/9m i kr. 1000/7 m
4. Farmiðaspj. aldraðra úr kr. 1500/32m i kr 2000/34m
Fargjöld barna
1. Einstök fargjöld óbreytt kr. 35.
2. Farmiðaspjöld óbreytt kr 500/30.
Framlag borgarsjóðs til
reksturs SVR hefði að óbreyttu
orðið 864 milljónir króna á þessu
ári, en verður um 700 milljónir
króna miðað við verðlag i dag
og 25% meðalhækkun fargjald-
anna.
1 fjárhagsáætlun borgarinnar
fyrir árið 1979 var gert ráð fyrir
þvi, að framlag borgarsjóös til
reksturs SVR yrði 483.3 milljón-
ir króna.
Aætlaður reksturshalli eykst
hefði þurft að hækka fargjöld
SVRum 60% að meðaltali til
þess að áætlað framlag borgar-
sjóðshéldistóbreytt á þessu ári,
og var það sú hækkun sem sótt
var um til verðlagsyfirvalda.
Heildarframlag borgarsjóðs
til reksturs og eignabreytinga
SVR i ár var upphaflega áætlað
750 milljónir króna, en yrði
samkvæmtframansögðuum 970
milljónir króna, ef verðlag héld-
ist óbreytt til áramóta.
„Skipstjórar ná oft
Guölaugur Þorvaldsson meö hinum góöu gestum frá Hafnarháskóla. Frá vinstri Svend Ellerhöj, Erik
Sönderholm og rektor Hafnarháskóla, dr. Erik Skinhöj.
HAFNARHASKOLI 500 ÁRA:
Islendingar meðal
nemenda á fyrstu
árum Hafnarháskóla
ekki hásetalaunum”
— segir Bjarni Ásgeirsson skipstjóri á
m/s Rangá
FI — Að sögn Bjarna Asgeirsson-
ar skipstjóra á m/s Rangá er það
gömul hefð, sem ekki hefur verið
breytt, að skipstjórar fái ekki
kaup fyrir yfirvinnu. Hafa þeir
mjög óreglulegan vinnutima, eru
á 24 tima vöktum og þurfa að
vinna yfirvinnu, þegar til fellur.
„Vegna þessa gamla fyrirkomu-
lags fara hásetar iðulega fram úr
skipstjórum i kaupi, þegar þeir
hafa fengið sina yfirvinnu
greidda.”
Jónas Sveinsson hagfræðingur
Vinnuveitendasambands Islands
sagði i samtali við blaðið, aö há-
setar gætu fariö fram úr skip-
stjórum i launum einstaka mán-
uð, en sllkt kæmi ekki fyrir að
meðaltali. Það væri þá helst á
strandferðaskipunum, þar sem
bátsmenn sjá um lestun og losun,
en þá vinnu inna stýrimenn
venjulega af hendi.
AM — I gær hittu blaða-
menn að máli prófessor dr.
med. Erik Skinhöj, rektor
Hafnarháskóla, en hann er
hingað kominn i tilefni af
því að Hafnarháskóli er nú
orðinn 500 ára. Islensk
háskólayfirvöld standa að
komu hans, vegna þess að
skólinn í Höfn var jafn-
framt háskóli Islands til
1911, alls i 432 ár.
Háskóli Islands mun minnast
segir rektor skólans,
Erik Skinhöj, sem hér er
í boði HÍ
þessa viðburðar með hátiðasam-
komu i hátiðasal á morgun,
sunnudag, kl. 14.20. Veröur Erik
Skinhöj heiöursgestur samkom-
unnar, en rektor Hl, Guölaugur
Þorvaldsson, flytur ávarp. Þá
heldur Jakob Benediktsson fyrir-
lestur um Hafnarháskóla og
Alhliða samdráttur útvarps
og sj ónvarpsefnis á næstunni
islenska menningu og Magnús
Jónsson, óperusöngvari, syngur
nokkur lög.
Islenskir stúdentar á elstu
nemendaskránni
Hafnarháskóli var stofnaður i
tið Kristjáns 1 konungs 1. og
voru kennslugreinar þá fyrst og
fremst guðfræði, en næstar gengu
lögfræöi og læknisfræði og þá
hinar „frjálsu listir.” Mestur
hluti þeirra skjala sem varða
sögu skólans brann i brunanum
1728, þegar safn Arna Magnús-
sonar fórst að hluta, en vitað er aö
á allra elstu nemendaskrám frá
15. öld var þegar að finna nöfn
islenskra manna, en skólinn er
stofnaður 1479.
Rikisvaldið heldur 836
milljónum fyrir stofnunni
AM — Stórfellds niður-
skurðar virðist vera að
vænta i dagskrárgerð
rikisf jölmiðlanna á
næstunni og i ályktun frá
Útvarpsráði segir, að
það harmi að geta ekki
uppfyllt þær kröfur sem
landsmenn gera til
stofnunarinnar, en visar
öllum kvörtunum til
þeirra ráðamanna, sem
ekki hafa skilning á
menningarhlutverki
riki sf jölm iðla nn a.
Segir, að á þessu áriblasi við að
rikið hefur haldið eftír 836 mill-
jónum króna af tollatekjum af
innfluttum sjónvarpstækjum
1978. 1 hlut Rikisútvarp6ins koma
aðeins 340 m. króna af 1176 mill-
jóna tollatekjum siöasta árs. Seg-
ir að þetta bitni á dreifikerfinu á
viðkvæmu stígi, þegar herslumun
vantartil þessað sjónvarpnáði til
allra landsmanna, en verst á dag-
skrárfé.
Aðeins 15-17%
hækkun afnotagjalds
Enn segir i ályktuninni, að
stjórnvöld hafi aðeins leyft
15-17% hækkun afnotagjalds á
fyrri hluta þessa árs meöan opin-
ber þjónusta hækkaði margfalt i
samræmi við almennar verðlags-
hækkanir.
Öbreytt ástand muni þvi leiða
til eftirtaldra niðurskurðraðgeröa
á næstu vikum:
1. Sjónvarpsdagskrá hverrar
viku verði stytt verulega.
Niðurskurðinum verði ja&iað á
erlentog innlent efni, skemmti-
þætti, fræðsluefni, iþróttaefrii
og fréttatengda þætti. Leitast
verður viö að draga ekki úr
flutningi barnaefnis.
2. Sumarlokun sjónvarpsins
verður lengd úr 4 vikum i 5
vikur til samræmis við orlofs-
tima flestra starfsmanna.
3. Takmörkuö verði gerð is-
lenskra leikrita i sjónvarpi á
þessu ári, miðað við fyrri vilja-
yfirlýsingu útvarpsráös, enda
þótt sú ráðstöfun brjóti í bága
við vilyrði, sem stofnunin hefúr
gefið leikurum og leikritahöf-
undum og hindri stofriunina i að
standa við skuldbindingar
gagnvart öörum þjóöum.
4. Stórlega verður aukinn hlutur
endurtekins efnis hjá hljóð-
varpi.
5. Þættir f hljóðvarpi, sem verið
hafa mjögrýrir i vinnslu, verði1
felldir niður ogdregið verulega
úr leikritaflutningi.
6. 1 innlendri dagskrárgerð sitji i
fyrirrúmi gerð ódýrs efnis en
Frh. á bls. 19.
Aðalfundur Skák-
sambandsins
í dag:
Einar S.
gefur kost
á sér
— ekki vit-
að um nein
mótframboð
ESE — Aðalfundur
Skáksambands Islands
hefst í Glæsibæ í dag
klukkan 13.30 og eiga um
80 fulltrúar frá 25
svæðasamböndum rétt
til setu á fundinum.
Að sögn Einars S. Einars-
sonar forseta Skáksambands-
ins hefur hann ákveðiö að
ver&a viö fjölda áskorana um
að gefa kost á sér til áfram-
haldandi formennsku og er
hann sá eini sem hefur lýst þvi
yfir að hann gefi kost á sér.
Engin sérstök mál liggja
fyrir aöalfundinum önnur en
venjuleg aöalfundarstörf og
stjórnarkjör.
Efnahagstuðningur við
stúdenta
Prófessor Skinhöj sagði að hag-
ur stúdenta væri nú oft afar
þröngur og það væri eitt helsta á-
hugamál skólans að reyna aö
bæta úr fyrir stúdentum, svo þeir
ekki þyrftu að hverfa frá námi af
slikum sökum, þótt stööugt fleiri
stúdentar yrðu fyrir þvi.
Hann fór mörgum orðum um
það hlutverk skólans að starfa
frjáls og óháöur aö visindaiðkun-
um jafnframt kennsiu, en að
sjálfsögðu hefði þaö á öllum öld-
um verið kappsmál stjórnvalda
að skólinn útskrifaði aðeins
rétttrúaða og þæga embættis-
menn, Sem væru kerfinu hollir.
Þetta hefði veriö að breytast og
þyrfti að breytast, en ekki dygði
lengur aö segja við þjóöirnar:
„Við sjáum um okkar upp-
fræðslu, þið skuluð bara borga.”
Hver var fyrsti íslenski
stúdentinn í Höfn?
1 för með rektor er danski sagn-
fræðiprófessorinn Svend Eller-
höj, sem á fimmtudagskvöldiö
hélt erindi um sögu skólans i
Norræna húsinu, og við spurðum
hann og Guðlaug Þorvaldsson
hver hefði veriö fyrsti islenski
stúdentinn við skólann. Þessu
tryestu þeir sér ekki til að svara,
en kvá&u hugsanlegt aö hafa upp
á þvi. A 17 öld munu álika margir
islenskir stúdentar hafa veriö við
nám f skólanum og komu frá
mi&lungs sveitaþorpi i Danmörku
sjálfri.
Prófessor Skinhöj hefur verið
prófessor i taugasjúkdómafræöi
viö Hafnarháskóla frá árinu 1970.
SIMAMENN HAFNA
NIÐURFELLINGU 3%
Félag íslenskra sima-
manna hélt almennan
fund 26. apr. 1979 um
samkomulag BSRB og
f jármálaráðherra frá
23. mars s.l.
Fundinn sóttu rúm-
lega 80 félagsmenn og í
fundarlok var eftirfar-
andi ályktun samþykkt
með öllum greiddum at-
kvæðum gegn tveimur.
„Almennur fundur i Félagi
islenskra simamanna.haldinn
26. april 1979, hvetur til sam-
stööu um aö hafna samkomu-
lagi BSRB og fjármaálráð-
herra um niðurfellingu 3%
kauphækkunar gegn breyt-
ingu á lögum um kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna.
Fundurinn itrekar jafn-
framt fyrri kröfur F.t.S. um
fullan samningsrétt félaginu
til handa.”