Tíminn - 02.09.1978, Page 20
Sýrð eik er h
sígild eign
TRÉSMIDJAN MEIDUR , \\| ; SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822 /11
V..' ■i
Gagnkvæmt
tryggingafélag
sími 29800, (5 línur)
Verzlið
í sérverzlun með
litasjónvörp
og hljómtæki
Wmmm Laugardagur 2. september 1978 191. tölublað —
Eigum sama rétt og annað f ólk
— undrandi hvað talað er opinskátt um skerðingu lýðræðis i landinu, segir Svava Jakobsdóttir
HEI — ,,Um langllfi þessarar
stjórnar get ég bara ekkert
sagt. En mér finnst hugur þing-
manna Alþýðuflokksins hafa
verið þannig frá þvf fyrsta, aö
þeir muni torvelda Alþýðu-
bandalaginu störf í svona rfkis-
stjórn. Þeir hafa ekkert dregiö
dul á það, aö þeir vilja marka
okkur bás, og telja okkur ekki
eiga sama rétt og annað fólk i
landinu. Það er að segja, að ég
hef veriö afskaplega undrandi á
þvi, hvað þeir hafa treyst sér til
að tala opinskátt um skerðingu
lýðræðis i þessu landi”.
Framansagt fékk Timinn sem
svar frá Svövu Jakobsdóttur við
þeirri spurningu, hvort hún teldi
nýju rikisstjórninni langra lif-
daga auðið.
— Svo þú ert ekki ánægð með
stjórnina?
— Nei, ég er nú ekki ánægð,
en ég óska henni samt alls góös.
Ég vona að henni takist að rétta
hlut launafólkSj koma
samningum i gildi og aö sú
stefna hennar að tryggja vinnu-
frið fram til 1 desember á næsta
ári, standist.
— Hvað hefur þú helst i huga,
þegar þú hefur sagt i blaða-
viðtali að þú óttist að hin sósial-
isku markmið nái ekki fram að
ganga?
— Þá hefi ég i huga kerfis-
breytingar á þjóðskipulaginu,
og ég hef þar i huga þjóðfrelsis-
málin og hersetuna.
— Hverjar kerfisbreytingar
helst?
— Það að skera niður milli-
liði, og i sambandi við inn-
flutningsverslun.
Nú hefur þinn flokkur
fengið það ráðuneyti, sem fer
með þau mál.
— Já, og ég treysti Svavari
Gestssyni til alls góös, en hann
er auðvitað bundinn af verk-
efnaskránni.
Hvað á að
gera við
óráð-
stafaða
básinn í
áningar-
stað
SVR?
Farþegarnir hvattir til að koma fram með tillögur
ATA — Einum bás er
enn óráðstafað í nýja
áningarstað SVR á
Hlemmi.
Farþegar SVR geta haft
áhrif á hvernig básnum verð-
ur ráðstafað. Eins konar hug-
myndabanki er starfræktur i
áningarstaðnum. Farþegar
sem biða eftir vagni, geta
fengið miða og skrifað á hann
hvernig þeim finnist að ætti a
ráðstafa básnum. Siðan er
miðinn settur i sérstakan
kassa, hugmyndakassa, og er
fram liða stundir verða tillög-
urnar teknar til athugunar.
Sé eitthvað, sem þér finnst
vera ómissandi i áningarstað
Strætisvagna og ekki er fyrir
hendi á Hlemmi, þá skalt þú
leggja það til og opna þar með
reikning i hugmyndabanka
SVR.
Flugleiðir kaupa meiri
hluta í Amarflugi
Seint i gærkvöldi barst
blaðinu fréttatilkynning
frá Flugleiðum þess
efnis að félagið hefði
keypt meirihluta hluta-
bréfa i Arnarflugi h.f.
Svo sem kunnugt er hefur
Arnarflug hf. frá stofnun félags-
ins að miklu leyti byggt starfsemi
sina á leiguflugi á erlendum
markaði. Flugleiðir hf. hafa einn-
ig i auknum mæli leitað verkefna
erlendis. Samkeppni á þessum
markaðihefurverið mjög hörð og
samkeppnisaðstaða islensku
flugfélaganna farið versnandi þar
sem tilkostnaður hér á tslandi er
orðinn hærri en i þeim nágranna-
löndum okkar, þar sem staðsett
eru flest þau flugfélög sem
islensku félögin þurfa að keppa
við. Af þessum ástæðum hafa far-
ið fram viðræður, um nokkurt
skeið, milliþessara islensku flug-
félaga um aukið samstarf með
það fyrir augum, að treysta stöðu
þeirra á erlendum leigumarkaði.
Ennfremur hefur komið i ljós, að
áhættufé Arnarflugs hf. þarf að
auka og starfsemi félagsins meö
aðeins tvær vélar, er mjög
áhættusöm ef um engan stuðning
er að ræöa frá stærra flugfélagi.
Af framangreindum ástæöum
Húsnæðismál skólameistarahjónanna á Isafirði
„Vona að Ragnari gangi betur
- að koma nýjum manni á hús en Vilhjálmi mér ”
sagði Jón Hannibalsson skólameistari á Isafirði
SJ — Ég lit svo á að mér hafi
verið sagt upp starfi, sagði Jón
Hannibalsson skólamestari
Menntaskólans á tsafirði i
viðtali við Timann I gær. Jón
sagði hins vegar að sér væri
ekki sama um skólann og hann
kæmi þvi til með að bjóða Ragn-
ari Arnalds menntamálaráð-
herranum nýja að gegna starf-
inu um einhvern tima meöan
auglýst yrði eftir manni i sinn
stað og hann ráðinn. — Ég vona
að Ragnari gangi betur að koma
honum á hús enVilhjálmi'Hjálm
arssyni mér, sagði Jón Hanni-
balsson.
Aðdragandi þessa máls er sá,
aö i byggingaráætlun Mennta-
skólans á Isafirði er gert ráð
fyrir þrem kennaraibúðum og
embættisbústað skólameistara.
Aö sögn skólameistara hefur
framkvæmd áætlunarinnar
verið öll i molum, enda hafa
engar fjárveitingar verið að
undanförnu til byggingafram-
kvæmda við menntaskóla nema
þær, sem farið hafa til Austur-
lands.
Jón Hannibalsson kvaðst hafa
staðið i þvi að útvega kennurum
við skólann ibúðir og hefði
skólinn að jafnaði haft 3-5 ibúðir
á leigu. 1977 voru siðan keyptar
þrjár ibúðir fyrir kennara, sem
allar eru i notkun.
Siðastliðið haust fékk
menntamálaráðuneytið tilboð
um kaup á skólameistara-
bústað, sem var hús fyrrverandi
sóknarprests Sigurðar Krist-
jánssonar. Tilboðinu var vel
tekiö og kvaðst menntamála-
ráðherra myndu beita sér fyrir
þvi að af kaupunum gæti orðið.
Húsið var síðan tekið á leigu i
eitt ár til þess að timi ynnist til
að fá fjárveitingu. Ekki tókst að
afla fjár til kaupanna og seldi
sr. Sigurður öðrum aðilum hús-
eignina.
Þetta var i marz sl. og 30.
marz skrifaði Jón Hannibalsson
menntamálaráðherra og kvaðst
lita á þaö sem uppsögn ef hús-
næðismálum sinum yröi ekki
komið i lag. Kvaðst hann ekki
myndu hafa frekari afskipti af
málinu sjálfur.
Þau sjö ár, sem Jón hefur
verið skólameistari á Isafirði
hefur hann flutt sjö sinnum,
stundum til aö greiða fyrir hús-
næðismálum kennara. Nú i vik-
unni flutti hann og kona hans
Bryndis Schram og börn þeirra i
herbergi i heimavistinni, þar
sem þau hafa ekki eldunar-
aðstöðu. 10. september tekur
menntaskólinn til starfa og
heimavistin jafnframt. Búslóð
sina hafa þau sent áleiöis hingað
suður til Reykjavíkur og gera
ráð fyrir að börn sin byrju þar í
skóla 6. september.
Þá sagði Jón Hannibalsson,
að menntamálaráðuneytinu
hefði i mai boöist annaö tilboö
um húsnæði fyrir skóla-
meistarabústaö. Þvi boði hefði
ekki veriö sinnt fyrr en e.t.v. nú
allra siðustu daga. Eigandi hús-
næðisins væri farinn af landinu
og heföi hann ekkert tilboð veriö
búinn að fá áður en hann fór.
Húsnæðiö er ekki laust til ibúðar
fyrr en eftir einhverja mánuði.
Jón skólameistari gat þess að
á þessum sama tima og hann
hefur hrakist milli ibúða heföu
verið keyptir 13 embættis-
mannabústaðir handa ýmsum
aðilum á tsafirði, og það hefði
tekið Ölaf Jóhannesson kirkju-
málaráöherra einn dag að festa
kaup á prestsetri handa nýjum
sóknarpresti árið 1977. Jón
kvaðst ekki véfengja orð Vil-
hjáls Hjálmarssonar um aö ekki
heföi tekist að afla fjár til húsa-
kaupanna, en engu að siður
hefði þessu máli verið sinnt af
makalausum ræfildómi.
hafa stjórnir Arnarflugs h.f. og
Flugleiða hf. orðið ásáttar um
eftirfarandi:
Flugleiðir hf. kaupa óseld
hlutabréf i Arnarflugi hf. að upp-
hæð 44 milljónir kr. og verður þá
hlutafé Arnarflugs hf. kr. 120
milljónir. Ennfremur er sam-
komulag til viðbótar um kaup
Flugleiða hf. á 25 milljónum
króna af hlutafjáreign nokkurra
stærri hluthafa félagsins.
Stjórnir félaganna vona að
þessi ráðstöfun verði til þess að
styrkja stööu islensks flug-
rekstrar á erlendum mörkuðum,
og bæta afkomu þeirra á komandi
árum.
Hjá Arnarflugi starfa um þess-
ar mundir 70 starfsmenn.
Arnarflug hf. Flugleiðir hf.
Margeir
teflir í
Austurríki
á heimsmeistaramóti
unglinga og Jóhann
á heimsmeistaramóti
sveina
HEIMSMEISTARAMÓT ungl-
inga (20 ára og yngri) verður
haldið i borginni Graz i Austurriki
dagana 3.-17. sept. Þátttakandi af
tslandshálfu verður Margeir Pét
ursson, skákmeistari, en aðstoð-
armaður hans verður Leifur Jó-
steinsson.
Margeir Pétursson hefur að
undanförnu sýnt mjög góða
frammistöðu á skákmótum og
hefur áunnið sér tvo áfanga af
þremur aö alþjóðlegum meist-
aratitli, nú nýverið á skákmótinu
i Gauksdal i Noregi og I fyrra
skiptið i Lone Pine mótinu i Kali-
forniu fyrr á þessu ári.
A heimsmeistaramótinu i Graz
verða tefldar 13 umferðir eftir
Monradkerfiogeru búist viö þátt-
takendum frá 35-40 löndum. Meö-
al skæðustu skákmanna sem
þarna verða auk Margeirs, má
nefna Iusupov, núverandi heims-
meistara unglinga frá Sovétrikj-
unum, Dolmatov einnig frá So-
vétríkjunum, Seirawan
Bandarikjunum, og Mokrý
Tékkóslóvakiu.
Heimsmeistaramót sveina
ára og yngri) verður haldið i ann-
að sinn dagana 26. des-6. jan. n.k.,
i Sas-van-Gent i Hollandi.
Þar mun tefía af Islands hálfu
hinn bráðefnilegi skákmaður Jó-
hann.Hjartarson, sem mun keppa
að þvi að verja heimsmeistaratit-
il Jóns L. Arnasonar frá I fyrra.
frá
frá
(17