Ísafold - 25.09.1880, Page 1

Ísafold - 25.09.1880, Page 1
9 VII 24. Reykjavík, laugardaginn 25. septembermán. 1880. tftlendar frjettir. Kaupmannahöfn 29. ágúst 1880. Engin tíðindi enn orðin með Tyrkjum og Grikkjum. Stórveldin ánýjað áskorun sína til soldáns um að gjöra Grikkjum þau skil, er Berlínarfundurinn til tók. þykir það vott- ur þess, að þeim sje full alvara, og samheld- ið enn í góðu lagi. Enda er nú Gladstone orðinn nær alheill aptur. Eóstusamt á Irlandi á nýjan leik. Til- efniðþað, að rjettarbót, er Gladstone hafði í smíðum handa leiguliðum á Irlandi, var hrunaið í lávarðardeildinni í parlamentinu, fyrir andróður írskra landeigenda. Ófriðnum i Suður-Ameríku heldur enn áfram. Chilimenn hafa setið um Callo, hafn- arborg Perúmanna, lengi sumars með fiota sínum. Hinn 3. f. m. tókst Perúmönnum að vinna hinum allmikið mein með vjelræði nokkru: þeir Ijetu smábát, hlaðinn aldinum, rekast mannlausan nærri einurn mesta byrð- ingi hinna, en höfðu fólgið sprengivjel undir farminum, og búið svo um, að hún kveikti sjálf í sjer, er farminum var ljett; byrðings- menn hirtu fenginn, en ljetu h'f sitt fyrir, 150 saman, því vjelin sprengdi byrðinginn mjölinu smærra í einum svip. Landskjálptar miklir í Litlu-Asíu um mánaðamótin síðustu. Hrundi helmingur borgarinnar Smyrna. Manntjón þó eigi mikið. Kennarafundur í Stockhólmi í öndverð- um þessum mánuði, frá öllum norðurlöndum. Eundarmenn 5000 rúm, þar af 1250 frá Danmörku. Ole Bull andaðist 17. þ. m., á búgarði sínum á Lysö, skammt frá Björgvín. Hann var mestur sönglistarmeistari á gígju um öll norðurlönd, og langfrægastur um víða veröld allra norrænna íþróttarmanna í þeirri grein. Hann varð sjötugur. Hafði grætt stórfje á iþrótt sinni. Yar jarðaður í Björgvin, með mestu viðhöfn. Björnstjerne Björnson mælti yfir moldum hans, af frábærri snilld. Fischer, kirkju- ogkennslumálaráðherra hjer frá 1875, sleppti völdum 24. þ. m., og tók við því embætti af honum þingmaður einn úr flokki stóreignamanna, Scavenius að nafni, frændi forsætisráðherrans, Estrups. Honum er ætlað að verða öruggari til vígis gegn vinstrimönnum en Fischer þótti reyn- ast; það þykir stjórnarmönnum mestu varða. Brotni askurinn. Útlagt eptir Frederie Bastiat („Ce que l’on voit et ce que l’on ne voit pas“). það, sem maður sjer og það, sem maður ekki sjer. (Sbr. síðasta blað Isafoldar). Athöfn, vani, opinber stofnun eða lög hafa opt í för með sjer ekki aðeins eina afleiðing, heldur keðju af afleið- ingum, sem verka á hag þjóðfjelagsins. Fyrsta afleiðingin kemur beinlínis af þeim, og kemur í ljós jafnframt og or- sök hennar, það sjd menn. Hinar af- leiðingarnar koma smátt og smátt í ljós, menn sjd þær ekki; vel sje þeimmanni er sjer þær. Allur munurinn á ónýtum og dug- andi þjóðmegunarfræðingi er sá, hinn fyrri sjer hina sýnilegu afleiðing; hinn reiknar út bæði afleiðinguna, sem sjest, og hinar, sem verður að sjdfyrirfram. Jeg veit ekki, hvort þú hefir tekið eptir því, hvað hann gamli Jón Jónsson varð æfa reiður, þegar óþekkasti strák- urinn hans hafði brotið askinn sinn? Nokkrir, sem sáu það, hlógu að honum, og hugguðu hann með því að „pening- arnir gengju ekki út úr landinu“. „Fátt væri svo illt að einugi dygði“. Nú sögðu þeir að askasmiðurinn fengi dálítið að gjöra. Allir þurfa einhverja atvinnu, og hvað á að verða af askatrjenu, sem rekur á Skaganum, ef að hann ekki getur smíðað neitt úr því ? þ>að er nokkuð undarlegt, að sam- fagna kunningja sínum á þennan hátt. J>að er hægt að sýna fram á, að vinir Jóns gamla Jónssonar höfðu ekki rjett fyrir sjer í þessu tilfelli, en því miður kemur það sama fram í einstökum lög- um og tilskipunum. Við skulum álíta, að það kosti 2 kr. að búa til nýjanask, og svo munu menn ségja að nú hafi innanlandsiðnaðurinn grætt tvær krónur, og það sje honum í hag. Jðg neitaþví ekki, að þetta er rjett. Smiðurinn kemur og fær þessar tvær krónur og hann brosir og biður í huganum guð að blessa strákinn. þetta sjd attir menn. Alíti maður nú, eins og sumir gjöra, að það sje gott að brjóta askinn sinn, vegna þess að þá verði peningarnir í veltunni, vegna þess að það örvi aslca- smíðina innanlands, þá verð jeg að segja: hættið þið nú! þessi kenning tekur að eins tillit til þess, sem maðtir sjer en gætir ekki að því, sem menn ekki sjd. Menn sjd ekki, að eptir það að gamli Jón Jónsson hefir gefið út tvær krónur til þessa, svo getur hann eklci gefið þær út til annara. Menn sjá ekki, að ef hann hefði ekki þurft að kaupa askinn, þá hefði hann t. d. getað keypt sjer fol- aldsskinn til að ganga á; hann hefði getað keypt sjer nýja bók, eða brúkað peningana til einhvers annars. Nú skulum vjer heimfera dæmið upp á alla atvinnuvegi landsins. Askurinn var brotinn og smiðurinn fjekk tvær krónur, það sjá allir. Ef að hann hefði ekki verið brot- inn, þá- hefði Ijáasmiðurinn (eða einhver annar) fengið peningana, þetta er það sem menn ekki sjd. Ef menn hugsuðu um það, scm maður ekki sjer, vegna þess að það er svo erfitt að sjá það, eins vel og menn hugsa um það, sem maður sjer, vegna þess að það er svo hægt að sjá það, þá væri hægt að skilja, að innan- landsiðnaðurinn ekki hefir neinn hag á því, að askar sjeu brotnir eða keröldin í búrinu sjeu mölvuð. Nú þarf gamli Jón Jónsson að gjöra upp búskaparreilcninginn* sinn. Hann hefir borgað tvær krónur og hefir sjálfur sama askinn og hann hafði áður. Hefði askurinn ekki verið brotinn, þá hefði hann haft einn ask og tvær krónur. Nú er gamli Jón Jónsson meðlim- ur mannfjelagsins í heild sinni, og sje atvikið skoðað frá þeirri hlið, hefir mann- fjelagið misst askinn, eða tveggja króna virði. Sje setningin látin vera almenn, þá komumst vjer að þeirri niðurstöðu: mannfjelagið býður skaða af öllum þeim hlutum, sem eru ónýttir til einskis. J>essi sannleikur, sem mun skelfa verndunar- tollamennina, hljóðar svo: að brjóta, bramla og eyða, er ekki það sama sem að hvetja alþýðu til nýrra starfa, í stuttu máli: eyðing er ekki ábati. Hvað munduð þjer nú segja, herr- ar, mínir, sem hafa reilcnað út í huga yðar, hvað islenska atvinnan græddi á því, ef að Reykjavík, sem utanlands er tryggð til brunabóta fyrir tveim þriðj- ungum verðs, og að þriðja parti hjá sjálfri sjer, brynni öll á tveimur dögum til kaldra kola ? Atvinnulaun múrara og trjesmiða mundu eflaust verða helmingi hærri, iðnaðarmennirnir græddu við það og af peningum færi lítið út úr land- inu; það er það sem maður sjer. En það, sem maður ekki sjer, erþað að byggingarnar í Reykjavík kosta að líkindum ekki minna en eina millíón króna, og hefði hún ekki brunnið, þá á mannfjelagið til Reykjavík, og þau brunabótagjöld, sem hún hefir goldið til þess tíma, en þegar hún er brunnin, þá hefir mannfjelagið tapað einni millíón króna. Hvað gamla Jóni Jónssyni viðvíkur, þá verða menn að gæta að því, að þeir, sem eru í leiknum, eru ekki aðeins tveir,

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.