Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Ísafold - 22.02.1881, Blaðsíða 3

Ísafold - 22.02.1881, Blaðsíða 3
15 in með berum orðum leggja sveitarfjelögun- um á herðar að kosta, og allra sizt látifjár- veitingu til þessarar uppfræðingar sitja í fyrirrúmi fyrir annari nauðsynlegri uppfræð- ingu. Alþingi ætti því ekki að leggja öðr- um barnaskólum styrk, en þeim, sem jafn- framt væru unglingaskólar, og geti veitt því líka uppfræðingu, sem tekið er framhjerað framan, og ekki framar en svo, að sveitar- fjelagið kostaði kennsluna að svo miklu leyti, sem uppfræðslulögin heimta. Barnaskólar eru nú langflestir komnir á stofn í Kjalar- nessþingi, og er það eðlilegí, því þar er var- ið til þeirra rentunum af Thorhilliisjóðnum, en annarstaðar skortir álíka sjóð til að styðja barnauppfræðinguna. Jeg vona að menn fallizt á, að ekki sje rjett að breyta í neinu út af uppfræðingar- lögunum, heldur eigimenn að leggjast á eitt að lypta menntun alþýðu á það stig, að hægt verði að minnsta kosti alstaðar til sveita, að koma heimakennslunni við og hún geti orðið að fullum notum. Sumir kunna að óttast fyrir, að þessir skólar verði ekki nema hinum efnaðri að notum, en þó þetta yrði svo með fyrstu, þá sýnir lærði skólinn, að mörgum fátæklingi hefi verið hjálpað fram í honum, fyrir tilstyrk góðra manna, jafnvel vandalausra; og eptir sem menntunin og á- huginn á henni vex meðal alþýðu, er vonandi að hið sama verði með unglingaskólana. það er einnig mjög líklegt, að með vaxandi menntun vaxi einnig löngun til almennings- gagnsemi, og að þeir, sem ekki hafa fyrir erfingjum að sjá, muni vilja verja efnum sínum eptir sinn dag til einhverrar nytsamr- ar stofnunar, og þá ekki sízt til að styrkja efnilega fátæka unglinga til menntunar og náms. (Niðurlag síðar). Yeðuráttufar í Reykjavík í janúarmánuði. Bati sá, sem kom hinn síðasta dag hins umliðna árs, stóð eigi lengi, því brátt hófst norðanrok það, sem hjelzt við nálega allan mánuðinn út með þeirri grimmdarhörku, að elztu núlifandi menn muna eigi slikt. 3 fyrstu dagana var hægur útsynningur, og síðan í 2 daga hægur landsynningur með nokkurri rigningu, en upp frá því og til hins 21. stöðugt norðanroktil djúpanna, þótt hjer væri optast nær logn í bænum; 21.—23. var hjer logn með talsverðri þoku og nokkrum brimsúg; 24. útnorðanhroði og upp frá því stórviðri á norðan, það sem eptir var mánað- arins, með aftaka frosthörku; optast varhjer logn í bænum, þótt rokið næði heim að eyj- um; aðfaranótt sunnudagsins hins 30. var fjarshalegt ofsaveður á norðan með blindbil; 30. nokkuð vægari, en dimmur og gekk allt í einu um kvöldið til austurs með frostleysu, en daginn eptir genginn í sama illviðraham- inn. Hinn 9. fór sjóinn að leggja, og 18. var hann lagður langt út í flóa; 20. fór hann að losna og var að mestuleyti farinn 23., en 25. lagði sjóinn þegar aptur með helluís hjer á milli allra eyja og lands og hjelzt það út mánuðinn, svo síðasta daginn sást eigi út fyrir ísinn hjer í flóanum. Svo að kalla eng- inn snjór hefir fallið. 21. snemma morguns varð vart við talsverðan jarðskjálpta. Hitamælir hæstur (umhádegi) 5.. —»«— lægstur — ---------- 26.. Meðaltal, um hád., ............. Meðaltal á nóttu................ Réaumur. . + 6° . -r* 14° 4.7 6.8 Mesturkuldián. (aðf.n. h. 26.og28.) -í-17°. Kyrstu 5 dagana var loptþyngdamælir fyrir neðan 30, en upp frá því um og yfir 30, þangað til 27., að hann fór að falla og fjell ofan í 29. Ensk. þuml. Loptþyngdarmælir hæstur 7......... 30.60 —»«— lægstur 30............. 29 Að meðaltali...................... 30.01 Bvík ^ 81. J. Jónassen. AUGLÝSINGAR. stýft framan hægra, tvírifað í stúf vinstra; lamb þetta er jeg ekki viss um að jeg eigi, hvers vegna jeg hjer með skora á þann er kynni að geta sannað eignarrjett sinn á því að gefa sig fram og semja við mig um mark- ið, sem og lambsverðið að frádregnum öllum kostnaði. Keflavík, 24. janúar 1881. P. J. Petersen. I Akraneshrepp voru seldar í haust, 2 ó- skilakindur með þessu marki: Sneitt fram- an, fjöður apt. hægra, sýlt, biti apt. vinstra. Sá sem á þetta mark og getur sannað eign- arrjett sinn á kindunum, má vitja verðsins að frádregnum kostnaði, fyrir næstu fardaga, til hreppstjóra Hallgríms Jónssonar. í nafni sjálfra vor og fjarstaddra vanda- manna leyfum vjer oss, undirskrifuð börn og tengdabörn Sveins sál. prófasts Níels- sonar, að færa innilegustu þakkir voraröll- um þeim, sem heiðruðu útför hans í dag með návist sinni, og sjerstaklega þökkum vjer alúðarfyllst þeim lærisveinum hans.sem ljetu prýða dómkirkjuna svo fagurlega við þetta tækifæri. Beykjavík, 29. janúar 1881. Hallgrímur Sveinsson. Elina Sveinsson. Sveinn Sveinsson. Kristíana Hansdóttir. Sigríður Sveinsdóttir. Níels Eyjólfsson. I haust var mjer dregið austur í rjettum og færthingað lamb, með mínurjettamarki: stýft hægra, hvatt vinstra, en með því að jeg á alls ekki lambið, skora jeg á þann, sem þykist eiga það : að sanna eignarrjett sinn, aðvitja virðingarverðsins aðfrádregn- um kostnaði, og að semja við mig um sam- merkið, +^80 Vegamótum á Akranesi. Magnús Vigfiísson. Laugardaginn þann 12. þ. m. fyrirfannst í óskilum í Seltjarnarneshrepp grá hryssa, mjög mögur, með mark : standfjöður framan vinstra og var seld við uppboð með þeim skilmálum, að eigandinn getur fengið hana útleysta, ef hann gefursigfram fyrir 21. dag þ. m. með því að borga þann kostnað, sem á hana verður fallinn. Seltjarnarneshrepp, 12. febrúar 1881. Ingjaldur Sigurðsson. Ejármark Gunnlaugs Sölvasonar á Kolu- gili í Yíðidal: blaðstýft apt., oddfjaðrað fr. hægra, sneitt apt., oddfjaðrað fr. v. Ejármark Skúla Magnússonar 1 Minnivog- um: 2 göt bæði eyru og sneitt fr. hægra. Brennimark: »Skúh«. Jeg undirskrifuð gef til vitundar, að hjer hefir fundizt af sjó rekinn lítill olíubrúsi á að gizka með 5 eða 6 pottumaf olíu. Bjett- ur eigandi má vitja þess til mín, að Melbæ í Leiru, mót borgun fyrir þessa auglýsingu. Melbæ, 12. janúar 1881. Kristín Magniísdóttir. Hafi nokkur hirt reiðsokka og skinnsokka, sem gleymdust—21. okt. næstl.—í bryggju húsgangi Fischersverzlunar hjer í bænum, er bann beðinn að skila þeim í prentstofu „Isafoldar” gegn þóknun. A næstliðnu hausti var mjer í síðustu rjettum dregið grátt gimbrarlamb, hornótt, með mínu klára fjármarki, nefnilega: blað- Samskot til borgunar á liljóðí'æri í Stykkishólmskirkju. Eptir boðsbrjefi frá söngfjelaginu í Stykk- ishólmi —um samskot til hljóðfæris (Har- monium) handa Skykkishólmskirkju — hafa þessir gefið: A. Innan Stykkishölmskaupstaðar: Söngfjelagið 50 kr. D. A. Thorlacius verzlunarm. 10 kr. E. Möller lyfsali 10 kr. S. Bichter verzl.m. 5 kr. Jens Jónss. söðla- smiður 5 kr. S. Hjaltalín verzl.m. 10 kr. J. Benjamínss. trjesm. 3. kr. P. Jónasson skósm. 5 kr. J. Jóhannsson skósm. 8 kr. P. S. Pálss. v.m. 2 kr. J. Sigurðss. húsm. 7 kr. J. Jónss. söðlasm. 6kr. V. Oddss. húsm. 3kr. J. Magnússon húsm. 3 kr. M. Sigurðsson húsm. 3 kr. Guðbr. Jónss. húsm.(Jaðri) lkr. Mad.G.Sveinbj.d. lOkr. E.Hinriksd.v.k.2kr. G. Arnfinnss. v.m. 5kr. G. Seh. Thorstein- sen verzlm. 8 kr. W.C.Christensen verzlm. 5 kr. S. Jónss. sýslum. 10 kr. Geirþ. Clau- sen barn 30 a. f>. E. þorbjörnsd. v.k. 10 a. Salóme Guðmundsd. v.k 25 a. Mad. Jóh. Schjöth 50 a. Mad. S. Schjöth 2 kr. Guðr. Jónsd. v.k. 50 a. Sk. S. Guðmundss. barn 2kr. B. F. Guðmundsd. barn 2 kr. Mad.G. Bichter 2 kr. Mad. S. Bichter 2 kr. Mad. H. Thorsteinsen 2 kr. G.J.B. Bichter barn 1 kr. Kr. Biehter barn l‘kr. þ. Bichter barn lkr. Erú J. A. Thorarensen 5kr. E. Kúld próf. 11 kr. Frú Th. Kúld 10 kr. F. Henr. Hjaltal.lkr. Fr. Guðr.f>orkelsd.2kr. Bagnh. Clausen barn 1 kr. M. Gunnarsd. v.k. 50 a. f>. Yigfúsd. v.k. 50 a. A. Amfinnsd. v.k. 50 a. Svanh. Ólafsd. vk. 2 kr. S. Einarss. vm. 1 kr. B. Jóhannss. húsm. 10 kr. E. Jóhannsson húsm. 1. kr. Frá ónefndum 10 kr. J. Jónss. (Skáleyingur) húsm. 2 kr. S. Halldórsson verzlm. 8 kr. A. Ó. Thorlacius umboðsm. 10 kr. Afhent af frú J. A. Thorarensen frá mad. Kr. sál. Hjaltalín 5 kr. Enn fremur hefir Snæbj. Snæbjörnss. húsm. lofað 5 kr. og Guðbr. Jónss. húsm. (Höfða) lofað 2 kr. B. Utan Stykkishólmskaupstaðar: Jóh. Jónass. bóndi Fagurey 5 kr. Sk. Skúlason bóndi sst. 10 kr. E. Jónss. bóndi Bíldsey 8 kr. B. Bjarnas. bóndi Ögri 5 kr. M. Einarsson hafnsögum. Elliðaey 10 kr. St. Magnúss. v.m. sst. 6 kr. J. Magnússon v.m. sst. 6 kr. Frú ÓlínaEgilsson Bvík 10kr. Jóh. Vigfússon prentari Narfeyri 1. kr. J. Finnss. bóndiFagurey 4kr. Mad. H. Sivert- sen Hrappsey 10 kr. J. Bjarnason d.br.m. Bíldsey 4 kr. E. Bjarnas. bóndi Asi 2 kr. Mad. K. Guðmundsd. Grunnasundsnesi 5 kr. Sigg. Snæbjömss. v.m. sst. 3 kr. A. Snæ- bjömss. v.m. sst. 3 kr. E. Einarss. v.m. Ási 1 kr. T. Helgason v.m. Fagurey 2 kr. Stykkishólmi, 31. des. 1880. Söngfjelagið.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.