Tíminn - 28.04.1979, Page 12

Tíminn - 28.04.1979, Page 12
12 Laugardagur 28. aprll 1979 Ráðskona óskast um lengri eða skemmri timaáheimili i sveit. Upplýsingar i sima 99-6392 milli kl. 5 og 6 siðdegis eða eftir kl. 10 að kvöldi. Félag járniðnaðar- manna Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 30. april 1979 kl. 8.30 e.h. i samkomusal Landssmiðj- unnar. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Nýtt lagafrumvarp um vinnuvernd 3. Önnur mál. Mætið vel og stundvislega Stjórn félags járniðnaðarmanna. Auglýsing um aðalskoðun bifreiða lögsagnarumdæmi Reykja- víkur í maímánuði 1979 Miövikudagur 2. mai R-24701 til R-25200 Fimmtudagur 3. mai R-25201 til R-25700 Föstudagur 4. mai R-25701 til R-26200 Mánudagur 7. mai R-26201 til R-26700 Þriöjudagur 8. mai R-26701 til R-27200 Miövikudagur 9. mai R-27201 til R-27700 Fimmtudagur 10. mai R-27701 til R-28200 Föstudagur 11. mai R-28201 til R-28700 Mánudagur 14. mai R-28701 til R-29200 Þriöjudagur 15. mai R-29201 til R-29700 Miövikudagur 16. mai R-29701 til R-30200 Fimmtudagur 17. mai R-30201 til R-30700 Föstudagur 18. mai R-30701 til R-31200 Mánudagur 21. mai R-31201 til R-31700 Þriöjudagur 22. mai R-31701 til R-32200 Miövikudagur 23. mai R-32201 til R-32700 Föstudagur 25. mai R-32701 til R-33200 Mánudagur 28. mai R-33201 til R-33700 Þriöjudagur 29. mai R-33701 til R-34200 Miövikudagur 30. mai R-34201 til R-34700 Fimmtudagur 31. mai R-34701 til R-35200 Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðar sinar til bifreiðaeftirlits rikisins, Bildshöfða 8 og verður skoðun fram- kvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 til 16:00. Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur sé greiddur og vátrygging fyrir hverja bif- reið sé i gildi. Athygli skal vakin á þvi, að skráningar- númer skulu vera vel læsileg. Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tima. Á leigubifreið- um til mannflutninga, allt að 8 farþega, skal vera sérstakt merki með bókstafnum L. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum. Lögreglustjórinn i Reykjavik 24. april 1979. Sigurjón Sigurðsson. „Frystihúsiö” á leiö til miöanna. Nálægö viö veiöiflotann veldur þvi aö skipin nýtast betur viö veiöarnar en ella. 4 slik eru senn tilbúin i Ameriku. Ný gerð frystíhúsa — frystihúsið kemur á miðin og fylgir fiskigöngunum islendingar eru vist ekki búnir aö gleyma Hæringi, sildarverksmiöjuskipinu, sem ætlaö var stórt hlutverk, en hafnaöi i þanghafinu þar sem ryöiö og sólin átu þaö upp til agna, uns þaö sem eftir var, var selt úr landi. En þótt þessi eina umtals- veröa tiiraun, sem islendingar hafa gert til þess aö hafa fljót- andi verksmiöju hafi gefist illa, eru fljótandi fiskiöjuver i gangi viöa um heim. Rússar kaupa fisk af Bretum, liggja úti fyrir ströndinni og kaupa i verksmiöjuskip. Þar eru lika, eöa voru skip frá Japan sömu erinda, og er þá fátt eitt taliö. Og nú hafa enn oröiö' framfarir, eöa eigum viö aö segja, aö komiö hafi fram nýj- ungar á þessi sviöi, þaö eru fljótandi frystihús. Fljótandi frystihús Um þessar mundir eru Kanadamenn (keppinautar okkar á Bandarikjamarkaöi og sildarmarkaöi) aö taka i notkun nýjung, sem kann aö valda bylt- ingu I fiskiönaöi, en þaö er fljót- andi frystihús, sem draga má milli staöa, til þess aö þaö sé ávallt i nánd viö veiöiflotann er auövitaö fylgir fiskigöngunum viö strendurnar. Þetta er fljót- andi frystihús af fullkomnustu gerö. Þaö er fyrirtækiö Norlympia Seafoods, sem látiö hefur smiöa verksmiöjuna, en hún var smiö- uö hjá Vancouver Shipyards og er þetta prammi sem er 204 feta langur og 60 feta breiöur, en vegur um 1300 tonn. Verksmiöjan er 3 hæöa (sjá teikningu). A efstu hæö eru ibúðir fyrir 50 manna starfsliö, auk annars, matsalir og fl. Á miöhæö eöa milliþilfari eru vinnslu og frystisalir, ásamt 65.000 rúmfeta frostgeymslu. En i undirskipinu eru fiski- geymslur, frystitæki og fl. Mjög margar nýjungar i frystitækni er þarna aö finna en afköstin i frystingu eru um þaö bil eitt tonn af laxi á klukku- stund, annaö frystikerfi (spiralar) getur afkastaö um 4 tonnum á klukkustund, og þriöja frystikerfiö, sem er blásarakerfi, annar um 3 tonn- um á klukkustund, svo að alls er frystigeta stöðvarinnar um 190 tonn á sólarhring miöað viö full afköst, en frystitæknibúnaöur er frá Fabten Corporation I Carson i Kaliforniu. Mun fylgja flotanum Markmiöiö er aö pramminn, eöa verksmiöjan, veröi dreginn milli staöa og lagt þar sem skammt er á miöin, eöa á sjálf- um miöunum. Þegar sildveiöar standa yfir veröur verksmiöj- unni lagt undan Vancouver eyju, svo dæmi séu nefnd. Að þvi er best veröur vitaö eru þegar I smiöum þrjár svipaöar verksmiöjur i Bandarikjunum, sem eiga aö fara til Alaska, þar sem mikil fiskimiö eru og illa nýtt. En þá vaknar spurningin. Hvers vegna eru fljótandi frystihús byggð? Við islenskar aöstæöur viröist gagnsemin geta veriö fólgin. i tvennu. Unnt er aö færa slika verksmiöju til milli staöa. En fleira kemur einnig til. Hafnarmannvirki eru mjög dýr og þaö er hugsanlegt að slikar stöövar séu ódýrari (fljótandi frystihús) en frysti- hús i landi. Slikt hús gæti komið aö gagni viö sildar og loönufrystingu svo dæmi sé nefnt, en þjóöhags- lega hagkvæm eru þau varla, nema þau fái rafmagn frá landi. Viöa hagar svo til á Islandi, aö aödýpi er mikið, en landrými af skornum skammti. Kannski gæti fljótandi frystihús eða fljótandi loönuverksmiðja hent- aö þar, veriö ódýrari en sam- bærilegt mannvirki á landi. Blaðiö hefur aðeins tak- markaöar upplýsingar um þessa nýjung, en hugmyndin hlýtur aö vera athugunar verö, fyrst a.m.k. fjórar slikar fljót- andi fiskvinnslustöövar eru orönar aö veruleika, eöa eru aö veröa þaö hjá keppinautum okkar. JG OFFICES AND ACCOMMODATION FOR 50 PEOPLE ‘m r\ \ \ \ \ \ V \\\ \ \ ^ \ \ □□ CD □ CZ C=] CZl ■y u □ □ n czcz cz cz cu CD UPPER DECK BLAST FREEZERS —33° F ‘ fC* |\V KN 65,000 CUBIC FEET COLDSTORAGE —25° F 1n PROCESSING AREA K MAIN DECK 3 TUNNEL FREEZERS —100° F LOADING DOORS TO FISH BOATS FISH HOLDING vTANKS LOWERDECK Teikning af fljótandi frystihúsi. Efst sjást ibúöirnar og aörar vistarverur. Miömyndin sýnir fiskmóttöku, vinnslusal og frostgeymslur. Neöst eru spiralfrystikerfi, fisklestar og fl.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.