Ísafold - 06.06.1883, Page 1

Ísafold - 06.06.1883, Page 1
Argangurinn, 32blöð, kostar 3 kr. innanlands, en í Danm., Svíþjóð og Norvegi um 3J/2 kr., í öðrum löndum 4 kr. Borgist í júlím. innanlands, erlendis fyrir fram. ISAFOLD. Auglýsin’gir kosta þetta hverj línar: aur. (með meginletri ... 10 \með smáletri..... 8 H Imeð meginletri ... 12 ' '\með smáletri...15 unitiíl Pöntun er bindandi fyrir ár. — Uppsögn til áraskipta með tveggja mánaða fyrirvara. 3 iiiiiiiiiiiiniiiiinmii X. 12. Reykjavík, Miðvikudaginn 6. júnímán. 1883. Forngripasafnið. í stjórn fornleifafjelag'sins var sú uppá- stunga borin upp 27. okt. 1881, að fje- lagið reyndi til að útvega forngripa- safninu eptirmynd af langskipinu, er fannst í Noregi á Vestfold hjá Gokstað í Sandeherred um vorið 1880, og sömu- leiðis af kirkjuhurðinni frá Valþjófs- stað, sem nú er á forngripasafninu í Kaupmannahöfn, og að leitað yrði sam- skota til góðra manna, hvað skipið á- hrærði, en forngripasafnið borgaði það sem á kynni að vanta. Á þetta var fallist i stjórninni, og á aðalfundi var forseta falið á hendur að skrifa „For- eningen til norske Fortidsmindesmær- kers Bevaring11 í Kristjaníu, áhrærandi fornskipið, en til kammerherra J. J. A. Worsaae, sem er yfirmaðr yfir því „Kongelige Museum for nordiske Old- sager“ 1 Kaupmh. þessi uppástunga hafði þann árangur, að með gufuskip- inu Laura, er kom 26. apríl, kom kirkju- hurðin, eða trú afsteypaúr gipsi af henni, og er hún eikarmáluð yfir, svo að ekki þekkist frá hinni upprunalegu hurð, sá silfurrósaði hringur, sem er í miðri hurðinni, er og einkanlega trúlega ept- irgjörður; hurð þessi er einn hinn ágæt- asti gripur, og öll útskorin, mun hún vera gjörð um 1200 hjer á íslandi, en að því er menn hafa sagt mjer, sem sjeð hafa hurðina á Valþjófsstað, rnun hún hafa verið send til Kaupmh. nokkru fyrir 1830; afsteypan af hurðinni var send hingað sem gjöf til forngripa- safnsins, og hefir hún þó kostað nokk- ur hundruð kr. J>etta mun mest að þakka kammerherra J. J. A. Worsaae, sem og áður hefir sýnt það, að hann er okkar safni velviljaður. Langskipið kom með skipinu Thyra 23. maí, eptirmyndin er nær 5 fet á lengd, trúlega eptirgjörð, og.snildarlega smíðuð, enda er fornskipið „meistara- verk“ bæði að lögun og smíði; það var fram undir 80 fet á lengd og rúm 16 fet á breidd, og mun vera hauglagt nálægt 800; margir hlutir fundust í skipinu, og í kring um það, sem ann- aðhvort voru lítt eða ekki skemmdir. N. Nicolaysen formaður fyrir „det Anti- kvariske Selskab“ í Kristianíu, sem sjálfur hefir stjórnað uppgreptrinum á skipinu, hefir ritað stóra bók á norsku og ensku um þennan merka fund, með hátt á annað hundrað myndum ; bók- ina hafði eg áður útvegað mjer og lesið með ánægju; allur kostnaður við uppgröpt á skipinu, og að koma því til Kristianíu, varð 7800 kr., og gekk til þess 2 V2 mánuður. Eptirmyndin af skipinu kostaði hátt á 500 kr. Mestall- ar gjafirnar eru hjer úr Reykjavík frá embættismönnum, kaupm. og ýmsum fl. Nokkrir menn í Norðurlandi tóku og góðan þátt í gjöfunum; verður þetta allt auglýst síðar. Jeg hygg ó- hætt að fullyrða, að þetta fornskip á- samt öllu því, er með því fannst, sje sá merkasti fundr þess kyns, sem fund- ist hefir á Norðurlöndum, og er hann því sjerstaklega þýðingarmikill fyrir oss, sem, eins og kunnugt er, höfum ritað sögu Noregs, og lýst skipum þeirr- ar þjóðar og sjóferðum; að því oss er kunnugt, hafa eigi önnur söfn fengið eptirmynd af skipinu nema eitt í Lon- don og í Stokkhólmi. Hjer leyfir hvorki timi eða rúm í blaðinu að sinni að lýsa þessum fundi nákvæmar, því það yrði töluvert langt mál, enjegmun gjöra það síðar, og þá einnig tala meira um kirkjuhurðina. Okkar fyrverandi landshöfðingi Hilm- ar Finsen, nú Overpresident í Kaupmh. gaf forngripasafninu áður en hann fór hjeðan, mikinn fjölda af gömlum pen- ingum, bæði úr silfri og kopar eða málmblendingi. J>eir eru frá ýmsum löndum og ýmsum tímum, hefir hann safnað þeim um langan tíma, vega þeir allir saman rúm 4 pund; þar að auki gaf hann glasbikar stóran, með nafna- drætti úr gulli i hliðinni, og gullrönd umhverfis barminn. J>ennan bikar hafði hann þegið að gjöf af kaupm. Guðm. Thorgrimsen á Eyrarbakka, og gaf hann með hans leyfi; bikarinn er sagð- ur að vera úr eign Skúla landfógeta. Landshöfðinginn sagði mjer, að hann ekki vildi, að þessi gripur færi út úr landinu. Palaísforvalter, Conservator Steffen- sen í Kaupmh. hefir og gefið safninu gipsafsteypu „bronseraða“, af því svo kallaða Vatnsfjarðarljóni, sem er á safn- inu í Kaupmh. J>að er úr bronce, og er úr kirkjunni í Vatnsfirði í ísafjarðar- sýslu. J>etta ljón er holt innan og er vígsluvatnsker; slík ker voru vanalega við kirkjurnar í katolskum sið, og skyldu þau standa á altarinu með vígðu vatni. og eru kölluð „Lavatorier“; safnið á eitt áður úr bronce. Safnið hefir og fengið mikið af bókum frá ýmsum fje- lögum erlendis, gegnum fornleifafjelag- ið, nokkrar meðal þeirra eru með myndum af fornum hlutum, sem mjög eru hjer nauðsynlegar til samanburðar við það sem fyrir er. J>etta ár hefir því verið það mesta „veltiár11 fyrir forngripasafnið, og með því að keypt hefir verið meira en nokkru sinni áður; margt hefir og verið gefið. Til að koma safninu áleiðis þannig, að það geti orðið til upplýs- ingar vorum fyrri tíma, og þjóðinni til sóma, þá þarf að sýna mikinn áhuga; það fyrsta aðalatriði og sem í bráð liggur mest á, er að ná saman þeim gömlum hlutum, sem enn kunna að vera til í landinu, því annars missast þeir fyrir fullt og allt, af þeim ástæð- um sem jeg opt hefi tekið fram; eina ráðið er til þessa að ferðast og safna saman því sem fæst, eins og reynzlan hefir sýnt, síðan fornleifafjelagið byrj- aði, en til alls þessa þarf töluverðan fjárstyrk, en slíkar ferðir geta orðið að miklum notum, þegar um leið er gjörð rannsókn á okkar fornu sögum. Forn- gripasafnið er nú orðið þessi síðustu ár svo umfangsmikið, að ekki kemst það fyrir í þeim herbergjum, sem því voru ætluð, og hefir það þó fengið eitt her- bergi í viðbót í vesturenda þinghússins, að sunnanverðu. Sigurður Vigfússon. I ísafold 2. des. f. á. settum vjer s/íýrslu um kvennaskólann í Reykjavík; út af skýrslu þessari tók forstöðukona skólans, frú Th. Melsted, sjer tilefni til að setja all- langa grein í Isafold 31. jan. þ. á., er átti að vera sumpart til að leiðrjetta það, sem vjer höfðum sagt og sumpart til að upplýsa það betur, er hún ætlaði að oss hefði verið ókunnugt. En það, sem hún vill láta heita leiðrjettingar eða nýjar upplýsingar, er sumpart það, sem ekki kom því máli við, sem um var að ræða, sumpart er það framsett á þann hátt, að það gefur að eins skakkar hugmyndir um þau atriði, sem frá er skýrt, en sakir þess, að atriði þessi flest eru þýðingarlaus fyrir stofnunina og snerta að eins forstöðukonuna sjálfa, þá leiðum vjer hjá oss að leiðrjetta það, hvern- ig þau eru framsett, því að það yrði lengra mál en svo, að þýðing þess fyrir almenning tæki því. Eitt atriði var það þó, er rit- stjóri Isafoldar þegar bar til baka, og sem

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.