Tíminn - 28.04.1979, Page 5
1» -
Laugardagur 28. aprll 1979
l \ »11 \ 'l11
5
Listahátíð barnanna opnuð í dag:
1000 böm standa að
sýning-
unni
Listahátið barnanna hefst i
dag á Kjarvalsstöðum og
stendur til 6. mai með sýningu
og dagskráratriðum á hverjum
degi.
Tilefni hátíðarinnar er ár
barnsins og megin markmið aö
örva skapandi skólastarf, sem
gefur börnum og unglingum
tækifæri til að tjá sig um
hugðarefni sin, reynslu og um-
hverfi og skapa vettvang fyrir
verk þeirra. Myndverk, munir
og dagskráratriði koma frá
flestum skólum Reykjavikur.
Skólabörn koma fram á hátiö-
inni og flytja söng, hljómlist og
leikþætti. Einnig texta og
hljómlist er þau hafa samið
sjálf o.fl. Dagskrá hefst kl. 17.30
virka daga og kl. 16 um helgar.
og á hverju kvöldi er dagskrá kl.
20.30. Kvikmyndir, sem nem-
Þetta útitafl smfðuðu nemendur f Hvassaleitisskóla. A hátiðinni
munu skákmeistarar skóianna tefla þarna og gestum verður frjálst
aö ,,taka eina”, ef þeir vilja.
endur í Alftamýrarskóla og
Lækjarskóla hafa gert meö aö-
stoö kennara verða sýndar dag-
lega. Og dagskráratriði eru frá
flestum tónlistarskólum i
Reykjavik og nágrenni.
Fræðsluráð Reykjavlkur og
Félag islenskra myndlistar-
kennara mynduðu I nóv. sl.
samstarfsnefnd, sem unnið
hefur aö undirbúningi Lista-
hátfðar barnanna.
Ekki eru tök á að telja upp ailt það sem til sýnls verður á Kjarvals-
stöðum á hátlöinni, en bent á að þarna geta foreidrar komið með
börnin og orðiö sjálfir margs visari. Dúkkurnar á myndinni hafa
kostað margt handtakiö, eins og aörir sýningarmunir hins unga
listafólks, sem þarna sýnir.
Orðsending til
rafiðnaðarmanna
Byrjað verður að taka á móti umsóknum
um dvöl i orlofshúsum rafiðnaðarmanna,
frá og með mánudeginum 30. april.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn
18. mai. Orlofshúsin eru átta og á eftir-
töldum stöðum:
ölfusborgir (ölfusi),
Svignaskarði (Borgarfirði),
Einarsstöðum (Fljótsdalshéraði),
Illugastöðum (Fnjóskadal),
Vatnsfirði (Barðaströnd).
Nánari upplýsingar veittar á skrifstof-
unni.
Rafiðnaðarsamband íslands.
Háaleitisbraut 68.
Simi 81433.
OPNUM í DAG
BÍLA OG BÁTASÖLU
AÐ DALSHRAUNI 20 HAFNARFIRÐI
BILA OG BÁTASALAN DALSHRAUNI 20 HAFNARFIRÐI SÍMI 53233.
Vantar allar gerðir nýlegra bíla á skrá
Bíla og bátasalan
Dalshrauni 20 Hafnarfirði
Sími 53233
Bábir sýningarsalirnir verða notaðir fyrir listahátiðina, auk þess sem gangar verða nýttir. Börn
mega og sjálf koma með myndir og hengja þær upp. Aögangur er ókeypis,- og fiugdrekadagur sið-
asta sýningardag ef verður íeyfir, og þangað eru sem flest börn hvött til að mæta með drekana sina.
Sveit
Óskum eftir dugmiklum og áreiðanlegum
15-16 ára dreng i sumar, verður að vera
vanur vélum. Upplýsingar gefur Sigfús
Vilhjálmsson, Brekku 715 Mjóafirði. Sim-
stöð Brekku Mjóafirði.
Útboð
Rafmangsveitur rikisins óska eftir tilboð-
um í að reisa 120 staurastæður I 66 kv
háspennulinu milli Lagarfossvirkjunar og
Vopnafjarðar.
Útboðsgögn fást á skrifstofu
Rafmagnsveitnanna Laugavegi 118
Reykjavik gegn 5.000 kr. óafturkræfri
greiðslu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstu-
daginn 1. júni n.k. kl. 14.00 e.h.
Rafmagnsveitur rikisins.