Ísafold - 07.05.1884, Page 1
[eiiiur úl á miðvikudajsmorjna. íerí
árgangsins (5Ö arka) 4 kr.; erlendís
5 kr. Borjist Ijrir miBjan júlímánuð.
ISAFOLD.
Uppsöjn (skriÐ.) bundin við áraraól, ó-
gild nema komin sje lil útg. Ijrir 1. okt.
Algreiðslustofa i Isaloldarprenlsm. i. sal.
XI 19.
Reykjavík, miðvikudaginn 7. maíman.
18 84.
73. Tilvís. Innlendar frjettir.
74. Lög um fiskiveiðar í landhelgi.
Nokkur orð um för Flosa til hremmnnatv
76. Hitt og þetta. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I -?
Lnndsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. I 2 — 2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—5
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4 — 5
Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
Apríl maí Hiti (Cels.g Lþmælir Veður.ítt.
ánóttu|um hád. fm. em. fm. em.
M. 30. 0 + 1 28, q 28,8 A d h A d h
F. 1. 0 + 5 28,9 29,1 N h b N h b
F. 2. + 3 + 9 29.2 '29-3 A hv b N hv b
L. 3. 0 + 4 29.3 29.7 N hv b N hv b
S. 4. 4- 1 + 1 29.9 29,9 N hv b N h b
M. 5. +- 5 + 4 30 3°.i Nah b Na h b
í>. 6. 4- 1 + 3 30 30 A h b
Athgr. Umliðna viku hefir veður verið kaldara
en að undanförnu; opt talsvert frost á nótttu, en
næstum daglega hefir lopt verið bjart og fagurt
veður að öðru leyti. Síðari hluta vikunnar hefir
vindur blásið frá norðri og hefir verið stórviðri til
djúpanna, þótt hann venjulega hafi verið hægur
innfjarðar.
SfT Óskemmd expl. af þ. á. Ísafold. ,8
(20. febr.) kaupir útgefandinn fullu verði.
f 7. þ. m. (april) þóknaðist guði að kalla
frá þessu lífi, til betra lífs, okkar ástkœra
góða son Árna, er fœddist í þennan heim 8.
d. ágústmán. 1861.—Hann ólst upp í foreldra
húsum og lœrði þar undir skóla, tók inntöku-
próf með öðrum nýsveinum vorið 1877 og fór
samsumars um haustið i skólann, en eptir 3
vikna veru þar sagði hann sig sjálfur úr
skóla og hvarf heim aptur til okkar foreldr-
anna og var hjá okkur þann vetur.—Vorið
eptir 1878 fór hann til Snæbjarnar bróður
síns, og var síðan við verzlun hans, allt af með
veikri heilsu; eptir miklar útstaðnar líðanir i
7 daga fjekk dauðinn sigrazt á lífi hans.
En öllum þeim, sem á einhvern hátt tóku
þátt i líðun hans og önnuðust hans veika líf
í hans þungbœra dauðastríði , öllum þeim
þökkum við af hrœrðu hjarta, og biðjum þeim
blessunar drottins. Sömuleiðis þökkum við
hinum mörgu, er tuku hhitdeild i sorg okkar
með því að fylgja syni okkar til hans sein-
asta hvílurúms, laugardaginn 12. s. m.
Saurboe 24. aprílmán. 1884.
f>orv. Böðvarsson. SigríðurSnæbjarnardóttir.
Reykjavík, 7. maí 1884.
Brauð veitt. Staður á Reykjanesi
veittur í gær af landshöfðingja síra Jóni
Jónssyni á Söndum í Dýrafirði; auk hans
sóttu eigi aðrir en síra Isleifur Einarsson á
Stað í Steingrímsfirði.
Umboðsinaður í fdngeyraklausturs-
umboði skipaður af landshöfðingja 21. apríl
dbrmaður Benidikt Blöndal.
Sýsla laus. Sýslumanni Skagfirðinga
Eggerti Briem, r. dbr., veitt lausn frá em-
bætti af konungi í náð fyrir aldurs sakir 29.
marz frá 1. ágúst þ. á.
Skipstrand. Kaupskip, sem átti að
fara á Skagaströnd, til Höepfners verzlunar,
hleypti upp á Ingólfsfjörð á Ströndum 6.
apríl, töluvert brotið og hafði misst af sjer
tvo menn. Varð þó fleytt yfir flóann síðar
yfir á Skagaströnd, og mun að líkindum
hafa verið dæmt þar óhaffært og selt við
uppboð. Skipið var að eins 4 ára gamalt;
65 lestir að stærð.
Mannalát og slysfarir. Hinn 16.
apríl barst skipi á í lendingu úr fiski-
róðri undir Eyjafjöllum og drukknuðu
2 menn, bændur frá Klömbru: Ólafur
Unason, ungur efnismaður mesti, og Ingi-
mundur Sigurðsson.— 26. marz varð maður
undir þilskipi, er var verið að setja fram til
hákarlaveiða á Flateyri við Önundarfjörð,
og beið bana af. »þar verður að moka frá
skipunum, svo þau geti flotið í hrófinu, og
er þá vanalegt að hafa tunnur undir síðum
þeirra, eða skorðum, rígbundnar upp með
reiðanum, svo þau geti á hvoruga hliðina
dottið, en í þess stað var nú engin skorða
höfð, og ekki hin minnsta tilraun gerð til
þess að skorða skipið, en fólkið inn undir
annari síðunni niðri í mannhæðar djúpri
gröf, sem var undir endilangri hliðinni á
skipinu allt ofan fyrir kjöl, en menn sem
voru þar nærri við annað skip, sáu, að skip-
ið fór að hallast á þá hlið, sem mennirnir
voru inn undir, og var þegar kallað og þeir
látnir vita, sem voru að moka; hlupu þegar
allir út undan, nema þessi eini, sem varð
síðastur, og lenti undir skipinu. Líklega
hefir hann dáið strax ; en ofan á hið fyrra
ófyrirgefanlega skeytingarleysi, að hafa skip-
ið með öllu óskorðað, þá var því við bætt, að
manninum var ekki náð þann dag, og ekki
fyr en skipið var flotið burt þaðan sem það
var daginn eptir. Sjálfsagt hefði þó verið
hægðarleikur að ná manninum strax, með
því að lypta skipinu upp með vogartrjám,
»dúnkrapti« eða »topptalíu«. Maðurinn var
ungur og efnilegur, Guðmundur Hans að
nafni, frá Gerðhömrum, einkavon móður
sinnar, aldraðrar ekkju, og harmdauður ætt-
ingjum og vinum, þvi hann var afbragð
margra ungra manna«.
Fjárkláðinn fyrir anstan. Um það
efni er Isafold skrifað á þessa leið úr þing-
eyjarsýslu :
»Akaflega illa er mönnum hjer við fjár-
kláða-fregnina austan, og undarlegt þykir
mönnum hvað lítið frjettist af aðgerðum
yfirvaldanna. Austri þegir alveg um þetta,
eins og ekkert væri um að vera, en lausa-
fregnir að austan segja að kláðinn sje að út-
breiðast í næði. Síðasta fregn sagði að nú
mundi eiga að fara að lœkna kláðann, en
ekki skera ! þó hafa yfirvöldin hjer nyrðra
rumskazt, því nýlega skipaði sýslumaður
vor öllum hreppstjórum hjer í sýslunni, ept-
ir undirlagi amtmanns, að gera nákvæma
skoðun á öllu sauðfje, og gefa skýrslu um heil-
brigðiog þriffjárins. Ekki vita menn glöggt
hvertilgangurer með skoðun þessa.þvíengar
líkur eru tilaðhjersje nokkuróþrifísauðfje,
heldur þvert á móti, því hjer munu flestir
hafa fóðrað fje sitt með bezta móti, sem
eðlilegt er, því það er mikið færra en það
hefir verið að undanförnu, en fóðurbyrgðir
víðast nægar og veturinn mildur. Sumuin
sýnist að amtmaðurinn hefði heldur átt að
sjá um að þessar fáu kláðarollur eystra
(þær vorutrúi jeg 30upphaflega) væruskornar
tafarlaust, því þá var þessu máli lokið, en
nú er vansjeð hvar staðar nemur. það er
illt ef segja má um oss íslendinga: »Sjö
sinnum brennir svínið sig á sama soðinu«.
llallærÍKsainskotiii í Danmörku.
þar um hefir einn úr samskotaforstöðunefnd-
inni skrifað hingað 3. apríl á þessa leið :
þetta mál, sem að vissu leyti má skoða
sem aflokið, er það þó ekki í rauninni, og
mun ekki verða búið að ganga frá því al-
gjörlega fyr en eptir langan tíma, því að þótt
enn hafi verið látið töluvert úti á þessu ári,
eptir tillögum hins setta landshöfðingja,
amtm. Bergs Thorberg, þá er nefndin svo
Ián8öm að eiga enn eptir í sjóði töluverðar
eptirstöðvar, sem munu geta komið íslandi
í góðar þarfir eptirleiðis, eptir því sem yfir-
völd landsins fara fram á. það sem til er
nú í 8jóði, nemur 82,000 kr., og er það ekki
svo lítið.
En, eins og þegar er sagt, málinu sjálfu
má álítást lokið með hinu fagra og innilega
ávarpi alþingis til hans hátignar konungs-
ins. Var gerður að því góður rómur hjer
almennt, vegna þess hvað það er sæmilega
og rekkmannlega orðað (»fandt almindelig
Gjenklang her ved sit værdige og mandige
Sprog.) [??].