Tíminn - 10.08.1979, Side 2
2
Föstudagur 10. ágúst 1979.
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða í Hafnarfirði,
Garðakaupstað og Bessastaðahreppi
Skoðun fer fram sem hér segir:
Ágústmánuður:
Mánud. 13. G- 7251 til G-7300
Þriðjud. 14. G- 7301 - G-7350
Miðvikud. 15. G- 7351 - G-7400
Fimmtud. 16. G- 7401 - G-7450
Föstud. 17. G- 7451 - G-7500
Mánud. 20. G- 7501 - G-7550
Þriðjud. 21. G- 7551 - G-7600
Miðvikud. 22. G- 7601 - G-7650
Fimmtud. 23. G- 7651 - G-7700
Föstud. 24. G- 7701 - G-7750
Mánud. 27. G- 7751 - G-7800
Þriðjud. 28. G- 7801 - G-7850
Miðvikud. 29. G- 7851 - G-7900
Fimmtud. 30. G- 7901 - G-7950
Föstud. 31. G- 7951 - G-8000
Septembermánuður: Mánud. 3. G- 8001 til G-8100
Þriðjud. 4. G- 8101 - G-8200
Miðvikud. 5. G- 8201 - G-8300
Fimmtud. 6. G- 8301 - G-8400
Föstud. 7. G- 8401 - G-8500
Mánud. 10. G- 8501 til G-8600
Þriðjud. 11. G- 8601 - G-8700
Miðvikud. 12. G- 8701 - G-8800
Fimmtud. 13. G- 8801 - G-8900
Föstud. 14. G- 8901 - G-9000
Mánud. 17. G- 9001 - G-9100
Þriðjud. 18. G- 9101 - G-9200
Miðvikud. 19. G- 9201 - G-9300
Fimmtud. 20. G- 9301 - G-9400
Föstud. 21. G- 9401 - G-9500
Mánud. 24. G- 9501 - G-9650
Þriðjud. 25. G- 9651 - G-9800
Miðvikud. 26. G- 9801 - G-9950
Fimmtud. 27. G- 9951 - G-10200
Föstud. 28. G-10200 - G-10400
Októbermánuður
Mánud. 1. G-10401 til G-10600
Þriðjud. 2. G-10601 - G-10800
Miðvikud. 3. G-10801 - G-11000
Fimmtud. 4. G-11001 - G-11200
Föstud. 5. G-11201 - G-11400
Mánud. 8. G-11401 - G-11600
Þriðjud. 9. G-11601 - G-11800
Miðvikud. 10. G-11801 - G-12000
Fimmtud. 11. G-12001 - G-12200
Föstud. 12. G-12200 og yfir
Skoðun fer fram við Suðurgötu 8, Hafnar-
firði.
Skoðun fer fram frá kl. 8.15-12.00 og 13.00-
16.00 á öllum skoðunarstöðum.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi, svo
og ljósastillingarvottorð.
Athygli skal vakin á þvi að skráningar-
númer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima, verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
og Garðakaupstað.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu,
3. ágúst 1979.
Einar Ingimundarson.
Sá gamli Khomeini þykir ekki lambið aö leika sér viö, og nú vilja stuöningsmenn hans ekki lengur þola
þaö aö fólk leyfi sér aö fara I mótmælagöngur. Teikningin sýnir Khomeini í hópi hinna fjögurra nafntog-
uöu reiömanna, sem i þjóötrú hafa ekki boöaö neinn gleöiboöskap. Þannig sjá margir andstæöingar
þennan hára öldung og valdsmann, en yst til hægri riöur sá gamli meö ljáinn, en hinum megin bregöur
trúarleiötogi Persa sveröi slnu albúinn til „hreinsunarverkanna”.
Barsmíðar og læti i Teheran:
„BURT MEÐ YKKUR!”
Prentfrelsi afnumið með lögum
Teheran/Reuter — Hundruö
unglinga réöust i gær á fjölda-
göngu i Teheran og bik-öu á
göngumönnum meö hnúum og
hnefum. Beittu árásarmenn kylf-
um, hnifum og hnúajárnum 1
atlögu sinni og tókst þeim aö
leysa fjöldagönguna upp.
Fjöldaganga þessi var farin til
þessaö knýja á um prentfrelsi og
skoöanafrelsi í landinu. Ungling-
arnir æptu: „Drepum kommún-
istana” þegar þeir létu til skarar
skríöa gegn göngumönnum.
Margir þeirra héldu myndum af
Ayatollah Khomeini hátt á loft og
lofuöu nafnhans, um leiö og þeir
létu höggin rlöa á fólkinu.
Um leiö og þeir rifu niöur
kröfuspjöld göngumanna, þar
sem m.a. var mótmælt lokun
helsta dagblaös landsins, æptu
þeir: „Khomeini mun mylja und-
ir fótum sér alla tilræöismenn,
bæöi til hægri og vinstri”.
Margir göngumennhlutu mikla
áverka, og ekki var kvenfólkinu
hlíft.
Þessi árás var hámark hvers
kyns ofbeldis, sem stuðnings-
menn prentfrelsis uröu fyrir I
Teheran I gær, en sl. þriöjudag
var dagblaöiö, Ayandegan, lýst i
bann af stjórnvöldum.
Höföu einkum oröiö háværar
skærur og hróp mikil i nágrenni
háskólans I Teheran. Hótuöu bylt-
ingarsveitir vopnavaldi ef menn
reyndu elii aö stilla skap sitt þar
fyrr um daginn.
Ný lög um fjölmiðlun veröa
væntanlega gerö heyrum kunn
næstkomandi sunnudag, en bylt-
ingarráð landsins samþykkti þau
sl. þriöjudag. Ergertráö fyrir þvi
aö lögin setji ramar skoröur viö
frjálsum dagblööum.
Bandaríkjamenn og Vletnamar
Stj órnmálasamband
í augsýn
Hanoi/Reuter — Utanrlkisráö-
herra Víetnams skýröi frá þvl i
gær aö nú stæöu yfir viöræöur
milli Vietnama og Bandarlkja-
manna um aö taka upp eölilegt
samband og samskipti milli þess-
ara fornu fjenda.
Utanrlkisráöherrann skýröi
bandariskum fréttamönnum,
sem staddir eru I Hanoi, frá því
aö fyrir tveimur mánuöum heföu
bandarlskstjórnvöld fariöfram á
þaö aö viöræöur þessar hæfust aö
nýju, en þær stöövuöust I
september á fyrra ári.
Ekki fylgdi þaö sögunni hvar
þessar viöræöur fara fram eöa
hverjir taka þátt I þeim. Utan-
rikisráöuneyti Bandarlkjanna
hefur ekki fengist til þess, fremur
en Vietnamar, aö gefa frekari
upplýsingar um máliö, en I gær-
dag var þaö haft eftir talsmönn-
um Bandarikjastjórnar aö yfir-
íysing kæmi innan tiöar.
Utanrlkisráöherra Vietnams
sagöi viö fréttamennina, aö eng-
inn ágreiningur væri milli rikj-
anna um aö taka upp eölileg sam-
skipti, og aö viöræöurnar heföu
veriö vel á veg komnar þegar þær
stöövuöust á slöasta ári.
Hins vegar sagöi hann aö
Bandarikjamenn heföu þá haft
meiri áhuga á því aö tala viö Kln-
verja, en sem kunnugt er tóku
Kínverjar og Bandarikjamenn
upp stjórnmálasamband fyrir sl.
áramót.
Þá hefur sjöundi floti Banda-
rlkjamanna undan ströndum
Vletnams veriö stjórnvöldum þar
þyrnir i auga, en fbtinn er þarna
til þess einkum, aö sagt er, aö
hjálpa flóttafólki.
Utanrlkisrábherrann lét svo um
mælt I gær, aö Bandaríkjamenn
gætu vel látiö sér nægja aö hafa
þarna venjuleg farskip flótta-
mönnum tilaöstoöar, ogsvoværi
Bandarikjamönnum sæmst aö
„hafa ekki svona hátt” út af
þessu öllu saman.
Suður-ítalia:
SEIÐSKRATTAR 06 BÚALIÐ
fagna regnl
Benevento/Reuter — Það er mikið um dýrðir þessa dagana meðal töfra-
manna og seiðskratta á Italiu.
I gær rigndi fyrsta sinni I sex
vikur i sveitunum austur af
Napóll á Suöur-ítaliu, og telja
seiöskrattar aö særingaþulum
þeirra sé þaö aö þakka.
Bændur suöur þar voru orðnir
langþreyttir og gengnir upp aö
hnjám vegna þurrka og upp-
skerubrests af þeim sökum.
Eftir aö hafa beöið til heilagrar
Maríu Guösmóður, gripu þeir til
blótsyröanna svo sem mönnum
er titt, en allt var þaö án árang-
urs.
Kom þeim þá þaö forna úr-
ræöi i hug aö leita til fjölkunn-
ugra. Fyrst þurfti þá aö semja
um greiöslur, en sakir þeirrar
fátæktar sem þarna rikir voru
bændum nú góö ráö dýr.
Seiðskrattar eru um margt
ólikir Guöi almáttugum, m .a. aö
þvi leyti aö þeir heimta greiðslu
fyrir ómak sitt. Þaö varö þvi
mikill fögnuöur meðal bænda og
búaliðs er galdramenn kváðust
mundu þiggja greiðslur I friðu.
Var samiö um fullar greiöslur
I kjúklingum, kaninum, ólivu-
oliu og hveiti, en ókindurnar
hétu þvi aö eigi myndu tveir
sólarhringar liöa áöur en
ákvæöisorö þeirra og illar bænir
myndu hrifa svo máttarvöld
myrkranna aö steypiregn yröi.
Samningar náöust sl. þriöju-
dag.
Þegar tvær klukkustundir
liföu uns frestur fjölkynngis-
manna liöi út, hófst mikið regn,
og segir ekki af þvi hvern bænd-
ur lofuðu, en seiöskrattar
þykjast vita fyrir vist hvers
kyns er.
Aðspurðir segja töframenn-
irnir aö þeir hafi fórnaö geit og
kráku. Síöan hafi þeir ákallaö
þokkaskepnurnar: „Allas,
Silias, Trilias og Atanas” og’
heitiö á höfuöanda hinna fjög-
urra veraldarhorna sér til full-
tingis.
Þykir nú horfa snöggtum bet-
ur um uppskeru og búskap I
sveitunum umhverfis Napóli, en
fjölkynngi er af alþýöu suöur
þar talin árangursrik i meira
lagi.