Tíminn - 28.04.1979, Blaðsíða 17

Tíminn - 28.04.1979, Blaðsíða 17
Laugardagur 28. aprll 1979 17 Ragnar Fjalar Lárusson: Sagan heldur áfram Kaffisala Kvennfélags Hallgrlmskirkju Kvenfélag Hallgrimskirkju heldur hina árlegu kaffisölu sina i safnaðarheimili kirkjunn- ar á morgun, sunnudag,og hefst hún kl. 3 siðdegis. Ekki er vafi á þvi, að góðar veitingar verða þar á boðstólnum, kvenfélagið er þekkt fyrir siikt, og vinir Hallgrimskirkju munu fjöl- menna til þess að njóta þess, sem á borð er borið, og ekki sið- ur til hins,að styrkja gott mál- efni. Það er óhætt að segja, að á nærfellt 40 ára starfsferB sinum hefir Kvenfélag Hallgrims- kirkju unnið ómetanlegt starf I þágu safnaðar og kirkjubygg- ingar. Þáttur kvennanna er jafnan stór, þegar mikilvæg málefni eru á ferð. Konan stendur oft að baki þegar átak er gert. „Hvar er konan?” segir franskur málsháttur. Já, hvar er konan, sem stendur á bak við hina miklu kirkjusmið? Mér kemurihug frásögn, sem ég eitt sinn heyrði og sagði á fundi kvenfélagsins. Sögumaður segir svo frá: „Einu sinni var telpuhnokki að segja mér sögu, sem hún bjó til jafnóðum. Hún vildi endilega að ég væri sögu- hetjan, ogég lét tilleiðast. Telp- an hugsaði sér, að ég væri lok- aöur inni i stofu 1 þreifandi myrkri og hurðin harðlæst að utanverðu. Og hvernig ætlarðu að komast út? spurði hún Ég ætla að kalla á hjálp, sagði ég. En þó þetta gæti verið ágæ't't fyrir mig, ef það heppnaöist fljótlega, þá var það ekki þau sögulok, sem sú litla var ánægð með. Og nú fann hún upp allt mögulegt til þess að hindra það, aö köllin i mér gætu heyrst. Ég varþvi neyddur til að upphugsa einhver kröftugri ráð til þess aö losna úr prisundinni og vinna bug á öllum þeim hindrunum, sem hún lagði á leið mina. Til þess aö sagan gæti haldið áfram, varö huröin að vera úr harðasta stáli. Ég fann þá lykil, en hann gekk ekki að, sagði hún og var i sjöunda himni yfir þvi, að sagan gat sifelt haldið áfram, og þar var við nýja og nýja örðugleika að striöa”. Þessi litla saga er góður inn- gangur, þegar minnst er starfs- sögu Kvenfélags Hallgrims- kirkju. Ég hefi ekki fylgst með þeirri sögu allri, en nógu lengi til þess að finna, að oft eru erfiö- leikarnir til dáða áþekkir þvi, að sitja f myrkrastofu og vita varla um útgönguleiö. En þó fannst ráð og dáð var drýgö, en þá komu nýjar hindranir, nýjar hindranir eins og til þess að sag- an héldi áfram að gerast, og sú saga, sem ég á fyrst og fremst við er byggingarsaga Hallgrimskirkju. Það er draumur Kvenfélags- ins, eins og allra unnenda kirkj- unnar, aö sjá hina glæstu kirkju fullbúna á Skólavörðuhæö. En þaö er ennþá aðeins draumur. Eftir nærfellt 40 ára starf, sem aö miklu leyti hefir veriö helgaö byggingarmálum kirkjunnar, stendur Kvenfélagiö frammi fyrir hálfbyggðri kirkju og virð- ir fyrir sér turn, sem ris þar yf- ir. Erfiðleikarnir viröast stund- Auglýsið Tímanum um óyfirstiganlegir, hindranir á hverju leiti, þó hættir Kvenfé- lagið ekki að kalla, það upp- hugsar útgönguleið, þaö finnur lykil og sá lykill gengur annað slagið aö einhverjum dyrum. Ég tel raunar að Kvenfélagið hafi lyft „grettistaki” I bygg- ingarmálunum. Þetta litla félag hefir lagt fram ca. 5% af öllum byggingarkostnaöi. Það lætur nærri að fimm metrar turnsins séu byggðir af þvi, við skulum segja fimm efstu metrarnir og krossinn. Væri ekki turninn öllu svip- minni ef þá vantaöi? Væri ekki Hallgrimssókn öllu svipminni ef ekkert væri Kvenfélagið? Gæti ekki verið, að kirkjuna vantaði eitthvaömeiraen fimm metra á hæð sina, ef Kvenfélagsins hefði ekki notið við? Ætli vantaöi ekki eitthvað i undirstööurnar lika? En störf Kvenfélags Hallgrímskirkju eru ekki öll bundin byggingu hennar. Fjarri fer þvi. Kvenfélagið á einnig sina andlegu hlið, ef svo mætti segja, sina hugsjón, sitt háleita takmark og það er þetta: aö byggja musteri f hjörtunum Kristi konungi til dýrðar. Og kirkjan er I hjarta allra þeirra, sem elska Kristog líkna þjáðum bróöur. Við þurfum lika að leggja metnað okkar I það, að Hallgrimskirkja megi sem fyrst risa fullbúin. Margir hafa lagt hönd á plóginn, margir hafa gefiö góðar gjafir, þær berast stöðugt, konurnar i kvenfélag- inu hafa gert sitt, en ég tel, aö þjóðin þurfi i heild að leggja sitt af mörkum til þess aö lands- kirkjan megi risa, og þegar næsta fjársöfnunar-átak veröur gert,skora ég á alla góða Islend- inga að vera meö. Ég hvet vini HaUgrlmskirkju til að fjölmenna I kirkjukaffiö á sunnudaginn. Gjöfum til kirkju- byggingarinnar veitt móttaka. Blaðburðarbörn óskast Timann vantar fólk til blaðburðar i eftir- talin hverfi: Kjartansgata Laugavegur að 70 Lindargata Skaftahlið Hjallavegur Langholtsvegur Sími 86-300 Ég veit ei hvers vegna ég geng, kannski I von um að hitta einhvern,- © Bvlls Hvað er að Kubbur? Tommi vill'V"Þú ættir að skammast þin.T Viltu verða litliY tHvað áttu ekki gefa með . þú átt ekki skilið að eiga'J' bróðir minn, nammikyns? v sér.' Á utinn bróður. X _Kubbur? ' 9. v 10-3 GW6

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.