Tíminn - 02.09.1978, Qupperneq 8
8
á víðavangi
Þá höfum viö fengið nýja
stjórn og væntum okkur nokk-
urs af henni. Það fer ekkert á
milli mála að forystu veitir
stjórninni Ólafur Jóhannesson,
formaður Framsóknarflokks-
ins, en aftur er forysta
stjórnarandstæðinga eitthvað
á reiki. Svo er að sjá sem Vil-
mundur Gylfason ætli að taka
að sér það forystuhlutverkið
og það verður gaman að
fylgjast með þvi hvort Dag-
blaðið verði þar af leiðandi
ekki áfram i stjórnarand-
stóðu. Hvaö svo um Sjálf-
stæðisflokkinn verður í þess-
um gráa leik er annað mál.
Stjórnar-
andstæðingar
Þeir eru raunar fleiri þing-
menn stjórnarfktkkanna sem
lýst hafa yfir eins konar
stjórnarandstööu. Fyrir sliku
cru fordæmi og svo skyggnst
sé yfir hafiö, þá voru þing-
menn demókrataflokksins
bandariska á sinum tima
injög andsnúnir einhverjum
sinum ástsælasta forseta,
Franklin I). Koosevelt og um-
bótastefnu hans „New deal.”
Við þurfum á tslandi að fara
aö taka til höndunum ogtaka á
stjórnartaumunum af festu og
öryggi^mörgu þarf að breyta
-
og margtþarf aðlaga. Til þess
sitja nú f ráðherrastólu m
ungir menn og aðrir nokkru
eldri, svo sem ólafur Jó-
hannesson,en fáir hafa þó sýnt
umbótaviljann eins I verki og
einmitt hann.
Stjórnarandstæðingar i Al-
þýöuflokki munu væntanlega
sitja um tækifærin Li I aö
sprengja þessa stjórn innan
frá,þó allur þorri þjóðarinnar
óski iþess að liún fái að
sitja og sýna hvað i henni býr.
Þaö er þó athyglisvert að i Al-
þýöublaöinu i gær fá skoöanir
þessara stjórnarandstæðinga
ekki inni,heldur eru siðdegis-
blööin og stjórnarandstöðu-
blaðið Morgunblaöið vett-
vangur þeirra.
Vilmundarþáttur
I „Klippt og skorið” i
Þjóðv iljanum segir um
væntanlegan forystumann
stjórnarandstöðunnar: „Vil-
mundur Gylfason er mesta
lipurmenni eins og hann á kyn
tíl. Ekki bar á öðru en hann
gæti vel sætt sig við efnahags-
stefnu mi nýmyndaðrar rlkis-
stjórnar hér fyrir nokkrum
dögum þegar glytti i
ráðherrastól honum til handa.
Þaö voru ákkúrat dómsmálin
Laugardagur 2. september 1978
...... III l«mr,nnnm- -I
Veitir Vilmundur
stjórnarand
stöðunni
forystu?
sem freistuðu hins unga
Tyrkja með krata. Svo fóru
leikar að dómsmálin svifu á
braut frá sjónum Vilmundar
og lentu hjá framsóknar-
manni. Þá er Vilmundur allt i
einu oröinn stjórnarand-
stæðingur. Og út á hvaö? Útá
það að efnahagsstefna
stjórnarinnar sé tómt píp.
Spurningin er: Hugðist Vil-
mundur gera einhverjar efna-
hagslegar uppgötvanir i em-
bætti dómsmálaráðherra?
• Hélt hann aö undir hans stjórn
mundu veröir laganna draga
einhverja ótalda fjársjóði
fram úr hirslum ,,neðan-
jarðarhagkerfisins”? —Þetta
þyrfti hinn ritglaði Vilmundur
að útskýra og u m leiö stuðning
sinn við það braskarahagkerfi
sem faðir hans barðist sem
hetjulegast fyrir i 12 löng
,,viðreisnar”-ár? Og er enn að
gylla fyrir flokksbræðrum sin-
um sem hinn sanna
kratísma.”
Viðhorfsmunur
Vilmundur heldur áfram að
hygla eigin sinni og það er allt
i lagi á meðan þjóðin étur ekki
uppeftir honum sinnisveikina.
Framsóknarflokkurinn sat
siðasta kjörtimabil i stjórn
með SjálfstæðisfIokki,en veitir
nú vinstri stjórn forstöðu. Þar
er viðhorfið aö taka mark á
óskum þjóðarinnar og reyna
að hafa sem mest áhrif til
góðs. Margar gamlar hug-
sjónir Framsóknarflokksins
fá nú kannski að líta dagsins
Ijós, t.d. landsorkuveita og
jafnara orkuverð og launa-
jöf nun.
Launajöfnunarstefna
Framsóknarflokksins var af-
flutt herfilega af fyrrverandi
stjórnarandstæðingum i
kosningabaráttunni. Þaðsýnir
styrk félagsstefnu Fram-
sóknarflokksins að fyrrver-
andi stjórnarandstæðingar
hafa nú gengið til stjórnar-
Vilmundur er enn i stjórnar-
andstöðu
samvinnu við flokkinn á
grundvelli þessarar stefnu.
KEJ
Starfsár Þjóðleikbússins að hefjast:
Meiri hluti
verkefna
eftir
innlenda höfunda
SJ — Starfsár Þjóðleikhússins er
að hefjast nú um mánaðamótin,
en fvrsta frumsýning vetrarins
verður 15. september á Syni skó-
arans og dóttur bakarans eftir
Jökul Jakobsson. Þetta er nýjasta
leikrit Jökuls heitins og var það
sýnt á I.istahátiö i sumar. Leik-
stjóri er Helgi Skúlason og leik-
mynd eftir Magnús Tómasson.
Rúmlega 30 fastráðnir leikarar
starfa við leikhúsið i vetur og nær
20 lausráðnir. Stefán Baldursson,
Brynja Benediktsdóttir og Bene-
dikt Arnason verða á svokölluð-
um leikstjórnarsamningi, en
sinna jafnframt öðrum verkefn-
um en leikstjórn. Fram að
áramótum gegnir Björn G.
Björnsson starfi Sigurjóns Jó-
hannssonar yfirmanns leik-
myndadeildar sem er i leyfi. Að
jafnaði eru um 300 manns á
launaskrá hjá Þjóðleikhúsinu
hverjusinni, en mun fleiri starfa
þar á leikárinu.
Nýir leikarar
1 syni skóarans og dóttur bak-
arans eða Söngurinn frá My Lai,
eins og Jökull Jakobsson kallaði
leikritið einnig, koma fram þrir
nýir leikarar á fjölum Þjóðleik-
hússins;Kristin Bjarnadóttir, sem
starfað hefur i Kauprhannahöfn,
Edda Björgvinsd. og Emil Guð-
mundsson. Fleiri ungir leikarar
munu þreyta frumraun sina i
leikhúsinu i vetur, m.a. Guðrún
Þóröardóttir i þriðja verkefni
leikársins, Máttarstólpum þjóð-
félagsins eftir Henrik Ibsen. Arn-
ar Jónsson, Helga Bachmann og
Arnar Jónsson og Kristin Bjarnadóttir i hlutverkum
sinum i siðasta leikriti Jökuls Jakobssonar.
Briet Héðinsdóttir hafa verið ráð-
in á A-samning.
Þjóðleikhusið minnist þess, að
á þessu ári eru 150 ár liðin frá
fæðingu Ibsens meö sýningu á
Máttarstólpum þjóöfélagsins sem
ekki hefur verið sýnt áöur hér á
landi.
Annaö verkefniö i vetur er A
sama tima aö ári eftir Bernard
Slade. Vinsæll gamanleikur, sem
Þjóðleikhúsið sýndi 80 sinnum úti
álandi á siöasta leikári. Fjórða til
sjötta verkefni eru Draumur
skynseminnar eftir Antonio Bu-
ero Vallejo, frægt spænskt nú-
timaleikrit um málarann Goya,
Stundarfriður eftir Guðmund
Steinsson.kátleg lýsing á firringu
Sveinn Einarsson Þjóðleikhússtjóri, Halldór Ormsson
miöasölustjóri Stefán Baldursson teikhúsritari og tvar
Jónsson skrifstofustjóri.-Timamynd GE.
verður Krukkuborg eftir Odd
Björnsson. Gerist það að miklu
leyti á hafsbotni og kynnast leik-
húsgestir þar ýmsum furðulegum
neðans jávarskepnum.
A litla sviðinu eru ákveðnar
tvær sýningar: Kona og Sandur
nýir einþáttungar eftir Agnar
Þórðarson. Leikstjóri Gisli Al-
freösson, leikmynd: Björn
Björnsson.
Heims um ból eftir Harald
Muellér. Nýlegt þýskt leikrit um
einmanaleik ellinnar og ýmis
samskiptavandamál nútimans.
Auk þeirra nýju sýninga sem
taldar hafa verið upp hér að
framan, verða teknar upp að nýju
sýninga á nokkrum verkum.
A Stóra sviöinu kemur Káta
ekkjan upp aftur siðari hluta
september. A Litla sviðinu hefj-
ast að nýju sýningar á Mæðrum
og sonum, tveim einþáttungum
eftir Bertolt Brecht og J.M.
Synge, sem frumsýndir voru i vor
við sérstaklega góðar undirtektir.
Einnigerráögertaö halda áfram
sýningum á Fröken Margréti,
sem sýnt var við fádæma vin-
sældir i allan fyrravetur. Þá
verður unnið upp nýtt verk i hóp-
vinnu undir stjórn Brynju Bene-
diktsdóttur.
Utanlandsferðir
Þá hefur leikhúsinu verið boðið
á leiklistarhátiö i Berlin i lok sept-
ember með INÚK og eru fýrir-
hugaðar nokkrar sýningar hér
innanlands i tengslum við endur-
æfingar á þvi verki.
Þjóðleikhúsinu hefur verið boð-
ið að sýna Fröken Margréti i
Finnlandi og er áhugi fyrir að
þiggja boðið ef unnt reynist fjár-
hagslega.
nútimamannsins og ameriskur
söngleikur eftir Marshall Barrer
og Mary Rogers i þýðingu Flosa
ólafssonar sem heitir Prinsessan
á bauninni.
Sala áskriftarkorta
I dag hófst sala áskriftarkorta,
sem gilda á allar þess ar sex sýn-
ingar og er hægt að velja á milli
hvort fólk vill koma á 2.-6. sýn-
ingu. Kosta kortin 10.000 kr. og er
það 20% afsláttur frá venjulegu
miðaverði. Askriftarkortin eru
áðeins seld til 15. september eða
fram að fyrstu frumsýningu leik-
hússins.
Barnaleikrit Stóra sviðsins i ár
Bandarisk stúlka Karen Morell
æfir um þessar mundir Islenska
dansflokkinn. Sýning hans á lista-
hátið vakti verðskuldaöa athygli
og verður sú sýning endurtekin í
svipuðu formi nú i haust. Dans-
flokkurinn sýndi þá m.a. nýjan
Ballétt eftir Ingibjörgu Björns-
dóttur og Pas de quatre, sem ball-
ettmeistarinn Dolin æfði með
hópnum.
AðsögnSveins Einarssonar eru
islensk verk í vaxandi mæli uppi-
staðani verkefnaskrá leikhússins
og finna meiri hljómgrunn meðal
áhorfenda með hverju árinu.
Enn metár
Siðasta leikár var enn metár.
134.000 leikhúsgestirkomu á sam-
tals 433 sýningar. Aðsókn að leik-
hdsinu er nú oröin um 50% meiri
en var fyrstu tvo áratugina, sem
það starfaði.
Þegar leiksýningar hefjast i
vetur hefst jafnframt sýning um
Breska þjóðleikhúsið nýja i Krist-
alsal leikhússins. Siöar i vetur
verður sýning helguð Henrik Ib-
sen I salnum.
Lögð hafa verið drög að komu
erlendra leikhópa meö sýningar
til Þjóðleikhússins og verður
greint frá þvi siðar.
40 sidur
sunnu