Ísafold - 14.07.1881, Side 4

Ísafold - 14.07.1881, Side 4
68 stæðum. Fellt frá 2. umræðu 11. júlí með 16 atkv. 13. Frumv. t. 1. um nýtt læknishjerað í Flateyjarhreppi á Breiðafirði, er nái yfir Vestureyjar, Hjarðarnes, Múla- nes, Svínanes og Bæjarnes (fráþ.m. Barðstrendinga). 14. Frv. t. 1. um eptirlaun handa land- lækni og forstöðumanni læknaskól- ans Dr. Jóni Hjaltalín (frá þingm. Reykvíkinga): Frumvarpið fer fram á að Hjaltalín fái, er hann fær lausn frá embætti, full laun, 4800 kr. í eptirlaun. F ellt. 15. Frv. t. 1. um löggilding verzlunar- staðar við Kolbeinsárós í Skaga- firði (frá þingmönnum Skagfirðinga). 16. Frumvarp til landamerkjalaga frá þ.m. Dalamanna. Nefnd sett 11. júlí: Guðm. Einarsson. Benedikt Sveinsson. Lárus Blöndal. þ>orlák- ur Guðmundsson. Jón Jónsson. 17. Frv. t. 1. um friðun fugla (frá þ.m. Barðstrendinga). 18. Frv. t. 1. um aðflutningsgjald af alls konar kaffibæti, svo sem möluðu kaffi, kaffirót Exportkaffi. Af öllu slíku skulu af hverju pundi goldnir 10 aurar (frá þm. Borgfirðinga). 19. Frv. t. 1. um bann gegn innflutningi á útlendu kvikfje, sauðfje, nautum, hestum (frá Jóni Olafssyni, Bene- dikt Sveinssyni, Jóni Jónssyni). 20. Frv. t. 1. um breyting á tilskipun um stofnun búnaðarskóla dags. 12. febr. 1872 frá þingmönnum Skag- firðinga. I.andshöfðingi ákveði fyrir- komulag búnaðarskólanna eptir sam- komulagi við amtsráðin; en til að borga með kostnaðinn við búnaðar- skólana á eptir frumvarpinu að jafna niður 10 aurum á hvert jarðarhundr- að í landinu eptir jarðabókinni 1861, og skulu ábúendur greiða gjald þetta. 21. Frumvarp til laga um lán handa búfræðingi Sveini Sveinsyni til stofnunar búnaðarskóla. Sveinn fái allt að 25,000 kr. lán úr landssjóði, leigulaust í 10 ár, en síðan greiði hann árlega vexti 4”/«' og 1000 kr. til afdráttar láninu unz það er allt endurborgað. í veð setji hann jörð þá, er hann kaupir til skólastofnun- ar og alla áhöfn hennar. Hann skal skyldur til að taka til kennslu í búnaðarfræði að minnsta kosti 10 lærisveina á ári gegnhæfi- legri borgun, sem landsstjórnin á- kveður (flutningsm. þingm. Reyk- víkinga). 22. Frv. 1.1. um breyting á 1. og 2.gr. laga um stofnun læknaskóla í Rvík 11. febr. 1876 (frá þingm. Barð- strendinga). I.andlæknisembættið af nemist, en heilbrigðisráð komi í stað- inn. Forstöðumaður læknaskólans, sem jafnframt er formaður ráðsins, hafi í laun 4000 kr. 23. Frv. t. 1. um leysing á sóknarbandi (frá A. Ó., J>. B., Fr. St., J. Ó.). Hverjum fermdum 16 vetra manni skal eptir frumvarpinu heimilt að kjósa sjer annan prest en sóknar- prest sinn, enda sje prestur sá skip- aður yfir einhvern söfnuð. 24. Frv. t. 1. um stofnun búnaðarskóla á Hólum í Hjaltadal (frá þingmönn- um Skagfirðinga). í efri deild alþingis hafa þessi frumvörp verið tekin fyrir: 1. Frumvarp til laga um víxlbrjef fyrir ísland. Frumv. þetta er að mestu samhljóða víxlbrjefalögum fyrir Dan- mörku 7. maí 1880 og sams konar lögum i Svíaríki og Norvegi, sem sarnin hafa verið eptir samkomulagi milli þessara þriggja ríkja. Nefnd kosin : M. Stephensen, E. Ásm., A. Thorst., Ben. Kristj., Sighv. Árnas. 2. Frv. til laga um víxlbrjefamál og víxlbrjefa-afsagnir. Frumv. vísað til sömu nefndar, er kosin var í málinu næst á undan. 3. Frv. t. 1. um sjerstaka borgun handa hreppstj. og öðrum, sem fremja rjett- argjörðir. þar er tekið fram, hvað þessum mönnum skuli gjalda fyrir hvert einstakt verk, og er með frv. þessu úr gildi numið það, sem fyrir er mælt í aukatekju-reglugj. fyrir rjettarins þjóna 10. sept. 1830, VIII. kap., 63.—75. gr., þar sem hreppstj. þykja veitt óhæfilega lítil laun eptir því, hvernig til hagar nú. Nefnd kosin: Sighv., Stef. Eir., E. Ásm. 4. Frv. t. 1. um að sjerhver prestur, sem gengur í hjónaband, og hver kvong- aður maður, sem, eptir að lög þessi öðlast gildi, fær veitingu fyrir brauði eða nýtt brauð, skuli skyldur að sjá ekkju sinni borgið með fjárstyrk ept- ir sinn dag, en þó skal hann vera laus við þessa skyldu, ef hann hefir gipzt eptir að hann varð sextugur að aldri. Einnig skal stofna sjerstakan sjóð, sem sje samtengdur landssjóði, og sem nefnist prestsekknasjóður; skal í þann sjóð borga og úr honum greiða öllþaugjöld, er snerta fjárstyrk, sem prestsekkjum er sjeð borgið með. Nefnd sett: P. Pjetursson, S. Melsteð, Ben. Kristjánsson. 5. Frv. t. 1. um aðra flokkaskipun á prestaköllum landsins. Skal eptir þessu frv. prestaköllum landsins ept- irleiðis skipt í:' brauð í 1. flokki með tekjum yfir i,8oo kr. — - 2. — með tekjum yfir 1,200 til 1,800. — - 3. — með 1200 kr. tekj- og þar undir. Konungur veitir brauð í 1. flokki, en landsh. veitir eptir uppástungu bisk- ups brauðin . í hinum tveimur flokk- unum. Með lögum þessum veitist ráðgjaf- anum fyrir Isl. heimild til að gjöra ráðstöfun um, að brauðamatsgjörðin frá 1868 verði endurskoðuð svo fljótt, sem orðið getur. Frv. þetta breytir tilsk. 15. desbr. 1865, 1. og 2. gr. Nefnd kosin : Jón Pjetursson, Bened. Kristj., Einar Ásm. 6. Frv. t. 1. um að Garpsdals prestakalli í Barðastr. prófastsd. leggist 200 kr. á ári úr landssj. Vísað til nefndar- innar í prestakalla málinu. 7. Frv. t. 1. um að stjórninni veitist heim- ild til að selja ábúendunum eptir- fylgjandi þjóðjarðir : 1. Vik í Dyrhólahreppi fyrir 7,370 kr. 2. J>verá í Kleifahreppi fyrir 1,727 kr. 3. Hlíð í Leiðvallahreppi fyrir 1,960 kr. 4. Bolhraun í sama hreppi, með til- heyrandi reka, fyrir 1,240 kr. Kosin 3 manna nefnd : Árni Thorst., Ásg. Einarss. og Stef. Eiríksson. 8. Frumv. t. 1. um að greiða 25 aura gjald til landssjóðs. fyrirhvern regis- terton af rúmmáli skipsins fyrir á- teiknun þeirra skjala, er kaupskipi eða fiskiskipi fylgja ; gjaldið skal greitt á þeirri höfn, er skipið kemur fyrst við á íslandi. Komi skipið við á fleiri höfnum, skal ekki greiða frek- ara gjald. — Með þessu frv. er úr gildi numið : Opið brjef 28. desbr. 1836, 9. gr. — Nefnd kosin: Árni Thorsteinson, M. Stephensen og Stef. Eiríksson. Fornleifafjelagið hefir látið Sigurð Vigfússon í næstliðn- um júní rannsaka fornmenjar í Breiða- firði, hefir hann grafið þar upp 2 hoý- tóttir, aðra í Ljárskógum, var hún 88 fet á lengd, en 50 fet á breidd. Hin var á Rútsstöðum (sbr. Laxdælu 66. k.) var hún 60 fet á leingd en 20 fet á breidd, höfðu báðar þessar hoftóttir öll sömu aðaleinkenni og blóthúsiff á jþyrli, sjá Árbókfornleifafjelagsins 1880—1881. Einnig hefir hann grafið í 4 fornmanna- hauga, sem menn vita af sögunum hverjir hafa átt, og er þar á meðal haugur Arnkels goða, sem er 46 fet í þvermál, en ekki var leitað í þeim öll- um fullkomlega vegna klaka. Líka hefir hann rannsakað forna þingstaði og örnefni öll, á því svæði er hann fór yfir, einnig hefir hann fengið marga gamla hluti til forngripasafnsins, ná- kvæm lýsing af þessari ferð er ætlast til að komi í næstu Árbók fornleifa- fjelagsins. Sltýrsla yfir forngripasafn íslands, hefir vantað eins og kunnugt er síðan 1870, núhefur Sigurður Vigfússon sam- ið skýrslu á næstliðnum vetri yfir mik- inn hluta þessa tímabils, og hefir deild bókmentafjelagsins á íslandi tekið til prentunar fyrir það fyrsta eitt hefti, sem verður 5—6 arkir, og er nú prent- smiðja ísafoldar byrjuð á henni. Forngripasafnið verður ekki sýnt um næstkomandi mán- aðar tímabil eða lengur, þar nú á að fara að flytja safnið í hið nýja þing- hús. Niðurröðunin tekur langan tíma, með því að skápa og önnur áhöld vanta að mestu enn. S. Vigfússon. — þeir Vídalín & Eggerz hafa fyrir þriðjung farms tekizt á hendur að bjarga farminum úr hinu amerikanska timbur- skipi, sem liggur strandað við J>órs- höfn í Höfnum. — Nýkomið er herskip frá Ameríku til að leitaað skipi því, er útgefandi New York Heralds sendi til Norðuríshafsins 1879, en ekkert hefir spurzt til síðan. — Sömuleiðis er ríýkomin lystiskúta frá Liverpool. Camoens fór hjeðan 8. þ. m. með talsverðu af Mormónum og Mormóna- efnum og mögrum hrossum. Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil. Prentuð í Isafoldar prentsmiðju.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.