Tíminn - 02.09.1978, Qupperneq 17
' Föstudagur 1. september 1978
Organistanámskeið í Skálholti
17
Hannes Sigfússon
Ný ljóðabók
Fyrir nokkru sendi bókaútgáf-
an Mál og menning frá sér nýja
ljóðabók eftir hið virta ljóðskáld,
Hannes Sigfússon. Heitir bókin
örvamælirog er fimmta ljóöabók
Hannesar, en hann hefur einnig
samið skáldsögu og gefið út safn
norrænna ljóða i þýðingu sinni.
Hannes Sigfússon vakti þegar
ungur mikla athygli á skáldskap
sinum, og hefur verið i fremstu
röö islenskra ljóðskálda allt frá
þvi að hann gaf út fyrstu bók sina,
Dymbilvöku, árið 1949. Hann
vakti þá þegar athygli, og bæöi
aðdáun og deilur, fyrir hinn
magnaða og sterka ljóðstil sinn,
myndauðgi og hugmyndamátt.
Hannes hefur ekki gefið út
ljóðabók siöan 1966 að Jarteikn
komu út, fyrr en nú, en örvamæl-
ir er 80 blaðsiöur að stærö i frem-
ur litlu ljóöabókarbroti og prent-
uö i Prentsmiöjunni Hólum hf.
(Jr einþáttungnum Ariettu. Björg Arnadóttir og Kristin Magnús.
Einþáttungar eftir
Odd Björnsson
á Edinborgarhátfð i uppfærslu
Ferðaleikhússins
SJ — Nú,á sunnudag 3. sept,
leggur Feröaleikhúsiö, sem
einnig starfar undir nafninu The
Summer Theatre, af stað i leik-
för til Skotlands og tekur þar
þátt I Edinborgarlistahátiðinni,
sem er heimsþekkt listahátiö,
haldin ár hvert. Þetta er i fyrsta
sinn er Islendingar taka þátt i
listahátið þessari.
Leiksýningarnar verða fimm
og eru þær haldnar i
TRAVERSE THEATRE CLUB,
sem er mjög vel þekkt leikhús I
miðri Edinborg. Ferðaleik-
húsiö, The Summer Theatre,
mun sýna 3 einþáttunga eftir
Odd Björnsson, sem einnig er
leikstjóri aö þessari uppfærslu.
Sýningin ber heitið ODDITIES
og samanstendur af leikverkun-
um: EUPHEMIA, YOLK-LIFE
og ARÍETTA. Tvö fyrstu verkin
hafa veriö sýnd hér áður, undir
heitinu Amalia og Jóð-lif.
Siðasta verkið, ARIETTA, er
nýskrifaö og hefur ekki veriö
flutt áður.
9 manns standa að leikferö
þessari; það eru: leikararnir
Kristfn Magnús Guðbjarts-
dóttir, Björg Arnadóttir, Karl
Guömundsson og Jón Júlfusson.
Leikstjóri og höfundur: Oddur
Björnsson. Leiksviðslýsingu og
tækniframkvæmdir á sviði ann-
ast Halldór Snorrason og
Magnús S. Halldórsson. Leik-
sviösmyndir fyrir öll 3 verkin
eru málaðar og unnar af Jóni
Svani Péturssyni. Einnig kemur
fram i sýningunni dansari,
Steinvör Hermannsdóttir.
Þetta er þriðja verkefni
Feröaleikhússins á þessu ári.
Fyrsta verkefni var sýningar-
ferð til Bandarikjanna I
febrúarmánuði s.l. og voru
haldnar sýningar viðsvegar um
Bandarikin á LIGHT NIGHTS,
sem hlutu lof “'gagnrýnenda.
Annað verkefni leikhússins voru
hinar árlegu sýningar á LIGHT
NIGHTS að HótelLoftleiðum i
júli og ágústmánuði, 27 sýning-
ar alls.
Stofnendur og eigendur
Ferðaleikhússins eru Kristfn
Magnús og Halldór Snorrason.
t dag, laugardaginn 2. sept.,
opnar islenska listakonan, Sig-
rún Jónsdóttir, sýningu sina i
Helands-safninu i Stokkhólmi.
Aðeins er vitað til þess, að einn
islenskur listamaður hafi sýnt
þar áður. Var það Erró.
Það var fyrir tveim árum, að
Sigrúnu var boðið að halda sýn-
ingar i Sviþjóð og stóð menn-
ingarsamband sænsku kirkj-
unnariað baki þessara boða. Er
Sigrún Jónsdóttir og tveir hlutar
af stórum gluggum, sem hún er
að vinna við.
Timamyndir Tryggvi.
fólk í listum
Sigrún
þetta i annað sinn, sem Sigrún
sýnir i Sviþjóö siðan henni barst
boðið.
177 organistar starf-
andi á landinu....
Þátttakendur sammála um
að þegar heim kæmi
gengi starfið betur
en áður
Þorvaldur Björnsson og Smári ólason Tfmamynd Róbert
— Söngur kirkjukörsins er eina
tónlistariðkunin viða um land og
einn mesti máttarstólpi menn-
ingarlifs staöanna. 177 organistar
eru starfandi á landinu i fimmtán
prófastsdæmum, og dagana
20.-27. ágúst sl. sótti nær
þriöjungur þeirra organistanám-
skeið i Skálholti, sem haldið var
að tilhlutan Hauks Guðlaugsson-
ar söngmálastjóra þjóökirkjunn-
ar. Þátttakendur voru 53 og
kennarar sjö, en ýmsir þeirra eru
einnig organistar, siöusúi dagana
bættist i hópinn fjölmennt liö
söngfólks. Mikill meirihluti nám-
skeiðsfólksins voru konur og af
sjö kirkjusönglögum þátttak-
enda, sem flutt voru á námskeið-
inu i útsetningu Þorkels Sigur-
björnssonar, voru flest eftir kon-
ur.
Þessi atdöi komu m.a. fram i
spjalli við Þorvald Björnsson
organista f Garða- og Bessastaða-
kirkju og Smára Ólason, sem er
við kirkjutónlistarnám i Vinar-
borg, en þeir tóku báðir þátt i
námskeiðinu f Skálholti.
Þetta er fjórða organistanám-
skeiðið, sem söngmálastjóri
gengst fyrir i svipuöu formi og
hafa þau verið haldin árlega. Ró-
bert Abraham Ottósson, fyrir-
rennari Hauks Guðlaugssonar,
hélt einnig námskeið viða um
land og það mun hafa verið ætlun
hans að koma á svipaðri skipan
og nú er orðin á námskeiðshald-
inu. Nú var i fyrsta sinn stuðst viö
kennslubók i kórstjórn, sem einn
þátttakandinn,Marfa L. Eövarös-
dóttir, organisti i Miklaholts-
kirkju þýddi úr þýsku, en hún
heitir Kóræfinginog er eftir Carl
Eberhardt. Mikill fengur er i þvi
verki fyrir þá sem vinna að kór-
stjórn.
— A námskeiðinu var einkum
farið i ýmis vandamál varöandi
kórstjórn, en þau eru alls staðar
þau sömu. Bæði eru ýmis smá-
vægileg vandamál, og svo er
höfuöatriði aö organisti kunni að
kenna fólki að syngja. Þvi var á
þessu námskeiöi einkum fjallaö
um kórstjórn og raddþjálfun.
Organistarnir á námskeiöinu
fengu tækifæri til að stjórna 130
manna kór, sem varð til siðustu
dagana. — Það er engin smálffs-
reynsla, þvf kirkjukórarnir eru
viða aöeins nokkrar manneskjur
oguppi 20-30 manns þar sem best
lætur.
Æfð voru kirkjusönglög fyrir
hátiöamessu á sunnudag, sem
Sigurbjörn Einarsson biskup
flutti,og einnig var æföur kafli úr
stærra verki — Stjarnan — eftir
Pablo Casals, en þvf verki stjórn-
aöi Casals háaldraður á tónleik-
um víða um heim og þaö var einn-
ig flutt á þingi Sameinuöu þjóö-
anna I New York.
Haukur Guðlaugsson hefur haft
þaö fyrir sið á námskeiöunum að
hafa ávallt einn dagskrárlið, sem
ekki lýtur að tónlist.Aðþessusinni
flutti Baldur Möller ráðuneytis-
stjóri erindi, Viðhorf Skákmanns
tilferilssins,en á fyrri námskeið-
um hefur verið fjallaö um ýmis-
legt,svo sem myndlist.
— Mikla ánægju vöktu tónleikar
á laugardagskvöld þar sem frum-
samin lög þátttakenda voru flutt.
Handbragð Þorkels Sigurbjörns-
sonar þótti mjög gott, en hann út-
setti verkin. Auk sjö sönglaga
fyrir kirkjukóra var einnig flutt
islenskt þjóðlag, sem Smári Óla-
son hafði útsett aö gömlum is-
lenskum hætti.
Kennarar á námskeiðinu voru
Friöa Lárusdóttir, Glúmur Gylfa-
son, Guðrún Tómasdóttir, Hauk-
ur Guðlaugáson, Jónas Ingi-
mundarson, Reynir Jónasson og
Þorkell Sigurbjörnsson.
— Aðeins á fáum stöðum á
landinu er organistastarfið laun-
að svo nokkru nemi. Fáar stéttir
leggja fram jafnmikla vinnu af
einskærri hugsjón, sögðu þeir fé-
lagar ÞorvaldurogSmári. Þaö er
sem dæmi um þetta, að sama fólk
iö sækir organistanámskeiðin ár
eftir ár og mætti raunverulega
hvetja fleiri organista til aö
koma.
Þátttakendur að þessu sinni
voruá öllum aldri, eða 12-75 ára.
Allir organistar i Vestur-Húna-
vatnssýslu voru samankomnir
þar og stóð sýslan sig best allra
landshluta.
— Þátttakendur hafa jafnan
mikla fróðleiksþrá ogeru ánægð-
ir meö að fá tækifæri til að bæta
við tónlistarmenntun sina, en
margt af fólkinu hefur kannski
ekki átt kost á þeirri menntun,
sem það hefði kosið i æsku. Þetta
gerirandann á námskeiðinu mjög
jákvæðan, það er sitthvað að
kenna fólki, sem drekkur i sig
fróðleikinn en fást við þrjóska
unglinga, sem stundum eru áber-
andi i skólastarfi.
Organistunum bar saman um,
aö eftir að hafa tekið þátt i nám-
skeiði sem þessu ættu þeir miklu
betra meöaö vinna að kirkjutón-
listarmálum þegar heim kæmi.
Það tæki skemmri tima aö æfa
kirkjusönginn.Og öllum bar sam-
an um aö þeir/þær vildu ekki af
þessu missa fyrir nokkurn mun.
Að ári er i ráði að breyta til og
efna til hópferðar til höfuökirkna
Mið-Evrópuog verður þaðeflaust
einnig lærdómsrikt. Þorvaldur
Björnsson kvaðst ætla að taka
þátt i feröinni ef hann ætti þess
nokkui-n kost, og Smári Ólason
sagði, aö hann hlakkaði til aö fá
hópinn i heimsókn til sin i Vinar-
borg.
SJ
Fundur um málefni
þroskaheftra
Landssamtökin Þroskahjálp
eru nú að hefja starfsemi sina á
ný eftir sumarleyfi.
i næstu viku eru fyrirhugaöir
almennir fundir um málefni
þroskaheftra bæöi i Reykjavik og
úti á landsbyggðinni.
Landssamtökin Þroskahjálp
hafa boöiðtil landsinsfulltrúa frá
Landssamtökum foreldra
þroskaheftra I Danmörku, frú
Agnete Schou, og dvelur hún hér
dagana frá 3ja til 10. september.
Næstkomandi mánudágskvöld
þ. 4. sept. kl. 8.30 mun Agnete
Schou flytja erindi á almennum
fundi i Domus Medica við Egils-
götu, þar sem hún mun ræða um
vandamál foreldra þroskaheftra
barna, um fræðslu- og upp-
lýsingarstarf fyrir f oreldrasvo og
samstarf á milli foreldra og
starfsfólks stofnana.
A þriðjudagskvöldiö þ. 5. sept.
er fyrirhugaður almennur fundur
um málefni þroskaheftra á Akur-
eyri kl. 20.30. Fundarstaður er
Hótel KEA, og á miövikudags-
kvöld er fyrirhugaður fundur á
Egilsstööum kl. 20.30 og veröur
Agnete Schou með framsöguer-
indi á báðum stöðum.
Allir fundirnir eru opnir öllu
áhugafólki um málefni þroska-
heftra, en foreldrar og starfsfólk
stofnana ásamt barnalæknum og
hjúkrunarfræðingum, eru sér-
staklega hvattir til að sækja
þessa fundi.
Agnete Schou hefur mikla
reynslu og þekkingu á málefnum
vangefinna og þroskaheftra, bæöi
af eigin raun, sem foreldri van-
gefinnar dóttur, svo og vegna
starfs i Landssamtökunum
Evnesvages Veli Danmörku. Hún
hefur flutt marga fyrirlestra viöa
á Norðurlöndum og ritaö fjölda
greina um málefni þroskaheftra.
Þaö skal tekið fram, að erindin
verða flutt á dönsku, en túlkuö á
islensku.