Ísafold - 30.07.1880, Blaðsíða 4
76
hátt draga menn stundum mörg hundr. ádag.
|>eir sem hafa stóra báta, hafa hús í aptur-
enda (skut) og liggja opt úti fleiri dægur,
hafa með sjer mat og hita kaffi o. s. frv., og
fiska þeir opt betur, sem hafa iitbúnað til að
liggja svo lengi á sjónum, því þá geta þeir
betur passað upp á þegar fiskurinn vill bíta,
því stundum verður máske ekki vart með
öðru sjávarfalli þó nógur fiskur sje með hinu ;
þeir sem hafa þar á móti litla báta, verða
optar að vera á landi og hitta svo máske
ekki á að róa á rjettum tírna.
Til þess að keipa og draga í, brúka þar
allir lítið hjól er þeir, festa í borðstokkinn,
og er því mikið ljettara að draga og slítur
minna færum.
Einstöku menn brúka lóð á Finnmörk,
sem er sett upp á sama hátt og í Lofoten,
sem jeg hefi áður lýst; en til beitu brúka
þeir loðnusýld, sem opt er svo mikið þar efst
upp í víkum og fjörðum, að þeir geta ausið
henni upp í bátana, með smáum háfum, er
þeir binda á trjeskapt hjer um bil 2J al. að
lengd; einnig veiða þeir loðnusýld með á-
dráttarnót, þegar hún er upp í fjörðum, leggja
nótina útfyrir loðnutorfuna, og draga svo
báða enda upp að landi, á sama hátt og þeg-
ar dregið er á fyrir hafsýld.
Loðnusýldar nætur þær er jeg sá á
Finnmörk, voru á ýmsri lengd frá 15—25
faðma, 3.—4. faðrna á dýpt, og mjög smá-
riðnar úr fínu nótgarni.
p. t. Sörvaagen i Moskenæs 24/5 8o.
I. Helgason.
AlÞingiskosningar. — 1 Rangárvallasýslu
munu, auk Sighvatar Arnasonar, að sögn,
þessir bjóða sig fram sem þingmannaefni:
þorvaldur í Nripaköti, Skúli á Fitjamýri og
Jón í Austvaðsholti. I Arnessýslu er mælt,
að þessir muni verða hlutskarpastir: Jón
Arnason í þorlákshöfn, og síra Yaldimar
Briem. I Skaptafellssýslu vilja margir hafa
Olaf umboðsmann Pálsson á Höfðabrekku í
stað síra Páls á Stafafelli Pálssonar, og væri
æskilegt, að því mætti verða framgengt, þar
eð Olafur umboðsmaður er greindur maðr
vel, hefir mikinn áhuga á almenningsgagni
og er einkar vel þokkaður af öllum, sem eiga
við hann að skipta. Sagt er og að síra
Hannes Stephensen á Mýrurn bjóði sig
fram í Skaptafellssýslu.
Svo er að sjá á »Skuld«, sem ritstjóri
blaðsins, Jón Olafsson, muni líklegur til að
ná kosningu í Suðurmúlasýslu. þótt Múla-
sýslubúar hafi yflr höfuð ekki verið heppnir
með að kjósa innanhjeraðs þingmenn, þá
væri þessi kosning þó vottur um talsverða
apturför. því stórum betri voru þeir fyrri
þingmenn þeirra, Páll Olafsson, Einar Gísla-
son og jafnvel Björn Pjetursson, heldur en
þetta, sem, oss vitanlega, ekkert hefir til
síns ágætis, nema það, að það komst ekki
gegnum latínuskólann, fór til Vesturheims
»kom svo til Islands aptur alla við skilið
prakt«, og hefir fyrr og síðar lifað á því að
svívirða sér betri menn, bæði lifandi og dauða,
en jafnan tekið illyrðin aptur, þegar gripið
er ofan í bakið á því. Suðurmúlasýslubúum
getur því varla gengið annað til að kjósa
svona, en að þeirviljaekkilátaþingmennsk-
una ganga úr ættinni. Annars hefðu þeir
allt eins vel getað sent á þing annan nafn-
■ kendan fjiilfræðing og ferðamann — Sölva
Helgason, ef hann er enn á lífi.
þlNGMENNSKA GUÐLEYSINGA.-----Bradlaugll
. nokkur varð við síðustu kosningu kosinn
þingmaðr á Englandi, en hafði verið svo
óvar í orðum, að afneita opinberlega bæði
tilveru guðs og óllum kristindómi. Nú eiga
þingmenn á Englandi eins og hjerá landiað
vinna eið að stjórnarskránni. þegar til kom
bauðst Bradlaugh, eins og von var af slíkum
manni, til þess, að sverja við Guðs nafn, þó
hann trúi ekki á neinn Guð. En hvað gjörði
fonnaður í neðri deild parlamentsins og þing-
menn með honum, þeir neituðu Bradlaugh,
að vinna eiðinn, svo hann hefir hingað til
ekki náð þingsetu, þó hann sje kjörinnþing-
maður. Sama ætti að gjöra við vora guðleys-
ingja, þegar líkt stendur á.
grasvöxtur er sunnanlands yfir höfuð
góðurátúnum og vallendi, enbágur áútj;irð.
Í Flóanum sjást sumstaðar enn þá ljáför frá
því í fyrra sumar. Sízt eru tún í Skaptafells-
sýslu ; enda hafa þar til skamms tíma geng-
ið breyskjuþerrar með hifum og sólskini.
Véstar hefir í hálfan mánuð verið þerrilítið
með mollum og deyfum. Heilsufar alstaðar
syðra gott manna á meðal. Laxveiði er góð
í Olfusá, en heldur lítil í þjórsá.
Próf i læknisfræði.— Frá læknaskólan-
urn í Reykjavík útskrifaðist í þessurn mán-
uði Davíð Seheving, með 1. eink.
Embættaveitingar. Sýslumanni í Skapta-
fellssýslu Einari Thorlacius er veitt Norður-
múlasýsla, og Skaptafellssýla dönskum lög-
fræðingi, Fischer. —
Brauðaveitingar. Asar í Skaptártungu
síra Brandi Tómassyni á Prestsbakka í
Hrútafirði; þóroddstaður í Kinn síra Ste-
fáni Jónssyni á Skútustöðum ; Prestsbakki
í Hrútafirði síra Páli Olafssyni á Stað í
Hrútafirði, og Otrardalur síra Steingrími
Jónssyni í Garpsdal.
Minnisvarði yfir Jón Sigurðsson. þeir
herrar Tryggvi Gunnarsson, Halldór Frið-
riksson, Hilmar Finsen, B. M. Olsen, og H.
Helgesen lrafi boðið Islendingum til sam-
skota til minnisvarða yfir Jón Sigurðsson.
þar eð vjer höfum orðið þess varir, aðmargir
vilja leggja kostnaðinn tilþessa upp á lands-
sjóð, leyfum vjer oss að benda mönnum á
það, að samskotin einmitt eru ætluð til að
sýna, hversunærri hjartaallra landsbúa Jón
Sigurðsson var, en þessa myndi enginn vott-
ur sjást, ef fjeð ætti að veitast af landssjóði.
það er því misskilningur á tilganginum, að
vilja hliðra sjer við að gefa til minnisvarð-
ans, en vísa þessu, eins og svo mörgu öðru,
til opinbers fjárframlags.
þjÓÐÓLFUR.—Af síðasta (20.) númeri þess
blaðs sjest, að hinn niiverandi eigandi þess,
síra Matth. Joohumsson, ætlar að hætta við
útgáfu og ritstjórn blaðsins. Mun það ekki
hvað sízt vegna þess, að honum (eins og fleir-
um) hafi fundizt örðugleikarnir á því, að gefa
út blað, svo miklir, og kostnaðurinn hins
vegar, svo þungur, að eigi væri á sig leggjandi
fyrir þann, eríaðra bjargvænlega stöðugæti
komizt,-—Æskilegt væri að »f>jóð.« kæmist
nú í góðar hendur, sem ólíkastar »Skuld« og
»Mána«. því af þess konar blöðum er nóg
komið, og ekki á bætandi. Síra Matthíasi
óskum vjer, að hann komist í þá stöðu, þar
sem hann í rósemi og næði getur sinnt söng-
gyðjunni.
1' Nýlega eru dáin í Kaupmannahöfn, frú
Ragnhildur Koch, dóttirlandshöfðingjans, og
Sigurður Hansen, landi vor, sem margt hefir
ritað ; landshagsskýrslunum í gagnfræðislega
stefnu.
AUGLÝSINGAR.
PÍANÓ-FORTE.— Skýrsla um verðlauna-
úrskurði, við sýninguna í Sidney, er nú kom-
in, og eru þeir Messrs. Brinsmead & Sons
sæmdir tveimur »fyrsta flokk« verðlaunum
og sjerstökuheiðursvottorði, sem hinir beztu
píanú-forte smiðirásýningunni. Næstirþeim,
en án heiðursvottorðs, eru : Messrs. Erard,
Messrs Steinway, Messrs Chickering, Messrs
Bechstein, Messrs Bliithner, Messrs Rönche,
og einn píanó-smiðr á Sidney. Menn segja,
að Englandi sje að hnigna, en í píanósmlði
hefir þó enskur smiður, að minnsta kosti á
Sidneyjar-sýningunni, komizt fram yfirfræg-
ustu írakkneska, ameríkanskaogþýzka smiði.
Yilji menn panta hljóðfæri frá þessum
smiðum, er heimili þeirra:
18 Wigmore Street.
London, W.
ÍSLENZK FRÍMERKI.—Brúkuð íslenzk
skildinga- og aura-frímerki kaupir undir-
skrifaður fyrir 1—4 kr. hundraðið, eptir því,
sem þau eru af fleiri tegundum.
Didrik Amundsen.
Engen, BERGEN, Norge.
ÁGRIP AF SÖGU ÍSLANDS, eptir síra
þorkel Bjarnarson á Reynivöllum, 9 arkir að
stærð. Verð 1 kr. hept í kápu, er nú ný prent-
að, og fæst til kaups hjá Páh Jóhannessyni
amtsskrifara, hjá bóksala Kristjáni Ó.
þorgrímssyni og póstmeistara Ó. Finsen,
og verður sent til bóksölumanna út um
landið með strandferðaskipunum og öðrum
hentugum ferðum.
FORNLEYFAFÉLAGIÐ heldur ársfund
sinn 2. ágústmánaðar 1880, kl. 6 e. m., á bæ-
j arþingsstofunni.
þar verður haldinn fyrirlestur um forn-
fræðislegt efni, gefnar skýrslur um athafnir
og afreikning fjel., og starfa þess framvegis.
FJÁRMARK Arna bónda Grímssonar á
Rafnkelstöðum í Garði: Hvatrifað bæði
eyru, Brennimark Á Gr.
Undirskrifaðan vantar rauðstjörnótta
hryssu, fjögra vetra gamla, óaffexta, fremur
magra. Mark á henni er: standfjöður aptan
hægra, blaðstýft framan vinstra. Hver sá er
hitta kynni hryssu þessa, er vinsamlega beð-
inn að gjöra mjer aðvart þar um að Hvalsnesi.
Hvalsnesi 25. júlí 1880.
B. Gunnarsson.
Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil.
Prentuð í Isafoldar prentsmiðju.