Ísafold - 25.09.1880, Síða 3
95
skammar samstöfur, alveg óákvarðaðar, og
svo hefir verið frá alda öðli, og má sanna þetta
með ótal dæmum. — |>á kemur þetta : »Sá
háttr, sem Jómsvíkingadrápa er ort undir,
heitir munnvörp og á ekkert skylt við drótt-
kvæðan hátt, það er til hendinga kemr«.
J>etta er'nú hægt að telja þeim trú um, sem
ekkert þekkja til háttatals. Á bls. 134 (íútg.
Svb. Egilssonar) segir Snorri, að fornskáldin
hafi »ort sumt með háttaföllum, ok eruþessir
hœttir dróttkvœðir kallaðirí fornum kvœðum«.
Á bls. 129 stendur: »ok héðan frá skal nú rita
þær greinir, er skipt er dróttkvæðum hætti
ok breytt með hljóðum ok hendingaskipti
eða orðalengd, stundum við lagt en stundum
aftekið*. |>að er að skilja : allt fyrsta og allt
annað kvæði í háttatali (þess vegna líka
»munnvörp« með) eru eintómar dróttkvæðar
vísur, en með ýmsum háttum, er heita ýms-
nin nöfnum, og þessar tilbreytingar frá að-
alhættinum eða hinum eiginlega fyrirmynd-
arlega dróttkvæða hætti reiknast allar sem
dróttkvæðar, þrátt fyrir það, að sumstaðar
stendur: »sem í dróttkvæðum hætti«, »at
öðru sem dróttkvætt« o. s. fr. Jafnvel hryn-
henda er dróttkvæð og kallar Snorri hana
»dróttkvæða hrynjandi« (bls. 136). Að segja,
að »munnvörp« sjeu ekki dróttkvæð, ersama
sem að segja : Jón er maður, en Guðmundur
er ekki maður. — Enn fremur finnst Bect-
ornum kona eigi geti kallazt »armgóð orms«
(ör af gulli), af því hann man eigi til að konu
sje nokkurs staðar í skáldskap talið það til
gildis, að hún sje örlát á gulli«. En vjer mun-
um þó, að kona er kölluð »selja gulls þess er
hún gefr« (SnE bls. 85), og hrindir þetta al-
veg skoðun Bectorsins, og hafði Sveinbjörn
Egilsson því rjett að mæla, sem von var, þvl
þetta hefir hann vitað. »Armgóðr orms« þarf
annars ekki að merkja »ör af gulli«, það get-
ur og merkt þann sem er fagur og skrautleg-
ur af því gulli, sem hann ber á sjer.
X.
Alþingiskosningar.
3. I Borgarfjarðarsýslu:
Dr. Grímur Thomsen í einu hljóði (70
atkvæði). |>órður bóndi jporsteinsson á Leirá
hafði einnig boðið sig fram, en tók framboð-
ið aptur.
4. I Gullbringu- og Kjósarsýsln:
jpórarinn prófastur Böðvarsson með 104,
og jporkell prestur Bjarnason á Beynivöllum
með 98 atkvæðum. þorlákur bóndi Guð-
mundsson í Hvammkoti fjekk 76, ogÁsbjörn
bóndi Olafsson í Njarðvík 43 atkvæði. Kjós-
endur komu á fund 161 að tölu (af 491).
Höfðu Kjósar- og Mosfellssveitar-búar, Kjal-
nesingar og Seltjerningar fjölmennt; en fáir
komu að tiltölu úr Suðursýslunni, jafnvel úr
næstu hreppum. Lýsir þetta litlum áhuga á
að neyta rjettar síns. Heyrzt hefir að í Ar-
nessýslu muni verða að kjósa um, sökum
formgalla við kosninguna.
ð. I Snæfellsnessýslu:
(Aðsent). Jeg lofaði línu í Isafold um það,
hvernig kosningin fór fram á Snæfelísnesi.
Kjörþingið var sett aðGörðum í Staðarsveit
13. þ. m. og höfðu kjósendur sókt svo vel,
að ekki mun í annan tíma hafa verið eins
fjölmennur fundur þar á Nesinu í þess kon-
ar efnum; mun það hafa stuðlað til þess,
að einn af þeim 3, sem buðu sig fram, kaupm.
Holgeir Clausen,' hafði áður með brjeflegri
áskoran til flestra, ef ekki allra, kjósenda
kringum Jökulinn »leyftsjeraðleita atkvæða
til Alþingis«; þar sem þingið var haldið, hafði
einnig sami maður sjeð um, að tjald var reist
og veitingar viðhafðar; hinir 2, er buðu sig
fram,voruþeirfyrverandialþingismenn,|>órð-
ur og síra E. Kuld. Áður en kosningin fór
fram, hjeldu þingmannaefnin—einkum hinn
síðast nefndi — snjallar og langar tölur, og
tóku hver um sig þá kosti fram, er heyrðu
til þingsetu. Atkvæði fjellu svo, að kaupm.
Holgeir Clausen var kosinn þingmaður með
133 atkvœðum, að meðtöldu hans eigin, því
kjörstjóri kvaðst ekki geta skorið úr, hvort
það væri löglegt; er Clausen kaus sjdlfan sig,
og mun kjörstjórnin hafa ráðið af að rita svo.
jpórður fjekk 51., síra E. Kuld 10 og munu
Hólmverjar (úr Stykkishólmi)’ og helztu
menn úr þeim hreppum, hafa orðið hissa á
úrslitunum. En jeg álít svo, að þó ekki
verði neitað, að mjög leiðinlegt sje, að hafa
hafnað síra Eiríki og jpórði, er óvíst hvort
svo illa hefir komið niður kosningin, eins og
af er látið af sumum, því hæfilegleikar manns-
ins eru miklir í mörgum greinum, ef alvöru
og úthald ekki brestur.
Breiðfirðingur.
6. I Rangárvallasýslu.
Sighvatur Arnasonmeð 82 atkv., ogSkúli
þ>orvarðsson, með 47 atkvæðum. — Helgi
E. Helgesen úr Bvík fjekk 8 atkv., og Jón
í Austvaðsholti 36 atkv.
7. I Mýrasýslu.
Egill Egilsson í Bvík með 29 atkv. —
Hjálmur fjekk 26. Síra Jakob á Sauðafelli 2.
— í 23. blaði fjóðólfs þ. á., 28. dag
f. m. stendur grein ein með fyrirsögn:
Minnisvarði Jóns Sigurðssonar. í grein
þessari kveðst ritstjórinn hafa fengið 2
brjef, þar sem kvartað sje yfir að 5 manna
nefnd sú, er boðið hafi til samskota til
tjeðs minnisvarða, hafi eigi tekið greini-
lega fram, hvernig eða hve dýr þessi
minnisvarði sje hugsaður að verða; ósk-
ar annar brjefritarinn (sjera Jakob Guð-
mundsson á Sauðafelli), að nefndin gjöri
áætlun um kostnaðinn, og leiti síðan
lánsúr landssjóði til að framkvæma verk-
ið, en báðir brjefritararnir virðast sam-
huga á því, að þessu áætlaða fje sje
jafnað niður á landið, og sýslunefndir
og hreppanefndir taki að sjer að end-
urborga lán þetta.
jþessari grein ætla jeg að leyfa mjer
að svara fáeinum orðum fyrir hönd nefnd-
arinnar og í umboði hennar.
Nefndin taldi og verður að telja
það sjálfsagt, að einhvern minnisvarða
verði að setja á eða við leiði Jóns heit-
ins Sigurðssonar, og að það sje með
öllu óviðurkvæmilegt, að auðkenna eigi
leiði slíks merkismanns með einhverjum
minnisvarða honum samboðnum. En
hversu sá minnisvarði eigi að vera,
verður að vera komið undir því, hve
mikil samskotin verða; en hve mikil
þau verða, gat nefndin með engu móti
ætlazt á um, og getur eigi enn; minn-
isvarðinn verður að fara eptir samskot-
unum. Nefndin varð að telja það sjálf-
sagt, að íslendingar hefðu haft mætur
á Jóni Sigurðssyni og kunnað að meta,
hvað hann vann fyrir landið, og það
vildi nefndin að þeir nú sýndu með al-
mennum frjálsum samskotum til að
heiðra minningu hans; og það ætti eigi
að þurfa neina nauðung til slíks. Ef
samskotin verða svo mikil, að gjört verði
líkneski Jóns úr eiri, er sett skuli á
hentugan stað, auk sæmilegs minnis-
varða við leiði hans, hefir nefndin og
getur eigi haft neitt á móti því, að það
verði gjört; þvert á móti þætti henni
það hið ákjósanlegasta og mun íhuga
það atriði, er hún kveður á um minn-
isvarðann við leiðið sjálft; en að kveða
nokkuð á um slíkt, allrahelzt svona fyr-
irfram, varð nefndin að telja að lægi
fyrir utan sitt ætlunarverk.
Að taka fje að láni úr landssjóði
til þessa minnisvarða, og jafna því síð-
an niður á landið, gat nefndinni eigi til
hugar komið. J>að er fullreynt, ognefnd-
inni fullkunnugt, hvernig gengur um
endurborgun slíkra lána; enda getur
stjórnin eigi veitt slíkt lán.
Nefndin getur því eigi annað gjört,
en ítrekað áskorun sína í boðsbrjefinu,
að íslendingar skjóti saman fje til þess,
að reistur verði sæmilegur minnisvarði
við leiði Jóns Sigurðssonar, og sýni
með almennum samskotum og það fljót-
um og greiðum, að þeir vilji heiðra
minningu Jóns Sigurðssonar, svo sem
hann á sldlið.
Að endingu skal jeg geta þess, að
eins og vjer vonum og treystum því,
að kaupmenn landsins styðji oss í þessu
máli, eins erum vjer fúsir á, að taka
innskript hjá kaupmönnum frá þeim, er
hægra veitir, að greiða tillag sitt á þann
hátt.
Reykjavik 6. dag septemberm. 1880.
H. K. Friðriksson.
VEÐBÁTTUEAB í BEYKJAVÍK,
í ÁGÚSTMÁNUÐI.
Fyrstu viku mánaðarins var optast logn
og bjart veður en úr því hefir verið mesta ó-
þurrkatíð, því síðan 7. hefir hann ýmistver-
á landsunnan eða útsunnan méð brimhroða
og mikilli úrkomu, stundum mátt heita ofsa-
veður með aftaka rigningu, t. a. m. h. 27.
Hitam. varhæst. (umhád.) 14....... +16°B.
----- — lægst. ( — —) 31.........+ 8°B.
Meðalt. um hád. fyrir allan mán. + 10,8°B.
----- á nóttu — — — + 7,9°B.
Mestur kuldi á nóttu (aðfaranótt
hins 30. og31.).............. + 5°B.
Loptþyngdarmæl. hæstur 16........ 30,20]’g
-----------------lægstur 6. og9... 29,2oJ+
Að meðaltali .................. 29,67 g
_ ' <U
Bvík i 80. J. Jónassen.