Tíminn - 23.11.1979, Blaðsíða 8
8
Föstudagur 23. nóvember 1979
1 BÓKAFREGNIR
Faliðvald
eftir Jóhannes Björn
„Heimuræöri viöskipta og al-
þjóölegs leynimakks er lokaöur
heimur, þar sem ákvaröanir
fárra Utvaldra ráöa örlögum
milljóna einstaklinga i öllum
löndum. FALIÐ VALD gefur
okkur innsýn i þennan dular-
fulla heim”, svo segir á kápu
nýrrar bókar sem Bókaútgáfan
Orn og Orlygur hefur sent á
bókamarkaö og er eftir ungan
Islending, Jóhannes Björn. Jó-
hannes hefur aö mestu veriö bú-
settur erlendis siöustu árin og
dvaliö langdvölum i Sviþjóö og
Englandi. Hann hefur lagt stund
á félagsfræöi, auk náms i
sundurgreiningu upplýsinga
(Data analysis) og Public
Relations. Jóhannes hefur einn-
ig lagt stund á kerfisbundnar
rannsóknir á sviöi stjórn- og
peningamála, birtast niöurstöö-
ur þeirra rannsókna i þessari
bók. Þetta er önnur bók höfund-
ar, áöur hefur komiö út eftir
hann ljóöabókin Blástjörnur.
t formála bókarinnar segir
Jóhannes Björn m.a.: „Þær
upplýsingar sem koma fram i
þessari bók eiga vafalaust eftir
aö vekja óhug hjá sumum les-
endum og valda fjaörafoki hjá
öörum, þvi hér er fjallaö um
hluti sem venjulegt fólk á oft er-
fitt meö aö imynda sér aö geti
gerst og lengstaf hafa legiö i
þagnargildi. Hér er einnig
fjallaö um skipulagöar kreppur
og byltingar, ólýöræöislegt
leynimakk staöbundinna og al-
þjóölegra leynifélaga, furöulega
starfsemi bandariskra auö-
hringa 1 RUsslandi, arövænlegt
starf sömu auöhringa i Þýska-
landi Hitlers, nokkra rikustu
menn jaröarinnar, hvernig
bankakerfiö skapar sér auö úr
enguog margt fleira i svipuöum
dúr. Megi þessi bók veröa til aö
glæöa skilningá raunverulegum
vandamálum liöandi stundar”.
Bókin er filmusett, umbrotin
og prentuö i prentstofu G. Bene-
diktssonar, bundin i Arnarfelli
og kápumynd geröi Ernst Bach-
mann.
Margaret
Trudeau
segir frá
Ot er komin á vegum IÐUNN-
AR bókin MARGARET
TRUDEAU: t hreinskiini sagt.
Rekur þar fyrrverandi eigin-
kona Pierre Trudeau, áöur for-
sætisráöherra Kanada og for-
ingja Frjálslynda flokksins,
lifshlaup sitt. Segir hún frá upp-
vaxtarárum sinum, lífi meöal
hippa, tilhugalifi sinu og for-
sætisráöherrans, hjónabandi
þeirra og embættisskyldum, og
loks endalokum sambúöar
þeirra. 1 kynningu bókarinnar
segir svo meöal annars:
„Vegna stööu sinnar fór
Margaret Trudeau f margar
opinberar heimsóknir,
j kosningaferöalög, veislur hjá
I þjóöhöföingjum og stjórnmála-
mönnum. En fœ-mreglurnar,
öryggisráöstafanirnar, öll
sýndarmennskan lagöi höft á
frelsisþrá hennar sem henni
fundust aö lokum óbærileg.
Þegar hún haföi náö tökum á
prótókollinum kæröi hún sig
ekki lengur um aö fara eftir
honum. A opinskáan og lifandi
hátt leiöir hún hér fram fólk eins
og bresku konungsfjölskylduna,
Jimmy Carter, Fidel Castro,
Alexei Kosygin, Chou en Lai,
Rolling Stones. Engin kona
þjóöarleiötoga á áttunda ára-
tugnum hefur veriö jafn umtöl-
uö og gagnrýnd og Margaret
Trudeau”.
Caroline Moorhead skráöi
frásögn Margaretar og skiptist
hún i þrettán kafla auk formála
og eftirmála. Fjöldi mynda er i
bókinni. Þýöinguna geröi Birna
Arnbjörnsdóttir. Prisma
prentaöi.
ÞRAUTGOÐIR
ARAUNASTUND
í 1. ÞífXii b|órgor>»»-
Tímf hwjná opm
túfcfsMÞa. AOMtWArMtx*
\9Q7~-1*10. ixmma
Ko«s Ttyespe tór«, Hra nd lnvfu
Ska&ntrtfíd ag sfótlft *íó Vík i
Þrautgóðir á
raunastund
eftir Steinar J. Lúöviksson
II. bindi Björgunar- og s jósiysa-
sögu lslands
Út er komiö 11. bindi bóka-
flokksins ÞR AUTGÓÐIR A
RAUNASTUND eftir Steinar J.
Lúöviksson. Útgefandi er
Hraundrangi.Þettabindi fjallar
um árin 1907-1910, aö báöum ár-
um meötöldum. A þessum árum
vorusjóslys og hrakningar tiöir
viöburöir viö Island, enda enn
timi hinna opnu róöraskipa.
Vélbátar voru þó aö koma til
sögunnar og skúturnar gegndu
einnig stóru hlutverki i útvegi
iandsmanna. Meöal atburöa i
bókinni má nefna er Kong
Tryggve fórst i is fyrir Noröur-
landi, er póstskipiö Laura
strandaöi viö Skagaströnd,
hörmulegt slys ervarö viö upp-
skipun i Vik i Mýrdal og strand
Premiers viö Oræfi svo eitthvaö
sé nefnt.
Aö vanda eru myndir i bókinni
tengdar efni hennar og má sér-
staklega geta mynda eftír Einar
Einarsson kaupmann i Grinda-
vik sem varpa skýru ljósi á
horfin vinnubrögö og tæki i
sjávarútvegi Islendinga.
Bókin Þrautgóöir á rauna-
stund er filmusett, umbrotín og
prentuö i prentstofu G. Bene-
diktssonar en bundin i Arnar-
felli hf. Kápumynd geröi Sigur-
þór Jakobsson.
Tryggva
saga
Ófeigssonar
Úterkomin hjá Skuggsjá ævi-
saga Tryggva Ófeigssonar
skráö af Ásgeiri Jakobssyni.
A bókarkápu segir m.a.:
„Tryggvi Ófeigsson er engum
öörum manni likur og þessi ævi-
saga hans er engri annarri ævi-
sögu lik. Tryggva saga Ófeigs-
sonar er ævintýri. Hún er ævin-
týriö um fátæka piltinn sem
vinnur sér fé og frama meö
dugnaöi og hagsýni, sjálfs-
trausti oghyggindum. Atta aur-
ar var fýrsta timakaupiö hans
og fermdur átti hann ekki tiu
krónur fyrir fari til róöra austur
á Fjöröum. Rúmum fimm ára-
tugum seinna átti hann fjóra
stóra togara.myndarlegt hraö-
frystihús og fiskverkunarstöö
og haföi mörg hundruö manns i
vinnu til sjós og lands".
Bókin er 400 blaösiöur aö
stæröog aftastihennierýtarleg
nafnaskrá.
FORN
„Fróðleikur
úr þjóðar-
sögunni”
eftir séra Agúst Sigurösson á
Mæiifelli
Séra Agúst Sigurösson er
þjóökunnur fyrir fræöistörf sín I
ræöu og riti og nú hefur hann
sent frá sér á vegum Bókaútgáf-
unnar örn og örlygur bókina
FORN FRÆGÐARSETUR. Bók
þessi er sjór af fróöleik úr
þjóöarsögunni, fjölbreytt mjög
og skemmtileg aflestrar. Fjöldi
teikninga og annarra mynda
prýöa bókina.
Séra Agústrekurbyggöarsög-
una, fjallar um hin veglegu
kirkjuhús fyrri alda og stór-
bæjarbraginn á höföingja-
setrunum. Hann rekur presta-
taliö og koma þar margir viö
sögu. Þá segir hann frá furöu-
legum dómi prófastsins i Vatns-
firöi er hann dæmdi bróöur sin-
um, bóndanum i Grunnavik
hvalreka staöarins á Snæfjöll-
um. Þáergetiö hinna þjóöfrægu
reimleika á Snæfjöllum og
Spánverjaviganna. Ýmsir ör-
lagaþættir veröa ljóslifandieins*
og um prestinn, sem settur var
ofar á skáldabekk en sira Hall-
grimur Pétursson. Getiö er
galdratilrauna Grimseyinga,
vikiö aö gróflegum kveöskap
Hjálmars Jónssonar á yngri ár-
um og málaferlum sem af
spunnust og svo mætti lengi
telja.
Forn frægöarsetur er 284
blaösiöur og fylgir Itarleg
nafnaskrá og upplýsingar um
heimildir og margs konar
skýringar. Bókin er filmusett,
umbrotin og prentuö i prent-
stofu G. Benediktssonar, er
bundin i Arnarfelli. Kápumynd
geröi Ernst Bachmann.
Á brattann
— ævisaga Agnars
Kofoed-Hansen
eftir Jóhannes Helga
Almenna bókafélagiö hefur
sent frásérbókina Abrattann —
ævisögu Agnars Kofoed-Hansen
eftir Jóhannes Helga. Þetta er
mikil bók, 330 bls. að viðbættum
32 myndasiðum.
Abrattann,minningar Agnars
Kofoed-Hansen er saga um
undraveröa þrautseigju og
þrekraunir meö léttu og bráö-
fyndnu ivafi.
Höfundurinn er Jóhannes
Helgveinn af snillingum okkar i
ævisagnaritun meö meiru. Svo
er hugkvæmni hans fyrir aö
þakka aö tækni hans er alltaf ný
meö hverri bók.
1 þessari bók er hann á ferö
meö Agnari Kofoed-Hansen um
grónar ævislóöir hans, þar sem
skuggi gestsins meö ljáinn er
aldrei langt undan. Gerö eru
skil ættmennum Agnars báöum
megin Atlantsála og birtu
brugöiö á bernsku hans undir
súö á Hverfisgötunni, þar sem
hann i langvinnum veikindum
dreymir um aö fljúga. Rakiö er
stórfuröulegt framtak hans og
þrautseigja I danska flughern-
um og flugferill hans I þjónustu
erlendra flugfélaga, þegar
stundum kvaö svo rammt aö i
náttmyrkri og þoku, aö lóöa
varö á jörö meö blýlóöi. Heim-
kominn hefur hann forgöngu um
stofnunflugfélags — og hefst þá
brautryöjendaflug hans, upphaf
samfellds flugs á Islandi oft á
tiöum svo tvisýnt aö nánast var
flogiö á faöirvorinu.
En Jóhannesi Helga nægir
ekki aö rekja þessa sögu. Hann
lýsir af og til inn ihugarheim
Agnars, utan viö tima sögunnar,
og gefur henni þannig óvænta
vidd.
A brattann er unnin i Prent-
smiöjunni Odda og Sveinabók-
bandinu.
Kínaævintýrí
Rit þetta er samiö upp úr dag-
bókarblöðum höfundar frá 1956,
en þá fór hann i islenskri sendi-
nefnd austur til Kina. Lýsir
Björn Þorsteinsson sagnfræö-
ingur á skemmtilega persónu-
legan hátt hvernig hiö fjarlæga
og framandi riki kom honum
fyrir sjónir þegar þaö var að
risa úr rjúkandi rústum styrj-
aldar og byltingar á dögum
kalda striösins, en gæöir frá-
sögnina einnig margvíslegum
fróöleik, gömlum og nýjum, svo
aö baksviö bókarinnar er eins-
konar heimsmynd og veraldar-
saga.
Kinaævintýri skiptist I þrjá
meginhluta sem nefnast: Ferö-
inaustur, í Kina og A heimleiö.
Loks rekur höfundur I eftirmála
þróun atburða og .viöhorfa I
Kina siðustu áratugi og allt til
liöandi stundar.
Kinaævintýrier 132 blaösiöur aö
stærö, prentaö i Eddu. Bókin er
prýdd ljósmyndum úr Kinaför-
inni og litmyndum eftir Magnús
heitinn Jónsson, prófessor, al-
þingismann og ráöherra, en
hann var meðal þátttakenda i
sendinefndinni.
BÓKAÚTGAFA
MENNINGARSJÓÐS
Vésteinn Ólason
Sagnadansar
Bók þessi er hin fimmta i
flokknum Islensk rit. Hefur Vé-
steinn Ólason búiö Sagnadansa
til prentunar en Hreinn Stein-
grimsson bókarauka: Lög viö
islenska sagnadansa. Eru
Sagnadansar gefnir út af Rann-
sóknarstofnun i bókmennta-
fræöi viö Háskóla Islands og
Menningarsjóði. Ritstjórn
bókaflokksinshafa meö höndum
Njöröur P, Njarövik, Óskar ó.
Halldórssonog Vésteinn Ólason.
Sagnadansar hefjast á itarleg-
um inngangi Vésteins Ólasonar.
Þá koma dansarnir er skiptast i
fjóra meginflokka: Kvæöi af
riddurum og frúm. Kvæði af
köppum og helgum mönnum,
Gamankvæöi og Brot. Enn-
fremur flytur bókin skýringar
og athugasemdir, svo og
greinargerð um útgáfur og
heimildir. Loks er bókaraukinn
Lög viö sagnadansa,en hann er
algerlega s jálfstætt verk og hef-
ur Hreinn Steingrimsson haft
af honum allan veg og vanda.
Sagnadansar eru 435 blaösiöur
aö stærö og bókin sett, prentuð
og bundin I Prentsmiöju
Hafnarfjaröar.
Áöur hefur komiö út I bóka-
flokknum Islensk rit: Jón Þor-
láksson: Kvæöi, fumort og
þýdd.úrval., Bjarni Thoraren-
sen: Ljóðmæli. Úrval., Daviö
Stefánsson: Ljóö. Úrval., Þor-
gils gjallandi: Sögur. Úrval.
BÓKAÚTGAFA
MENNINGARSJÓÐS