Tíminn - 10.08.1979, Síða 1
Föstudagur 10. ágúst 1979
179 tbl.—63árg.
•--------------------
Happdrætti SÍBS
— sjá bls. 8
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 ■• Afgreiðsla og áskrift 86300 : Kvöldsimar 86387 & 86392
Nær einróma afstaða yfirmanna á kaupskipunum á fundi í gær:
Yfirvinnubanninu aflétt
Skora á ríkisvaldið að framfylgja bráðabirgðalögunum, um að taka tillit til langra fjarvista
við ákvörðun kaups og kjara
Kás — I gær héldu yfir-
menn á kaupskipunum
fund meö sér. Fjallað
var um nýuppkveðinn
Félagsdóm/ sem dæmir
yfirvinnubann þeirra frá
20. júní sl. ólöglegt.
Samþykkti fundurinn nær
einróma að aflétta yfir-
vinnubanninu/ þegar í
stað með 63 atkv. gegn 10.
Getum haf
ið bensín-
framleiðslu
í Áburöarverksmiðju rikisins
er tækniþekking og starfslið til
staðar til framleiðslu vetnis og
þar væri heppilegt að reisa til-
raunaverksmiðju sem framleiddi
3-5% af bensinnotkun íslendinga.
Litil eldsneytisverksmiðja i
Gufunesi þyrfti ekki að fjárfesta i
orkuflutningsmannvirkjum, en
flutningsgeta til Áburðarverk-
smiðjunnar er 25 megavött en
sjálf notar hún ekki nema 19
megavött. Eru þvi góð skilyrði
fyrir hendi til að framleiða fljót-
andi eldsneyti þarna. '
Þetta kemur fram i ályktun
orkunefndar Framsóknarflokks-
ins, en þar segir að ekkert sé þvi
til fyirstöðu að framleiða á
Islandi allt það fljótandi eldsneyti
sem nú er notað.
Er þar með endir fundinn
á hið 50 daga gamla yfir-
vinnubann sem verulega
hefur seinkað vöruflutn-
ingum til og frá, svo og
um landið.
96 starfandi yfirmenn á kaup-
skipaflotanum mættu á fundinn.
Stóð hann yfir i um þrjár
klukkustundir; þannig að ekki
hafa i upphafi allir verið á eitt
sáttir hvernig bregðast skyldi
við dómi Félagsdöms. Þegar
upp var staðið var hins vegar
samþykkteins ogfyrr greinir að
aflétta yfirvinnubanninu. Varð
nær einróma samstaða um það,
og voru mótatkvæði aðeins 10.
1 samþykkt fundarins eru
stjórnvöld minnt á að fram-
fylgja bráðabirgðalögunum
nr. 70 1979 frá 19. júni, seih
banna verkföll og verkbönn á
kaupskipum, að þvi er varðar
verkefni kjaradóms, sbr. 2 gr. c-
liður. 1 þeim lið segir að kjara-
dómur skuli taka tillit til sér-
stöðu farmanna að þvi er varðar
langar fjarvistir frá heimili og
einangrun á vinnustaö svo og
meiri menntun, ábyrgö og
verkkunnáttu, sem störf þeirra
gera kröfu til, við ákvörðun
kaups og og kjara þeirra.
1 úrskurði kjaradóms sem féll
1. ágúst sl. segir hins vegar, að
snemma hafi orðið ljóst, að á
þeim tíma, sem kjaradómi var
ætlað til verksins, væri honum
ofviða að framkvæma viöun-
andi mat á störfum farmanna.
Telja farmenn um hreint lög-
brot að ræða hjá kjaradómi, að
taka ekki tillit til þessa ákvæöis
i bráðabirgðalögunum, og skora
á stjórnvöld, að sjá til þess að
það verði framkvæmt, með
skipun nýs kjaradóms. Er hér
um að ræða svipaða kröfu og
undirmenn á kaupskipunum
hafa gert.
A sólrikum degi er ekkert vit i að sitja inni, ef annars er kostur. Þessar I gagnlega þvl ánægjulega. I Reykjavik hefur veðrið aldrei verið betra
tvær hafa lika sest með prjónana úti i skógarrjóöri og sameina hið | þrátt fyrir brunakuldann norðanlands. (Tfmamynd: GE)
Samgönguráðherra um vegabætur Norð-Austanlands:
Vegurmn um Sléttu, Hálsa
og Bakkafjörð hafi forgang
600 mílljóna króna láninu ráðstafað innan skannns
AM — i gær ræddi blaðiö við sam-
gönguráöherra, Ragnar Arnalds,
um áætlaðar vegabætur norö-
austanlands, en f tillögum Hafis-
nefndar var bent á nauðsyn þess
að gera þetta landsvæði betur
undir það búið að mæta aðstæðum
eins ogþeim sem sköpuðust i vet-
ur og vor, þegar neyðarástand
skapaðist þarna vegna hafiss og
siðar leysinga.
Ragnar sagði, að eftir að tillög-
um nefndarinnar heföi verið vis-
að til samgönguráöuneytisins,
hefði verið hafist handa um að
kanna möguleika á að afla fjár til
þessa og gera áætlanir um upp-
byggingu vegarins á þessu svæði,
og var i rlkisstjórninni samþykkt
tillagafrá ráöuneytinu fyrir þrem
vikum um að taka sex hundruð
milljóna króna lán i þessu skyni.
„Við höfum nú beðiö Fram-
kvæmdastofnun rlkisins að ann-
ast þessa lánsútvegun fyrir okk-
ur,” sagöi Ragnar. „Reiknað er
með að lánið verði tekið hjá
ákveönum sjóði, sem starfar i
tengslum við Evrópuráöið. Er
ætlunin aö unnið veröi fyrir 400
milljónir i Norður-Þingeyjar-
sýslu, en 200 milljónir i Norð-
ur-Múlasýslu. Höfuöáhersla
verður lögð á tvo vegarkafla i
Norður-Þingeyjarsýslu, en þeir
eru — vegurinn yfir Melrakka-
sléttu og vegurinn austan viö
Raufarhöfn um Hálsa. 1
Norður-Múlasýslu verður svo
aðaláherslan lögö á veg um
Bakkafjörð. Auk þessa veröa svo
fjöldamargir smærri vegarkaflar
teknir fyrir, einkum staðir þar
sem snjór leggst þyngst á.
Ekki hefur endanlega veriö frá
þvi gengiö hvernig fénu verður
varið, en það verður gert innan
skamms, eftir að samband hefur
verið haft við þingmenn á þessu
svæði.”
Ragnar sagði að enn væru eng-
ar framkvæmdir hafnar, en feng-
ist fé skjótlega ættiekkertað vera
þvi til fyrirstöðu að byrjaö yrði.
Hann sagði það kosta um 2.4
milljarða aö leggja uppbyggðan
veg frá Húsavik til Vopnafjaröar,
en að á vegaáætlun fyrir næstu
ár, 1979, 1980 og 1981 væru 500
milljónir ætlaöar til framkvæmda
á þessari leiö. Með umræddu fé
væri kominn um það bil helming-
ur þessara 2.4 milljarða og væri
vonast til aö á næstu árum tækist
að útvega frekara fjármagn meö
svipuöum hætti, svo unnt yrði að
byggja upp alla leiðina.