Tíminn - 18.08.1979, Blaðsíða 2
2
Laugardagur 18. ágúst 1979
Bllarnir frá Gunnari Guömundssyni koma meö flakiö á Reykjavlkurflugvöil. Til vinstri er fulltrúi nýrri tima flugsögunnar
Árangur mikils erfiðis og átaka
Flakið af Northrop
flngvélinni kom tii
Revkiavikur i gær
• Númerið á flugvélinni var annað en taaldið var
AM — í gærmorgun kom
flakið af norsku Northrop
flugvélinni/ sem nýlega
var dregið upp af botni
Þjórsár/ til Reykjavíkur.
Margir aðilar lögðu leið-
angrinum lið við verkið/
en í honum voru meðal
annars flugmaðurinn, sem
stjórnaði vélinni þegar hún
nauðlenti þarna 1943, W.
Bulukin, og Leo Gay, frá
Northrop verksmiðjunum,
en þær munu endurbyggja
vélina. Verður hún siðan
settá safn, en þetta er eina
flugvél þessarar tegundar
i heiminum. Leiðangur-
stjóri var Ragnar J.
Ragnarsson.
Það var flutningafyrir-
tæki Gunnars Guðmunds-
sonar, sem flutti flakið til
Reykjabíkur, en fyrirtækið
hefur annast margs konar
flutninga í sambandi við
verkið, svo sem flutning
jarðýtu austur og fleira.
Það vakti athygli þegar
f lakið náðist upp að númer
hennar var annað en menn
töldu samkvæmt norskum
skýrslum, en það átti að
vera talan 18. Á flakinu
stendur hins vegar talan
20. Guðjón Jónatansson í
Björgunarsveitinni Albert
sagði Tímanum í gær að
hér gæti verið um skýran-
legan misskilning að ræða,
að því er hann heyrði fróða
menn hafa sagt, ef til vill
er um misminni manna að
ræða.
Vélin var að koma frá
Búðareyri við Reyðarf jörð
að vetrarlagi árið 1943,
þegar flugmaðurinn villt-
ist í snjókomu og nauðienti
á ánni, en vélinni var verið
að f Ijúga suður, til þess að
rifa hana þar í brotajárn.
Vélin var sjóflugvél, en
lenti á grynningum á ánni
í lendingu og reif undan
sér annað flotholtið. Voru
örlög hennar þar með ráð-
in.
Afar örðugt var að ná
vélinni upp af árbotninum
og lögðu kafarar, starfs-
menn Landsvirkjunar,
Guðmundur Hermaníusson
og menn hans ásamt
Björgunarsveitinni Albert,
fram geysilegt og gott
starf við verkið
Texti: AUi Magnússon
Myndir: Róbert Ágústsson
Bflstjórarnir Jón ólafsson og Vilberg Guömundson huga aö farminum I
Neðra Breiöholtinu
Þótt byssubófinn á myndinni eigi enga sök á ásigkomulagi flugvélar-
innar ibaksýn, er hann greinilega til alls vis. Á skrokk flaksins má lesa
hina óvæntu tölu 20, sem átti samkvæmt bestu heimildum aö vera 18.
Hér má llta meginhluta flaksins. Engar teikningar eru til af vélinni, en
flugvélasmiöirnir munu samt ekki eiga I vandræðum meö aö færa hana
til upprunalegs horfs.
Auglýsið í Tímanum
bflpallinum.
Hér er hlutunum snúiö viö: Vængurinn svlfur I krana niöur af bllpallinum.