Tíminn - 17.08.1979, Blaðsíða 1

Tíminn - 17.08.1979, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf.370 ■ Reykjavík Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 ■ Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Sparnaðaraðgerðir í innanlandsflugi Flugleiðir hefja rekstur Twin Otter véla í byrjun október • Horfið aftur til tima DC-3 vélanna, segja flugmenn AM — Flugleiöir munu á næst- unni eöa fyrir októberbyrjun hafa i hyggju aö hefja flug til Vestmannaeyja og Þingeyrar meft Twin Otter flugvélum, eins og Vængir og Flugfélag Noröur- lands hafa lengi notaö. Mun meö þessu ætlunin aö fylla þaö skarö sem myndast meö sölu einnar af fimm Fokkervélum félagsins. Stefán Gunnarsson, flugstjóri, sagöi blaöinu i gær aö þessi ákvörðun mundi hafa það í för meö sér aö ekki yrði flogið eins reglulega á þessa staði og ella, þar sem Otter vélarnar væru verr undir vetrarferðir búnar en Fokkerinn, bæði hægfleygari og lágfleygari, sem veldur þvi að þær geta ekki flogið upp fyrir vond veður, eins og hann. „Frá öryggislegu sjónarmiði er ekki hægt að gagnrýna þetta aö minni hyggju,” sagöi Stefán, „en þetta er geysimikið skref aftur á bak. Þessi vél er hentug fyrir vonda flugvelli og litinn farþegafjölda og þetta eru vinnuþjarkar þessar vélar. En þær geta ekki gert það sama og stóru vélarnar og flugdagarnir verða færri. Við flugmenn höld- um þvi fram að eins og sakir standa sé ekki meira fjármagn bundið i Fokkernum en það að þetta séu vafasöm skipti. A Otter vélarnar þarf jafn marga flugmenn, og stóru vélarnar. Með þessu er verið að fara aftur á tima DC-3 vélanna.” Þessi skipti munu að sögn Stefáns vera að skapi Vest- manneyinga, sem vilja auka tiðni flugferða þangað, en far- þegafjöldi i Eyjafluginu hefur verið óstöðugur eftir að Herjólf- ur kom. í illviðratið biðu menn áður eftir góðu flugveðri en fara nú með skipinu. Eins og áður segir munu skiptin eiga sér stað i byrjun október, en fyrir september- byrjun verða Flugleiðir aö ákveða hverjum verður sagt upp af flugliðinu og enn þarf að þjálfa menn á nýju vélarnar. Upphaflega mun hafa verið ætl- unin að leigja aðra Ottervél Flugfélags Norðurlands, en hún brann þá á Grænlandi, svo sú hugmynd var þar með úr sög- unni. Getur Ragnar ekki friðað Torfuna? HEI — „Fyrst vil ég nefna, aö af fréttatilkynningu menntamála- ráöuneytisins sé ég nd ekki ljós- lega hvort friöun (Bernhöftstorf- unnar) sé ákveöin, eöa ætlunin sé aö ákveöa hana slðar. Þar sem ekki liggur fyrir aö ákvæöum laga frá 1969, um þessi mál, sé Jan Mayen viðræður i Reykjavik HEI —tslendingar og Norö- menn hafa komið sér saman um aö fundur vegna Jan Mayen málsins muni hefjast I Reykjavik 29. ágúst nk. hér i Reykjavik. Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra var spuröur hvers vegna Norð- menn teldu sig þurfa að hafa samband við EBE og Sovét- rikin vegna samninga um Jan Mayen. Kvað hann það koma sér mjög spánskt fyrir sjónir að þeir þyrftu að bera sig saman viö aðrar þjóðir i þessu máli og taldi ekki að íslendingar þyrftu að gera slikt. fulinægt og eigi er heldur fyrir hendi vitneskja um þinglýsingu og tilkynningar samkvæmt 28. gr. nefndra laga, viröist veröa aö lita á fréttatilkynninguna sem friö- unaráform”. Þetta sagöi ólafur Jóhannesson, forsætisráöherra, er hann var spuröur álits á um- ræddri friöun. Ólafur tók fram, að hann hygöist ekki gera þetta að miklu deilumáli, en þætti rétt að sitt sjónarmið kæmi fram, m.a. vegna viðtals sem birst hefur viö menntamálaráðherra um málið. Þar sagði hann að mikill meiri- hluti hafi verið fyrir þessari ákvöröun I rikisstjórninni. Svo varnú ekkiþarsem 3voruámóti, 2 með og 2 voru að visu með frið- un en tóku ekki afstöðu um hvort biöa ætti ákvörðunar Alþingis um máliö. A blaösiöu 5ITImanum i dag er ýtarlegt viðtal við Ólaf um Torf- una, þar sem hann segir m.a. aö með yfirlýsingu sinni hafi menntamálaráðherra gengið inn á verksvið forsætisráðherra i þessu máli, þar sem það sé .i verkahring forsætisráðherra, að sjá um framgang byggingar stjórnarráöshúss á Torfunni. SU ákvörðunvar á sinum tima tekin meövitundog vilja Alþingis. Þvi hlýturbreyting þar á að koma frá Alþingi en ekki einstökum ráö- herrum. ||jfljjj§ Skipverjará Hákoni voruaö tygja sig til veiðanna I gærdag. (Timamynd: Tryggvi) 50-60 skip halda á loðnuveiðar næstu daga Þau fyrstu fóru í nótt • Verksmiðjurnar flestar búnar til móttöku AM — „Fy rstu skipin fara trúlega af staö upp úr næsta miðnætti”, sagöi Andrés Finnbogason hjá Loðnunefnd, þegar Timinn ræddi viö hann í gær. „Ég veit ekki hvort ailir eru tilbdnir enn, en þetta er svipaöur floti og ásiöustu vertiö, 50-60 skip”. Andrés sagöi, að enn væri ekki gott aö segja hvar loðnuna væri aö finna, enda hefði fátt fengist upp Ur fiskifræöingum, sem að undanförnu hafa einkum lagt á- herslu á austursvæðið, þar sem á- stand virtist heldur bágborið. Ekki væri vitáð hvort is væri á vestursvæðinu nU, en þessi mál mundu að sjálfsögðu skýrast fljótlega. Starfi loðnunefndar verður háttaðnU eins og áður, en nefndin fylgist meö löndunarplássum, hvaða verksmiðjur eru viöbUnar að taka við afla og hve miklu. Starfið við þetta er afar bindandi, en Andres hefur verið viö þetta frá þvi' er nefndin hóf starf fyrir sex árum. Auk vinnudags á skrif- stofu Loðnunefndar fylgir bak- vakt heima fyrir 5 daga vikunnar, oger þvióhættaö segja, að fri eru litil. Afleysingamenn stunda önn- ur störf jafnframt og verður hann þvi að haga fritima sinum eftir þvi. Loðnuverksmiðjurnar voru 23 talsins I vetur, en litlu loðnuverk- smiðjurnar á Austurlandi voru þá ekki með. Taldi Andrés að verk- smiðjurnar mundu flestar vera tilbúnar til að hefja starfsemi, eða verða það nú um mánaðamót. Þeim hefur verið illa við sumar- loðnuna vegna geymsluerfið- leika, en hann taldi aö ástandið færióðum að skána úr þessu, þar sem svo langt er liðið á sumar. Afkastageta þeirra mun nú vera um 12 þúsund lestir. Hann sagöi ástand þeirra og búnaö vera að lagast heldur frá ári til árs, þar sem sifellt er unniö að einhverj- um endurbótum, en ástandið var orðið slæmt á timabili. Vantaði þó mikið á aö búnaöur þeirra mætti teljast fullkominn. Andrés vildi ekki spá neinu um þessa vertið, en minnti á að sé á- standið jafn slæmt og fiskifræð- ingarsegja, yrði varla mikið fisk- að, þar sem magnið er þá ekki fyrir hendi. Keppa í hand- fœraveiðum — sjá bls. 8 *..... „Þú átt að vaska upp Jóhann Valdimar” — sjá bls. 9 * ..... Fegurðarverðlaun Reykjavikurborgar — sjá bls. 10 -

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.