Ísafold - 06.08.1881, Page 4
80
lánið nær sem þeir vilja og geta. —
Skilji þeir, sem skilið geta.
— „Fróði“, sem nú má heita „að
sendur“ sjálfur, hefir „að sent“ greinar-
korn inni að halda gegn meinlausri
grein i „ísafold“ um hinn svo kallaða
„Norðlingafloklc11. þ>að er að heyra á
„Fróða“, að þótt Norðlingar sjeu ekki
nema 8 að tölu á þingi, þá muni þeir
hvergi hræddir hjörs í þrá við hálfu
fleiri Sunnlendinga. En það vill nú svo
til, að það er enginn vígahugur í þeim
manni, sem „Fróði“ kallar Víga-Glúm,
sízt sjerstaklega sunnlenzkur vígahugur.
Við einu býst hann þó, og það er það,
að Norðlingar af göfuglyndi sínu ætli
honum í fjárlögunum eitthvert lítilræði
í nafnfesti. pað mætti, ef til vill, taka
það af einhverjum hálaunuðum.
lltlendar frjettir.
Fi’ökkuin gengur heldur erfitt í
Afríku. f>ví þótt þeir, í fljótu áliti,
hafi unnið sigur í Tunis, brennt borg-
ina Sfax, o. fl., þá virðist ástandið þó
ekki sem trúlegast. Jafnframt hafa ara-
biskar kynkvíslir í Alzír, undir forustu
Bu-Amema gjört uppreisn gegn Frökk-
um, drepið menn fyrir þeim, tekið far-
angur frakkneskra herflokka, og æst
aðrar arabískar kynkvíslir, sem hingað
að hafa verið stjórn Frakka hollar, til
einhverskonar trúarbragða stríðs gegn
stjórninni. Segja Frakkar svo sjálfir,
að í þeim miklu hitum. sem nú ganga
í Alzír (410 C.) sjeu engin tiltök að
vinna á mótstöðumönnum sínum, en að
alvarlegar aðgjörðir verði að bíðavetr-
ar. Stendur þá til að víggirða landa-
mæri Alzíríu gagnvart Marokko, og
láta herflokka halda vörð hjer oghvar
í hinu svonefnda Schott- (saltsjóa) hjer-
aði. fessu hefir Saussier hershöfðingi
fyrir skömmu lýst yfir. Sumir kenna
Grevy landshöfðingja, bróður yfirstjórn-
ara Frakklands, um þessa uppreisn, en
hvort það er annað, en tilraun til þess
að skaða formann hinnar frakknesku
stjórnar, er óhægt að segja.
Glarfield, formaður Vestrheimsmanna
er nú aptur orðin heill heilsu. Bis-
mark er lasinn, og dvelur við heilsu-
brunninn í Kiessingen.
Á írlandi eru sömu óeyrðirnar, þó
ber minna á morðum og gripdeildum
til sveita. En í staðinn slær kaþólskr-
ar trúar mönnum þeim mun optar sam-
an við prótestanta. Á þingi Breta gjör-
ir guðleysinginn Bradlaugh enn á ný
ráð fyrir að taka sæti, en enginn efi
er um, að hann muni þá enn einusinni
verða tekinn fastur. Ekki eru land-
búnaðarlög Ira enn þá útrædd, en þó
er, þrátt fyrir mótstöðu og brögð Par-
nells og hans sinna, búið að samþykkja
nokkrar greinir í frumvarpinu.
1 Danmöl'ku áttu nýjar kosningar tij
ríkisþingsins fram að fara þann2Ó.júlí,
og leit helzt út fyrir, að þær mundu
líkar hinum fyrri. Æsingar skortir
ekki á báðar hliðar, og hvor flokkur-
inn átelur annan vægðarlítið. Er ekki
hægt fyrir að sjá, hvar þetta þras tek-
ur enda, hvort það leiðir til stjórnar-
breytingar eða stjórnarskrárbreytingar.
Eitt er víst, að grundvallarlög Dana
hafa ekki að inni halda nein úrræði,
þegar deildum slær saman, og þá ræð-
ur enginn við, nema sá, sem mest hefir
valdið, og porir að nota pað. þ>etta er
bágborið ástand.
Stöiþiiig' Norðmanna hefir með öll-
um atkvæðum, gegn 14, hafnað tillögu
um að lækka lífeyri konungs, en með
67 atkvæðum gegn 43 fellt uppástungu
um að hækka framlagseyri til konungs-
efnis, sem vonum bráðar ætlar að kvong-
ast, og sem því var beðið um viðbót
fyrir. Er því umkennt, að meiningar-
munur er í pólitískum málefnum milli
þingsins og stjórnarinnar.
Khöfn, II. júlí 1881.
I.átizt hefir í dag Wilhelm Sigurd
Topsee, ritstjóri Dagblaðsins, cand. ju-
ris, maður á bezta aldri, að eins fertug-
ur. Flann var talinn einna fremstur
danskra blaðamanna og efnilegur skáld-
sagnahöfundur („Jason“,,,Nutidsbilleder“
o. fl.). Móðurkyn hans er íslenzkt(?).
Banameinið var hálsveiki (diphtheritis),
er komin er upp í sumarvistarþorpun-
um hjer út með Eyrarsundi, all-mann-
skæð. -— Enn fremur andaðist hjer í
morgun frú Elizabeth Jerichau-Baumann,
allmikill snillingur í pentlist, upprunnin
frá Póllandi, en af þýzku kyni. Hún
var rúmlega sextug að aldri.
Haí'íss-jakafiurður í Atlantshafi með
ströndum Nýfundnalands hefir í manna
minnum aldrei verið eins mikill eins og
á þessu sumri. í byrjun júlímánaðar
var ísinn kominn að 400 n. br., og frá
klettunum við St. Johns sáust isjakar,
sem voru 2000 fet á lengd og 500 fet
á hæð.
— Hinn 1. dagjúnímán. þ. á. andað-
ist að Dagverðarnesi í Dalasýslu Sklíli
sýslumaður Mag'ixiissou, rúmra 39 ára
gamall (fæddur 5. dag janúar 1842) og
hafði hann þá legið rúmfastur allt að
mánaðartíma. Skúli tók stúdentspróf
við lærða skólann í Reykjavík árið 1862
með bezta vitnisburði, sigldi samsumars
til háskólans í Khöfn og tók vorið ept-
ir (í júní 1863) próf í forspjallsvísindum
með ágætum vitnisburði. Fór hann þá
þegar að lesa undir embættispróf í lög-
fræði; en stórkostlegur efnaskortur olli
því, að hann varð að hætta við nám sitt
innan skamms; fór hann þá til Jótlands
og hafði þar eigi að eins ofan af fyrir
sjer með barnakennslu, heldur lagði og
nokkuð fje fyrir, svo að hann með því
er hann átti afgangs og með aðstoð
góðra manna í Danmörku, er hann
komst í kynni við, gat aptur farið til
Kaupmannahafnar og tekið að stunda
lögfræði; lauk hann þá námi sínu á
mjög stuttum tíma, svo að hann í janú-
armánuði 1869 tók fullkomið lærdóms-
próf í lögvísi við háskólann með góðri
meðaleinkunn (haud illaudabilis). Eptir
það fór hann út til íslands um vorið
1869 ogvar á skrifstofu land- og bæjar-
fógetans þangað til honum um vorið
1871 var veitt Snæfellsness-og Hnappa-
dals-sýsla. Árið 1877 var honum veitt
Dalasýsla. Skúli heitinn var flugskarp-
ur maður, prýðilega að sjer í ýmsum
fræðigreinum og góður drengur. Hann
mátti heita þrotinn að heilsu síðasta ár-
ið, sem hann lifði. 716.
Konunglegt umboð (Com-
mlssorium). Jón landshöfðingjaritari
Jónsson hefir nú fengið konunglegt um-
boð til þess að dæma í málum út af
broti á veiðivjelum kaupmanns Thom-
sens í Elliðaánum gegn yfir 30 söku-
dólgum, þar á meðal þorbjörgu yfir-
setukonu Sveinsdóttur, Kristni í Engey,
Sæmundi á Elliðavatni, o. s. frv. SölllU-
leiðis er lionum með sama umboði
falið, að liefja raunsókn gegn Krist-
jáni sýslumanni Jónssyni fyrir em-
fisettisfærslu lians í Elliðaáamálunum.
LEIÐRJBTTING. í síðasta blaði ísafold-
ar, 75. slðu, 2. dálki, 27. h'nu að ofan les-
ist: kvartinn og kvintinn stór og lítil
tónbil eins og höf. segir.
AUGLÝSINGAR.
KVENNASKÓLINN í REYKJAVIK.
Næstkomandi vetur (frá 1. okt. til 14. maí)
er áformað, að tilsögn verði haldið áfram í
skólanum, eins og að undanförnu. Verður
því móttaka veitt konfirmeruðum, efnilegum
ogsiðprúðum stúlkum, og getaþær semvilja
fengið bústað og fæði í skólahúsinu. Til-
sögnin verður ókeypis bæði til munns og
handa og í sömu námsgreinum eins og hing-
að til, þó mun í hannirða-bekknum meiri
tíma varið en áður til fatasaums. þeir, sem
vilja koma dætrum sínum í skólann, eru
beðnir að snúa sjer til mín sem allra fyrst.
Reykjavík, 25. júlí 1881.
Thóra Melsteð.
Tómar eikartunnur járnbentar (undan
hörðu steinkalki) fást keyptar hjá mjer fyrir
2.50, 2.75 og 3 kr. Rvík, 5. ág. 1881.
Sigm. Guðmundsson.
Góður nýr »Magazín«-ofn fæst keyptur
hjá mjer einungis vegna þess, að hann er of
stór í herbergi það, sem hann átti að vera í.
Rvík, 5. ág. 1881. L. A. Knudsen.
Jeg undirritaður tapaði nýl. hryssu ljósri
að lit, heldur litilli, 5 vetra, alveg afrakaðri,
aljárnaðri, með óljósu marki: bita a. vinstra.
Jegbið hvernþann, er hittir þessa hryssu, að
komahenni til mín fyrir sanngjarnaþóknun.
Miðholti við Rvík, 1881. pórður pórðarson.
Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil.
Prentuð í Isafoldar prentsmiðju.