Ísafold - 09.04.1884, Síða 1

Ísafold - 09.04.1884, Síða 1
Keniur út á miðTikudagsniorgna. Verí árgangsins (50 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgisl tjrir miBjan júl'mánuð. ÍSAFOLD. Uppsögn (skritl,) iiundin við áramóL ó- jild nema komm sje lil úlg. tjrir L ott Atgreiðslustota i Isatoldarprenlsm. L sai* XI 15. Reykjavík, miðvikudaginn 9. aprílmán. 18 84. 57. ínnlendar frjettir Frá Grímsey og Grímsey- ingum 111 (síðasti kafli). 59. Úr ýmsum áttum (bindindisirál o. fl.) 60. Auglýsingar. Brauð laust: Otrardalur 4/4 . . . . 297 + 40o Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I — 2 Lnndsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2 útlán md., mvd. og ld. kl. 2—5 Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4~3 Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. Apríl ánóttu um hád. fm. em. frr». em. M. 2. +- 4 + 2 29.O 29,Q 0 b () b F. 3- -r- 4 0 30.0 31.1 A d h A d h F. (. -5- 4 + 1 29,9 29,7 Nab hv A h b L. 5. -r- 5 0 29,3 2Q,4 Nhv b N h d S. 6. -r- 3 + 5 29,2 29.2 N hv b N h b M.y. . * 2 + 4 29.3 29,2 N h d N h d Þ. 8. + 2 + » 29.3 29-4 Sa h d Sa h b Athgr. J>essa viku hefir veður fremur verið stormasamt, og hefir vindur blásið frá norðri mik- inn part vikunnar, optast hvass til djúpanna, þótt hann hafi verið hægur innfjarðar; 3. fjell tals rerð- ur snjór um kvöldið, en sá snjór er allur á burtu, og hjer auð og klakalaus jörð. I dag 8. hlýasta vorveður með hægum landsynningi. Reykjavik 9. april. Lansn frá prestskap hefir fengið 3. þ. m. stra f>órður Thorgrimsen í Otr- ardal. Timburskip frá Norvegi, gufuskipið Bergljót, 371 smálestir, kom hjer 2. þ. m., frá Stafangri. Hafði komið við á Seyðisfirði. Með skipinu var Otto Wathne, framkvæmdarstjóri hins sunn- lenzka síldveiðifjelags, og bróðir hans Herm. Wathne, er ætlar að setja hjer á stofn fasta timburverzlun. Skipið fer aptur á morgun til Seyðisfjarðar og síðan heimleiðis. Hvalveiðaskip norskt kom hjer í gær, eptir 5 daga ferð frá Christiania, og hjelt samdægurs til ísafjarðar, í því skyni að reka þar veiði í sumar um Djúpið. Skipið er gufubátur, 35 smá- lestir að stærð, og heitir ísafold, en formaður Foyn, frændi gamla Sv. Foyns, sem ætla sjer að hætta við veiðiskap sinn hjer við land að öllu leyti; honum þykir þessi tilraun í fyrra hafa orðið næsta arðlítil. J>essi Foyn, sem hjer var nú á ferð, var við veiði í fyrra sumar vestra á sama skip- inu. Eiga þeir, hann og fjelagi hans Lars Mons, hús við Álptafjörð, með miklum bræðsluáhöldum, er Sv. Foyn kom þar upp í fyrra, en hvarf síðan frá og færði sig austur á Norðfjörð. Aflalbrögð sjerlega góð á Austfjörð- nm, eptir því sem frjettist með norska skipinu, bæði síldarafli og þorskafli. Fjögur gufuskip norsk búin að koma til Austfjarða nú í vor. Svo er og byrjaður nokkur afli und- ir Eyjafjöllum, og við I.andeyjar, á Eyrarbakka og í þ>orlákshöfn bezti afli, bæði af ýsu og eins af þorski nú síð- ustu dagana. Hjer við Faxaflóa enn semfyr mjög lítið um gæftir og jafnvel tregt um afla þó gefi. Fiskitökuskipið enska ófarið enn ; hefir mjög lítið innhenzt, vegna gæfta- leysisins; fjekk þó 17 smálestir (34,000 pd.) f gær. Iimbrotsþjófnaður var framinn fyr- ir skömmu í búð einni hjer í Rvík um nótt : tæmd peningaskúffa í búðar- borðinu, með á að gizka 100 kr.; öðru ekki stolið. Nokkru síðar, 4. þ. m. seint um kvöld, eptir háttatíma, var ráðizt inn í íbúðarhús hjer f bænum, í fjarveru húsbónda, af manni með skýlu fyrir andliti, og rannsökuð hirzla, kom- móða, þar sem húsbóndi var vanur að geyma peninga sína. Konan á heim- ilinu, sen; var ein heima af fullorðnu fólki, varð vör við umganginn og kom að áður þjófurinn var búinn að ljúka sjer af. Skauzt hann þá út ,og hratt henni úr vegi fyrir sjer um leið ; þó meiddist hún ekki. Ekki hafði honum fjenazt: hafði ekki tekizt að ná upp þeirri skúffunni, sem peningarnir voru í. Frá Grímsey og Grímseyingum. III. (Síðasti kafli). Bæir eru hjer 10, én 12 búendur, og á hver þeirra fjórróið fiskifar, en tveir eiga tvö. Sjaldan er öllum förum þessum í senn haldið til fiskjar nema ef vera skyldi í logni yfir hásumar, því þá róa menn stundum ein- ir á fari. þá er róið mjög skammt, hálfa viku og styttra, en á haustUm og um vetr- artímann sækja menn dýpra, stundum viku til hálfrar annarar og jafnveltvær, þegar út- lit er tryggilegt og sjór og vindur eigi banna. Onnur veiðarfæri hafa þeir eigi en handfæri og á sumrum leggja þeir stundum hauka- lóðir. Sjómenn eru þeir’ góðir og kunna vel með segl að fara. Svo dásamlega hefir drottinn varðveitt þá í öllum hinum hættu- legu ferðum þeirra og afiabrögðum, að það eru yfir 50 ár síðan nokkur þeirra hefir í sjó farizt, nema einn bóndi, er reri með ung- lingspilti til fiskjar um hásumar skömmu áður en ég kom hjer. Aldrei hafði þann dag verið nema lítið fiskigráð, en hvorki varð hjeðan framar vart við þá nje bytt- una. Aptur komu slysfarir í bjarginu hjer á fyrri tímum eigi sjaldan fyrir. Stundum fjellu menn líka af brún, eða hrundi á þá, er þeir gengu fjöruna neðan undir, og einn maður hefir farizt úr handvað síðan eg kom hjer, ungur og efnilegur bóndi, og mundi eg eptir engum vandalausum manni hjer hafa meira sjeð. Fuglinn fer hjer venjulega að setjast í bjargið þegar bærileg er tíð úr því Einmán- uður kemur, og þegar hann er farinn að stað- næmast, leggja menn smáfleka með hross- hárssnörum á hyllur í bjarginu, draga snæri í gegnum göt á endunum og festa við steina, svo þeir tolli, og fá sjer með þessu opt og tíð- um nýjan fugl til sumarmálanna og stundum páskanna; er það helzt langvía og skegla eða rita, og þegar lengra kemur fram á sumarið álka. Lundinn kemur um sumarmálin ög er hann veiddur í strengi á brún og í urðum undir bjarginu, en eigi er hann hjer teljandi nema á syðsta og yzta bænum. Æðarvarp er hjer eigi heldur teljandi nema á tveim bæjum og þó lítið, einkum á öðrum þeirra. Aldrei er svo hart í ári, að eigi sjáist fýlungs- egg í bjargi um vinnuhjúaskildaga, en egg hans eru eigi tekin, þar eð unginn þykir svo miklu arðeimri. Aður en langvían og álkan taka að verpa, hjér um bil 6 vikur af sumri, eru flekarnir teknir upp. Skeglan verpir og um sama leyti, eða litlu seinna; svo er mikið kríu- varp uppi á eynni, tína börn það og koina hróðug heim með afla sinn. þegar meiri hluti bjargfuglsins er búinn að verpa, fer hver búandi til bjargs með hjú sín, þau erverkfær eru, tilþess að ná eggj- unum. Bjargið er 60 faðma hátt þar sem það er hæst; þarf þar átta menn fullgilda eða níu upp og ofan með kvennfólki til þess að draga sigamanninn úr bjargi. Festin er tveir eða þrír kaðlar, eptir því sem þeir eru álitnir traustir, og er enda hennar brugðið utan um sigamanninn þannig, að poki með fiðurúrgangi eða heyi er hafður undir til mýkinda og sfn kaðallykkja gengur niður fyrir hvort læri, sem kallast fótafestar, vafð- ar með flóka eða lepp. Síðan fer sigamað- urinn í víðan strigastakk, er hann gyrðir

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.